Þjóðviljinn - 06.10.1977, Qupperneq 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 6. október 1977
AKVARÐANIR KJARADEILUNEFNDAR:
Ekki er tekið tOlit til óska hjúknmar-
fræðinga og lögreglumanna
Ákvarðanir kjaradeilu-
nefndar eru umdeildar,
einsog fram kom t.d. í til-
kynningu verkfallsnefndar
BSRB í Þjóðviljanum í
gær. Á blaðamannafundi í
fyrradag tóku nefndar-
menn fram, að nefndin
hefði komist að sameigin-
legri niðurstöðu, þó að
ágreiningur hefði verið
mikill í upphafi. Bæði full-
trúar ríkisins og BSRB í
nefndinni hafi þvi orðið að
slá af kröfum sinum.
Hjúkrunarfræðingar vildu láta
loka hluta af spitaladeildum, en
halda uppi ákveðinni lágmarks-
Á 2. þúsund manns
kvaddir til starfa
í verkfalli BSRB
Kjaradeilunefnd vinnur nú að
þvi að skipta vinnuskyldu milli
þeirra manna sem ákveðið er að
starfi i verkfalli BSRB og á-
kveða hve margir muni starfa I
einstökum starfsþáttum. Lik-
lega veröa milli 1000—2000
manns kvaddir til starfa í verk-
fallinu samkv. ákvörðun kjara-
deilunefndar, og er lögreglulið
og starfsliö sjúkrahúsa lang-
stærsti hluti þess hóps.
Engin heimild er i lögum um
undanþágur í verkfalli BSRB,
þ.e. svipað þeim heimildum
sem verkalýðsfélögin hafa til að
veita undanþágur. Enginn aðili
að verkfalli BSRB getur veitt
undanþágu. Aðeins Kjaradeilu-
nefnd ákveður hverjir eigi aö
starfa, svo haldiö verði uppi
nauðsynlegri öryggis- og heilsu-
gæslu.
Ýmsir starfshópar fá ekki
greidd laun sln ef verkf all BSRB
dregst á langinn. Þar má nefna
verkamenn hjá ríkisfyrirtækj-
um og starfsfólk sjUkrahUsa.
þjónustu. Rætt var við forráða-
menn sjUkrahUsa, sem töldu
ástandið á neyðarstigi nU þegar.
T.d. eru hjUkrunarfræðingar á
skurðstofum Landspitalans að-
eins 7 en gert er ráð fyrir 12 og á
Borgarspitalanum eru aðeins 8 i
stað 14. Þá er einnig talið að ann-
að starfsfólk sem að hjUkrun
vinnur sé i algeru lágmarki. í
framhaldi af þessum athugunum
leggur kjaradeilunefnd til að
starfsfólk spitalanna starfi al-
mennt áfram i verkfalli BSRB.
Hugmyndir lögreglumanna
voru þær, að um 1/4 hluti lög-
regluliðsins væri við störf i verk-
fallinu og lágmarksfjöldi, 8 menn,
á vakt. Reiknað er þá með minni
þörfá löggæslu m.a. vegna lokun-
ar áfengisverslana. Kjaradeilu-
nefnd ákvað hinsvegar, að lög-
reglumenn skuli almennt starfa
áfram, ef til verkfalls kemur.
Nefndarmenn tóku þó fram á
blaðamannafundi, að til greina
kæmi að endurskoða þessa
ákvörðun ef verkfall dregst á
langinn.
Flugumferðarstjórar eru ekki i
BSRB og fara þvi ekki i verkfall.
Aðstoðarmenn flugumferðar-
stjóra vinna mjög þýðingarmikil
störf og þeir taka þátt i verkfall-
inu. Telja margir liklegt, að flug-
ið stöðvist að mestu leyti af þeim
sökum.
Kyrkislanga
ljúf sem lamb
Nýlega þurfti að gera við dýra-
garðinn i bandarisku borginni St.
Louis, og varð þá að flytja „íbU-
ana” burt i bráðabirgðahUsnæði
um stundarsakir. Slikir flutning-
ar eru vitanlega mismunandi
auðveldir þar sem dýrin eru ekki
öll eins samvinnuþýð og best
hefði verið á kosið, en þó ber ekki
á öðru en að kykvendið sem
myndin sýnir sé ákaflega ánægt
yfir þvi að fá svolitla tilbreyt-
ingu: hér eru sem sé tveir starfs-
menn dýragarðsins að flytja tólf
feta langa og 75 punda þunga bur-
manska kyrkislöngu i bráða-
birgðahUsnæði sitt, og er hUn eins
og lamb i meðförum....
Hlutverk
störf
og
kjaradeilunefndar
Ákvæði um hlutverk kjara-
deilunefndar er að finna i 26. gr.
laga nr. 29/1976 og 26. gr. reglu-
gerðar nr. 236/1976. Þarerkveðið
svo á um að kjaradeilunefnd
ákveði hvaða einstakir menn
skuli vinna I verkfalli svo að hald-
ið verði uppi nauðsynlegri
öryggisvörslu og heilsugæslu.
Skal kjaradeilunefnd skipta
vinnuskyldu á milli þeirra
manna, sem starfa skulu. Starfs-
mönnum ber skylda að starfa ef
kjaradeilunefnd ákveður, og fara
laun og kjör þessara starfsmanna
meðan á verkfaili stendur eftir
þeim kjarasamningi, sem gerður
verður að loknu verkfalli.
Fram til 4. október 1977 hefur
kjaradeilunefnd haldið 24 fundi.
Fyrsta verk nefndarinnar var að
leita tilhinna ýmsu ráðuneyta og
sveitarfélaga, sem hafa starfs-
menn innan BSRB i þjónustu
sinni um ábendingar um þær
stofnanir, sem starfa að öryggis-
vörslu og heilsugæslu. Nefndin
hefur kallað á sinn fund ýmsa af
forstöðumönnum slikra stofnana
og hefur fulltrUum frá viðkom-
andi starfsmannafélögum þá
jafnframt verið gefinn kostur á að
fylgjast með og tjá sig um málin.
Að slikri athugun lokinni hefur
nefndin tekið ákvörðun um
einstök störf. Er i ákvörðunum
nefndarinnar ýmist gert ráð fyrir
að starfsmenn séu i fullu starfi,
skipti vinnuskyldu móti öðrum
samstarfsmönnum sinum eða að
forstöðumönnum stofnana sé
heimilt að kalla til starfsmenn til
vinnu í brýnum tilvikum. í
ákvörðunum sinum gerir nefndin
ráð fyrir að unnið sé með
lágmarksmannafla og eingöngu
að störfum, sem teljast til
nauösynlegrar öryggisvörslu og
heilsugæslu.
Nefndin mun að sjálfsögðu
starfa meðan á verkfalli stendur,
ef til þess kemur, og verða til
hUsa i fundársal ’ fjármálaráðu-
neytisins i Arnarhvoli. Má gera
ráð fyrir að nefndin þurfi að fjalla
um ýmis mál, sem upp kunna að
koma i verlcfalli. Þá má gera ráð
fyrir að ef verkfall stendur lengi
geti nefndin þurft að breyta fyrri
Urskurðum sinum, ef forsendur
breytast.
Þessir fara
ekki í
verkfall
Eftirtaldir starfsmenn i
BSRB mega ekki lögum
samkvæmt fara i verkfall:
A. Starfsmenn, sem skipa
eftirtalin störf:
1. Héraðsdómarar, hæsta-
réttarritari og starfsmenn
Hæstaréttar, lögreglustjór-
ar, fulltrUar lögreglustjór-
ans i Reykjavik, tollstjórar,
tollgæslustjórar og fulltrUar
saksóknara.
2. Ráðuneytisstjórar ,
skrifstofustjórar og deildar-
stjórar i ráðuneytum, sendi-
herrar, starfsmenn islenskra
sendiráða erlendis, skrif-
stofustjóri og deildarstjórar
á skrifstofu Alþingis og
starfsfólk skrifstofu forseta
Islands.
3. Starfsmenn sáttasemj-
ara rikisins.
4. Starfsmenn Alþingis,
forsætisráðuneytis, utan-
rikisráðuneytis og launa-
deildar fjármálaráðuneytis-
ins, er eigi falla undir 2. tl.
5. Forstöðumenn stjórn-
sýslustofnana rikisins og
staðgenglar þeirra.
6. Forstöðumenn atvinnu-
rekstrar- og þjónustufyrir-
tækja rikisins og staðgenglar
þeirra, nema þeir séu ráðnir
sérstakri ráðningu.
7. Aðrir þeir, er gegna em-
bættum, sem öldungis verð-
ur jafnað til embætta þeirra
manna, sem getið er i 1.-6. tl.
Fjármálaráðherra gerir
skrá yfir nöfn og störf þeirra
manna, sem falla undir
ákvæði laganna og sker
Félagsdómur Ur ágreiningi
ef hann verður.
B. Starfsmenn Landhelgis-
gæslu íslands.
C . Þeir starfsmenn, sem
starfa eiga samkvæmt
ákvörðun Kjaradeilunefnd-
ar, en frá ákvörðun hennar
var sagt i Þjóðviljanum i
gær. —eös
Stórkostlegt litaúrval af
PATONS og JAEGER garni.
100% ull. Hjá okkur eru einnig
hinar vönduðu prjónauppskriftir
frá bæði PATONS og JAEGER
Littu við i Bimm Bamm og fáðu
þér gott garn og góðar hug-
myndir.
Bimm Bamm
Vesturgötu 12 - simi 13570
: ::: '.
Egyptar fá nú
kínversk vopn
KAIRÓ Reuter — 1 hersýningu
sem fram á að fara i dag, 6. októ-
ber, mun egypski herinn sýna i
fyrsta skipti kinverskar eldflaug-
ar, sem nota á til að skjóta á skot-
mark á landi og draga um 200 km.
Birtust fyrst um þetta fréttir i
blaðinu Al-Akhbar, en fréttamenn
Reuters fengu staðfestingu á
þeim og nánari upplýsingar hjá
áreiðanlegum heimildarmönn-
um.
Egyptar fengu áður öll sin vopn
frá Sovétrikjunum, en eftir vinslit
þeirra og sovétmanna hafa þeir
snUið sér annað, og hafa þeir
fengið eldflaugar frá Kina. Engar
upplýsingar eru þó til um það hve
margar eldflaugarnar eru. Einn-
ig hafa þeir. breytt sovéskum
skriðdrekum og sett á þá vélbyss-
ur frá vesturlöndum og annan Ut-
bUnað þaðan. 1 dag , 6. október er
þess minnst að þá eru fjögur ár
liðin siðan egypski herinn fór yfir
SUes-skurð i Yom Kippur
styrjöldinni.
FÆREYJAR:
Fiskútflutningur
fyrri hluta ársins
Frá nýári til jUniloka á ári fhitti
Föroya Fiskasöla Ut 27 þús tonn
af fiski og fiskivörum fyrir 244
milj. d.kr. I islenskum kr.
8.105.680.000. Á sama tima i fyrra
varþessi Utflutningur 22 þús. tonn
og verðmæti hans 176 miljónir
danskar kr. 1 islenskum kr.
5,846.720.000. t áðurgreindu fisk-
magni voru 1000 tonn af frosinni
rækju sem fóru á Bandarikja-
markað.
Þá sendu aðrir Utflytjendur yfir
sama timabil á markað 630 tonn
af frosinni lúðu og fengu fyrir það
4,3miljónir danskar krónur. 1 is-
lenskum kr. 142,846.000.
Þá var fyrirtækiö Marr & Co i
Þórshöfn búiö að senda á markað
á ágústmánuði 23 tonn af laxi og
var jafnaðarverð 45 þús. danskar
kr. fyrir tonnið, eða 45 d. kr fyrir
kg, sem er i islenskum kr. 1474,90
fyrir kg.