Þjóðviljinn - 27.11.1977, Blaðsíða 24

Þjóðviljinn - 27.11.1977, Blaðsíða 24
DWÐVIUINN Sunnudagur 27. nóvember 1977 Aöalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og surinudögum. Utan þessa tima er hægt aö ná I blaöamenn og aöra starfs- menn blaösins I þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, Utbreiösla 81482 og Blaöaprent 81348. ^ 81333 Einnig skal bent á heima- sima starfsmanna undir nafni Þjóöviljans I sima- skrá. ✓ Ferðafélag Islands er fimmtugt í dag: Átta tugir ferðamanna urðu átta þúsundir Eitt öflugasta og nyt- samasta félag landsins, Ferðafélag íslands, er fimmtugt í dag. Stofnfél- agar voru 63 en nú eru fél- agsmenn 7300. 1 söguágripi frá FI er þess get- ið, aö hugmyndin að stofnun fél- agsins hafi upphaflega verið komin frá Sveini Björnssyni sendiherra og siðar forseta lýö- veldisins. Einn helsti hvatamaður að stofnun félagsins var svo Björn Ólafsson stórkaupmaöur. t ávarpi sem nokkrir áhuga- menn tóku saman á undirbún- ingsfundi segir á þá leið að: A siðari árum hefur áhugi manna aukist mjög á að ferðast um landið, kynnast óbyggðunum og öðrum lítt kunnum landshlut- um, svo og náttúru þess, sögu og þjóðháttum. Hér á landi er engin félagsskapur, sem beitir sér fyrir landkynningu hvorki innanlands né utan. Á Norðurlöndum og viðar eru slik félög mjög öflug, og hafa það hlutverk aö auka þekkingu manna á náttúru landsins og greiða fyrir ferðalögum. Og er það álit undirritaða að mjög æski- legtsé aö slikur félagsskapur yrði stofnaður hér á landi. Aðalstarf félagsins hefur frá upphafi verið að kynna tslending- um sitt eigið land. Ber þar hæst útgáfa á Arbókum félagsins, út- gáfa á tslandskortum og á seinni árum m/vegakorti. Bygging sæluhúsa i óbyggðum og ferðalög um landið. w Arbækurnar Strax á árinu 1928 kom út fyrsta árbók F.t. og var hún um Þjórsárdalinn. Þá þegar er mörk- uð sú stefna, sem undantekning- arlitið hefur verið fylgt siöan, þ.e. að áðalefni bókarinnar sé um ákveðið svæöi eða leið. Ýmislegt annað efni hefur verið til viðbótar i Arbókunum, einkum fyrstu árin svo sem um útbúnað i ferðalög- um, umgengni ferðamanna og ferðaþættir, ennfremur minning- argreinar um ýmsa merkismenn á sviði ferðamála og forustumenn Ferðafélagsins. Alls eru árbækur félagsins orðnar 50 talsins og eru þær einhver sú besta lýsing, sem nú er fáanleg af tslandi. Arið 1943 hóf Ferðafélagið kortaútgáfu og hefur siðan gefið út alls sautján kort. Sæluhús og ferðalög Eitt af aðalverkefnum félagsins hefur verið að koma upp sæluhús- um i óbyggðum. Fyrsta húsið var reist árið 1930 i Hvitárnesi við Hvítárvatn. Nú á félagið og deild- ir þess nitjan sæluhús viðsvegar um land. Ferðafélagið hóf skipulagningu ferðalaga á timum vondra vega, brúarleysis og afllitilla bifreiða. Fyrsta skemmtiferðin var farin 21april 1929 og voru þátttakendur 31, allt félagsmenn. Þessi starf- semi hefur aukist jafnt og þétt — úr tveim ferðum með 87 farþega 1929 i 230 ferðir með ca átta þús- und farþega 1977. Félagið hefur alla tið lag? mikla áherslu á gönguferöir. Til dæmis má nefna aö 1700 manns gengu á Esju i sumar leið og er óliklegt að meiri fjölda hafi verið stefnt upp á annað fjall islenskt. Félagsgjaldi hefur jafnan verið stillt i hóf — er það 2500 krónur i ár, og er árbókin innifalin eins og jafnan fyrr. Félagið hefur staðið fyrir ýmis konar landkynningu, m.a. kvöld- vökum, þar sem flutt hafa verið erindi og sýndar myndir sem varða náttúru landsins. Afmælissýning 1 tilefni afmælisins verður sýn- ing i Norræna húsinu, sem opnuð er i dag. Þar verður I stórum dráttum sýnd saga félagsins, einnig ýmislegur ferðaútbúnaður, bæöi gamall og nýr. Nokkur fyrir- tæki sýna ferðabúnað. Skagfjörösskáli i Þórsmörk, eitt af nitján sæluhúsum F.t. Fyrsti forseti FI var Jón Þorláksson. Alls hafa niu manns gegnt þvi embætti, lengst allra Geir G. Zoé'ga I 22 ár. Núverandi forseti er Davið Ólafsson seðla- bankastjóri. Fyrsta deild F1 utan Reykja- vikur var stofnuð á Akureyri 1936. Alls hafa verið stofnaðar niu slik- ar deildir, en fiínm eru nú við lýði, allar á Norður- og Austur- landi. Vinsæl stefnumál I lok þess söguágrips sem hér er stuðst við segir á þessa leið: „Ferðafélagið er félag allra landsmanna. Þessi orð gerði Ferðafélag Islands að einkunnar orðum sinum fyrir löngu. Má segja að ærið sé djarft af einu félagi aö fullyrða að stefnumál þess séu svo góð að allir Islend- ingar gætu fylkt sér undir merki þess. En reynslan hefur sýnt að fleiri og fleiri aðhyllast stefnumál félagsins, hvort sem þeir eru fél- agsmenn F.I. eða ekki. Þeir eru æ fleiri sem vilja kynnast landinu. Sifellt fjölgar þeim sem skilja nauðsyn þess að koma fram með vinsemd og skilningi við hvern blett landsins, alla náttúru lands- ins, hvort sem hún kallast dauð agsins i upphafi, og þessi er hún eða lifandi. Þetta var stefna fél- enn”. HqI|ó krakkor! Hver haldiði að sé að svamla í jólabókaflóðinu? Já, það er ég, PÁLL VILHJÁLMSSON. Algjörlega ósyndur maðurinn. Maður getur ekki einu sinni hrokkið í — nei, haldið sér í kút. Ef ykkur er ekki alveg sama um mig, verðiði að kaupa mig í hvelli. Annars bara sekk ég. Globb . . . giobb....bb. Sko, þið farið í næstu bókabúð' og segið: Er til bókin PÁLL VILHJÁLMSSON eftir Guðrúnu Helga- dóttur? Þá segir búðarfólkið kannski: Er það sú sem skrifaði JÓN ODD OG JÓN.BJARNA og I AFA- HÚSI? Einmitt, segið þið. Þið getið líka gert annað: Biðjið mömmu ykkar eða pabba, afa eða ömmur, fráenkur og frændur að gefa ykkur bókina í jóla- gjöf. Krafan er: harðan pakka í ár. Ég rígheld mér í bakkann á meðan . . . globb. Ykkar Palli P.s. Munið að þakka fyrir ykkur. Bræóraborgarstíg 16, Sími 12923-19156

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.