Þjóðviljinn - 16.10.1977, Blaðsíða 21

Þjóðviljinn - 16.10.1977, Blaðsíða 21
Sunnudagur 16. október 1977, ÞJÚÐVILJINN — StÐA 21 Sköpun *$' Evu 1/^trA i -y/œ. Þetta er bernskuvinur minn, viö erum alveg ó- aöskiljanlegir v\// a f\]{[) , ,x\fr ar, v\K/ ðtf' ^ v\r/ - *- & <ag> v\r/ Yr . \ /ÍS^fef Komiö þið allir saman Adolf J. Petersen: l'm VÍSNAMÁL V Þetta tilheyrir allt saman mér og félaga minum. Hæglát kyssti báran blá... Póstþjónustan á Islandi, lengi lifi, eða hvað? Bréf sem Björn Jónsson i Swan River, Alftá, skrifaði til Vísnamála þann 3ja september komst til skila þann 6. október; þaö hefur þvi verið rúman mánuð á leiðinni. Björn segir að i ferð sinni um Sprengisand i sumar hafi orðið litið úr yrkingum; kennir um of miklum hraða, eða einsog ein- hver sagði: Þótt ég geri stöku stöku stöku sinni, lltt ég þvi að sinni sinni, sinni bara vinnu minni. Visan er eftir Sigurð J. Gisla- son frá Skarðsá i Sæmundar- hlíð. Björn var á ferð sinni um Sprengisand að leita að gömlum beinakerlingum (það eru stein- vörður); hann fann eina eða tvær; svo kom hann við hjá Friðjóni sýslumanni i Höfn Hornafirði sem var þó ekki viðlátinn, en lögreglumenn léðu Birni salerni, sem hann fékk að nota á kostnað hins opinbera að hann segir. Eftir bréfi Björns að dæma hefur orðið frekar litið Ur yrk- ingum hjá honum i þessari ferð; hann segir þó, ,,þU komst með strembið forprjón þarna siöast, ég botna i sama tón: Þeir eru að krafla Kröfhi i kniíðir afli véla. Surtur hraflar öflum f iðradrafla gréla." Björn lét þessa oröskýringu fylgja, ,,öflum” eldstæði, „iðra- (h-afla” hraunkvika, „gréla” hrekkir. Björn var að grúska i gömlum vörðum á Sprengi- sandi, á sama tima voru aðrir að grUska i ýmsu öðru svo sem gömlum bókum, eða einsog Sigurður J. Gislason frá Skarðsá kvað: Ekki myndu allir þvi una —• og telja gaman, en gömium skræðum get ég i grdskað timum saman. 1 Visnamálum 2. okt. s.l. var vísan Hversdagslega sýn ég sá, sU var hlýju blandin. Hæglát kyssti báran blá blakkan fjörusandinn oghUnsögð eftir Gisla GÍslason, sem Gisli segir að sé ekki rétt; visan sé eftir Kristján Hjartar- son;leiðréttist þetta hér með og þeir Gisli og Kristján beðnir afsökunar á misrituninni. Gisli er góður vinur Visna- mála og sendir stundum ágætt efni, meðal annars þessa vísu eftir Erling Jóhannsson: Kynnglmögnuð muna frá mæla gögn i eyra, Stundum þögnin yndi á öllum sögnum meira. Visnamál hafa leitast við að safna og halda saman visum og kviðlingum eftir hina og aðra, einkum þó alþýðuskáldin, eða eitthvað likt og segir i þessari visu eftir Sigurð J. Gislason frá Skarðsá: Labba ég um Langasand lifs mins rekafjörur, og dútla við að draga á land dýra viði og pjörur. Ljóðabókin „Bóndadóttirin” eftir Guttorm J. Guttormsson kom Ut árið 1920. Þá sendi Gutt- ormur fyrstu bókina til Baldvins Halldórssonar skálda, sem var nábUi hans i Kanada og skrifaði á bókarkápuna þessa vísu: Síst þú vildir syngja brag sem ei tylldi f haidi. Þyngsta gildi i þinum slag það er snilldin, Baldi. Baldvin skáldi kom eitt sinn Ur veiðiför utan frá Winnepeg- vatni og kom við á veitingastað; þar sátu þá nokkrir landar hans að skytningi; einn þeirra stóö upp og sagði Við Baldvin að hann skyldi fá nógan drykk ef hann gerði visu á stundinni: Baldvin kvað: Þér að svara svona I bráö, sæmd mér sparar góða. Norður farir feyskju dáð fegurðar og ljóða. Þessar visur munu ekki vera til á prenti, en eru i fórum Jóhanns J.E. KUld. Hér var fyrir nokkru birtur /isuhelmingur sem óskað var ið menn botnuðu; visuhelm- ingurinn var svona: Krafla er af óstjórn lands orðin raunsæ myndin. Sigurður Draumland á \kureyri segist reyna að botna : Skammt er milli gæsku og grands, guð hefur skapað tindinn. Siguröur segist eiga þarna við LeirhnjUk, en raunar vilji hann lafa visuna svona: Hér i rfki bræðrabands beinum tapar grindin. En nií er Krafla i óstjórn lands orðin skásta syndin. Amen ræðunnar: Virkjunina vantar sál, vonin til þess stendur, að satan flýi brunnið bál burt með tómar hendur. Likið verður lagt á kross, leikur stöðvast harði, daginn þann sem Dettifoss dunar i Námaskarði. Um mammon i samfélaginu kveður Sigurður: Margfölduð úr hendi hans hoppar gullna syndin. Eftirmáli er andskotans auðnargapa myndin. Svo: Eitthvað i sambandi við liðandi stund: Ógnartála, eilift mál, ofar skálaglamri, flytja i bála fullan ál fram af stálahamri Þetta er einmitt það sem Sig- urður Draumland hefur að segja um Kröflu og samfélagið. Það vareinhvern daginn nUna i september, að kona nokkur kvartaði um það i Þjóðviljanum að hér á landi væri eigi völ á nægu barnaefni. Ýmsir sem lásu þetta brostu, en bóndi einn á Norðurlandi brosti samt meira en aðrir og sendi Þjóð- viljanum skellihlátur á blaði og bauð konunni að blanda með henni efnum i svo sem einn krakka. Svo gerist það 5. októ- ber að þá segir i Þjóðviljanum að nU sé komiö barnaefni frá Chile og Kina. Samkvæmt þvi þurfa karl og kona, örþreytt eft- ir langan vinnudag, ekki að eyða hluta nætur i að blanda saman efnum sinum til að geta börn. Svo að: Fæðingumum fækka má, fjör og hvatir dvina, þvi barnaefni berast frá bæði Chile og Kina. Þetta er greinilega hagræði t.d.fyrir heildsalann sem flytur barnaefnið inn, nU, og lika at- vinnurekendur sem þurfa áallri orku sins vinnufólks að halda, þvi við þessa athöfn fólks er talsvert orkutap;það er t.d. sagt að fyrir karlmann sé ein eðlun sama orkueyðsla og hann hlypi fjögur hundruð metra vega- lengd eins hratt og hann getur. Þvi verður betra að hugleiða þetta: Að þrotum kominn þreytti sveinn, þér að sofna er betra, en fara að hlaupa fótaseinn fjögur hundruð metra. Það erlika sagt að konur eyði sama orkumagni i eina eðlun og ef þærsyntu eitthundrað metra; svo að: Fljóði er betra aö falla I biund fjörlaust hvila holdið, en hundraö metra svamla sund þó sé það endurgoldið. Svo er þaö blöndunin á barna efninu; annað frá Chile en hitt frá Kina. Hvernig mun afkvæm- ið verða: Efnin reynast varla vönd. Vaxtarsnið og litur, kagað nef og kræklótt hönd, á kinnum hroði situr. Klofið stutt og hokin hné, hangir rass og kviöur, augun skökk og andlit spé, armar lafa niður NU, það verður að likindum betra að hafa gamla lagið og bóndin fyrir norðan blandi sinu barnaefnimeð konunni sem var að kvarta um þann efnisskort; Eðla konan ung og frjó eflaust geymir forðann og barnaefni blandar I ró bóndans sæði að norðan. AJP. \ Blikkiðjan Ásgarði 7, Garðabæ önnumst þakrennusmiði og uppsetningu — ennfremur twerskonar blikksmíði. Gerum föst verðtilboð SÍMI53468

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.