Þjóðviljinn - 23.03.1978, Side 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 23. mars 1978
Þorsteinn
filmar
í Svíþjóð
Sænska sjónvarpið vill
heimildarmynd um íslenskt þjóðfélag
Þorsteinn Jónsson
Stokkhólmi, 9. mars 1978.
,,Rauði byltingarherinn” hefur
verið stofnaður i Reykjavik og er
kominn á kreik. Já, Nokkrir vor-
menn tslands hafa sent frá sér
fréttatilkynningu og boða bylt-
ingarstarf sitt og segjast ætla að
beita ofbeldi. Lögreglan er við
öllu búin og hefur meira að segja
bannað blöðunum i Rvík að birta
fréttatilkynningu hersins. Þetta
frétti ég um daginn hingað I út-
legðina og fannst merkilegt.
Þetta með dagblöðin og lögregl-
una meina ég.
Þetta með „Rauða byltingar-
herinn” fréttist hingað utan eftir
alþjóðlegum leyniþræðisem ég er
kúplaður i samband við og enginn
fær gert við þvi, En mér varð á að
spyr ja hve langt skyldi vera siðan
nokkrum kjafti hér iSviþjóð datt i
hug að stinga fréttum undir stól.
Blaðamenn hér, hvort sem þeir
vinna á ihaldsblöðunum eða sjó-
varpinu, fjalla afar opinskátt um
þjóðfélagsmál og fréttir. Það er
nefnilega ekki hægt að fjalla um
samfélagiði felum eða búandi viö
ritskoðun. Þetta vjta allir blaða-
menn. Ekki sist þeir sem berjast
af hjartans einlægni fyrir frelsi
fyrir austan tjald.
Norðurlandaþjóðirnar eru
merkilega ólikar innbyrðis — eða
hafa vanið sig á ólika siði eða
ósiði. Norðmenn gætu sennilega
brugðist eins við og íslendingar
vegna svona bjánafréttar um
eitthvað „rautt” og tengt „bylt-
ingu”. Danir myndu eflaust ekki
taka eftir þvi þótt einn litþráður i
viðbót bættist i pólitikina. Finnar
myndufjalla ummálið af miklum
áhugp.
uux ntou x WH 38
Þ¥OTTAVELtIX / SVIMOÐ
Electrolux
1 árs
ábyrgð
Electrolux
þjónusta.
Hagstæð
greiðslu-
kjör.
• Sérstök stilling fyrir straufri efni — auðveldari notkun.
• BlO-kerJi — lehgir þvottatimann fyrir óhreinan þvott.
• Ryðfritt stál i tromlu og vatnsbelg — lengri endingartimi.
• 3falt öryggi á hurð — örugg fyrir börn.
• 3 hólf fyrir þvottaefni og mýkingarefni.
• Lósigti að framan — auðvelt aö hreinsa —Jltilokar bilanir.
• Vinduhraði 520 snún/min — auðveid eftirmeðferð þvottar.
• Vökvademparar — mjúkur, hljóðlaus gangur.
• 60cm breiö, 55 cm djúp, 85 cm há.
• tslenskur leiðarvisir fylgir hverri vél.
Electrolux þvottavélin er til á lager
á þessum útsölustööum:
AKRANES: Þórður Hjálmarsson,
BORGARNES: Kf. Borgfirðinga,
PATREKSFJORÐUR: Baldvin Kristjánsson
ISAFJORÐUR: Straumur hf.,
BOLUNGARVIK: Jón Fr. Einarsson,
BLÖNDUÖS: Kf. Húnvetninga,’
SIGLUFJORÐUR: Gestur Fanndal,
OLAFSFJORÐUR: Raftækjavinnustofan sf.,
AKUREYRI: Akurvik hf„
HOSAVIK: Grimur og Arni,
Vörumarkaðurinn hí.
Armúli 1a — Sími 86117
VOPNAFJÖRÐUR: Kf. Vopnfirðinga,
EGILSSTAÐIR: Kf. Héraösbúa,
ESKIFJÖRÐUR: Pöntunarfélag Eskfiröinga
HOFN: KASK,
ÞYKKVIBÆR: Friðrik Friörikssón,
VESTMANNAEYJAR: Kjarni sf„
KEFLAVIK: Stapafell hf.
Gunnar
Gunnarsson
skrifar frá
Stokkhólmi:
Eins ogSvarthöfðiVisis veit, þá
eru Sviar viösjárveröir karakter-
ar. Og burðast margir við að
brugga heiminum, enþó sérstak-
lega tslendingum, gruggug ráð.
Það er ekki nóg með að þeir borgi
Alþýðublaðið, nei — þeir seilast
til áhrifa á fleiri sviðum. Ég hitti
um daginn einn af þessum gaur-
um sem myndi seint fá siðferðis-
vottorð hjá Svarthöfða. Það var
ekki nóg með að maðurinn væri
svii, heldur heyrðist mér hann
vera sósialisti i þokkabót og var
að auki yfirmaður hjá sjónvarp-
inu. Það vitum viðSvarthöfði þó,
að sósialista munum við seirit
ráða i sjónvarpið, eða á aðra
staði, en svona er þetta nú hér i
Sviþjóð. Þa,ð er krökt af komm-
um hjá útvarpinu og sjónvarpinu
og vitanlega blöðunum. En ég
ætlaöi að tala um þennan sem ég
hitti á dögunum.
Hann fór að tala um sjónvarps-
stöövarnar I Noregi, á tslandi og i
Finnlandi og fannst það greini-
lega skemmtilegt umræðuefni.
Norðmennirnir, sagði hann og
brosti, það er eins og þeir hafi
ekkert að gera annað en aö biða
eftir einhverju. Veist þú eftir
hverju þeir eru að biða? Kannski
komu Krists?Þeir verða s jálfsagt
fyrstir meö þá frétt — en þeir
missa bara af öllum hinum á
meðan.
Þessi sænski sjónvarpari hafði
verið út um allan heim, það er
ekki að spyrja aö þessum sænsku
sjónvörpurum, ævinlega með nef-
iö ofan i öllu, vilja hafa vit á öllu,
og finnst að sér sé ekkert óvið-
komandi. Þessi hafði lika verið á
íslandi. Og það var ekki ég sem
fór aö tala við hann um islenska
sjónvarpið. Allt 1 einu var hann
búinn að segja „sjónvarp” á is-
lensku og horfði á mig. Og svo
skellti þessi skratti uppúr, hló
eins og Flosi Ólafsson i stuði,
skulfu kinnar og vömb.
Nei, nei, sagði hannsvo. Það er
þó einstætt fyrirbæri. Þar eru
skritnir karlar get ég sagt þér!
Sögurnar sem hann sagði voru
reyndar þannig að ég gæti trúað
að þær slippu ekki gegnum rit-
skoðunina. Þess vegna birtast
þær ekki hér.
Af og til sést sjónvarpsefhi frá
íslandi á dagskrá sænska sjón-
varpsins. Ég minnist þess ekki að
hafa nema einu sinni veriö stoltur
yfir framlagi frá íslandi. Og það
vartilviljun ein að ég tók eftir þvi
að um kvöldið ætti að sýna is-
lenska mynd. „Mynd um samfé-
lag i mótun”, stóð i dagskránni,
ogmyndin var „Bóndi” eftir Þor-
stein Jónsson, sem fékk fyrstu
verðlaun á kvikmyndaháttiðinni i
Reykjavik eins og menn muna.
„Bóndi” er eina islenska myndin
sem hér hefur verið sýnd, sem er i
þeim gæðaflokki að eftir henni er
tekið. Sænski sjónvarðsmaðurinn
sem ég talaði um áðan, sagði að
„Bóndi” væri einhverbesta heim-
ildamynd sem hann hefði séð.
Hann fullyrti að þessi mynd hefði
fengið verðlaun á kvikmynda-
hátiðinni i Berlin, en þaðan var
þessi brandarakarl að koma. Og
vegna þess að honum fannst
myndin góð, hringdi hann i Þor-
stein Jónsson á Islandi og bauð
honum að gera tvær heimildar-
myndir fyrir sænska sjónvarpið
og myndi SR borga þær fyrir-
fram.
Þorsteinn JÓnsson hefur að
undanförnu hafttima til að svara
bréfum og kanna atvinnutilboö.
Þótt hann hafi að baki lengsta og
dýrasta nám I kvikmyndagerö,
þá liggur kvikmyndavinna ekki á
lausu. Og þótt hann hafi gert
myndir sem vakið hafa athygli,
innan lands sem utan, þá fær
hann engan stuðning til áfram-
halds. Fimm eða sex sinnum hef-
ur hann sótt um starf hjá sjón-
varpinu og ævinlega verið neitaö.
Löngum hefur læöst að manni sá
grunur, að áhugaleysi sjónvarps-
ins á Þorsteini stafi af þvl, að það
gæti hugsast að Þorsteinn sé
sósialisti. Það er erfitt að skrifa
þetta. Getur það verið á Islandi sé
mönnum meinað að starfa i
starfsgreinum sínum vegna
stjórnmálaskoöana?
Sviar ætla aö verða erfiðari.
Þeir spurðu Þorstein ekki að þvi
hvort hann væri kommi. Þeir
hafa þennan ódrepandi áhuga á
þjóðfélaginu. Og ekki bara sinu
eigin þjóðfélagi. Þeir hafa lika
áhuga á annarra manna þjóðfé-
lögum. Og nú hafa þeir beðið Þor-
stein Jónsson að gera eina mynd
átslandiogkomasiðanhingaöút
oggera eina mynd i Sviþjóö. „Og
svo sjáum við til”, sagði þessi
hláturmildi yfirmaður hjá sjón-
varpinu og baðst afsökunar á að
geta ekki gert betur. Það má svo
að síðustu geta þess að finnska
sjónvarpið hefur lika sýnt
væntanlegum myndum Þorsteins
áhuga og vill veita honum ein-
hvern stuðning við gerð myndar.
Skyldi það islenska hafa áhuga?
Aðalfundur Kattavinafélagsins
Aðalfundur Kattavinafélags
tslands var haldinn i Vikingasal
Hótels Loftleiða hinn 12. þessa
mánaðar. Fjölmenni var á fund-
inum og almenn ánægja rikjandi
með starfsemi félagsins.
Litilsháttar breytingar urðu á
félagsstjárn og er hún nú þannig
skipuð: Svanlaug Löveformaður
Margrét Hjálmarsdóttir, Guðrún
A Simonar, Eyþór Erlendsson,
Gunnar Pétursson, Hörður
Bjarnason. 1 varastjórn eru
Sigriður Lárusdóttir og Dagbjört
Emilsdóttir, Akureyri.
Að fundi loknum hófst kaffi-
drykkja og voru þá fram bornar
heimabakaðarkökur, sem konur i
Kattavinafélaginu gáfu til styrkt-
ar félaginu. Á fundinum var
Kattavinafélaginu færð höfðing-
lega gjöf, 70þús. kr. Gefendur eru
mæðgur, sem fyrr á árinu gáfu
félaginu 50 þús. kr.
Aðrar gjafir og áheit sem
félginu hafa nýlega borist eru:
Grima 15.000, S.E. 10.000, H.L.
1.500, H.S. 500, V.K. 500, S. og G.
1000, G.Þ. 1000, A.R. 1000, R.N.
5000. Stjórn Kattavinafélagsins
þakkar gefendum.
tfj-éttatilkynning)
Stórgjöf frá
Félagið Vinahjálp gaf ný-
lega Heyrnleysingjaskólan-
um vandaða kvikmyndasýn-
ingarvél,hljómtæki og fleira
sem bæta úr brýnni þörf
skólans. Gjöfin er metin á
andvirði miljón króna.
Kvikmyndasýningarvélin
gerir skólanum kleyft að
veita nemendum miklu full-
komnari rhytmic-kennslu en
Vinagjöf
hægt hefur verið til þessa og
meiri heyrnarþjálfun.
Þetta er ekki i fyrsta sinni
sem Félagið Vinahjálp sýnir
hug sinn til skólans. Arið 1970
gaf það skólanum hálfa
miljón króna til kaupa á
akustiskum tækjum sem
hafa verið notuð siöan og
komið að góðum notum.