Þjóðviljinn - 23.03.1978, Side 2

Þjóðviljinn - 23.03.1978, Side 2
ÞJÖDVILJINN Fimmtudagur23. mars 1978 2 StÐA AF KRISTILEGUM ANDA Það má marka af skrifum kirkjunnar manna hér í borg um þessar mundir að páska- hátiðin fer í hönd. Guðsbörnin taka oft fjör- kipp í f jölmiðlum þegar stórhátiðar nálgast/ og að þessu sinni eru það málefni Dómkirkj- unnar í Reykjavík, sem verið hafa í sviðsljós- inu, guði væntanlega til dýrðar. Þannig vill til, að ég er borinn og barnfædd- ur hérna i „kvosinni", hef alið allan minn langa og merkilega aldur hérna i kringum Tjörnina og er af þeim sökum sjálfkrafa sóknarbarn í Dómkirkjunni. Þess vegna hef ég alla tíð fylgst af vökulum áhuga með því hve markvisst og sleitulaust þjónar þessarar kirkju hafa staðið vörð um sálarheill okkar sóknarbarnanna og önnur viðskipti við þá himnafeðga, föður, son og heilagan anda, og öf ugt. Kennimönnum þessa ágæta guðshúss hef ég kynnst náið (af afspurn), en gott og guðhrætt fólk kynnir safnaðarmeðlimum jafnan kosti og lesti umsækjenda fyrir hverjar prestkosn- ingar með stanslausum símhringingum heim til sóknarbarnanna,og fær maður þá að heyra nokkuð fagurt, en mikið ófagurt, um prestana sem sækja. Um síðustu prestkosningar í Dómkirkjunni var síminn hjá mér glóandi af slíku eldsneyti þar til ég tók hann úr sambandi. Þá fékk ég slíkar upplýsingar um guðsmennina, sem voru að berjast um brauðið, afgreiddar símleiðis frá sannleikselskandi góðum og guðhræddum andstæðingum þessa eða hins, að ekki eru haf- andi eftir á prenti. En ef sannur væri helming- urinn af því sem sagt var i mín eyru um þessa veslings kennimenn í hita prestkosninganna, þá er skemmst frá því að segja, að ganga má út frá því sem gefnu að þeir fari ásamt öllu sínu hyski beint til helvítis þegar þeir geispa golunni, slík úrþvætti sem þeir eru sagðir vera af andstæðingunum. Ég segi nú bara: Guði sé lof að maður veit betur. Sannleikurinn er sá að presta ber ekki á góma meðal almennings nema rétt fyrir prestkosningar, og þá fá þeir það svo sannar- lega óþvegið. En nú fer hátið i hönd, og þá eiga allir að vera góðir. Þess vegna ætla ég að gera mér í hugarlund að það hafi verið satt sem stuðningsmenn prestanna sögðu um prestana sem þeir studdu, og þá blasir við mynd af vammlausum eða nánast heilögum mönnum. Og er ekki rétt, svona til hátíðarbrigða, að hafa það fyrir satt? Ástæða mín til þessara hugleiðinga er grein- argerð frá sóknarnefnd Dómkirkjunnar vegna uppsagnar Ragnars Björnssonar organista, sem birst hefur í blöðunum svona eins og trúarlegur forleikur að upprisuhátíð- inni, og fer vel á því að hita sig upp í kirkju- og trúarlegum málefnum í dymbilvikunni. Þessi guðsbarnasöngur sem hljómar frá sóknar- nefnd Dómkirkjunnar birtist sem sagt í grein- argerð um óvandað illmenni, sem hefur verið á snærum Dómkirkjunnar í hartnær tvo ára- tugi, þar af fastráðinn í einn, og hef ur átt að sjá þar um söng og tónmennt. Greinargerðin f jallar um ávirðingar þessa vandræðamanns, og má af henni ráða að fátt er það, sem ekki óprýðir þennan óvandaða organista. Hann hefur í sem stystu máli allstaðar þótt óalandi og óferjandi. Einn af löstum hans er óhófleg fégræðgi og (svo notuð séu orð sóknarnefnd- ar) ,,Má þar nefna sem dæmi (um kröfugerð organistans í f jármálum) að þrisvar lét Ragn- arsig vanta við jarðarför í Dómkirkjunni, þar sem hann hafði lofað að leika á orgelið". Það er ekki nema von að guðsbörnunum blöskri slik ágirnd. I greinargerðinni er f rá því skýrt að Ragnar eigi séra Þóri Stephensen dómkirkjupresti það að þakka að hann fékk að halda starf inu svona lengi, en sá dánumaður mun hafa haldið yfir honum hlífiskildi öll þessi ár. Hvergi er þess getið i greinargerðinni hvort Ragnar þessi kunni að spila á orgel eða ekki( enda munu málefni dómorganista Dómkirkjunnar i Reykjavík ekki snúast um slíkan hégóma. Hann mun að visu þykja gjaldgengur organ- isti viðast hvar í veröldinni, nema að sjálf- sögðu í Dómkirkjunni, því það guðshús hýsir ekki skúrka, jafnvel þótt þeir geti spilað lipurt bæði með höndum og fótum. Nú hlýt ég og aðrir í Dómkirkjusöf nuðinum að spyrja að því, hvers vegna okkur sé boðið uppá jafn vafasaman starfskraft og Ragnar Björnsson sem dómorganista í heilan áratug. Slíkur maður á ekki heima á helgum stað. Annast snýst málið að verulegu leyti um kirkjuvörðog þvottakonu, sem bæði hafa gef- ið opinbera yf irlýsingu um það að dómkirkju- presturinn hafi ekki hrakið þau úr starfi, og ber að lofa guðsmanninn fyrir það, jafn freistandi og slíkt er alltaf. Það er Ijóst að um bænadagana og páskana mun kennimönnum Dómkirkjunnar ekki gef- ast kostur á að hugsa úr hófi fram um þann sem dó á krossinum fyrir allt mannkynið og reis upp aftur á þriðja degi, né „fyrirgefn- ingu syndanna, upprisu holdsins og eilíft líf". En nýr organisti mun auðfundinn, þegar hinum gerspillta söngstjóra hef ur verið rutt úr vegi, og murium vér, sóknarbörnin, fylla guðs- hús vort um páskahátíðina og hlýða á kórinn, sem nú eftir hreinsunina getur mætt óhindrað- ur til messu undir stjórn nýja organistans á þessari helgustu hátið kristinnar kirkju. Sóknarbörnin hlakka öll til að hlusta á þann guðsbarnasöng, að ekki sé talað um undirspil- ið. Þegar slíkri páskatónlist er til að dreifa gerir ekki til þótt presturinn tóni svolítið f alskt. Því það er nú einu sinni nokkuð til í því sem presturinn sagði forðum um tónlistar- kröfur í kirkjum yfirleitt: Þegar á að syngja sálm sýnist mér það ósköp létt, upp við rekum eitthvert mjálm og organistinn makkar rétt. Flosi ✓ „I franska bókasafninu (Laufásvegi 12) verður sýnd þriðjudaginn 28. mars kl. 20.30 franska kvikmyndin með enskum texta „UN OFFICIER DE POLICE SANS IMPORTANCE” frá árinu 1973 og gerð af Jean Larriaga. Með . aðalhlutverk fara: Robert Hossein, Nicole Courcel, R. Pellegrin, og Marc Porel. Þetta er lögreglumynd sem segir frá töku gisla. FRÍMERKJAUMSLÖG MEÐ SÉRSTIMPLI Upplag takmarkað við 500 af hverri gerð. 5 umslaga sería Eldri útgáfur 5 stk. □ Öskast sent í póstkröfu. NAFN HEIMILI STAÐUR SKÁKSAMBAND ÍSLANDS — pósthólf 674 — Reykjavík. erlendar bækur William Blake: The Complete Poems Edited by Alicia Ostriker. Pengu- in English Poets. Penguin Books 1977. Blake er sérstæðastur meðal enskra skálda, uppreisnarmaður og sjáandi, listmálari og spámað- ur. Eiginkona hans sagði um hann, ,,ég á fáar samverustundir með Mr. Blake, hann er alltaf i paradis”. Blake taldi sig ekki þurfa á meðalgöngu kirkjunnar manna að halda eöa kirkjunnar; hann taldi sig ná slikum tengslum við guðdóminn. Blake lifði mjög i sinum sérstæða hugarheimi, sem voru einhverskonar uppheimar goðkynjavera. Það hefur orðið mörgum erfiður starfi að skilja og útlista kvæðabálka Blakes um uppheima og ýmsir hafa séð i þeim stórkostlegar heimsmyndir og merkilega spádóma. Otgefandinn er prófessor i ensku i Rutgers háskólanum i Bandaríkjunum og hefur hún lagt mikla alúð við þessa útgáfu og út- listanirnar sem fylgja i bókarlok. Blake gaf sjálfur út verk sin upp- haflega, prentaði þau og mynd- skreytti. Frumverk Blakes eru mjög eftirsótt og hafa þau verið endurútgefin með miklum kostn- aði og eru geysidýr. Antony and Cleopatra — The Two Noble Kinsmen - Henry IV, Part 2. William Shakespeare. New Penguin Shakespeare. Penguin Books 1977. Tvö þessara leikrita eru i öllum útgáfum verka Shakespeares, en The Two Noble Kinsmen er oft- ast sleppt i slikum útgáfum, þvi að þaö er á jaðri Shakespeares fræða og er kennt við Shake- speare og John Flecher i Quarto útgáfunni 1634. Þessi útgáfa vek- anna er sú ódýrasta sem nú er á markaði og einnig meðal þeirra vönduðustu. Nú eru komin út um 30 bindi i þessari Shakespeare-út- gáfu. Shakespeare the Eliza- bethan A.L.Rowse. Weidenfeld and Nicolson 1977. A.L.Rowse er vel þekktur sagn- fræðingur og hefur einkum stund- að rannsóknir á timabili Eliza- betar I, og viðamesta rit hans fjallar um það timabil. Hann hef- ur einnig stundað rannsóknir á verkum Shakespeares og er eink- um kunnur fyrir athuganir sinar á Sonnettum Shakespeares. Hann starfar við háskólann i Oxford. Rit þetta er stutt en snjallt og tengir Shakespeare þvi timabili enskrar sögu sem varð eitt það glæstasta i augum siðari tima manna, og það sem glæsti þetta timabil hvað inest, var leiklist þess. Allir þeir erlendir menn sem komu til Lundúna á þessum árum, luku upp einum munni um ágæti leiksýninganna bæði við hirðina og við háskólana og aðrar menntastofnanir vitt um landið. Rowse lýsir nánasta umhverfi skáldsins, nánustu vinum hans og starfsemi hans sem leikrita- skálds og leikstjóra. Höfundi hefur tekist að fella inn i þessa bók flest það þýðingar- mesta sem snertir skáldið, bæði það sem lengi hefur verið kunn- ugt og einnig nýrri vitneskju, sem færri er kunn. Bókin er mjög lið- lega skrifuð og myndasafnið eyk- ur mjög á gildi bókarinnar. Þetta er smekkleg útgáfa og vel unnin. Letters and Journals of Katherine Mansfield. A Sclection. Edited by G.K. Stead. Penguin Books 1977. Fáir rithöfundar hafa náð slikri snilli á skömmum tima og Katherine Mansfield. Hún var snillingur smásögunnar og samdi alls 88 sögur. Þótt hún yrði aðeins 34 ára verður hún alltaf talin meðal merkustu smásagnahöf- unda á enskri tungu. Auk þeirra fimm bóka sem gefnar voru út hafa dagbækur hennar og bréf birst og er þessi bók úrval úr þeim söfnum. Mansfield lagði svo fyrir i arf- leiðsluskrá sinni að eiginmaður- inn John Middleton Murray ætti að sjá um eftirlátin skrif hennar, ,,og vildi ég aö hann gæfi sem fæst út... en eyðilegði sem mest....” Murray fór alls ekki eftir þessari ósk, heldur gaf allt út og sætti talsverðu ámæli fyrir; útgáfa margs þessa var vafasamur greiði við hina látnu og starf hans sem útgefanda var fjarri þvi að vera við hæfi. Hann sauð saman til útgáfu minningabrot, dagbók- arþætti og nótur og athugagrein- ar og hirti litt um vandvirkni og stundum heldur ekki um að efnið væri i réttri timaröð. útgáfa þessa úrvals er aftur á móti vel unnin og vottar sömu snillina um meðferð máls eins og sögur hennar.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.