Þjóðviljinn - 06.10.1977, Síða 7
Fimmtudagur 6. október 1977 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7
3Með framkvæmd tillögunnar mun miðbærinn verða
jafn líflaus á kvöldin og áður, umhverfið hins vegar
ómanneskjulegra og umferðin meiri á daginn, sem
aftur mun kalla á betri aðkomuæðar og bílastæði
Siguróur
Harðarson,
arkitekt:
Hnignun miðbæjarins
og hallærisplaiiið
Nýlega leit dagsins ljós tillaga
um mikla uppbyggingu á s.k.
framkvæmdasvæöi viö Aöal-
stræti, sem gerði ráð fyrir þvi, aö
allar núverandi byggingar á
svæðinu yrðu rifnar og i staðinn
byggöirum 11.600 ferm., auk yfir-
byggðs torgs og bilgeymslu. Aukn
ingin i flatarmáli yrði þvi liðlega
100%. Það gildir sama um þessa
tillögu og þá sem um árið var
gerð fyrir Grjótaþorpið: Þeim er
ætlað að gæða hinn hnignandi
miðbæ höfuðborgarinnar nýju og
frisku lifi — eins og það er gjarn-
an orðað. Báðar eiga þessar til-
lögur það lika sammerkt, aö þær
eiga að viðhalda umhverfisáhrif-
um og svipmóti gamla bæjarins.
En hvaö skyldi raunverulega
liggja að baki svona tiilögugerð"?
Við gerö aðalskipulags Reykja-
vikur var eftirfarandi stefna mót-
uð:
„Siðan núgildandi aðalskipulag
Reykjavikur (62-83) var staðfest
hefur ekki verið um neina sam-
ræmda uppbyggingu stærri
svæða að ræða i gömlum hverfum
borgarinnar, þrátt fyrir ýmsar
tilraunir. Við svo búið má ekki
standa, ef þessum hverfum á ekki
aö hnigna mjög verulega frá þvi
sem nú er, einkum með tilliti til
þess að bygging nýs miðbæjar er
hafin, auk fyrirhugaðra mið-
bæjarkjarna í aðliggjandi
sveitarfélögum. Nauðsynlegt er
einnig að sporna gegn fólksflótta
úr miðborginni og auka þarf á
fjölbreytta miöbæjarstarfsemi.
...Til að ná settu markmiði,
áli'tur skipulagsnefnd, að hefja
verði uppbyggingu i miðbænum,
þar sem þó er á það lögð megin
áhersla að viðhalda umhverfis-
áhrifum og svipmóti gamla
bæjarins.” (úr bókun meirihluta
skipulagsnefndar við afgreiðslu á
tillögum um endurnýjun eldri
hverfa, 15. nóv. 76)
Nú skyldi sem sagt lóðareig-
endum f miðborginni gert kleift
að nýta hinar dýrmætu lóðir sin-
ar, hinu háa lóðaverði skyldi við-
haldið og það helst aukið. Ef ein-
hverjir lóðareigendur skyldu
samt sem áöur vera i vafa um
ábatann af þvi aö rifa gamla hús-
ið og byggja nýtt, þá var skipu-
lagsyfirvöldum gert heimilt aö
leyfa meira byggingarmagn ef
um meiriháttar uppbyggingu
væri að ræða, en einnig ef byggð-
ar væru ibúðir inná hinum svo-
kölluðu framkvæmdasvæðum.
En hver skyldi eiga sök á þess-
ari hnignun gamla bæjarins,
skyldi hún vera afleiðing af ein-
hverju náttúrulögmáli?
Eða skyldi hún kannski vera
óhjákvæmileg afleiðing þeirrar
stefnu, sem borgaryfirvöld hafa
fylgt i gamla bænum á undan-
förnum árum? Eru það ekki þau,
sem ákváðu byggingu nýs miö-
bæjar, og sem hafa látið það af-
skiptalaust, að skrifstofur alls
konar leggja undir sig æ fleiri
ibúðir og miðbærinn allur og að-
liggj. ibúðarhverfi gerö að einu
allsherjar bilastæði? Hafa ekki
borgaryfirvöld skapaö það
ástand, að erfitt er að feröast um
borgina ööruvisi en i bil og þvi
sækirfólk siður þangað sem erfitt
er að fá bilastæði? Hafa þau ekki
látið viögangast, að bankarnir
leggja undir sig hverja fasteign-
ina eftir aðra i miðborginni svo
heilu götuhliðarnar eru undir-
lagðar?
Eru ekki þarna nokkrar af
ástæðunum fyrir „hnignun” og
lifleysi miðborgarinnar?
Hin nýja tillaga á fram-
kvæmdasvæðinu við Aðalstræti er
liður i áframhaldi þeirrar þróun-
ar—-hnignunar — sem á undan er
lýst.
Það þarf enginn að fara i graf-
götur með það, að að baki liggur
eingöngu gróðabrall lóðaeigenda
á svæðinu, sem borgin hefur að
sjálfsögöu mikinn skilning á eins
og fram kemur i þeirri aukningu
áflatarmálisemáöurergetið. Og
það er lfka nokkuð augljóst, að
framkvæmd tillögunnarmun ekki
viöhalda umhverfisáhrifum og
svipmóti gamla bæjarins, heldur
þvertá móti. Þaðerlika nokkuö
augljóst, að það mun ekki hvaða
aumingi sem er hafa ráð á þvi aö
leigja eða kaupa húsnæði i þess-
um byggingum þar sem hver
lóðarfermetri er metinn á hundr-
uö þúsunda, sist til að selja kaffi
og kökur. Það verða þvi fjár-
sterkir aðilar, sem þarna munu
koma sér fyrir og ekki nokkur
trygging fyrir þvi, að þarna komi
starfsemi, sem opin verði á
kvöldin.
Ef hugur hefði fylgt máli og
virkilega hefði verið reynt að við-
halda umhverfisáhrifum og svip-
móti þessa svæðis og um leiö
auka möguleikana á fjölbreyttara
lifi þar á kvöldin hefði verið staö-
ið að málum á allt annan veg. Þá
hefði verið boðiö uppá valkost,
sem að verulegu leyti byggöist á
þeim húsakosti sem fyrir er, en
þó með einhverjum nýbygging-
um, og borgin sjálf tryggt kvöld-
starfsemina með eigin framtaki
t.d. með þvi aö setja þar á stofn i
gömlu eða nýju húsnæði félags-
miðstöð, sem opin væri öllum
fram á kvöld.
Yfirbyggt torg getur aldrei
gegntslikuhlutverki.en gætihins
vegar gjarnan tengst skipulagðri
starfsemi félagsmiðstöðvar. Með
framkvæmd tillögunnar mun
miöbærinn verða jafn liflaus á
kvöldin og áður, umhverfiö hins
vegar ómanneskjulegra og um-
ferðin meiri á daginn, sem aftur
mun kalla á betri aðkomuæðar og
fleiri bílastæði. En það kalla
borgaryfirvöld náttúrlega ekki
hnignun.
✓
Landsráðstefna herstöðvaandstæð-
inga í Festi
15. og 16. okt.
Landsráðstef na her-
stöðvaandstæðinga verður
í Festi/ Grindavík, 15. og
16. þessa mánaðar.
Dagskrá:
Laugardagur 15. okt.:
14.00 Setning.
14.30 Skýrsla miðnefndar.
Almennar umræður.
16.00 Kaffihlé
16.30 Starf og stefna á komandi
ári.
Almenn umræða.
19.00 Matarhlé.
20.30 Kvöldvaka.
Sunnudagur 16. okt.:
10.00 Starfshópar funda.
12.00 Matarhlé.
13.30 Starfshópar skila áliti.
Almenn umræða.
16.00 Kaffihlé.
16.30 Afgreiðsla ályktana.
Kosning miðnefndar.
Matsala verður á staðnum og
þeir sem þess óska geta fengið
svefnpokapláss aðfararnótt
sunnudagsins.
Sætaferðir frá Reykjavik verða
auglýstar siðar.
Skráið ykkur sem fyrst til þátt-
töku á skrifstofu samtakanna,
Tryggvagötu 10, simi 17966.
Miðnefnd.
Kornmarkaðurinn
færir út kvíamar
Kornmarkaðurinn að Skóla-
vörðustíg 21 a hefur nú fært út
kviarnar og opnað Utibú að Há-
teigsvegi 20. Kornmarkaöurinn
varopnaður fyrir rúmu ári i þeim
tilgangi að mæta þörfum þeirra
sem neyta vilja jurtafæðu. Þröngt
var orðiö um starfsemina á
Skólavörðustfgnum og þvi réðst
Ananda Marga hreyfingin á ts-
landi, sem stendur að baki mark-
aðarins, að opna nýja verslun.
1 Kornmarkaöinum er aö finna
alla kornvöru i úrvali svo og
hverskyns baunir.Ávextir og sér-
bökuð heilhveitibrauö eru einnig
meðal vinsæls varnings á boöstól-
um. Þá verður nú fariö út i að
selja mjóikúrvörur. Varan i
Kornmarkaóinum er tiltölulega
ódýr, og byggist það á þvi að
Ananda Marga hreyfingin rekur
margar svipaðar verslanir viðs-
vegar i heimi og fær islenski hluti
hennar sina vöru gegnum heild-
sölu hreyfingarinnar i Englandi.
Þá vinnur fólk við verslunina
fremur af hugsjón en fyrir laun-
um að sögn forráðamanna. Viö
val á fæðistegundum sem verslaö
er með er i meginatriðum stuðst
við reynslu og kenningar jóga, en
samkvæmt þvi miðast heilnæmi
fæðu ekki aðeins við áhrif hennar
á likama heldur einnig á huga. Aö
áliti Ananda Marga er það þáttur
i þroskun einstaklingsins og
framför alls mánnkyns að neyta
jurtafæðu sem ræktuð er með lif-
rænum aðferðum. _ ekh.
Festi I Grindavik.
Kennslubók í þj óðfélags fræðum
Komin er út hjá Almenna bóka-
félaginu bókin ÍSLENSKA RtKIÐ
eftirHjálmar W.Hannesson fyrr-
um menntaskólakennara. Bókin
er ætluð sem kennslubók fyrir
framhaldsskóla og er lýst þannig
aftan á kápu:
„tslenzka rlkið eftir Hjálmar
W. Hannesson er stuttorð lýsing á
islenskri stjórnskipan eins og hún
nú er. Bókin er samin sem
kennslubók i Þjóðfélagsfræðum
fyrir menntaskóla, fjölbrautar-
skóla og/eða framhaldsskóla, en
getur einnig komið að notum
hverjum þeim, sem fræðast vill á
eigin spýtur og kennaralaust um
islenska rikiskerfið.
1 bókinni er fjöldi uppdrátta og
ljósmynda til skýringar á efn-
inu.”
íslenska rikið er 102 bls, aö
stærð, pappirskilja. Hún er unnin
i Prentsmiðju Arna Valdimars-
sonar og Bókbandsstofunni örk-
inni.
cóíh, | CtCOJK Wk;
Úr nýopnuöum húsakynnum Kornmarkaðarins