Þjóðviljinn - 06.10.1977, Page 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 6. október 1977
Rennismiðir
Vélsmiðjan Þrymur óskar að ráða renni-
smiði nú þegar. Mikil vinna.
Uppl. hjá yfirverkstjóra.
Vélsmiðjan Þrymur,
Borgartúni 27.
Blaðadreifing
Heilsubót fyrir unga sem aldna. Eftirtalin
hverfi eru laus til umsóknar:
Laufásvegur,
Neðri-Hverfisgata,
Þingholt,
Þórsgata
Kaplaskjól-
Meistaravellir
Sogavegur
Verið með í blaðberahappdrættinu frá byrjun.
ÞJÓÐVILJINN
Vinsamlegast haf ið samband við afgreiðsluna
Siðumúla 6 — sími 81333, mánud. — föstud.
Aðstoð íslands við
þróunarlöndin auglýsir
Framkvæmdastofnun aðstoðar Noregs við
Þróunarlöndin (NORAD) hefur óskað
eftir þvi að auglýstar yrðu á íslandi 10
kennarastöður við Institute of Develop-
ment Management i Tanzaniu, en sú
stofnun er rekin af þrem Norðurlandanna,
Danmörku, Finnlandi og Noregi.
Af stöðum þessum eru fimm á sviði
reikningshalds og endurskoðunar. Þrjár á
sviði stjórnunar. Ein i tölfræði og áætlana-
gerð og ein i landbúnaðar- og samvinnu-
hagfræði.
Umsækjendur verða að hafa háskólapróf i
viðskiptafræði eða hagfræði eða próf lög-
giltra endurskoðenda, ennfremur er góð
enskukunnátta nauðsynleg.
Gert er ráð fyrir þvi, að þeir sem ráðnir
verða hefji störf frá n.k. áramótum.
Umsóknarfrestur er til 25. október.
Nánari upplýsingar um einstök störf
verða gefnar á skrifstofu Aðstoðar íslands
við þróunarlöndin, Lindargötu 46, efri
hæð) Rvk., opin mánudaga og miðviku-
daga kl. 14:30-17:00. Þar fást einnig
umsóknareyðublöð.
Auglýslng
í Þjóðviljanum
ber ávöxt
H
GÍSLI KRISTJÁNSSON SKRIFAR:
„Avogarskálum”
I þættinum „Á vogar-
skálum", sem sjónvarpið
hafði á skerminum i
kvöld, var sitthvað skyn-
samlega mælt um mat-
væli og næringu, en þar
voru lika ummæli við-
höfð, sem tæpast geta tal-
ist annað en hreint bull,
ef skoðuð eru frá réttum
sjónarhóli.
„Bauernblatt” heitir þýskt
blað, sem siðastliðið vor flutti
yfirlit yfir umfangsmiklar til-
raunir og rannsóknir i Þýska-
landi gagnvart cholesterol-
magni i fæðu fjölda manna og
blóði sömu aðilja.
Var eggjaneysla þar tekin
sem dæmi og greint frá niður-
stöðum. Þar segir m.a.:
„Fólk er hrætt með þvi að
cholesterol i fæðunni auki magn
sama efnis i blóðinu og valdi svo
truflunum i hjarta og blóðrás
mannsins. Hins er ekki getið, að
mannslikaminn framleiðir dag-
lega 1500—2000 mg. cholesterol
alveg óháð þvi hve miklu magni
cholesterols hann nærist með
fæðunni.
I venjulegu hænueggi eru 250
mg. cholesterol. Nákvæmar
rannsóknir hafa verið gerðar
um undanfarin ár, sem sanna aö
cholesterol i blóði neytendanna
hefur ekkert breyst þótt eggja-
neysla væri aukin verulega. Til-
raunamenn voru bæði ungir og
gamlir. Aldraðir höfðu meira
magn cholesterols i blóði en þeir
ungu. Allir fengu hver sitt
morgunegg. Að auki fengu ungu
mennirnir hver 2 auka-egg á dag
i 4 vikur. Hinir öldruðu fengu
fyrst eitt auka-egg hver i 4 vikur
og siðan 2 auka-egg i aðrar 4
vikur. Hjá báðum hópunum
reyndist árangurinn: Engar
Mjólk
orkulind okkar
og heilsugjafi
t mjólkinni eru flest þeirra
mikilvægu næringarefna, sem
nauðsynleg eru til vaxtar og
þroska.
Við öðlumst heilbrigði og
hreysti með neyslu mjólkur og
hinna fjölbreyttu mjólkuraf-
urða: s.s. undanrennu, mysu,
kókósmjólkur, súrmjólkur, ým-
is, jógúrtar, skyrs, osta, Iss og
rjóma.
Á Islandi er meðalneysla á
hvern Ibúa 250 Itr. af mjólk,
undanrennu og sýröúm
mjólkurafurðum á ári. Þessi
neysla sér okkur fyrir: allri fos-
fórþörfinni, allri B 2-vftamin-
þörfinni, 2/5 af prótinþörfinni,
2/5 af A-vitaminþörfinni, 2/7 af
B 1 -vltaminþörfinni.
(Úr ky nn ing a r bæ klingi
Mjólkurdagsins.)
L______________.....
breytingar i cholesterolmagni
blóðsins”.
Eru ekki staðhæfingar ungu
stúlkunnar I þættinum ,,A vog-
arskálum”, um 4 egg á viku, úr
lausu lofti gripnar?
Nokkuð annað er, að aðrar til-
raunir hafa sýnt, að vissir ein-
staklingar hafa að jafnaði miklu
meira cholesterol i blóðinu en
almennt gerist.og það eru þeir,
sem eiga á hættu hjartaveilurn-
ar, rétt eins og hinir, sem ganga
með mikið magn af þriglyseidi
i blóðinu og yfir þeim vofir 50
sinnum meiri hætta á hjarta-
göllum en venjulegu fólki. Þar
er sykurátið hættuvaldurinn.
Ætli það sé ekki með okkur
mennina eins og svlnin, að efna-
nám og efnabrennsla likamans
er einstaklingsbundin, arfgeng
og að nokkru háð umhverfinu?
Það er alltaf rétt að geta hins
afbrigðilega og sjúklega, en
enginn skyldi meta almenning á
afbrigðilegan mælikvarða.
Reykjavik, 27/9 1977,
Gisli Kristjánsson.
Skóglendi
i Húnavatns- sýslum
Hér er hvergi um samfellt
skóglendi að ræða. Birkivottur
er á ýmsum stöðum; t.d. i
Blöndugili eru lagleg tré á
nokkrum stöðum. Við Svinavatn
eru birkileifar utan á kiöppum
nyrst við vatnið.
A ýmsum stöðum hefur verið
plantað trjám i stærri og minni
reiti, sumsstaðar með ágætum
árangri? t.d. i Vatnsdal, Blöndu-
dai og ásunum norðan Svina-
vatns er árangur af gróðursetn-
ingu framar öllum vonum.
tVatnsdal eru tveir sáðreitir frá
frá 1927 og er Haukagilsreiturinn
vaxinn ágætu birki. Reiturinn á
Hofi er athyglisverðastur fyrir
vöxt islensku blæasparinnar.
Stafafura og sitkagreni hafa
tekið góðum framförum i
Vatnsdal. t Miðfirði er gamall
reitur á Barkarstöðum, en þar
er þroski trjáa miðlungi góður.
Ætla má af þessu að skilyrði
til skógræktar séu all-sæmileg
innarlega i lengstu dölunum og
þvi betri sem austar kemur i
sýslurnar.
— mhg
Afli Seyöistjaröarbáta
I ágústmánuði var afli Seyðisfjarðarbáta þessi:
sjóf. Tala
Gullver...................3
Gullberg..................1
Olafur Magnússon..........2
Þórður Jónasson.......... 1
Auðbjörg..................2
Ýmsir bátar..............
Vingþór...................5
ÞórirDan..................2
Litlanes..................2
Veiðarfæri Afli
Botnv. 179.0 lestir
Botnv. 115.6 lestir
Botnv. 118.8 lestir
Botnv. 77.9 lestir
Færi 15.7 lestir
Færi 24.6 lestir
Dragnót 18.0 lestir
Dragnót 17.5 lestir
Dragnót 25.0 lestir
Samtals 592.1 lestir
Sláturhúsið á Selfossi:
Leiðrétting
i Þjóðviljanum i fyrradag,
sagði undirritaður frá heimsókn
sinni og Einars Karissonar i
sláturhúsið á Selfossi, þar sem
rætt var við þá Halldór
Guðmundsson og Helga
Jóhannsson.
Þar sem rætt er um þunga
dilka hefur fallið niður i prentun
hluti af málsgrein með þeim af-
leiðingum, að hún verður
óskiljanleg. I blaðinu stendur:
,,í siðastliðinni viku var
meðalvigtin 13,8 kg. og þá var
slátrað hér um 38 þús. fjár”,
o.s.frv.
Þetta mega nú heita næsta
ofurmannleg afköst og ég held
ég verði að draga dálitið úr
þeim, enda áður komið fram, að
slátrað sé 1700 fjár i húsinu á
dag. Rétt er málsgreinin
þannig, (þau orð, sem niður
hafa fallið, eru með breyttu
letri):
„1 siðastliðinni viku var
meðalvigtin 13,8 kg. 1 fyrra var
meðalvigtin hér 14,59 kg.og þá
var slátrað hér um 38 þús. fjár”.
Þó aðég fallist ekki á, að þessi
asnaspörk séu min sök, nóg er
nú sjálfsagt samt, þá tel ég mér
skylt að biðja hlutaðeigendur
afsökunar á þessum mistökum.
— mhg
Umsjón: Magnús H. Gíslason