Þjóðviljinn - 19.04.1978, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 19.04.1978, Blaðsíða 17
Miðvikudagur 19. aprii 1978 ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 17 útvarp Gefa skít í allt ... nema blessaða peningana... Halldór Gunnarsson er kynnir i Popphorninu i dag kl. 16.20. Hann sagðist ætla að kynna það sem kallað væri „ný bylgja” á fínu máli, en „ræflarokk” á ófinu máli Halldór sagðist ætla að kynna nokkra „öldutoppa” þessarar bylgju og yrði það með svipuðu sniði og i siðasta þætti. Meðal annars verður litið inn i klúbb i London, sem heitir Hope & Anchor. Ræflarokkið á þó litið skylt við von (hope) eða festu (ef anchor er þýtt i yfirfærðri merk- ingu), þvi ræflarokkararnir gefa skit i allt og alla. Engar hetjur eru til og ekkert getur bjargað þessum vesæla heimi. Hið eina sem getur sætt okkur við heiminn er að gefa skit i allt, segja þessar nýju popphetjur. — Annarseruræflarokkararnir ekki á eitt sáttir, sagði Halldór. — Sumir virðast eygja einhverja lausn. Aðrir eiga erfitt með að gleyma gömlum klisjum og eru frasafjasarar miklir. En enginn þeirra er með neitt á hreinu. Stranglers — væntanlegir til Reykjavikur I maibyrjun. Hvað sem þvi liður, eru ófáir „milliliðir” farnir að gera sér peninga úr þessu i stórum stil. Og fer þá að verða spurning hve langt bil sé i raun á milli ræfla- rokksins og Abba. Von er á Stranglers ræflunum til Islands i byrjun maí. Af þvi til- efni verða leikin nokkur lög af nýjustu plötu þeirra, ,,No More Heroes". Þá verður söngvarinn Elvis Costello kynntur, og einnig hljómsveitirnar XTC og Tyla Gang, söngvarinn Mick Lowe og e.t.v. fleiri. Halldór sagði að á leið til landsins væru nokkrar spán- nýjar plötijr, og verða einhverjar þeirra kynntar ef tök eru á. -eös sjönvarp Hver rífur svo langan fisk úr rodi? Kl. 20.30 verður sýnd kvikmynd sem Jón Hermannsson og Þránd- ur Thoroddsen gerðu eftir hinni alkunnu þjóðsögu „Hver rifur svo langan fisk úr roði’” Sagan segirfrá bonda nokkrum aðsjálum, sem blæddi i augum hversu mikið vinnufólk hans borðaði. Til að losa sig við þá hörmung að þurfa að taka fiskinn til handa fólkinu daglega eða fyrir vikuna tók bóndi upp á þvi að vega þvi út i einu fisk fyrir allt árið. En með þvi honum ofbauð hvað til þess þurfti lét hann vanta tilfyrir einndag. Tók hann það til bragðs aðþykjast deyja og liggur ábörunum seinasta dagaf útvigt- artimanum. Hugði hann að fólkið myndi fyrir hryggðar sakir gleyma að borða þann daginn. Þegar smalinn kemur heim og ætlar að fara að snarka fiskbitann sinn sér hann að útvigtin er þrot- in. Kvartar hann yfir þessu við húsfreyju, en hún kvaðst hafa annað að hugsa en standa honum fyrir beina þar sem maðurinn sinn lægi á börunum. Smalinn sagðist allt að einu vilja hafa mat sinn, en engar refjar. Konan segir hann skuli þá fara út i skemmu og fá sér fisksnarl. Smali gerir svo, tekur þar löngu eða reginþorsk, sest með hana inn á rúm and- spænis likinu og rifur þar úr allan hnakkann eftir endilöngum fisk- inum i einni rifu. Bóndi heyrir þetta, ris upp undir blæjunni við dogg og segir: „Hver rifur svo langan fisk Ur roði?” Smali hélt að bóndi væri afturgenginn og rekur sjálfskeiðunginn á hol i hann. Eftir það blæddu bónda aldrei f augum löngu fiskrifurnar þvi hann þurfti ekki meira. 7.00 Morgunútvarp, Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55: ' Séra Garðar Þorsteinsson flytur ritningarorð og bæn. Morgunstund barnanna kl. 9.15: Margrét örnólfsdóttir les þýðingu sina á sögunni „Gúró” eftir Ann Cath- Vestly. (3) Tilkynningar kl. 9.30. Þingfréttir kl. 9.45. Létt lög milli atriða „Leyndarmál Lárusár” kl. 10.25: Séra Jónas Gislason lektor les þriðja hluta þýð- ingar sinnar á umfjöllun um kristna trú eftir Oskar Skar- saune. K irk jutónl ist kl. 10.45. Morguntónleikar kl. 11.00: Arthur Bloom, Howard Howard, Fred Sherry, Jeffrey Levine og Mary Louise Boehm leika Kvintett i a-moll op. 81 fyrir klarinettu, horn, selló, bassa og pianó cftir Fried- rich Kalkbrenner. Felicja Blumental og Nýja Kammersveitin i Prag leika Pianókonsert i C-dúr eftir Muzio Clementi; Alberto Zedda stj. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Saga af Bróður Ylfing” eftir Friðrik A. Brekkan.Bolli Þ. Gústavsson les (7). 15.00 Miðdegistónleikar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veöurfregnir). 16.20 Popphorn. Halldór Gunnarsson kynnir. 17.30 Útvarpssaga barnanna: „Steini og Danni á öræfum” eftir Kristján Jóhannsson. Viðar Eggertsson les (2). 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Einsöngur og gitarleikur i útvarpssal.Hubert Seelow syngur og Snorri Snorrason leikur á gitar. 20.00 Að skoða og skilgreina. Kristján Guðmundsson og Erlendur S. Baldursson stjórna þætti fyrir unglinga, þar sem fjallað er um sam- skipti kynjanna. (Aður á dagskrá i febrúar i fyrra). 20.45 lslandsmótið i hand- knattleik: 1. deild. Hermann Gunnarsson lýsir úr Laugardalshöll siðari hálfleik Vals og Vikings. 21.30 Dómsmál. Björn Helga- son hæstaréttarritari segir frá. 21.50 Sinfónia i D-dúr eftir Samuel Wesley. Hljóm- sveitin Bournemouth Sinfonietta leikur; Kenneth Montgomery stjórnar. 22.05 Kvöldsagan: „Dagur er upp kominn” eftir Jón Helgason. Sveinn Skorri Höskuldsson prófessor les sögulok. (12). 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. 22.50 Djassþáttur i umsjá Jóns Múla Arnasonar. 23.30 Danslög 23.50 Fréttir. 18.00 Ævintýri sótarans (L) Tékknesk leikbrúðumynd. Þýðandi Jóhanna Jóhanns- dóttir. 18.10 Drengur I Bangkok (L) ’Sænsk mynd um ungan dreng i bankok i Tailandi. Móðir hans er ekkja og á niu börn. Drengirnir vinna fyrir sér á ýmsan hátt, svo sem með sölumennsku á götum úti. Þýðandi og þulur óskar Ingimarsson. (Nordvision —- Sænska sjónvarpið) 18.40 Hér sé stuð (L) Hljóm- sveitin Fjörefni A-(- skemmtir. Stjörn upptöku Egill Eðvarðsson. 19.05 On We GoEnskukennsla. 23. þáttur frumsýndur. 19.20 Hlé 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 „Hver rffur svo langan fisk úr roði?” Jón Her- mannsson og Þrándur Thor- oddsen gerðu þessa kvik- mynd eftir þjóðsögunni al- kunnu. 20.40 Nýjasta tækni og visindi (L) Umsjónarmaður Sig- urður H. Richter. 21.10 Charles Dickens (L) Leikinn, breskur mynda- flokkur I þrettán þáttum um ævi Dickehs. 3. þáttur. Sverta Efai annars þáttar: Lánadrottnarnir gera John Dickens löið leitt, og hann flyst ásamt fjölskyldu sinni til Lundúna. Charles iangar að komast i skóla, en fjár- hagurinnleyfir þaðekki, þvi að Fanney systir hans á að fara i tónlistarskóla. Hann reynir að læra að komast af i stórborginni. John Dickens lærir litið af reynsl- unni. Enn safnar hann skuld um, og eymdartimar ganga- i garð hjá fjölskyldunni. Þýðandi Jón O. Edwald. 22.00 „Alltaf vorar i sálinni á mér" (L) Sumri fagnað i sjónvarpssal. Bein útsend- ing. Meöal þeirra, sem skemmta, eru Björgvin Halldórsson, Björn R. Ein- arsson, Halli og Laddi, Linda Gisladóttir, Magnús Ingimarsson, Pálmi Gunn- arsson og Sigriður Þor- valdsdóttir. Kynnir Magnús Axelsson. Stjórn útsending- ar Rúnar Gunnarsson. 23.00 Dagskrárlok. PETUR OG VELMENNIÐ Eftir Kjartan Arnórsson seinnðj 'iokkrar prae^ikae-kor? HaK\ er a<k bi énÁd * v„-f lev&D pyr,'r puHt öcj,alit|

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.