Þjóðviljinn - 06.10.1977, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 6. október 1977
Lausar stöður
Á Verðlagsskrifstofunni eru eftirtalin
störf laus til umsóknar.
1. Staða starfsmanns við vélritun og simavörslu, hálfan
daginn, eftir hádegi. Staðan er laus nú þegar.
2. Staða fulltrúa i verðlagningardeild er laus frá 1. nóvem-
ber n.k.
Hagfræði- eða viðskiptafræðimenntun er tilskilin.
3. Staða deildarstjóra varðgæsludeildar er laus frá 1.
nóvember n.k.
Lögfræði, viðskiptafræði- eða hagfræðimenntun er til-
skilin.
Laun verða samkvæmt launakerfi starfs-
manna rikisins. Umsóknir um stöðu 2 og 3
sendist Verðlagsskrifstofunni, Borgartúni
7, Reykjavik,fyrir 26. október n.k. Upplýs-
ingar um störfin veitir skrifstofustjóri.
Verðlagsstjórinn.
Hitaveita Suðurnesja
óskar að ráða nú þegar pipulagningar-
mann eða mann vanan pipulögnum.
Umsóknir berist Hitaveitu Suðurnesja,
Vesturbraut 10A Keflavík,fyrir 15. október
nk.
Kópavogshæli
óskar eftir fósturheimilum fyrir börn á
barnadeildum hælisins. Upplýsingar veit-
ir félagsráðgjafi i sima 41500.
Frá innheimtu
Selfosshrepps
Sýslumaður Árnessýslu hefur i dag kveðið
upp lögtaksúrskurð fyrir gjaldföllnum en
ógreiddum sveitargjöldum álögðum i Sel-
fosshreppi 1977, það er útsvörum, aðstöðu-
gjöldum og kirkjugarðsgjöldum ásamt
dráttarvöxtum og kostnaði.
Samkvæmt úrskurðinum geta lögtök haf-
ist að liðnum átta dögum frá birtingu
hans.
Skorað er á þá gjaldendur, sem ekki hafa
staðið i skilum, að gera það nú þegar, svo
komist verði hjá kostnaði og óþægindum
sem lögtök hafa i för með sér.
Selfossi 4. október 1977
Sveitarstjóri Selfosshrepps.
• Blikkiðjan
t
Ásgarði 7, Garðabæ
Önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
tiverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð
SÍMI53468
Ráðherra
í læri hjá
gæslunni
Hér á landi hefur dvalist í 3
daga Denis McLean frá Nýja Sjá-
landi, en hann fór af landi burt I
gær (þ. 4. október). Denis
McLean mun taka viö ráðherra-
embætti i heimalandi sinu I næsta
mánuði og munu þá landhelgis-
málin heyra undir ráðuneyti
hans.
Denis McLean kom gagngert til
íslands til þess að kynna sér hér
islenska landhelgisgæslu, en hann
kvað íslenska landhelgisgæslu
þekkta um heim allan fyrir störf
sin.
Nýja Sjáland, syðsta ríkið á
hnettinum, hefur enga sjálfstæða
landhelgisgæslu og verður þvi
fyrst um sinn að treysta á her-
skipaflota sinn, meðan verið er að
byggja upp landhelgisgæsluna
þarilandi,en Nýsjálendingar eru
uggandi yfir aukinni sókn Japana
og Kóreumanna á fiskimið sin,
sem hafa veriö litt nytjuð til
þessa, en landhelgi sina hyggjast
Nýsjálendingar færa út i 200 sjó-
milur.
Denis McLean ræddi við yfir-
menn Landhelgisgæslunnar hér,
b.á m. dómsmálaráðherrann ólaf
Jóhannesson, skoðaði varðskip,
flugvélar Gæsiunnar o.fl.
Einnig ræddi hann við starfs-
menn sjávarútvegsráðuneytisins
og utanrikisráðuneytisins.
95
Allsherjar
endurreisn”
skal hafín
1 dag 6. okt. n.k., tekur nýtt
félag til starfa 1 Reykjavik, sem
kennir sig við „Alsherjar Endur-
reisn” (Renaissance Universal).
Félagið er einkum ætlað þeim, er
starfa við huglæga iðju, visinda-
og rannsóknarm önnum, sál-
fræðingum, listamönnum, lög-
fræðingum, arkitektum, stjórn-
málamönnum o.s.frv., svo og öll-
um, er hafa hugræna hæfileika og
áhuga.
„Tilgangur A.E. Félagsins er
að orsaka andiega og félagslega
vakningu og þroska hjá hverjum
einstaklingi, að vinna að félags-
legri framför og velferð, og jafn-
framt að lausn félagslegra
vandamála með áþreifanlegum
og m arkvissum f ramkvæmdum
segir I fréttatilkynningu frá
félaginu.
Umræðufundir verða haldnir á
tveggja vikna fresti; einnig verða
sérstakir umræðuhópar, útgáfu-
og rannsóknarstarfsemi. Félagið
stefnir einnig að sköpun betra
vistfræðilegs og félagslegs jafn-
vægis með starfsemi og fram-
kvæmdum er taki sérstakt tillit til
þrdunarnýrra leiða og möguleika
i nýtingar- og dreifingarkerfum
þjóðfélagsins.
öllum, sem hafa áhuga á notk-
un visinda, lista og heimspeki i
þágu þróunar vitundarinnar og
velferðar mannfélagsins, eða
vilja leggja sitt af mörkum til
slfkrarstarfsemi,er boðiðá opinn
stofnfund A.E.-félagsins I Nor-
ræna húsinu i dag, 6. október kl.
20.
Jón bóndi geispár golunni. Kerling tryggir sér sálina i skjóðuna: Helgi
Skúlason, Guðrún Þ. Stephensen og Briet Héðinsdóttir( Vilborg grasa-
kona).
Gullna hliöiö sýnt á ný
Sýning Þjóðleikhússins á
Gullna hliðinu eftir Davið
Stefánsson var sýnd við gifurleg-
ar vinsældir allt frá jólum á
siðasta leikári og höfðu tæplega
23 þúsund manns séð sýninguna i
vor. Akveðið hefur verið að hefja
sýningar að nýju og var fyrsta
sýningin á þriðjudagskvöld (4.
okt.). Nokkrar breytingar eru á
hlutverkaskipan: Gunnar
Eyjólfsson tekur nú við hlutverki
Óvinarins af Erlingi Glslasyni, en
Gunnar fór með þetta hlutverk
siðast þegar Gullna hliðið var
sviðsett i Þjóðleikhúsinu 1966.
Gisli Alfreðsson leikur Pál post-
ula og Þórunn Magnúsdóttir tek-
ur við hlutverki móður keriingar.
A thugasemd frá Hrafni Gunnlaugssyni
Að hafa gagn
af listamönnum
Til Arna Bergmann vegna þátt-
arins Klippt og skorið sem birtist
I Þjóðviljanum 4. okt. ’77.
Góður vinur minn sem les
stundum Þjóðviljann benti mér á
grein i þættinum Klippt og skorið
sem birtist i Þjóðviljanum 4. okt
’77. Greinin er skrifuð af Arna
Bergmann og er þar að finna
eftirfarandi klausu:
,,í lista yfir nefndir á vegum
stjórnar SUS er meðal annars
nefndur Fjölmiðlahópur: ,,í hon-
um voru Erna Ragnarsdóttir,
Linda Rós Mikaelsdóttir, Markús
Orn Antonsson, Haraldur
Blöndal, Friðrik Sophusson, Pét-
ur Sveinbjörnsson, Hannes Giss-
urarson, Hrafn Gunnlaugsson og
Davið Oddsson”, segir þar.
HrafnGunnlaugsson hefur látið
að þvi liggja, að hann væri óra-
langt frá pólitisku streði og eigin-
lega sannur anarkisti. Engu að
siður situr hann á milli Hannesar
Gissurarsonar og Daviðs Oddsson
ar I nefnd Sambands ungra Sjálf-
stæðismanna, sem á væntanlega
að fjalla um það, hvernig flokkur-
inn getur haft „meiri afskipti” af
skáldum og listamönnum, eins og
segir i nýlegri samþykkt þings
SUS. Eða þá hvatt Sjálfstæðis-
flokkinn tilað hafa „gagn af lista-
mönnum i stjórnmálabaráttu”
eins og Ingimar Erlendur segir i
Stefni...”
Þar sem ég reikna með að Arni
Bergmann vilji hafa það sem
sannara reynist, þykir mér rétt
að taka fram, að mér hefur hing-
að til (eða þar til mér var bent á
grein Ama) ekki verið kunnugt
um að ég væri i umræddri nefnd.
Nefndin er mér algjörlega óvið-
komandi, enda hef ég hvorki
mættá fundi henni, né tekið þátt i
starfi hennar. Hins vegar þykir
mér það heiður, að ungir Sjálf-
stæðismenn sjái sérstaka ástæðu
til að hengja hatt sinn á mig hvað
fjölmiðla snertir og er Þjóðviljan-
um velkomið að gera það lfka.
Hvort skrif Ama eru i anda
þess að pólitikusar geti haft
„gagn af listamönnum” er mér
ekki fyllilega ljóst, en ég vil
þakka honum kærlega fyrir þann
einstaka áhuga sem hann hefur
svo oft sýnt persónu minni.
Með þökk fyrirbirtinguna
Hrafn Gunniaugsson
Rvk. 4. okt. ”77.
Tíu bílar í happdrætti
Styrktarfélags vangefinna
Þessa dagana er Styrktarfélag
vangefinna að senda út happ-
drættismiða i hinu árlega bil-
númerahappdrætti féiagsins.
Happdrættið er aö þessu sinni
óvenju glæsilegt, en heildarverð-
mæti vinninga er rúmar 14 milj.
Aðalvinningurinn er Play-
mouth Volare bifreið að verðmæti
3.3 millj., en 9 vinningar eru bif-
reiðir að eigin vali, hver að upp-
hæð kr. 1.2 milj. Vinningarnir
eru skattfrjálsir.
öllum ágóða happdrættisins
verður varið til styrktar málefn-
um vangefinna sem og öðrum
tekjum félagsins. Stærsta fram-
kvæmd félagsins nú sem stendur
er bygging afþreyingarheimilis
fyrir vangefna við Stjörnugróf i
Reykjavik, en bygging þess hófst
sl. vor.
Afþreyingarheimilið verður um
650fm. og mun rúma 24 vistmenn.
Þvi verður þriskipt þ.e. aðstaða
verður til likamsræktar og þjálf-
unar, til vinnu og föndurs og til
hvildar. Mun það fullbúið bæta úr
mjög brýnni þörf, en stöðugt er
mikil eftirspurn eftir vistun á
dagheimili félagsins, sem öll eru
fullsetin. Áætlaður kostnaður við
húsið fokhelt og frágengið að utan
er um 45 milj., þannig að um
mjög kostnaðarsama fram-
kvæmd er hér að ræða.
Ný orku-
kreppa
fram-
undan?
Þvi er spáð, að veruiegur orku-
skortur verðifarinn að segja til
sin þegar fyrir næstu aldamót,
jafnvel þó að kol og kjarnorka
verði þá notuð til að fullnægja
verulegum hluta orkuþarfanna. Á
þetta bendir Bent Elbek, prófess-
or við Niels Bohr stofnunina i
Kaupmannahöfn i grein, sem ný-
lega birtist i Nordisk Lantbruks-
ekonomist Tidsskrift.
Orkuþörf mannkynsins verður
orðin tvöfalt meiri um næstu
aldamót en hún er nú. Aukning
orkunotkunar verður lang mest
hjá þróunarlöndunum. Oliufram-
leiðslan er talin muni ná hámarki
um 1990. Það mun valda mikilli
spennu á orkumarkaði og allt
verður gert til þess að spara og
draga úr orkunotkun. Kolin verða
þá notuð meira en nú er gert og
það verður meira um byggingu
kjarnorkuvera, að áliti prófessors
Elbeks.
Þá verða gerðar kröfur til land-
búnaðarins eins og annara at-
vinnuvega um að eyða ekki orku i
óhófi. Bændur þurfa þvi að laga
sig að þessu og framleiðslu-
hættirnir að breytast til samræm-
is við vaxandi orkuskort.
Bent Elbek, prófessor, telur
samt sem áður möguleika á að
halda uppi mikilli og arðsamri
landbúnaðarframleiðslu þótt
dregið verði úr orkueyðslu i land-
búnaði en til þess þurfi að bregða
skjótt við og finna hentugustu
leiðir til orkusparnaðar. Að lok-
um bendir hann á, að næsta orku-
kreppa geti skollið á hvenær sem
er. (Heimild: Freyr). —mhg