Þjóðviljinn - 06.10.1977, Side 13
Fimmtudagur 6. oktdber 1977 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
Stefán íslandi sjötugur í dag
Afmælistónleikar
í Þjóðleikhúsinu
kl. 7 í kvöld
Einn ástsælasti
söngvari þjóðarinnar,
fyrr og siðar, Stefán ís-
landi, er sjötugur i dag. í
tilefni af þvi verða sér-
stakir tónleikar honum
til heiðurs haldnir i
Þjóðleikhúsinu kl. 7 i
kvöld. Þeir, sem að
þessum afmælistónleik-
um standa, eru Karla-
kór Reykjavíkur, Þjóð-
leikhúskórinn, Skag-
firska söngsveitin og
Félag islenskra ein-
söngvara. Þess er og
vert að geta, að Þjóð-
leikhúsið kemur þarna
myndarlega við sögu
með þvi að lána húsið
endurgjaldslaust undir
tónleikana.
Auk áðurnefndra kóra koma
fram á tónleikunum einsöngvar-
arnir: Guörún Á Simonar, Guö-
mundur Jónsson, Kristinn Halls-
son, Þuriöur Pálsdóttir, Jón
Sigurbjörnsson, Magnús Jónsson
og Sigurveig Hjaltested.
Blaðiö óskar afmælisbarninu til
hamingju meö tónleikana og af-
mælið.
-mhg
Stefán islandi
Norska kapalskipið Arn-
stein, sem kom hingað til
lands laugardaginn 24.
sept., fór héðan i fyrradag
eftir að hafa lokið verk-
efnum sínum á Vestfjörð-
um.
Viögerðin á rafstrengnum i
Arnarfiröi hófst snemma þriðju-
dags i siöustu viku og lauk á
sunnudag. 1 Arnarfiröi er dýpi
svo mikið, aö ekki er hægt að gera
viö og leggja strenginn nema meö
aöstoö sliks kapalskips.
A föstudag var svo lagöur ann-
ar rafstrengurinn af tveimur i
Patreksfiröi, en hinn var lagður á
laugardaginn. Slæmt veöur taföi
nokkuö fyrir lagningu rafstrengj-
anna i Patreksfiröi. Strengirnir i
Patreksfiröi eru einfasa, hvor um
sig 2,5 km aö lengd. Þegar þeir
hafa verið tengdir veröur komiö
þriggja fasa rafmagn á Baröa-
strönd, I staö einfasa áöur.
Siöan hélt skipið til Flateyjar
og þar kom Hafsteinn Guömunds-
son um borö og lóösaði skipiö
ásamt vitaskipinu Arvakri inn á
Þorskafjörö. Arnstein mun vera
stærsta skip sem komiö hefur inn
á Þorskafjörö. Fjöröurinn er
grunnur, en aðstæöur voru kann-
aðar vel áöur en fariö var þar inn.
A sunnudag var lagöur 1,5 km
langur einfasa rafstrengur i
Þorskafjörö og þar meö er kom-
inn sá hlekkur sem á vantaði til
aö Djúpifjöröur og Gufudalssveit
aö Skálanesi fengju rafmagn.
Allir þessir rafstrengir eru 19
kv. Arvakur og kafarabáturinn
Rán voru norska skipinu til að-
stoöar. Kafari var Guömundur
Guöjónsson og verkstjóri Magnús
Sveinsson. Eftir er að tengja
strengipa i Þorskafirði og
Patreksfiröi, en strengurinn i
Þorskafirði verður tengdur um
næstu helgi, að sögn Kára Einars-
sonar yfirverkfræöings hjá Raf-
magnsveitum rikisins, sem gaf
Þjóöv. ofangreindar upplýsingar.
—eös
Kapallinn dreginn yfir Arnarfjörö Mynd. Guömundur Sæmundsson.
Hér var nýi rafstrengurinn tekinn I land. mynd. Guömundur Sæmunds-
son.
Norska kapalskipið Arnstein
Lagði rafstreng í
Arnarfjörð, Patreks-
fjörð og Þorskafjörð
■•■: ■■
Þórhallur Sigurösson
Miðdegissagan
Siguröur Guðmundsson
,3VONA STOR”
eftir EdnuFerber
I dag heldur Þórhallur
Sigurðsson áfram að lesa
miðdegissöguna / // Svona
stór," eftir Ednu Ferber,
en þetta er áttundi lestur
sögunnar, sem er á dag-
skrá kl. 14.30.
Þessa sögu þýddi Siguröur
Guðmundsson, ritstjóri Þjóð-
viljans, skömmu fyrir strið og
kom hún sem framhaldssaga i
blaðinu, en i þann tima lögðu
blaöamenn gjörva hönd á fleira
en almenn fréttaskrif ein og
kröfðust aðstæður þá enda
manna með alhliöa hæfileika.
Sagan var svo gefin út i Sögu-
safni Þjóðviljans árið 1940, en
hér er um úrvalsverk að ræöa,
sem hlotið hafði Pullitzer-verð-
launin bandarisku um 1920 og
veriö gefin út oftsinnis i risa-
upplagi.
Edna Ferber ritaði margar
skáldsögur og valdi sér sögusvið
i hinum ýmsu hlutum heima-
lands sins, en hafði þó jafnan lif
almúgafólks að viðfangsefni.
Sagan ,,Svona stór,” gerist
meðal hollenskra innflytjenda i
grennd við Chicago og segir frá
stúlku, Celinu að nafni, sem
flytur úr borginni upp i sveit,
þar sem hún gerist kennslu-
kona. Hún eignast þar einn son,
og dregur sagan nafn af honum,
þvi hann kallar hún „Svona
stór,” en i nafninu er kallað á
nokkurn samanburö á þeim
mæðginum. Manngildi móður-
innar er annars eðlis en sonar-
ins, sem gerist fjáraflamaður
upp á ameriska visu. Þetta er
fögur og hugþekk saga, sem
enn á erindi til nýrra lesenda og
7.00 Morgunútvarp
12.00 Dagskráin Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. A frfvaktinni
Margrét Guömundsdóttir
kynnir óskalög sjómanna.
14.30 Miödegissagan: ,,Svona
stór” eftir Ednu FerberSig-
uröur Guömundsson þýddi.
Þórhallur Sigurösson les
(8).
15.00 Miödegistónleikar
Filharmoniusveitin i Berlin
leikur Pólonesu og valsa úr
óperunni „Eugen Onegin”
eftir Pjotr Tsjaikovský:
Herbert von Karajan
stjómar/ Jascha Silberstein
og Suisse Romande hljóm-
sveitin leika Sellókonsert i
e-moll op. 24 eftir David
Popper: Richard Bonynge
stjórnar/Sinfóníuhljómsveit
ungverska útvarpsins leikur
Tilbrigði eftirZoltán Kodály
um ungverska þjóölagiö
„Páfuglinn”, György Lehel
stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veöurfregnir).
16.20 Tónleikar.
17.30 Lagiö mitt Helga Þ.
Stephensen kynnir óskalög
barna innan tólf ára aldurs.
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
hlustenda, svo sem er aðals-
merki allra góðra bókmennta.
Leikrit vikunnar
„Lítrygging
er lausnin”
Kl. 20.55 er flutt leikritið„Lif-
trygging er lausnin” eftir R.D.
Wingfield. Þýðandi er Torfey
Steinsdóttir, en leikstjóri Helgi
Skúlason. Með stærstu hlut-
verkin fara Rúrik Haraldsson,
Gunnar Eyjólfsson, Helga
Bachmann og Guðbjörg Þor-
bjarnardóttir. Flutningur leiks-
ins tekur röska klukkustund.
Croll einkaspæjari hefur orðiö
aö láta öörum eftir skrifstofu
sina. Hann þjáist af svimaköst-
um og annarri vanliðan og fær
að vita, að hann eigi ekki marga
mánuöi ólifaða. Nýi einkaspæj-
arinn, Martin, felur Croll það
verkefni aö hafa gætur á húsi
ungrar konu, Júliu Heston. Hún
segir mann sinn hafa horfið að
heiman, en Croll er vantrúaöur
á, að öll frásögn hennar hafi við
rök að styðjast.
R.D. Wingfield skrifar saka-
málaleikrit fyrir breska útvarp-
ið. Hann er islenskum hlustend-
um að góðu kunnur, þvi aö áður
hafa tvö leikrit hans verið flutt i
útvarpinu: „Afarkostir” og
„Bjartur og fagur dauðdagi”,
bæði fyrr á þessu ári.
Leikrit Wingfields eru gædd
sérstæðri spennu og óvæntum
atburðum, eins og vera ber i
slikum leikverkum. Hugmyndir
hans eru kannski ekki allar
mjög frumlegar, en hann vinnur
skemmtilega úr þeim, og það
skiptir mestu máli.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál Gfsli Jóns-
son flytur þáttinn.
19.40 Fjöllin okkar Guðjón
Jónsson frá Fagurhólsmýri
flytur siðara erindi sitt um
öræfajökul.
20.05 Stefán lslandi óperu-
söngvari sjötugur
20.55 Leikrit: „Liftrygging er
lausnin” eftir R.D.
Wingfield Þýðandi: Torfey
Steinsdóttir Leikstjóri:
Helgi Skúlason. Persónur og
leikendur: Croll: Rúrik
Haraldsson, Gladys: Guö-
björg Þorbjarnardóttir,
Martin: Gunnar Eyjólfsson,
Júlia Heston: Helga
Bachmann, Betty:
Kristbjörg Kjeld Aðrir leik-
endur: Flosi Ölafsson, Ævar
R. Kvaran, Valdemar
Helgason og Hjalti Rögn-
valdsson.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Dægradvöl” eftir
Benedikt Gröndal Flosi
Ólafsson les (18).
22.40 Kvöldtónleikar
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.