Þjóðviljinn - 06.10.1977, Side 14
14 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 6. október 1977
Ránið ájapönsku flugvélinni:
Lausnargjaldið notað
til „skæruliðastarfs”
NIKOSIU 5/10 Reuter —
Maður einti/ sem heldur
því fram að hann standi á
bak við ránið á japönsku
flugvélinni/ lýsti því yfir
að //Rauði herinn" jap-
anski myndi nota lausnar-
gjaldið/ — en það er hæsta
lausnargjald sem borgað
hefur verið við flugvélarán
— til að ef la árásir sínar á
hei msva Idasinna, og
nefndi hann sérstaklega í
því sambandi japani og
israela.
Þessi yfirlýsing kom fram i
tveggja klukkustunda löngu við-
tali, sem þessi maður gaf frétta-
mönnum í höfuðborg i Austur-
löndum nær, eftir að japanska
flugvélin sem rænt var lenti i
Algeirsborg með sex miljón doll-
ara lausnargjald. Maðurinn
sagðist vera félagi úr miðstjórn
japanska „Rauða hersins”, en i
henni ættu sæti innan við tólf
menn, og sagðist hann áður hafa
notað nafnið „Yano Kenichi”.
Sagðist hann vera á lista yfir
menn sem bæði japanska og isra-
elska stjórnin væru að leita að.
Kenichi sagði að skæruliðarnir
myndu ekki nota peningana i eig-
in hagsmuni heldur til að „efla
byltinguna,” og myndu þeir nota
þá til að byggja nýjar bækistöðv-
ar fyrir hina alþjóðlegu
byltingarhreyfingu. Sagðist hann
hafa starfað með „Rauða hern-
um” i meira en fimm ár og gaf
það i skyn, án þess að segja það
beinlinis, að hann hefði tekið þátt
i að skipuleggja árásina á
Lydda-flugvöll i Israel, en þar
biðu 28 menn bana.
Kenichi sagði að i „Rauða
hernum” væru innan við 150
starfandi félagar og skiptust þeir
Alþýðubandalagið Breiðdalsvik
Alþýðubandalagið Breiðdalsvik heldur almenna samkomu i Staðar-
borg, Breiðdal, nk. laugardag og hefst hún kl. 20,30. Avörp, ljóðalestur,
gamanvisur, dans. — Alþýðubandalagið, Breiðdalsvik.
Félagsfundur Alþýðubandalagsins í Borgarnesi
Alþýðubandalagsfélag Borgarness og nærsveita heldur félagsfund
þriðjudaginn 11. n.k. kl. 20.30 i Snorrabúð.
Dagskrá: 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Hreppsnefndarmál (Mjög
stutt). 3. Kosning fulltrúa á landsfund Alþýðubandalagsins. 4.
Undirbúningur kjördæmisráðsfundar 15.-16. október. 5. Nefnda -
kjör. — Stjórnin.
Alþýðubandalagið í Reykjavík.
Starfsnefndir sem fjalla um kjör aldraðra og dagvistun koma sam-
an á mánudagskvöld kl. 20.30 á Grettisgötu 3.
Nefndirnar eiga að vinna að stefnumótun i þessum málaflokkum
fyrir borgarstjórnarkosningar og eru þær öllum opnar.
Kjördæmisráðsfundur á Vesturlandi
Kjördæmisráðsfundur Alþýðubandalagsins i Vesturlandskjördæmi
verður haldinn á Akranesi dagana 15.-16. þessa mánaðar. Fundurinn
hefst kl. 14 á laugardag i Rein. Dagskrá fundarins verður birt siðar. —
Kjördæmisráð.
Alþýðubandalagið i Reykjavík
Fulltrúaráðsfundur verður haldinn 6. okt. kl. 20 að Hótel Esju, annarri
hæð, (gengið inn um gestamóttöku fiáSuðurlandsbraut)
Fundarefni: 1. Kosning kjörnefndar vegna borgarstjórnarkosninga. 2.
Störf og stefna á kosningaári. Málshefjendur: Svava Jakobsdóttir og
Svanur Kristjánsson. Stjórnin.
i smá „sellur” en miðstjórnin
skipulegði starfsemina Engin
tengsl væru milli hinna einstöku
sella og miðstjórnin ein þekkti
alla félagana. Flestir félagar
„Rauða hersins” væru i Japan
sjálfu, og litu þeir á sig sem her-
menn i skæruhernaði. Enginn
munur væri á Japan fyrir heims-
styrjöldina siðari og Japan nú-
timans, sem kallað væri lýðræðis-
riki en væri þó i höndum keisar-
ans og 200 fjölskyldna.
Hajime Fukuda, dómsmála-
ráðhera Japans, sagði af sér i
gærkvöldi vegna flugránsins, en
sagt er að hann hafi verið andvig-
ur þvi að gengið væri að kröfum
ræningjanna. Japanir breyttu i
dag um stefnu og kröfðust þess að
alsirska stjórnin framseldi flug-
ræningjana og afhenti sex miljón
dollara lausnargjaldið. Alsirbúar
hafa ekki undirritað alþjóða-
samninga um flugvélarán og hafa
þeir tvisvar veitt flugvélaræn-
ingjum hæli, en i bæði skiptin af-
hent lausnargjaldið, sem borgað
hafði verið, til þeirra sem höfðu
látið það af hendi.
Hörpudiskur
verdlagdur
Verðlagsráð sjávarútvegsins
hefur ákveðið eftirfarandi lág-
marksverð á hörpudiski frá 1.
október til 31. desember 1977
Hörpudiskur i vinnsluhæfu ástandi:
a) 7 cm á hæðog yfir, hvert kg.....................kr. 32.00
b) 6 cm að 7cm á hæð,hvert kg......................kr. 25.00
Verðið er miðað við að selj-
endurskili hörpudiski á flutnings-
tæki við hlið veiðiskips og skal
hörpudiskurinn veginn á bilvog af
löggiltum vigtarmanni á vinnslu-
staðog þess gætt að sjór fylgi ekki
með.
Verðið miðast við gæða- og
stærðarmat Framleiðslueftirlits
sjávarafurða og fari gæða- og
stærðarflokkun fram á vinnslu-
stað.
Verð á rækju
Yfirnefnd verðlagsráðs sjávar-
útvegsins hefur ákveðið eftirfar-
andi lágmarksverð á rækju frá 1.
október til 31. desember 1977
Rækja, óskelflett f vinnsluhæfu ástandi
a) 180stk.ogfærriikg, hvertkg.........................kr. 134.00
b) 181 til200stkikg.hvertkg...........................kr. 125.00
c) 201 - 220stk. f kg. hvert kg........................kr. 115.00
d) 221 -240stk. i kg. hvert kg........................kr. 106.00
e) 241 - 260stk. i kg. hvert kg........................kr. 96.00
f) 261 - 280stk. i kg. hvert kg........................kr. 87.00
g) 281-310stk. ikg. hvertkg...........................kr. 78.00
Verðflokkun byggist á talningu
Framleiðslueftirlits sjávarafurða
eða trúnaðarmanns, sem er til-
nefndur sameiginlega af kaup-
enda og seljenda.
Verðið er miðað við að seljandi
skili rækju á flutningstæki við hlið
veiðiskips.
Um þá verðflokkun sem nú er
tekin upp á rækju svo og um verð-
hlutföll á milli verðflokka varð
samkomulag i Verðlagsráði.
Verðið sjálft var hinsvegar
ákveðið af oddamanni og fulltrú-
um seljenda i yfirnefndinni gegn
atkvæðum fulltrúa kaupenda. I
yfirnefndinni áttu sæti: Gamaliel
Sveinsson, sem var oddamaður
nefndarinnar, Agúst Einarsson
og Ingólfur Ingólfsson af hálfu
seljenda og Arni Benediktsson og
Ólafur B. ólafsson af hálfu
kaupenda.
#ÞJÓÐLEIKHÚSIfl
AFMÆLISTÓNLEIKAR
Stefán Islandi sjötugur i
kvöld. kl. 19.00.
NÓTT ÁSTMEYJANNA föstu-
dag kl. 20.00.
TÝNDA TESKEIÐIN 5. sýn-
ing laugardag kl. 20.00. 6. sýn-
ing sunnudag kl. 20.00.
Uppselt.
DÝRIN í HALSASKÓGI
sunnudag kl. 15.00.
Miðasala 13.15
11200.
20.00. Simi
IíIIKFEIAC', <2i2 lil
RKYKJAVlKUR 'M ^
SKJALDHAMRAR i kvöld kl.
20.30. Laugardag kl. 20.30.
GARY KVARTMILJÓN
föstudag kl. 20.30. Sunnudag
kl. 20.30.
SAUMASTOFAN miðvikudag
kl. 20.30.
Miðasala i Iðnó 14.00 — 20.30.
Simi 16620.
Austurbæjarbíó
BLESSAÐ BARNALAN
laugardag kl. 23.30.
Miðasala i Austurbæjarbiói kl.
16.00 — 21.00. Simi 11384.
Jarðaförum aflýst
vegna verkfalls
LONDON 5/10 Reuter -
starfsmenn við útfarir,
Breskir
sem nú
eru i verkfalli, fóru i dag fram á
það að erlendir starfsbræður
þeirra veittu þeim stuðning með
þvi að neita að senda til Englands
lik þeirra englendinga, sem dæju
erlendis.
„Ég veit að þetta er mikið til-
finningamál”, sagði Roy Wheel-
er, talsmaður verkfallsmann-
anna, „en ef englendingur deyr i
frii erlendis munum við reyna að
koma i veg fyrir að lik hans kom-
ist heim”.
ökumenn likvagna, likkistu-
burðarmenn og smurningsmenn i
London hafa nú verið i verkfalli i
þrjá daga til aö krefjast auka-
greiðslna fyrir að vera alltaf
reiðubúnir til þjónustu og hefur
mörgum jarðarförum verið af-
lýst.
Herstöðvaandstæðingar
Herstöðvaandstæðingar Kópavogi.
Fundur i Kópavogshóp verður i kvöld,
fimmtudag, kl. 8.30 i Tryggvagötu 10.
Rætt verður um fyrirhugaða landsráð-
stefnu og starfið fram undan.
10 flokkur
9 á 1 000.000 — 9.000.000 —
9 — 500 000 — 4.500.000,—
9 — 200.000 — 1.808.000 —
243 — 100.000,— 24.300.000 —
693 — 50 000,— 34.650.000 —
9.279 — 10 000 — 92 790.000,—
10.242 167.040.000 —
18 — 50 000,— 900.000,—
10.260 167.940.000,—
Gleymið ekki að
endurnýja! Það
verður dregið í 10.
flokki þriðjudaginn
11. október.
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS
Tvö þúsund milljónir í boói
SKIPAUTGCRQ RIKISINS
M.s. Hekla
fer frá Reykjavik
þriðjudaginn 11. þ.m.
austur um land i
hringferð. Vörumót-
taka: miðvikudag,
fimmtudag og föstu-
dag til Vestmanna-
eyja, Austfjarða-
hafna, Þórshafnar,
Raufarhafnar, Húsa-
vikur og Akureyrar.
Pfpulagnir
Nýlagnir, breyting-
ar, hitaveitutenging-
ar.
Sími 36929 (milli kl.
12 og 1 og eftir kl. 7 á
kvöldin)