Þjóðviljinn - 19.04.1978, Side 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 19. april 1978 •
Fyrirspurnum svarað á Alþingi:
Sjónvarpsmynd um
Snorra Sturluson
Meö Novus-aöferöinni má gera viö rúmlega helming bllrúöu-
• skemmda af völdum steinkasts og högga.
Bílrúöubrotin
bætt og löguð
Á fundi sameinaös Alþingis i
gær svaraði menntamálaráð-
herra tveimur fyrirspurnum,
annarri frá Magnúsi Kjartans-
syni, en hinni frá Jónasi Árna-
syni.
Hönnun Þjóðar-
bókhlöðu
Vilborg Harðardóttirmælti fyr-
ir fyrirspurn Magnúsar, en fyrir-
spurnin var svohljóðandi:
„Er væntanleg þjóðarbókhlaða
þannig hönnuð að fatlað fólk, m.a.
i hjólastólum, eigi greiða leið um
húsið allt og geti gengt þar störf-
um?”
I svari ráðherra kom eftirfar-
andi fram:
„Aðalinngangur i bókhlöðuna
verður að sunnan, og er gert ráð
fyrir, að gengið verði inn á ann-
arri hæð. Eru annars vegar, til
hægri, fyrst nokkrar tröppur, þá
pallur og nokkrar tröppur til við-
bótar uns komið er upp á skörina.
Þeir sem aftur á móti eiga erfitt
með að ganga tröppur eða eru
t.a.m. i hjólastól, þeir fara til
vinstri upp afliðandi brú, fyrst
góðan spöl til vesturs og siðan til
austurs og eru þá komnir með
aðstaða fyrir
fatlaða í Þjóðar-
bókhlöðu
hægu móti upp á inngönguhæðina.
Þegar inn i safnið kemur, er
gert ráð fyrir, að þeir, sem geta
ekki gengið stigana, hvort heldur
er niður á jarðhæðina eða upp á
efri hæðirnar tvær, noti lyftur
safnsins, sem ætlaðar eru þeim —
þingsjá
og starfsliði safnsins, einkum
vegna bókaflutninga milli hæða,
en öllum þorra gesta ætlað að
ganga stigana.
1 tveimur af þremur lyftum
safnsins verður gott hjólastóls-
rými.
Loks skal þess getið, að sérstök
snyrtiaðstaða er i safninu fyrir
fatlað fólk.
Leiðbeiningar verða látnar i té,
þegar við komuna inn i safnið,
þannig að engin hætta verður á,
að ekki verði i hvivetna greidd
gata þeirra, er örðugra eiga um
gang.
A vesturhlið hússins, á jarðhæð,
er ennfremur inngangur ætlaður
starfsliði safnsins, og er þaðan
vitaskuld greiður aðgangur að
lyftum hússins.
Vegna hins tviþætta hlutverks
hússins, að vera i senn Lands-
bókasafn og Háskólabókasafn,
þótti langhentugast að gengið
yrði inn i bókhlöðuna á 2. hæð, þar
sem verður eins konar miðstöð
bókhlöðunnar. Með þessari lausn
sparast ennfremur að hafa lyftur
til annarra þarfa en áður hafa
verið greindar.”
Afmæli
Snorra Sturlusonar
F'yrirspurn Jónasar Árnasonar
til menntamálaráðherra var svo-
hljóðandi:
„Hvað hyggst menntamála-
ráðuneytið gera til hátfðabrigða i
tilefni af þvi, að á þessu ári eru
liðnar átta aldir frá fæðingu
Snorra Sturlusonar?”
1 svari menntamálaráðherra
kom fram að mál þetta hefur ver-
ið rætt i ráðuneytinu, en engin
ákvörðun tekin.
Ellert B. Schram vakti athygli
á þvi að rikisútvarpið mun láta
gera kvikmynd um Snorra
Sturluson, ævi hans og störf i
samvinnu við norrænar sjón-
varpsstöðvar.
I gær kynnti Ventill h/f Armúla
23 tvær nýjar viðgerðaraðferðir
sem ekki hafa áest hér áður. Auk
fréttamanna var fulltrúum bif-
reiðaeftirlits rikisins og trygg-
ingafélaga boðið á kynninguna.
Hér er um að ræða viðgerðir á
sprungum I framrúðum, svokall-
aða „Novus aðferð”. Fljótandi
viðgerðarefni er þrýst inn i
sprungurnar með fremur einföld-
um tækjabúnaði, eins og myndin
sýnir. Viðgerðin er varanleg
þannig að styrkur rúðunnar helst
óbreyttur og skemmdirnar verða
nær ósýnilegar. Viðgerðin tekur
aðeins um 1 klst. og kostar um
7800 kr. Talið er að með þessu
móti megi gera við rúmlega
helming þeirra skemmda sem
verða á rúðum bifreiða af völdum
steinkasts eða annara högga.
Þessi aðferð hefur hlotið viður-
kenningu norskra yfirvalda og
tryggingafélaga.
Einnig var kynnt á staðnum að-
ferð til viðgerða á vinyláklæðum.
Sú viðgerð er bæði fljótleg og full-
komin og mun minnsta viðgerð
kosta um 3000 kr. —H.ö.
Skattafrumyarpiö
rætt á Alþingi
Umræöur um skattalaga-
frumvarp rikisstjórnarinnar
hófust i neöri deild Alþingis um
sex leytið í gær. Gert var ráð
fyrir að umræður stæðu fram á
nótt. Greint verður frá umræð-
unum { blaðinu á morgun.
Fundur var i sameinuðu
Alþingi siðdegis i gær. Var þar
svarað nokkrum fyrirspurnum
þingmanna sem greint er ann-
ars staðar frá á siðunni. Þá
gerði menntamálaráðherra
grein fyrir skýrslu um fram-
kvæmd grunnskólalaga og und-
irbúning undir niu ára skóla-
skyldu. Skýrsla menntamála-
ráðherra er mjög yfirgripsmik-
ið r it, rúmar 140 siður. Auk ráð-
herra tóku til máls um skýrsl-
una, Pálmi Jónsson, Helgi Selj-
an, og Páll Pétursson.
Búlgörsk kynningar-
vika 800 íslendingar til Búlgaríu í sumar
40 miljónir fyrir
ráögjafastörf
Þetts er alveg gasalega gott brauö, sem Svanhlldur Jakobsdóttir er aö
fá sér. Brauöinu er dýft I einhvers konar krydd og er átiö táknrænt og
þýöir aö sögn búlgörsku stúlkunnar aö manni standi öll heimili I
Búigariu opiföeftir að hafa neytt þessa brauðs. (Ljósm: — eik)
Á árunum 1974-1977 nam kostn-
aður vegna ráðgjafasta rfa um
rekstur rikisfyrirtækja eða rikis-
stofnana náiægt 40 miijónum
króna, eða nákvæmlega
39.651.088. Greiðslur þessar fóru
til 12 ráðgjafaaðila.
Þessar upplýsingar komu fram
á Alþingi i gær, er fjármálaráð-
herra svaraði fyrirspurn frá Jóni
Arm. Héðinssyni um kostnað
vegna ráðgjafastarfa um rekstur
rikisfyrirtækja og stofnana. 1
svari ráðherra kom fram að
stærsta greiðslan hefur farið til
Hannarrs.f. eða rúmar llmiljón-
ir. Næst koma norska ráðgjafa-
fyrirtækið A. Habbersted og
verkfræðistofa Kjartans Jó-
hannssonar með 6,8 miijónir hvor
um sig.
Ráðgjafastörf þessi hafa mið-
ast við athuganir i þeim tilgangi
að auka sparnað i rekstri viðkom-
andi rikisfyrirtækja.
í fyrradag hófst búlgörsk kynn-
ingarvika i Vikingasalnum á Hót-
el Loftieiðum. Þaö eru búlgarska
fcrðaskrifstofan Balkantours,
flugfélagið Balkanair^Feröaskrif-
stofa Kjartans Helgasonar, Flug-
leiðir og Hótel Loftleiöir, sem
standa að þessari kynningu og er
tilgangur hennar að auka tengsl
milli islendinga og Búlgara sagöi
Dimitar Viatchev, sendiherra
Búlgara á islandi er hann bauö
fréttamenn velkomna á blaða-
mannafund á Loftleiðum i fyrra-
dag.
A undanförnum þrem áratug-
um hefur verið byggð upp mikil
og góð ferðamannaþjónusta i Búl-
gariu og eru Búlgarir nú meðal
fremstu þjóða i þeim efnum. Arið
1960 komu 200 þúsund ferðamenn
til Búlgariu en á siðasta ári voru
þeir 4 og 1/2 miljón.
Nú i sumar gefst tslendingum
tækifæri til að heimsækja þessa
gamalgrónu þjóð sem mun árið
1982 halda upp á 1300 ára afmæli
Sitt*.
Ferðaskrifstofa Kjartans
Helgasonar hefur skipulagt einar
20ferðir til Búlgariu á timabilinu
20. mai til 2. september i sumar,
fyrir u.þ.b. 800 manns. t Búlgariu
er hægt að njóta sólar og sjóbaða
við Svartahafið og skiðaferða i
fjöllunum og margs fleira sem
landið býður upp á.
Verðlag i Búlgariu er mjög lágt
á okkar mælikvarða og sagði
Kjartan Heigason að þar væri þvi
mun auðveldara að hagnýta sér
hinn lélega gjaldeyrisskammt is-
lenskra ferðamanna en viða ann-
ars staðar.
Alla daga fram til n.k. sunnu-
dags verður unnt að fá ljúffengan,
ekta, búlgarskan mat framreidd-
an i Vikingasalnum á Hótel Loft-
leiðum, en hér eru staddir þrir
kokkar frá Búlgariu sem munu
annast matseldina. Þar verða
lika búlgarskir skemmtikraftar,
hljóðfæraleikarar og dansarar.
Af þeirri reynslu sem blaðamenn
höfðu af veitingunum og
skemmtikröftunum á blaða-
mannafundinum er meira en
óhætt að hvetja fólk til þess að
kynnast þvi af eigin raun. A
sumardaginn fyrsta verða sýndar
kvikmyndir frá Búlgariu í Vik-
ingasalnum frá kl. 14:00 til kl.
18:00.
—IGG
Karl
Sigur-
bergsson
tekur sætí
á Alþingi
Karl Sigurbergsson tók sæti á
Alþingi i fyrradag i fjarveru Gils
Guðmundssonar sem er erlendis i
opinberum erindum. Karl Sigur-
bergsson hefur áður setið á
Alþingi.
Karl Sigurbergsson
Alþýðubandalagid í Vestmannaeyjum
Opnar kosningaskrífstofu
Siðast liðinn þriðjudag var
opnuð kosningaskrifstofa Al-
þýðubandalagsins i Vest-
mannaeyjum. Skrifstofan er
i húsnæði Alþýðubandalags-
ins að Bárugötu 9, simi 1570.
F'yrst um sinn verður hún
opin á þriðjudags-, mið-
vikudags- og fimmtudags-
kvöldum frá kl. 20:00 til
22:00.
Starfsmenn skrifstofunnar
eru Edda Tegeder, Þorkell
Sigurjónsson og Björn
Bergsson.
—IGG