Þjóðviljinn - 06.10.1977, Qupperneq 3
Fimmtudagur 6. október 1977 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Indira Gandhi virðist nú ætla aö herða árásir slnar gegn stjórn Desai,
og vist er að hin álappalega handtaka mun ekki spilla fyrir þeirri með-
ferð.
Mikil fundar-
höld til studn-
ings við Indíru
en blöð gagnrýna stjórnina harðlega
NÝJU DELHI 5/10 Reuter —
Helstu dagblöð Indlands gagn-
rýndu i dag stjórnina harölega
fyrir meðferð hennar á máli
Indiru Gandhi, fyrrverandi for-
sætisráöherra. Domari einn
fyrirskipaði i gær að hún skyldi
látin laus úr gæsluvarðhaldi án
nokkurra skilyrða á þeim for-
sendum að engin ástæða væri til
að álita að ákærurnar á hendur
henni væru á rökum reistar.
Mikiir fjöidafundir voru haldnir
henni til stuðnings um allt Ind-
land i dag, en stjórnin áfrýjaði
þessum úrskurði dómarans til
hæstaréttar Delhi og mun hann
taka málið til meðferðar á
morgun. Heldur stjórnin þvi fram
að dómarinn hafiekki haft vald til
að láta frú Gandhi lausa án nokk-
urra skilyrða, hefði hún átt að
vera áfram i gæsluvarðhaldi eða
vera látin laus gegn tryggingu.
Blaðið „The Times og India”
sagöi að þessir atburðir hefðu al-
varlega veikt trú manna á rikis-
stjórn janata-flokksins og „The
Indina Express” sagði „þótt þeir
sem bera ábyrgð á málsmeðferð-
inni hefðu beinlinis ætlað að fá frú
Gandhi i hendur vopn i herferð
hennar gegn stjórninni, hefðu
þeir ekki getað unnið kænlegar að
þvi”.
Um 25 000 manns hylltu frú
Gandhi i Bombay I gærkvöldi, en
siðan byrjaði hún á þriggja daga
ferð um fylkið Gujarat, sem er
heimaslóðir Morarji Desai, for-
sætisráðherra. Flutti hún ræður á
fjölmörgum fundum á leiðinni frá
Bombay til Suður-Gujarat.
Meira en 200 fylgismenn frú
Gandhi voru handteknir i Cal-
cutta fyrir að stöðva umferð með
mötmælaaðgerðum sinum, en
þeir brenndu m.a. mynd af
Charan Singh, innanrikisráð-
herra, og æptu vigorð gegn
stjórninni. Þeir voru siðan látnir
lausir gegn tryggingu. 1 Aligarh,
nálægt Nýju Delhi, voru hundrað
menn handteknir fyrir að brjóta
bann sem lagt hafði verið við úti-
fundum.
Sá alþýðustuðningur sem frú
Gandhi hefur nú fengið, hefur
mjög aukið kjark yfirmanna kon-
gress-flokksins, sem beið mik-
inn ósigur i kosningunum i vor, að
þvi er fréttamenn telja.
„Hundraö blóm” skulu
blómgast á ný í Kína
PEKING 4/10 Reuter — i
grein sem birtist i Alþýðu-
dagblaðinu i Peking í dag
var hvatt til nýrrar efling-
ar bókmennta og lista í
anda hins þekkta vígorðs
Maós heitins formanns:
//látum hundrað blóm
blómgast og hundrað
stefnurvera í samkeppni".
Birting þessarar greinar
þykir benda til frekari
frjálslyndisstefnu kín-
verskra ráðamanna eftir
fall „f jórmenninganna"/
en þó búast fréttaskýrend-
ur ekki við því að þeir gef i
algert frelsi í menningar-
málum heldur hafi eftirlit
með þeirri þróun sem þar
muni verða.
1 greininni, sem var eftir „hug-
myndafræðihóp” menningar-
málaráðuneytisins, var ráðist
harkalega á „fjórmenningana”
fyrir einræði i menningarmálum.
Stóð þar að „það myndi kosta
gifurlega áreynslu að hreinsa
burt það sorp sem fjórmenn-
ingarnir hefðu skilið eftir og láta
blóm sósialiskra bókmennta og
lista blómgast”.
Það var um 1957 sem Mao Tse-
tung lýsti þvi yfir að i menningar-
málum hefðu „hundrað blóm rétt
til að blómgast” og veitti aukið
frelsi á þvi sviði, en það timabil
var þó skammvinnt
89,7 %
sögðu „NEI”
Endanleg úrslit i atkvæðagreiöslu i félögum bæjarstarfsmanna um-
sáttatillöguna urðu þau að 89,7% sögðu nei, en 10,3% sögðu já. Flest bæjar-
og sveitarfélög samþykktu sáttatillöguna, en í Vestmannaeyjum, Garðabæ,
Seltjarnarneskaupstað, Akranesi og Hveragerði var hún felld. A Akranesi
tók bæjarstjórnin ekki afstöðu til sáttatillögunnar. úrslit urðu annars sem
hér segir:
Afstaöa
—...... bæjar-
A kjör- Atkv. —..... _ — og sveita-
. skrá_ _ greiddu Já_Nei Auöir ógildir stjórna
Reykjavík . 2196 ' 1899 175 1697 22 5 Já
Hjúkrunarfél. isl. -- -- — ----------- - ——- —
í Reykjavik 195--- 174 ---------- io— 158.. 5- - l-.Já
Mosfellssveit 30 30 5 25 0 0 Já
Akranes 135" 129 10 117 2 0 Engin afstaöa
Isaf jöröur 72.........66 9' 55----1------- 1 Já
Siglufjöröur 47- 44 3-- 38 --3-----0- Já
Sauöárkrókur 52____ 48 _ 2_____ 44 1 1 Já
Akureyri 336 300 24 276 0 0
Hjúkrunarfél. Isl. -....
Akureyri 64-------- 59 5----54---1_ 0 Já
Húsavik 86________ 79 7 71 0 . 0...Já
Neskaupstaður 34 33 0 33 3 0 Já
Vestmannaeyjar 112 78 8 67 3 0 Nei
Suðurland 82 72 — 8 61 1 0 Já Hverag nei
Keflavík 113 103 27. 75 3 0 Já
Hafnarf jöröur 191_______ 181 24 154 0 0 Já
Garðabær 47 41 12 28 2 1 Nei
Kópavogur 179 146 23 121---0——0~Já
Seltjarnarnesk. 42 39 — 4 35 0 0 Nei —
AHS: 4013 3521 ' 356 3.09 47 ' 9
Nei 89,7% Já 10,3%
Félög
bæjar-
starfs-
manna
Táknræn „gyöingabrenna”
í Munchen
BONN 4/10 Reuter —
Eliefu ungum her-
foringjum, sem tóku
þátt i „táknrænni
gyðingabrennu” i her-
skóla i Miinchen, var
visað úr herþjónustu um
stundarsakir i dag og
var þeim bannað að
Udæðast einkennisbún-
ingi sinum.
Það var vestur-þýska varnar-
málaráöuneytið sem tók þessa
ákvörðun að vikja herforingjun-
um Ur þjónustu þangaö til annað
væri ákveöið, og hefur það einnig
fyrirskipað rannsókn á atvikinu.
Samkvæmt þvi sem fram hefur
komið I fréttum köstuðu her-
foringjarnir bréfmiðum, sem á
var skrifaö orðið „júði”, á bál i
drykkjuveislu, æptu nasista-
kveöjuna „sieg heil”, og sungu
flokkssönginn „Horst Wessel”.
Yfirmenn i herskólanum fréttu
strax um þessa atburði, en töldu
að þeir væru „barnabrek” og
skýrðu yfirmönnum sinum ekki
frá þeim, en sagan kvisaöist þó út
og birtist I vestur-þýskum dag-
blöðum.
Þessir atburðir hafa komið
vestur-þýskum yfirvöldum I
nokkumbobba, þar sem þau mót-
mæltu nýlega eindregið þeim full-
yrðingum Willy Brandts fyrrver-
andi kanslara að ný bylgja nas-
isma væri komin upp I landinu.
Bækur á gjafverði
TÍU ÞÚSUND
MENNIRNIR í BRÚNNI
Já, þaö er ótrúlegt en satt, að hjá Ægisút-
gáfunni, Sólvallagötu 74 fást 20 inn-
bundnar, ógallaöar bækur fyrir aöeins
tíu þúsund krónur.
Þessar bækur má velja úr 40 bókum.
---------TÍU ÞUSÚND------------
ENNFREMUR
margarfleiri bækur girnilegar og ódýrar
5 fróðleg og falleg bindi á tíu
þúsund krónur.
AFBURÐAMENN OG
ÖRLAGAVALDAR
4 stórfróðleg bindi á átta þús-
und krónur.
Súgfirðingabók er afgreidd til áskrifenda hjá okkur og hjá Sigrúnu Sturludótt-
ur, Hlíðargerði 4. Skipstjóralærðum mönnum er bent á að hér er einnig tekið
við myndum og skýrslum í Skipstjóra- og stýrimannatalið
Það er því ærið tilefni til að líta inn.
Ægisútgáfan,
Sólvallagötu 74.