Þjóðviljinn - 15.02.1978, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 15. febrúar 1978
Ávarp vegna stofnunar
Málfrelsissj óds
Birt í tilefni af samkomu til stuðnings Málfrelsissjóði
í Háskólabíói á sunnudaginn kemur
Á sunnudaginn kemur verður haldinn í Háskólabiói
samkoma til stuðnings málf relsissjóði. I tilefni þess
endurbirtir Þjóðviljinn hér stofnávarp málfrelsis-
sjóðs og lista yfir stofnendur sjóðsins eins og til þess
að minna á hverjir það eru sem hófu á loft merki mál-
frelsis og lýðræðis með stofnun þessa sjóðs, sem nú
má vafalaust gera ráð fyrir vaxandi verkefnum.
Allt frá timum frönsku stjórn-
arbyltingarinnar hefur skoð-
ana- og tjáningafrelsi verið einn
af hornsteinum þess lýðræöis,
sem þjóðir um noröanverða
Evrópu og Ameriku hafa hyllt
og leitast við aö festa i sessi.
Réttarþróun i þessum efnum
hefur mjög gengiö i þá átt að
rýmka málfrelsi i stjórnmála-
umræðum.
Samkvæmt stjórnarskrá ís-
lands eiga þessi réttindi að vera
tryggð Islendingum, en með
framkvæmd gildandi laga-
ákvæða um meiðyrði er hætta
á að þessum réttindum verði i
raun settar óæskilegar og
ónauðsynlegar skorður.
Tilefni þessa ávarps eru dóm-
ar þeir sem nýlega hafa verið
kveðnir upp i Hæastarétti vegna
ummæla sem fallið jafa i um-
ræðu um hersetuna, eitt heit-
asta deilumál þjóðarinnar sið-
ustu þrjá áratugi. Með þeim
hefur mörgum einstaklingum
verið gert að greiða háar fjár-
hæðir i málskostnað og miska-
bætur handa stefnendum.
Undirritaðir telja nauðsyn-
iegt, að tryggt verði fylista
frelsi tii umræðu ummálefnisem
varða almannaheill, og til
óheftrar listrænnar tjáningar.
Meðan þetta frelsi er ekki ótvi-
rætt tryggt, teljum við höfuð-
nauðsyn aö slá skjaldborg um
málfrelsið og höfum i þvi skyni
ákveðið aö beita okkur fyrir
stofnun Málfrelsissjóðs. Mál-
frelsissjóði verður ætlað það
hlutverk aö standa straum af
kostnaði og miskabótum vegna
meiðyrðamála, þegar stjórn
sjóðsins telur aö með þeim séu
óeðlilega heftar umræður um
mál, sem hafa almenna samfé-
lagslega eða menningarlega
skirskotun.
Skorum við á tslendinga að
styrkja sjóðinn með fjárfram-
lögum.
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir,
formaður Söknar,
Ágúst Þorvaldsson,
fv. alþingismaður,
Arnessýslu,
Andrés Kristjánsson,
fv. f ræðslustjóri,
Kópavogi.
Andri isaksson,
prófessor,
Arni Björnsson,
læknir,
Atli Hcimir Sveinsson,
formaður
Tónskáldafélags islands,
Björn Bjarnason,
rcktor M.S.
Björn Jónsson,
forseti
Alþýðusambands islands,
Brynja Benediktsdóttir,
leikhússtjóri,
Akureyri,
Böðvar Guðmundsson,
m en nt as kóla ken nari,
Akureyri,
Davið Daviðsson,
prófessor,
Séra Einar Sigurbjörnsson.
dr. theol,
Reynivöllum, Kjós,
Eysteinn Tryggvason,
dósent,
Guðmundur Arnlaugsson,
rektor M.H.
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður
Verkamannasambands islands,
Guðmundur Pétursson,
læknir,
Guðmundur Steinsson,
rithöfundur,
Guðmundur Sveinsson,
skólameistari,
Guðný Guðmundsdóttir,
konsertmeistari,
Guðrún Helgadóttir,
de ildarstjóri,
Guðrún Jónsdóttir,
arkitekt,
Halldór Pálsson, búnaðar-
málastjóri,
Hannes Kr. Daviðsson,
arkitckt,
Helgi J. Halldórsson,
kennari,
Herdis Þorvaldsdóttir,
leikari,
Hildur Hákonardóttir,
skólastjóri,
Hjörleifur Sigurðsson,
formaður Félags Is-
lenskra myndlistarmanna.
Hjörtur E. Þórarinsson,
bóndi, Tjörn,
Svarfaðardal,
Hörður Zophaniasson
skólastjóri,
Haf narfirði,
Ingibjörg Sólrún Gisladóttir,
formaður Stúdentaráðs,
Ingólfur A. Þorkelsson,
skólameistari M.K.
Jakob Benediktsson,
orðabókarritstjóri,
Jakob Jakobsson,
fiskifræðingur,
Séra Jakob Jónsson,
dr. theol.
Jóhann S. Hannesson,
menntaskólakennari,
Hafnarfirði,
Jón Asgeirsson,
tónskáld,
Séra Jón Bjarman,
fangaprestur,
Jón Böðvarsson,
skólameistari,
Ytri-Njarðvik,
Jón Heigason,
ritstjóri,
Jónas Jónsson,
ritstjóri,
Jónas Pálsson,
skólastjóri,
Kristinn Kristmundsson,
skólameistari M.L.
Kristin E. Jónsdóttir,
læknir,
Kristin Tryggvadóttir,
kennari,
Hafnarfirði,
Kristján Árnason,
kennari,
Kristján Bersi Ólafsson,
skóiameistari,
Hafnarfirði,
Margrét Hcrmannsdóttir,
fornieifafræðingur,
Nina Björk Arnadóttir, -
ská Id,
ólafur Jóhann Sigurðsson,
rithöfundur,
Ólafur Þ. Kristjánsson,
fv. skólastjóri,
Hafnarfirði,
Óskar Vigfússon,
formaður Sjómannasambands
tslands,
Páll A. Pálsson,
yfirdýralæknir,
Páll Lýðsson,
bóndi,
Litlu Sandvik, Flóa,
Páll Skúlason,
prófessor,
Pétur Gunnarsson,
rithöfundur,
Sigurður Lindal,
prófessor,
Sigurður Þórarinsson,
prófessor,
Sigurjón Björnsson,
prófessor,
Sigurjón Ólafsson,
myndhöggvari,
Sigurvin Einarsson
fv. alþingismaður,
Sigvaidi Hjálmarsson,
ritstjóri,
Silja Aðalsteinsdóttir,
cand. mag.
Stefán Júliusson,
rithöfundur,
Haf narfirði,
Steinunn Finnbogadóttir,
Ijósmóðir,
Thor Vilhjálmsson,
forseti Bandalags
isl. listamanna,
Tómas Ingi Olrich,
konrektor, öngulstaðahreppi,
Tryggvi Emilsson,
verkamaður,
Tryggvi Gislason,
skólameistari M.A.
Valdimar Jóhannsson,
útgefandi,
Vaigeir Guðjónsson,
hljómlistarmaður,
Vésteinn Ólason,
lektor,
Vigdis Finnbogadóttir,
Ieikhússtjóri,
Þórir Kr. Þórðarson,
prófessor,
Þorlákur H. Helgason,
kennari,
Þorsteinn ö. Stephensen,
leikari,
Séra Þorvaldur Karl Helgason,
æskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunn-
ar.
Þorvaldur Skúlason,
listmáiari.
Hið íslenska prentarafélag:
Endurskoðun samninga
Hið islenska prentarafélag
hefur sent frá sér ályktun þar
sem mótmælt er gengisfelling-
unni og lögð til endurskoðun
samninga ef visitöluákvæðum
þeirra verði rift. Ályktunin er
svohljóðandi
„Fundur Fulltrúaráös Hins
islenska prentarafélags, haldinn
13. febrúar 1978, mótmælir harð-
lega ákvöröun rikisstjórnarinnar
um að fella gengi islensku
krónunnar og einnig og ekki siður
þeim áformum að skerða visi-
töluákkvæði kjarasamninga, sem
undirritaðir voru fyrir aðeins átta
mánuðum.
Fundurinn vill i þessu sam-
bandi vekja athygli á, að visitölu-
ákvæðin eru eitt af aðalatriðum
siðustu samninga og eiga að virka
sem trygging fyrir þvi að kaup-
máttur launa haldist óbreyttur.
Ef slik trygging er ekki lengur
fyrir hendi, hlýtur verkalýös-
hreyfingin að endurskoða afstöðu
sina til samninganna.
Fundurinn skorar á verkalýðs-
félög aö halda vel vöku sinni
gagnvartstjórnvöldum og öðrum,
sem sífellt sjá það eina úrræði i
svonefndum efnahagsvanda, að
skerða kjör launþega og ógilda
með lögum frjálsa samninga
þeirra.”
Þrjár kindur fundust norðan
Ofeigsfjaröar
Kétt fyrir sfðustu mánaðamót
fundust þrjár óheimtar kindur
norðan við ófeigsfjörð á Strönd-
um. Reyndust þaö vera vetur-
gömul gimbur með lambi og tvæ-
vetla, lamblaus, en undir henni
áttu raunar að ganga tvö hrút-
lömb. Veturgamla gimbrin með
lambinu er frá Bæ en tvævetlan
frá Melum. Búið er að vigta tvær
kindurnar og var lambiö 35 kg. en
gimbrin 50 kg. og veröur að telj-
ast allgott miðað við aöstæður.
Torfi Guðbrandsson, skóla-
stjóri á Finnbogastöðum, sagði
okkur að i haust hefði vantað 9
kindur af þessum slóðum. Er búið
að leita þeirra mikið en án árang-
urs þar til þetta. Leitarmenn rák-
ust á kindaspor svo að ljóst var að
þær höfðu verið þarna á ferli en
hindvegar var vonlaust taliö aö
þær væru enn lifandi þvi nóvem-
ber var bæði harður og kaldur.
Astæðan til þess aö kindurnar
fundust loks var sú, að þær sáust i
sjónauka, frá Munaðarnesi, en
það er nyrsti bærinn i byggð.
-mhg
Gjöf til Krabbameins-
félagsins
Hinn 7. febr. sl. færöi Guðrún
Hannesdóttir, Vallartröð 6 i
Keflavik, Krabbameinsfélagi ís-
lands 30 þúsund króna gjöf til
minningar um fööur sinn látinn,
Hannes Gislason, á 100. afmælis-
degi hans, en hann var fæddur 7.
febr. 1888. Guörún hefur áður
minnst afmælisdags föður sins
með þvi að færa krabbameins-
félaginu góðar gjafir.
Er bíllínn í lagi?
Agallar i öryggisbúnaði bilsins
sem ekki eru áberandi á auðum
vegi, geta valdið afdrifarikum af-
leiðingum i slæmri færð og hálku.
1. Hemlabúnaður.
Hemlar jafnt á öllum hjólum?
2. Er gripmynstur hjólbarðanna
nægilega gott?
3. Er stýrisbúnaður i lagi?
Hjólabúnaður rétt stilltur?
4. Eru hjólbarðar samstæðir, þ.e.
hafa þeir nægilega gripmögu-
leika?
5. Hafa óhreinindi, svo sem salt,
malbik og annað, sest á brensu-
fleti?
Gott ráð er að bremsa bilnum
við tækifæri daglega til þess aö
hreinsa bremsufleti.