Þjóðviljinn - 19.04.1978, Page 14
14 StÐA — ÞJÓDVILJINN Miövikudagur 19. april 1978
íslandsmótið í handknattleik:
Úrslitin í kvöld
Þá leika Valur og Víkingur til úrslita í 1. deiid
íslandsmótinu í hand-
knattleik lýkur i kvöld i
Laugardalshöllinni. Þá
leika fyrst KR og Ár-
mann og siðan verður
úrslitaleikur mótsins
tslensku keppendurnir sem
kepptu á Norðurlandamótinu i
borðtennis fatlaðra um helgina
stóðu sig frábærlega vel og eink-
um og sér i lagi þær Guðný
Guðnadóttir og Guðbjörg Kristin
Eiriksdóttir (Didda).
Þetta er i fyrsta skipti sem fatl-
að iþróttafólk tekur þátti Norður-
landamótinu i borðtennis en mót-
ið var að þessu sinni haldið i
Roskilde i Danmörku
Guðný Guðnadóttir varð þriðja
i sinum flokki og hlaut þvi brons-
verðlaun fyrir.
Má geta þess hér að hún var al-
mennt talin best i sinum flokki.
Leikur hennar við Norðurlanda-
meistarann er þar glöggt dæmi
um.
milli Vals og Vikings.
Báðir þessir leikir eru
mikilvægir fyrir félögin
og þá sérstaklega seinni
leikurinn milli Vals og
Vikings þvi þar er barist
t fyrstu lotunni sigraði sænska
stúlkan 22:20 en i þeirri næstu
sigraði Guðný 22:20. t þriðju lot-
unni var siðan um hörkukeppni að
ræða og endaði hún með sigri
sænsku stúlkunnar 22:20 og er þvi
óhætt að segja að sá sigur hafi
verið naumur.
Guðbjörg Kristin Eiriksdóttir
(Didda) þótti einnig standa sig
afburðavel og tókst henni einnig
að krækja sér i bronsverðlaun.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem við höfum fengið mun þetta
vera i fyrsta skipti i sögu Norður-
landamóta i borðtennis sem ts-
lendingur kemst á verðlaunapall.
SK.
um titilinn besta hand-
knattleiksliðíslands en í
fyrri leiknum er barist á
botni deildarinnar.
Fyrri leikurinn milli KR og Ar-
manns er mikilvægur fyrir þær
sakir að ef KR-ingar vinna eiga
þeir enn möguleika á að sleppa
við aukaleikina við HK um 1.
deiídarsæti.
En tapi þeir er það hlutverk KR
að leika um lausa sætið i 1. deild á
næsta keppnistimabili.
Og siðari leikurinn er leikur
sem margir biða spenntir eftir að
sjá. Búist er við mikilii aðsókn i
höllina og eins gott fyrir fólk að
tryggja sér miða i tima. Forsala
verður við höllina og hefst hún
klukkan 6.
Ógjörningurer að spá um úrslit
leiksins. Liðin bæði hafa sýnt það
að þau eru til alls likleg og bóka
má hörkuleik.
Vikingarnir eru þó álitnir held-
ur sigurstranglegri þar sem þeir
eru sagðir hafa sýnt betri leiki i
vetur en Valsmenn en þeir hafa
verið að sækja i sig veðrið og er
skemmst að minnast leiksins
gegn Fram fyrir stuttu en þar
voru Framarar teknir i kennslu-
stund af Valsmönnum.
Eitt er það sem Vikingar hafa i
plús er þeir ganga til leiksins
gegn Val. Þeim nægir jafntefli en
Valsmenn verða að vinna eigi
titillinn að verða þeirra. Leikinn
dæma þeir Óli Ólsen og Gunnar
Kjartansson.
SK.
V íðavangshlaup
IR á morgun
Hið 63. i röðinni fer að venju fram
á Sumardaginn fyrsta og hefst
það kl. 14.00.
Hlaupið hefst eins og siðustu 20
ár i Hljómskálanum vestan mið-
tjarnarinnar við Skothúsveg. Eft-
ir 1.5 km hring i Hljómskála-
garðinum er hlaupið yfir Hring-
braut við Gamla Garð og hlaup-
inn stór hringur i Vatnsmýrinni
réttsælis og komið aftur norður,
yfir Hringbrautina á sama stað
og áður. Er nú hlaupið gegn um
garðinn, norðan Tjarnagötu og
beygt til austurs eftir Kirkju-
stræti.
Endamarkið er að þessu sinni
við norðaustur horn Alþingis-
hússins skammt þaðan, sem 1.
hlaupið hófst. Undanfarin ár hef-
ur hlaupinu lokið i Austurstræti,
en við það að fá skátum Austur-
strætið fyrir sitt húllumhæ, sem
er ekki þorandi að láta hlaupar-
ana troðast i gegn um, var breyt-
ing nauðsynleg.
Alls eru skráðir 99 hlauparar,
21kona og 78karlar og þar á með-
al flestir bestu hlauparar lands-
ins, svo sem sigurvegarnir frá i
fyrra. Aðalbjörg Hafsteinsdóttir
Selfossiog Agúst Asgeirsson ÍR.
M.a. kemur hinn góðkunni hlaup-
ari Jón Diðriksson UMSB heim til
að taka þátt i hlaupinu.
Keppt er um bikara fyrir 3ja
kvenna sveit, sigurv. 1977 HSK:
3ja sveina sveit er UBK vann
1977:
3ja manna — 5 manna og 10
mannasveitirkarls sem ÍR vann
1977:
Elstu 5 manna sveit sem IR
vann einnig 1977.
Þá er nú i fyrsta sinni keppt um
sveitabikar 3ja manna 30 ára og
eldri.
lafnt í Firðinu
11
Tveir leikir voru leiknir i Islands-
mótinu i handknattleik I gær-
kvöldi. í meistaraflokki karla
léku FH og ÍR og lauk leiknum
meö jafntefli 21:21.
Jens Einarsson átti mjög góðan
leik i marki 1R og varði sem ber-
Valur tapaöl
Einn leikur var háður i meistara-
keppni KSÍ i gærkvöldi og áttust
þar við IBV og Valur. Enn máttu
Valsmenn þola tap nú 0:2 og er
þetta þriðji tapleikur Vals i röð.
Þess má geta að Jón Hermanns-
son lék nú i fyrsta skipti með ÍBV
og átti góðan leik. SK.
serkur. Bæði liðin eru þvi úr fall-
hættu.
1 meistaraflokki kvenna léku
Haukar og Vikingur og lauk
leiknum með jafntefli 10:10 og er
Armann þvi fallið i 2. deild. SK.
Enska
knattspyrnan:
Þrir leikir voru leiknir I ensku
knattspyrnunni I gærkvöldi.
Úrslit þeirra urðu þessi:
Notthingham Forest —QPR . 1:0
Liverpool — Ipswich ...... 2:2
WBA — Leeds............... 1:0
SK
Ný byggingaraðferð:
Sprungur og leki
úr sögunni?
auk þess sem aðferðin mun hafa
verulegan sparnað í för með sér
Sturla Einarsson með festingu fyrir einangrunina
Uppi i Mosfellssveit er verið að
hyggja einbýlishús með nýrri
aðferö, sem fróöir menn segja að
eigi eftirað valda byltingu i bygg-
bigu steinsteyptra húsa hér á
landi. Þar skal fyrst nefna, að
verulegur sparnaður verður
þegar þessi aðferð er notuð, sein
liggur i þvi að ekki þarf að múra
húsið, hvorki að utan né innan,
aðeins sandsparsla það. En það
sem sennilega telst merkilegast
við þessa aðfcrð er að menn telja
að veggjasprungur og þá um leið
hinn hvimleiði leki, sé Ur sögunni.
Þaö er Sturla Einarsson bygg-
ingarmeistari sem byggir þetta
hús og notar við bygginguna
aðferð sem Agnar Breiðfjörð er
höfundur að. Aðferðin er fólgin i
þvi, að allir burðarveggir eru
steyptir i tvennu lagi meö
einangruninni i milli. Þannig að
segja má að einangrunin sé nú
utan á húsinu i stað þess að setja
hana innan á veggi eins og alltaf
er gert. Og vegna þess að buröar-
veggir eru steyptir i tvennu lagi,
innri veggurinn 14 cm . Siðan
einangrun utan á hann og loks 6
cm. veggur þar fyrir utan, þá
kemur platan og innburðaveggir
aldrei útúr útveggjunum eins og
nú er og þess vegna myndast ekki
sú þensla sem alltaf verður á end-
um plötu og -innri burðarveggja,
steypan springur ekki og húsiö
lekur ekki.
Hér má sjá hvernig veggurinn er
steyptur. Innri veggurinn 14 sm.
þá einangrunin og siðan ytri
veggurinn 6 sm.
Þegar venjuleg uppsláttarað-
ferð er notuð, þá er botnplatan
steyptfyrst, siðan Utveggir ofan á
hana, þá loftplata þar ofan á.
Plötuendarnir koma þá samhliða
útveggjunum og ef úti er 10—15
stiga frost, en inni venjulegur
stofuhiti, geta allir séð hversu
gffurlegur þenslumunur hlýtur
að verða þar á. Við þessa miklu
þenslu kemur sprunga i útvegg-
ina sem opnar svo vatni greiða
leið inni húsin, enda mun vart
finnast það steinhús á Islandi sem
ekki lekur meira eða minna og
mjög erfiðlega hefur gengið aö
finna efni til aö loka þeim alger-
lega.
Með þessum nýju mótúm, er
unnt að steypa báða veggina
samtimis meö einangruninni i
milli og er notað sérstakt áhald,
skammtari, við að koma steyp-
unni í mótin. Þau eru þannig gerð
að ekki þarf að pússa húsin,
aðeins sandsparsla og eins eru
allar rafmagnsdósir, hurðakarm-
ar og gluggakarmar steyptir i
veggina. Sturla sagði að sér
reiknaðist til að sparnaður á 200
ferm. einbýlishúsi með þessari
aðferð væri um 3,3 miljónir
króna, auk þess sem þessi bygg-
ingaraðferð væri fljótlegri en
eldri aðferðir og það myndi lika
spara stórfé.
Þótt ekki hafi verið byggt eftir
þessari aðferö áður hér á landi
varekkiósvipuðaðferðnotuö árið
1924, þegar ibúðarhUsiö að Ragn-
heiöarstöðum i Gaulverjabsjar-
hreppi var byggt. Þá voru veggir
hafðir tvöfaldir og reiðingur not-
aður sem einangrun i milli og var
þá torfið sett niður jafndðum og
steypt var. Það hús hefur aldrei
sprungið né lekið.
Sturla sagðist vera bUinn að
byggja mörg hUs um dagana eftir
eldri aðferðinni, en hann sagðist
vera svohrifinn af þessari aðferð
og svo viss um ágæti hennar að
hann myndi i framtiðinni ekki
byggja með annari aöferð, nema
þá eitthvað enn nýrra og betra
kæmi i ljós. Hann sagði þessa
aðferð hafa yfirburöi yfir hina
eldri á öllum sviðum. Það þarf
engasérstaka tækni við mótaupp-
sláttinn, aðeins áð nota rétt mót
og það sem þeim fylgir.
—S.dór.
RITSTIORI
Félagasamtök sem gefa út timarit, óska
að ráða aðstoðarritstjóra sem siðar gæti
tekið að sér starf ritstjóra. Starfið yrði
fyrst um sinn hlutastarf, en siðar fullt
starf. Æskilegt er að viðkomandi hafi
nokkra reynslu i starfi við blaðaútgáfu.
Umsóknir um starfið sendist afgreiðslu
Þjóðviljans fyrir n.k. laugardag, merkt
„Ritstjóri”.