Þjóðviljinn - 15.02.1978, Page 7
Miðvikudagur 15. febrúar 1978
I^JÓÐVIUINN
— StÐ A 7
Þaö vill svo til að ég veit af annarri tíu barna móður,
sem alla sina tið hefur orðið að stunda fulla vinnu
utan heimilisins. Eg fæ ekki betur séð en hún hafí
hlotið þó nokkra lifsfyllingu lika
Guðrún
Helgadóttir,
deildarstjóri:
Ritstjórnargrein
um mæöur og börn
t>aö er ekki oft sem ritstjórn-
argrein Morgunblaðsins verður
manni efni til umhugsunar. Það
gerðist þó sunnudaginn 12.
febrúar sl. Ritstjórnargreininni
er skipt i tvennt og ber fyrri
hlutinn yfirskriftina MERK
REYNSLA.
Ritstjóri gerir að umræðuefni
langt og mikið viðtal, sem birt-
ist fyrir skömmu i þvi sama
blaði við keflviska húsmóður,
frú Soffiu Karlsdóttur sem eitt
sinn var kunn reviuleikkona.
Þar segir leikkonan frá þvi, að
hún ákvað að hætta öllum af-
skiptum af leiklist og helga sig
manni og börnum. Raunar tek-
ur hún fram, að maður sinn hafi
gert þær kröfur, þegar þau
hjónin gengu i hjónaband. Ég
læt rauðsokkusiðunni eftir að
ræða þann þátt málsins. Einka-
mál þeirra hjóna eru hér algjört
aukaatriði, svo og þessi um-
rædda fjölskylda öll að öðru
leyti en þvi, að það er alltaf
gaman að sjá glatt og ham-
ingjusamt fólk með stóran og
fallegan barnahóp á heimili,
sem ber vott um meira en
venjulega velmegun.
Það sem hér er gert að um-
ræðuefni er samhengið, sem rit-
stjórnarmenn Morgunblaðsins
setja hlutina i. Þeir komast sem
sagt að þeirri niðurstöðu, aö hér
sé loksins komin sú sanna eigin-
kona og móðir, sem hegöi sér
eins og slikri ber. „Soffia
Karlsdóttir telur ekki, að hún
hafi i raun og veru fórnað neinu
fyrir heimili sitt og börn. Þvert
á móti hafi hún sjálf hlotið lifs-
fyllingu og hamingju vegna
samskipta sinna við börn sin og
fjölskyldu. Það er athyglisvert
að sjá afstöðu leikkonunnar,
ekki sist nú á timum, þegar slik
afstaða þykir ekki „fin”, a.m.k.
I augum allra, sem um þessi
mál hafa fjallað i fjölmiðlum.”
Þessi tilvitnun er tekin orðrétt
úr umræddum leiðara.
Hver eiginkona og móðir get-
ur tekið undir þessi ummæli
sem höfð eru eftir leikkonunni.
Við erum fjölmargar, sem höf-
um hlotið lifsfyllingu vegna
samskipta'við menn okkar og
börn. Og það er vissulega verð-
ugt lifsverk að koma til manns
tiu börnum og ærinn starfi, þó
að ekki komi önnur störf til. Hitt
er vafasamara, hvort margar
konur eiga þessara kosta völ.
Morgunblaðið getur ekkert um,
að fjárhagur fjölskyldunnar
hafi verið á þann veg, að
minnstu vandræði hafi verið að
brauðfæða þennan stóra hóp af
launum eiginmannsins. Og mér
er til efs, að það sé algengt, að
einn maður vinni fyrir svo stórri
fjölskyldu, hvað þá að hann geti
búið henni svo glæsilegt um-
hverfi, sem sjá mátti af mynd-
um frá heimilinu. Það má vel
vera að framkvæmdastjórar i
Keflavik hafi svo góð laun, en út
frá þvi er vafasamt að alhæfa.
Það vill svo til að ég veit af
annarri tiu barna móður, sem
alla sina tið hefur orðið að
stunda fulla vinnu utan heimil-
isins. Ég fæ ekki betur séð en
hún hafi hlotið þó nokkra lifs-
fyllingu lika. Laun mannsins
hennar hefðu hvergi hrokkið til
að framfæra fjölskylduna, svo
að henni gafst ekkert færi á að
fórna einu eða neinu. Hún varð
bara að þræla eins og húðar-
jálkur til að endar næðu saman.
Þrátt fyrir þetta veit ég ekki
annað en börnin hennar séu
vænsta fólk.
Þriðju fjölskylduna sem taldi
tiu börn þekki ég hvað best.
Sjálf er ég nefnilegaaldursforseti
i þeim hópi. Þar vann húsmóðir-
in ekki úti, heldur annaöist
börnin tiu og tvö gamalmenni
einsömul, þvi að heimilisfaðir-
inn var úti i hafsauga allan árs-
ins hring til að hafa mat i þetta
allt saman. Háfleygar yfirlýs-
ingar Morgunblaðsins um
tengsl foreldra og barna voru
ekkert á dagskrá á þeim bæ.
Þetta var hins vegar eilift basl
við að draga fram tóruna. Allt
bjargaðist þetta einhvern veg-
inn, ég má kannski gerast svo
djörf að halda þvi fram að „öll
séu börnin vel af guði gerð”,
svona miðað við fólksfjölda,
eins og frú Soffia segir um sin
börn, jafnvel að móðir þeirra
hafi hlotið einhverja lifsfyll-
ingu. Hún færði hins vegar um-
talsverðar fórnir, enda bjó hún
við allt önnur skilyröi.
Hafi þessi útlegging Morgun-
blaðsins á viðtalinu við frú Soff-
iu átt að vera lofgjörð um kon-
una sem fórnar frama sinum
fyrir heimili og börn, hefur hún
hrapallega misheppnast. Frú
Soffia Karlsdóttir er alltof
skemmtileg kona til að gera orð
hennaraðsvona hlægilegu bulli.
Eins og efnahagsástand er nú,
geta fæstar fjölskyldur lifað af
einum launum, allra sist ef tiu
börn eru i fjölskyldunni.
En ályktunargáfa ritstjórans
á enn eftir að versna i siðari
hluta greinarinnar, sem hann
nefnir TIL IHUGUNAR. Þar
vitnar hann i hollenska sálfræð-
inga (af hverju hollenska!) sem
ku vera þeirra skoðunar, að það
geti verið börnum skaðlegt að
vera aðskilum frá mæðrunum
_ um leið og naflastrengurinn er
’ klipptur sundur. Þéss vegna
fæði 40% hollenskra kvenna
börn sin i heimahúsum. (Það er
kannski þess vegna að maður er
eins og fólk er flest. Niu af tiu
okkar systkina fæddumst heima
þó að ekki verði séð að það ti-
unda skeri sig úr.)
Vel má vera að þeir hollensku
hafi þarna lög að mæla, en
ósköp þótti undirritaðri notalegt
að geta losaö fjölskylduna við
það tilstand hvað eftir annað, að
ekki sé.minnst á þá tilfinningu
að vera að'þessu á stað þar sem
•alla hjálp var að fá, ef eitthvað
færi úrskeiðis.
Siðan vitnar höfundur enn i
sérfræðinga, nú af ókunnu þjóð-
erni. Af þeirra rannsóknum
kemur fram, að börnum er
skaðlegt að vera á dagheimili
allan daginn, en hafa má þau i
leikskóla hálfan daginn án þess
að þau þurfi að biða af þvi var-
anlegt tjón. Við dagvistun allan
daginn missi börnin að mestu
tengsl við móður sina. „Ein-
hvern timann verðum viö samt
sem áöur að hugsa um mann-
réttindi barnanna á þessari
mannréttindaöld ...” segir leið-
arahöfundur. Þar rataðist hon-
um þó satt orð i munn.
Og nú getur hann gert meira
en að hugsa um þetta. Höfundur
á beinan aðgang að rikisstjórn-
inni, sem nú situr. Hann getur
staðið upp af stóli sinum, sagt
stjórnarherrunum, sem nú
skammta einstæðum mæðrum
kr. 3210,00 á mánuði i mæðra-
laun, að þetta þurfi að hækka
verulega, svo að móðirin eigi
þess kost að vera heima hjá
barni sinu fyrstu mánuðina.
Einstæðar mæður eru nefnilega
ekkert að vinna úti, af þvi að
þeim þyki það „fint”, heldur af
þvi að þær verða að vinna fyrir
börnunum sinum. Þær kunna að
hafa áhyggjur af slitnum
tengslum sinum við börnin, en
þær eiga ekki annars kost. Val-
kostunum fjölgar ósköp litið
undir stjórn þeirra manna, sem
hæst æpa um frelsi.
Og það er eins með flestar
mæður, giftar eða ógiftar. Við
verðum einfaldlega að stunda
vinnu utan heimilis, hvort sem
okkur likar það betur eða ver.
Það er bara háttvirtur dóms-
málaráðherra, sem telur 100,000
krónur á mánuði sæmilegan
framfærslueyri venjulegum
fjölskyldum. Við hin komum
þessu skjótar i lóg.
Hræsnisbull af þvi tagi, sem
hér hefur verið gert að umtals-
efni, er ekki sæmandi Morgun-
blaðinu. Auk þess er það svi-
virðileg móðgun við þær þús-
undir kvenna, sem vinna þessu
þjóðarbúi milljarða ár hvert.
Þeim Morgunblaðsmönnum
væri nær að snúa sér að barátt-
unni fyrir þvi að þeim milljörð-
um væri skipt á þann veg, að
mannréttindi islenskrá barna
væru ekki i voða.
12.2. 1978.
Lódaúthlutun í Breiðholti
A fundi borgarráðs sl. föstudag
var úthlutaö lóöum i Seljahverfi
og Hólahverfi, sem tilheyra
BreiOholtsbyggöinni I Reykjavik.
i Seljahverfi var úthlutaö 46 raö-
húsum, en umsækjendur voru 132.
tlthlutaö var lóöum undir 52
einbýlishús i Seljahverfi, en
umsækjendur um þær lóöir voru
254. i Hvammskotshólum I Selja-
hverfi var úthlutaö 40 einbýlis-
húsalóöum, en um þær sóttu 150.
Þá var úthlutaö 15 einbýlishúsa-
lóöum I Hólahverfi f Breiöholti
III, cn umsækjendur voru 28.
Hér fer á eftir listi yfir þá, sem
fengu lóöir í Breiðholti:
Raðhús v/Miðsvæði/
Seljahverfi
Holtasel
24 Heimir Svavarsson, Unufelli 33
26 Sigurður J. Benjamínsson,
Unufelli 33
'2 8 Ólafur Sigmundsson,
Dvergabakka 34
30 Björgvin Jónasson,
Dvergabakka 4
32 Jóhannes Ragnarsson,
Dvergabakka 4
Itaufarsel:
1 Einar Garibaldason, Möðru-
felli 3
3 Bjarni Eiösson, Gyöufelli 16
5 Guðjón Agústsson, Dúfnahólar
2
7 Sveinn Ulfarsson, Búrugötu 13
9 Agúst Ragnarsson, Rauöalæk
20
11 Rafn Ragnarsson, Snorrabraut
32
13 Þorgeir Astvaldsson, Mariu-
bakka 16
Réttarsel:
7 Björn Jónasson, Dalseli 10
9 Jónas Jónasson, Torfufelli 29
10 Gunnar Gislason, Laugarnes-
vegi 90
12 Bjarni Eyvindsson, Kvista-
landi 1
14 Brynjólfur Eyvindsson,
Kvistalandi 1
16 Ragnar Guðsteinsson, Ásgarði
19
Slöusel
1 Sigurður Jónsson, Hraunbæ 92
3 Þorbjörn Guðmundsson,
Dalseli 15
5 Tryggvi Jakobsson, Asbraut 17
7 Þórdór Pálsson, Jórufelli 6
9 Ragnar Fr. Bjarnason, Vest-
urbergi 142
Holtasel
20 Helgi K. Eiriksson, Sæviðar-
sundi 4
22 Þorbergur Guðmundsson,
Safamýri 40
Raðhús Seljahverfi —
Hryggjarsel.
Hryggjarsel
1 Jón K. Beck, Lindargötu 58
3 Karl Sigurösson, Laufási 1,
Garöabæ
5 Óskar A. Beck, Dalseli 15
7 Ingi. B. Jónasson, Þórufelli 4
9 Guðni Oddsson, Krummahólar
2
11 Guðjón Þ. Steinsson, Blöndu-
bakka 7
13 Sævar Bullock, Blöndubakka 7
15 Erlingur Kr. Stefánsson, Vest-
urbergi 96
17 Sigurjón Þorláksson. Vestur-
bergi 94
2 Regina Einarsdóttir, Hverfis-
götu 90
4 Ragnar Ragnarsson, Oldutúni
12, Hfj.
6 Már óskar Óskarsson, Aspar-
felli 4
8 Högni Einarsson, Eyjabakka
16
10 Ólafur Guðmundsson, Hrafn-
hólar 8
12 Björn S. Baldursson, Völvufelli
46
14 Garðar Halldórsson, Asparfelli
2
16 Gunnlaugur Claessen, Sævið-
arsundi 23
18 Arni Kolbeinsson, Espigerði 2
20 Gunnlaugur M. Sigmundsson,
Barónsstigur 65
Eftirtöldum aðilum var gefinn
kostur á byggingarrétti fyrir rað-
hús i Seljahverfi á lóöinni:
Hjallasel 16 Erla Björnsdóttir,
Blöndubakka 9.
Hjallasel 18 Ólafur Kristinsson,
Arahólum 4.
Seljahverfi —
þéttstæð einbýlishús.
Hæöarsel
lPálmar Guömundsson,
Blöndubakka 12
3 Hallgrimur Óskarsson, Hraun-
bæ 34
5 Hendrik Jafetsson, Vestur-
bergi 144
7 Gunnar Þorsteinsson, Kötlu-
felli 5
9 Hallgrimur Jónasson, Háaleit-
isbraut 153
11 Jón S. Erlingsson, Hvassaleiti
14
13 Svavar Jónsson, Alfheimar 56
15 Reynir Kjartansson, Vestur-
bergi 138
2 Jóhann ólafsson, Leirubakka 6
4 Guðmundur J. Guölaugsson,
Espigerði 8
6 Þorsteinn Ingimundarson,
Jörfabakka 20
8 Páll Gislason, Blöndubakka 10
10 Guðmundur Benediktsson,
Torfufelli 48
12 Margrét óöinsdóttir, Kjarr-
hólma 10, Kóp.
14 Ólafur R. Sigurjónsson, Stóra-
gerði 6
16 Sigurjón M. Karlsson, Dverga-
bakka 6
18 Ólafur Axelsson, Snælandi 7
20 Reynir Friðþjófsson Vestur-
bergi.72
22 Pétur J. Eiriksson, Eyjabakka
11
24 Guðni Garðarsson, Viðimel 41
26 Jens Kjartansson, Álfheimum
19
28 Sigurbjörn Sveinsson, Austur-
bergi 2
Holtasel
35 Guðmundur Borgþórsson, Týs-
götu 4
37 Sigurður H. Benediktsson,
Hraunbæ 196
39 Þórður Hjartarson Unnarstig 2
41 Gunnar H. Þórarinsson,
Mariubakka 22
43 Brynjólfur Guöbjörnsson,
Eyjabakka 22
45 Arni Stefánsson, Goðheimum
22
36 Viöar Þorsteinsson, Jörfa-
bakka 24
38 Þorkell Þorkelsson, Staðar-
bakka 18
40 Jóhann G. Ögmundsson,
Dvergabakka 30
42 Geir Thorsteinsson, Hrafnhól-
um 6
44 Haraldur Sigursteinsson,
Hrafnhólum 6
46 Björn Ardal, Vesturbergi 48
Seljahverfi —
einb. v/Skagasel —
Skriðusel.
Skagasel
2 Jón M. Steingrimsson, Alf-
heimar 38
4 örn Pálsson, Marklandi 10
6 Hreggviður Þorsteinsson,
Eyjabakka 8
8 Karl Jónsson, Blómvangi 4,
Hfj.
10 Gunnlaugur Jósefsson,
Hamrahliö 21
5 Trausti Jóhannsson, Vatnsendi
32, Kóp.
7 Þorsteinn Tómasson, Æsufelli
6
9 Jón Hilmar Bergsteinsson,
Dala.landi 4
11 Gisli Viggósson, Hraunbæ 60
Skriöusel
1 Grétar Vilhelmsson, Unufelli
50
3 Magnús Jónsson, Efstahjalla
15, Kóp.
5 Bragi Guðjónsson, Hvassaleiti
10
7 Friðþjófur Björnsson, Sól-
heimum 23
9 Stefán Sandholt, Seljalandi 1
11 Gunnar Þorbjarnarson, Bú-
staöaveg 53
2 Ingvar Arnason, Álftahólum 4
4 Gylfi Eirfksson, Dvergbakka
36
6 Bragi örn Ingólfsson, Mariu-
bakka 22
Seljahverfi —
Hvammskotshólar.
Þingsel
1 GIsli Erlendsson, Nýbýlaveg
64, Kóp.
3 Ottó E. Eiðsson, Irabakka 24
5 Þórður Sigurðsson, Leifsgötu 9
7 Ólafur Magnússon, Keldulandi
5
9 Geir Sigurðsson, Melabraut 49,
Seltjarnarnesi.
2 Guðbrandur Bogason, Snæ-
landi 2 pramhald á 14. siðu