Þjóðviljinn - 06.10.1977, Síða 9
Fimmtudagur 6. október 1977 ÞJÚÐVILJINN — StÐA 9
Gísli Alfreösson og Þóra Friöriksdóttir. — Ljósm. Jóh. 01.
Róbert Arnfinnsson, Sigrföur Þorvaldsdóttir og Þóra Friöriksdóttir I hlutverkum sfnum í Týndu
teskeiöinni.
GRÆSKUFULLT GAMAN
— Hafió alltaf síld frá
íslenskum matvælum h.f.
í húsinu.
fSLENSK
MATVÆLI H/F
HAFNARFJÓRÐUR
mérhún hafa tekist meö ágætum.
Hér er hlutur leikaranna ekki
hvaö minnstur. Þar eiga allir lof
skiliö, en ég get ekki stilt mig um
aötaka Þóru Friöriksdóttur fram
yfir aöra. Hún sýnir hér fágætan
leik, finnur það hárrétta samspil
tækni og innlifunar sem leiöir til
þess aö hún verðurpersónan sem
hún er aö leika. Þaö má til dæmis
hafa alveg sérstaka ánægju af
Þóruef maöur gefur henni gaum
meðan hún tekur ekki beinan þátt
i framgangi leiksins, er áhorf-
andi. A þeim stundum reynir
mest á leikarann og þá sést skýr-
ast úr hverju efni Þóra er gerö.
Róbert Arnfinnsson og Sigriður
Þorvaldsdóttir eru eldtraustir
leikarar sem alltaf er gaman aö
horfaá.og Gisli Alfreðsson leikur
hér af meiri myndugleik en oft
áður. Annars er GIsli mjög vax-
andi leikari. Þessi fjögur sem
nefnd hafa verið ná glettilega
góöu samspili i hlutverkum hjón-
anna sem I eldlinunni standa. Þau
eru raunar á sviöinu mestallan
timann. Þar fyrir utan eru svo
hjóninl kjallaranum sem Guörún
Stephensen og Flosi Olafsson
skila af prýði. Unga pariö.dóttir
húsráðenda og sonur leigjenda
eru nær algerar pappafigúrur at
hendi höfundar og þaö er engin
von aö Randveri Þorlákssyni og
Lilju Þórisdóttur takist aö gera
neitt meira úr þeim.
Leikmynd Guörúnar Svövu er
framúrskarandi fallegt og vel
unnið verk, stilfært fúnkisinteriör
igráu og svörtu meö eilitlum votti
af rósbleiku, og búningarnir eru
framhald af litatónum leik-
myndarinnar. Þetta gleöur augaö
vissulega afar mikiö, en hitt er
annaö mál. hvort þetta er heppi-
legasta leikmyndin fyrir þetta
verk, hvort hún er ekki of falleg
ogsmekkleg til að geta verið rítt
umgerð um þaö fólk sem verkiö
er aö lýsa. Þessu er slegiö fram
hér til umhugsunar.
Sverrir Hólmarsson
Þjóðleikhúsið sýnir
Týnda teskeiðin
eftir Kjartan Ragnarsson
Leikstjóri: Briet Héðinsdóttir
Leikmynd: Guðrún Svava Svavars-
dóttir
Kjartan Ragnarsson hefur
skotist meö óvenju skjótum hætti
eins og halastjarna uppá himin
leiklistarinnar — þessa dagana
eru þr jú verk hans öll sýnd sam-
tlmis hér I bænum. Saumastofan
kom flestum á óvart meö fersk-
leika sínum og hlýleik, og vann
enda hug og hjörtu almennings i
óvenju rlkum mæli. Þær góöu
vonir sem sú sýning vakti um höf-
undinn uröu fyrir nokkru skip-
broti meö Blessuðu barnaláni,
sem var eiginlega hálfgert ólán.
Nú hefur Kjartan hins vegar sýnt
ótvírætt aö hann hefur hæfileika
til aö standa við þau loforö sem
hann gaf I fyrstu — Týnda te-
skeiðin er ótviræöur sigur.
■I þessu verki blandar Kjartan
listilega saman glæpasögu og
farsa og fær þetta tvennt til aö
vinna saman og skapa lifandi
leikverk sem afhjúpar tvöfeldni
og siöspillingu samfélagsins á
töluvert eftirminnilegan hátt.
Með þvi aö láta áhorfandann velt-
ast um aö hlæja yfir voveiflegum
og hryllilegum atburðum tekst
Kjartani aö gera hann aö þátttak-
anda I þeirri tvöfeldni sem fer
fram uppi á sviðinu, og þannig
vonandi hrista eilitið upp I sam-
visku hans.
Þar meö er ekki sagt aö Týnda
teskeiöin sé gallalaust stórverk,
enda eru slik verk fágætari en
hvitir hrafnar. Þaö urgar dálitiö I
hjörunum á þvi á stöku stað, þar
sem Kjartan teygir á fléttu sinni
til hins ýtrasta og treystir á fram-
haldandi flækjur til aö fleyta
leiknum áfram. Persónurnar eru
sömuleiöis helst til einhliða. En
miklu fleira er vel gert en hitt.
Allur fyrsti þáttur sýndist mér
framúrskarandi skrifaður, flétt-
an þróuð með eölilegum hraöa
uppi réttan hápunkt, hvergi dauö-
ur kafli. Verkið dettur dálltiö
niöur eftirhlé.en lyftist svo aftur
verulega undir lokin þannig að
það endar á prýöilegum hápúnkti.
Þaö sem vekur fyrst og fremst
athygli við skáldgáfu Kjartans er
hversu frjór hann er, hvaö honum
dettur margt i hug. Hann viröist
aldrei I vandræöum meö nýjar
uppákomur eöa hnittin tilsvör.
Hann kann einnig ^aö vekja hjá
áhorfendum þá einföldu spurn-
ingu sem heldur þeim viö efniö:
hvaö gerist næst?
En Kjartan nýtur einnig I þetta
skipti góös af frábærri sýningu,
sem skilar verkinu meö hnitmiö-
un og hraöa. Briet Héöinsdóttir
hefur náð verulega góöum
heildarstll á sýninguna, með þvi
aö notfæra sér þá blöndu af stil-
færslu og raunsæi sem er til staö-
ar í verkinu. Slfk blanda er að
vlsu oft varasöm, en hér viröist
Síld er auðvelt að grípa til,
þegar gesti ber að garði
og búa til eitthvaó
lystaukandi og spennandi.
— Síld er líka einstaklega
næringarrík og einföld
í framreiðslu.
Gott á
marga
© • •