Þjóðviljinn - 06.10.1977, Síða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 6. október 1977
Fréttaritari Þjóöviljans i Höfn i
Hornafirði hefur skýrt okkur svo
frá, aðf sumarhafi verið unnið aö
vegagerð fyrir Hvalsneshorn. Nú
er vegurinn orðinn fær og hefur
verið ákveöið að taka hann i notk-
un i vetur. Miklir erfiðleikar hafa
jafnan verið á þvl að vetrinum aö
komast yfir Lónsheiðina vegna
snjóa en henni hefur verið haldið
opinni með kostnaðarsömum
snjómokstri. Nú þarf þess vænt-
anlega ekki lengur.
Vegurinn um Hvalsneshorn
liggur að hluta til um tvær brattar
skriður, sem ganga i sjó fram,
þ.e. Hvalsnesskriður og Þvottár-
skriður. 1 fyrra voru skriöurnar
ruddar I tilraunaskyni og nokkrir
framtakssamir jeppaeigendur
klöngruðust þessa leið.
Nú er þessi leið orðin fær hvaða
bil sem er þó aö varanlegri vega-
gerð sé þar fyrir engan veginn
lokið. Eitthvað af brúm þarf á
þessari leið um skriðurnar en
gert er ráð fyrir að þeirri brúa-
gerð ljúki i haust.
Þessi nýja leið er á margan hátt
afar sérkennileg og fögur. Hrika-
leiki náttúrunnar er óviða mikil-
fenglegri hvort heldur er hið stór-
kostlega hamraþil i námunda við
bæinn Hvalsnes eða þar sem
Atlantshafið sleikir kletta, tanga,
vikur og voga undir Hvalsness-
og Þvottárskriðum. Allt er þetta i
senn stórkostlegt og fagurt.
Þannig hugsar sá, sem ekur
þessa leið i fyrsta skipti en það
Komið yfir Þvottárskriður og séð vestur.
gerði undirritaöur hinn 16. sept.
s.l.
Leiöin til Austurlands um
Hvalsnes er 11 km. lengri en sú,
er liggur um Lónsheiði en hún
veröur væntanlega miklu mun
snjóléttari.
ÞLÞ/mhg
VEGARGERÐ UM HVALSNESS- OG ÞVOTTARSKRIÐUR
I7i7in rvDiD
HfJviJti r i iviiv
HVALSNESHORN
$5*8
Hvalsneshorn séð frá Svinhólnm.
Séö heim aö Hvalsnesi.