Þjóðviljinn - 27.11.1977, Blaðsíða 12
27.
nóv
em'
.ber
lb
Gömi'
húsr
lu
I
bo
húsin
rginnr
Ig
'"".Sífí';*.,.,,,
seí,/ °nnt)^ftlf a/w
*ri‘sí
UKe^<sþettt,
y'8flu zfk°nU h SSeJ v
’<-% 5?S33?^v.
áhasntteS-Jantíat
4NNNMMr'
“‘"’stiSiA'ff r,.ni *» <íts?-
s<yir sti£aii
Hot»ur rFn
'yrir
Sunnudagur 27. nóvember 1977 ÞJtfÐVILJINN — SÍÐA 13;
Spjallað viö SVEIN ÞÓRÐARSON, sem á stærsta
safn ljósmynda af gömlum húsum í Reykjavík
, módelerum og rífum síðan
ur»r?ri
' .
Nú eru uppi tvö ólík sjón-
armið um hvað gera eigi
við gömul hús á Islandi.
Sjálfsagt ná þessar deilur
manna um allt land, en
einhverra hluta vegna
hafa raddir um málið orðið
háværastar í Reykjavík og
má þar sennilega um
kenna eða þakka Grjóta-
þorpinu. Eftir að upp kom
sú hugmynd að rífa öll
gömlu húsin þar og byggja
ný í staðinn, reis upp öf lug-
ur hópur fólks, sem vildi
gera við Grjótaþorpshúsin
og varðveita þau. Síðan
hafa umræður um húsfrið-
i unarmál komist á víðari
grundvöll og menn deila
um hvert einasta gamalt
hús, á að ríf a það eða gera
við og varðveita.
Um eitt atriöi eru báöir þessir
hópar sjálfsagt sammála, en þaö
er aö nauðsynlegt sé aö eiga ljós-
myndir af öllum þessum húsum.
Ekki er okkur kunnugt um að
nokkur félagsskapur né borgaryf-
irvöld hafi skipulagt starf við aö
gera módel og ljósmynda gömul
hús, sem fyrirsjáanlegt er aö
munihverfa á næstunni. Hinsveg-
ar fréttum viö af manni, sem hef-
ur uppá eindæmi ljósmyndaö um
þaö bil 500 hús i Reykjavik, sem
mörg hver eru nú horfin af sjón-
arsviðinu og enginn gæti sagt til
um hvernig út litu, ef ekki kæmi
til þetta einstaka framtak Sveins
Þórðarsonar fyrrverandi aðalfé-
hirðis Búnaöarbanka Islands.
Myndadeild á minjasafni
Við heimsóttum Svein fyrir
nokkru til aö fræöast nánar um
þetta einstaka ljósmyndasafn
hans og spurðum hann fyrst
hvernig það heföi atvikast aö
hann fór aö taka þessar ljós-
myndir.
,,Þaö var áriö 1956, ég var þá
formaöur Reykvikingafélagsins,
aö stjórn þess ákvaö aö gefa
Reykjavlkurborg 10 þúsund krón-
ur til kaupa á ljósmyndavél og
ætluðumst til þess, aö hún yrði i
vörslu borgarskjalavaröar, sem
léti nota hana til aö mynda göm-
ul hús i borginni. Þetta var gert,
Gunnari Thoroddsen,sem þá var
borgarstjóri i Reykjavik, færðar
þessar krónur og siöan var ljós-
myndavélin keypt. En Lárus Sig-
urbjörnsson, sem þá var skjala-
vörður borgarinnar og siöan
forstööumaöur minjasafnsins,
mun hafa haft meira en nóg á
sinni könnu og litið varö úr ljós-
-myndun. Þctta likaöi mér ekki,
þannig aö ég fékk vélina lánaöa
og hóf aö taka ljósmyndir.
Ég framkallaöi allar filmur
sjálfur og kóperaöi siöan mynd-
irnar og fékk til þess svolitinn
styrk. Meö þessu hugöist ég koma
upp myndadeild i minjasafninu
og ég haföi þann háttinn á, aö ég
kóperaöi hverja einustu mynd
sem ég tók og setti i merkt um-
slag og færði safninu. En filmun-
um hélt ég sjálfur. Ég setti siöan
hverja filmu I umslag og merkti
eins og ljósmyndina og kom mér
upp nákvæmri skrá yfir safnið,
þar sem er aö finna allan þann
fróöleik, sem ég gat grafiö upp
um hvert hús fyrir sig. Hvenær
þaö var byggt og hver geröi þaö
og hverjir höfðu verið eigendur
þeirra fram til þess tima að
myndin var tekin.
A fimmta hundraðið
— Og hvað hefurðu tekiö
myndir af mörgum húsum?
,,Ég veit þaö nú ekki alveg
nákvæmlega en þau eru á milli
fjögur og fimmhundruö, senni-
lega nær fimmta hundraöinu.
— Nú eru uppi háværar deilur
um þaö hvaö eigi aö gera viö
gömul hús i borginni, hvert er þitt
sjónarmið i þessu máli?
,,Uss, blessaöur vertu, þaö á aö
rifa öll þessi gömlu hús. Fyrst á
ab taka af þeim ljósmyndir, siöan
gera módel af þeim, en þegar þaö
er búiö á aö rifa þau."
Helgur staður
— Grjótaþorpið lika?
,,Já, Grjótaþorpiö lika. Að visu
er Grjótaþorpiö, þ.e.a.s. þaö
svæði, heilagur staður fyrir
Reykvikinga að minum dómi og
þaö á alls ekki leyfa þar nokkra
nýbyggingu. Gömlu húsin á að
rifa, en siðan á að varðveita
þennan staö. Þarna er um aö
ræöa landnámsstaö Reykjavikur
og það eru sjálfsagt ekki marg-
ar höfuðborgir i heimin-
um, sem geta rakið sagnfræði-
lega sögu sina og bent á land-
námsstaðinn, eins og Reykjavik.
Nei, ég er ekki húsafriöunarmaö-
ur. Við megum ekki gleyma þvi
að timans tönn vinnur á öllum
hlutum og þar kemur aö svona
timburhúsum verður ekki lengur
haldiö viö og ég sé engan tilgang i
þvi aö fresta niöurrifi þeirra. Þar
að kemur aö óumflýjanlegt verö-
ur aö rifa þau.
— Finnst þér engin ástæöa til
aö flytja gömul hús uppi Árbæjar-
safn og varðveita þau þar?
,,Að minum dómi hefur of mikið
verið gert af þvi. Þaö er ástæöa til
aö gera þaö viö eitt og eitt merki-
legt hús, hús sem á einhverja
sögu, sem ástæöa er til aö varð-
veita. En mörg þeirra húsa sem
flutt hafa veriö aö Árbæ eru ekki
þess virði og get ég i þvi sam-
bandi nefnt Dillonshús. Þaö var
algerlega ástæöulaust að flytja
þaö þangaö uppeftir.11
Enn eru nokkrar eftir
— Tekurðu enn myndir af
gömlum húsum Sveinn?
,,Nei, nú er ég alveg hættur.
Heilsan bilaði og þá hætti ég
þessu. Ég hef myndaö mikiö hér i
Vesturbænum, miöborginni og
eins myndaöi ég Blesugrófarhús-
in og marga herkampana sem
voru I Reykjavik, en nú er ég
hættur. Ég er þó enn með ljós-
myndavélina en þarf endilega aö
fara að skila henni, það er ekki
ástæöa til þess aö ég sé meö hana
lengur fyrst ég er alveg hættur aö
taka myndir. Ég er þó hérna meö
nokkrarljósmyndirsem ég á eftir
aö skila til borgarinnar, þær eru
alveg tilbúnar og merktar, ég á
bara eftir að skila þeim’*—S.dór
Eins og undanfarin ár bjóðum við viku og tveggja vikna
ferðir til Kitzbúhel og St. Anton í Austurríki á verði
frá 69.900 og 80.900 krónum. Þeir sem veljatveggja
vikna ferðir geta dvalið viku á hvorum stað ef þeir
kjósa heldur. Og nú er einnig hægt að velja um gistingu
í fjallaskála eða á hóteli.
Brekkur eru þar jafnt fyrir byrjendur sem þá, sem betri
eru. Útivera í snjó og sól allan daginn, og þegar heim
er komið bíður hvíld, góður kvöldmatur og rólegt
kvöld við upprifjun á ævintýrum dagsins eða upplyfting
á skemmtistað, alit eftir óskum hvers og eins.
Flogið er frá Keflavíkurflugvelli til Luxemborgar og
þaðan til Munchen. Frá Múnchen er síðan ekið á
áfangastað, um 2ja til 3ja stunda akstur.
Austurrísku alparnir eru draumsýn allra skíðamanna -
við látum drauminn rætast fyrir verð sem þú ræður við.
Skíðafólk leitið upplýsinga hjá söluskrifstofum okkar,
umboðsmönnum og ferðaskrífstofum.
flucfélac LOFTLEIDIR
/SLAJVDS
F...f'