Þjóðviljinn - 19.04.1978, Qupperneq 15
Miðvikudagur 19. april 1978 WÓÐVILJINN — SÍÐA 15
r
Yfírlýsing frá stjórn Kattavinafélags Islands
Átök í Sambandi Dýravernd-
unarfélaga íslands
Hér á landi er starfandi Sam-
band Dýra v ern dun arfélaga
islands.i lögum þessertilgangur
sambandsins tilgreindur sá m.a.
að sameina öll félög, sem vinnaö
verndun dýra, svo og þá einstakl-
inga, sem búsettir eru þar, sem
sérstakt dýraverndunarfélag er
ekki starfandi. Þá er það lika til-
gangur sambandsins að koma
fram gagnvart opinberum aðilum
varðandi dýravernd og að hafa
afskiptiaf málum, sem varða dýr
og velferð þeirra.
1 Sambandi Dýraverndunar-
félaga tslands, skammstafaö
SDl, eru nú þessi félög: Dýra-
verndunarfélag Reykjavikur,
Dýraverndunarfélag Hafnfirð-
inga, Dýraverndunarf élag
Akureyrar, Hundavinafélag
tslands og Hundaræktarsamband
tslands. Innan þessara félaga
allra eru margir áhugamenn um
dýravernd, en þö hefur fjöldi
félagsbundinna dýraverndunar
áhugamanna verið minni en ætla
mætti, og þvi æskilegt frá sjónar-
miði dýraverndar að auka aðild
að SDl.
Hér verður til fróðleiks rakin
sérstæð saga, sem rétt þykir að
skjalfesta, vegna þess m.a. að
hún lýsir þvi nokkuð vel, hvernig
hægt er að misnota fengið vald i
þeim tilgangi að viðhalda þvi,
jafnvel þótt þess gerist þá þörf að
brjóta lög félagasamtaka og við-
teknar lýðræðislegar reglur, sem
allir munu telja sjálfsagðar og
grundvöllur mannréttinda i lýð-
frjálsu landi.
Aðalfundur Sambands Dýra-
verndunarfélaga íslands hafði
veriðboðaður 5. mars 11978. Rétt-
um mánuðiáður, þ.e.a.s. 5. febrú-
ar 1978, sótti Kattavinafélag
Islands bréflega um upptöku i
SDl. Var bréfið sent i ábyrgðar-
pósti til stjórnar SDl, enda i lög-
um Kattavinafélagsins m.a.
ákvæði um, að félagið skuli stuðla
að þvf að fækka villiköttum á
mannúðlegan hátt til að hindra
þjáningar þeirra i sulti og kulda.
Þetta er sannanlega mannúðar-
mál og allur tilgangur Kattavina-
félags tslands þvi dýraverndar-
mál. Þegar stjórn Kattavina-
félagsins hafði ekki borist svar
við beiðni um upptöku i SDt
þremur vikum eftir að umsókn
var send, sendi Kattavinafélagið
itrekun um svar. Þá barst bréf
frá stjórn SDt, þar sem þess er
óskað að lög Kattavinafélagsins
og félagaskrá þess verði send til
stjórnar SDt. Lögin voru send
strax með bréfi frá stjórn Katta-
vinafélagsins, en þar eð félaga-
skráin væri spjaldskrá og ein-
göngu til i einriti, væri ekki hægt
að senda félagaskrá þá á stund-
inni. Hinsvegar bauðst stjórn
Kattavinafélagsins til þess i bréfi
þessu að taka með á aðalfund
SDÍ þessa spjaldskrá, þannig aö
kjörbréfanefnd gæti sannfært sig
um félagatal.
Þegarekkertsvar frá SDl hafði
ennþá borist daginn fyrir aðal-
fund SDt, en stjórn Kattavina-
félagsins hafði hug á, að félagið
gæti orðið fullgildur aðili að SDl
fyrir fundinn sendi stjórn Katta-
vinafélagsins eftir farandi sim-
skeyti, laugardaginn 4. mars 1978
til Jórunnar Sörensen:
„Jórunn Sörensen, formaður
Sambands Dýraverndunarfélaga
tslands, Sunnuflöt 12, Garðabæ
Kattavinafélag tslands itrekar
beiðni um inngöngu i Samb.
Dýravernðunarfélaga tslands
fyrir aðalfund 5.3 ’78 ella verði
inngöngubeiðni lögð fyrir aðal-
fund i upphafi hans, samanber
Hundavinafélag Islands. Full-
trúar Kattavinafélagsins munu
mæta við fundarstað með nauð-
synleg gögn til kjörbréfanefndar.
Stjórn Kattavinafélags tslands.”
Svo hófst aðalfundur SDI i
Tjarnarbúð uppi þann 5. mars
1978. Eins og frá var skýrt i sim-
skeytinu voru mættir utan við
fundarsalinn 17 aðalfulltrúar og 5
varafulltrúar frá Kattavinafélagi
tslands, i þeirri von að strax i
upphafi fundar yrði þeim boðið að
koma inn i salinn og fá inngöngu i
SDl. Svo varð þó ekki.
Aðalfundinn setti Jórunn
Sörensen, formaður SDI, og skip-
aðiformaðurinn, Sigriði Asgeirs-
dóttur, héraðsdómslögmann sem
fundarstjóra.
tlögum SDIstendurhinsvegar i
10. gr.að kjósaskulifundarstjóra
og fundarritara. Með þessu voru
þegar i upphafi brotin lög SDt af
formanni þess.
Þvínæst skipar fundarstjóri
kjörbréfanefnd, sem öll var úr
DýraverndunarfélagÍReýkjavfkur
og Olaf Jónsson, lögfræðing, for-
mannhennar. I lögum SDl stend-
ur að einnig skuli kjósa kjör-
bréfanefnd. Þar með hafði
fundarstjóri framið aniiað laga-
brotið þessa fundar.
Þegar hér var komið sögu á
fundinum, fékk kjörbréfanefnd
m.a. kjörgögn og félagsspjald-
skrá Kattavinafélags Islands og
hóf störf sin að athugun kjör-
gagna. Formaður lagði fram árs-
skýrslu SDt, og átti siðan að ræða
hana. Formaður Hundavina-
félagsins, Jakob Jónasson, lækn-
ir, fékk þá orðið og las upp samrit
af simskeytinu frá Kattavinafél-
agi tslands, sem sent hafði verið
formanni stjórnar SDI daginn áð-
ur, og vakti athygli á þar, að utan
fundarsalar biðu nú fulltrúar frá
Kattavinafélagi Islands, hvort
ekki væri rétt að bjóða þessu fólki
i salinn. Orðrétt sagði formaður
Hundavinafélagsins i lok ræðu
sinnar: „Þar sem Kattavina-
félagið hefur fullnægt öllum
formsatriðum um inngöngu i SDt
og fulltrúar þess eru mættir hér
við fundarstað, 17 samkvæmt
félagatölu, þá krefst ég þess að
fundurinn samþykki hér og nú
inngöngu Kattavinafélags tslands
i Sambandið, og kjörbréf fulltrú-
anna verði tekin til greina. En
stjórn SDl óskar að halda sér
stranglega við lagabókstafinn, þá
krefst ég þess til vara, að fundi
verði frestað um 5 minútur og
stjórnin haldi stjórnarfund, þar
sem samþykkt verði innganga
Kattavinafélagsins”. Ekki var
þessu þó sinnt frekar af fundar-
stjóra, og fundi haldið áfram.
Eftir rúma tvo klukkutima var
ákveðið fundarhlé. Allan þann
tima lét fundarstjóri fulltrúa
Kattavinafélagsins biða utan
fundarsalar, og þótti mörgum
fulltrúum á fundinum þetta vera
nrikið hneyksli og i engu sam-
ræmi við tilgang DSI. Þar ættu
allir dýravinir að vera velkomnir
til stuðnings við málefni samtak-
anna, dýravernd.
Eftir kaffihléið leyföi fundar-
stjóri loks, að fulltrúar Katta-
vinafélagsins mættu koma inn i
fundarsalinn.
Þá höfðu kjörgögn verið athug-
uð, c® hafðikomiðf ljós, að aðeins
tvö félaganna höfðu lögleg skil-
riki, en það voru Dýraverndunar-
félag Akureyrar með 2 fulltrúa og
Kattavinafélag tslands með 17
fulltrúa, en stjórn SDI hafði þó
ennþá ekki samþykkt að Katta-
vinafélagið fengi aðild að SDI.
Vegna þess að kjörgögn lágu
aðeins fyrir frá einu aðildarfélagi
SDt, lagði kjörbréfanefnd til að
aðalfundi yrði frestað, og yrði
framhaldið 19. mars.
Fundarstjóri úrskurðaði þá, að
fundi yrði slitið og frestað sam-
kvæmt tillögu kjörbréfanefndar.
Þessu var mótmælt af mörgum
fulltrúanna á fundinum, sem
báðu um orðið um fundarsköp, en
þvi sinnti fundarstjóri I engu og
sleit fundi.
Menn ræddu þessi má óform-
lega að þessuloknu, m .a. var bent
á, að aðalfund átti að halda fyrir
lok októbermánaðar ár hvert
samkvæmt lögum SDt., þannig að
einnig i þvi efni hafði stjórn SDl
brotið lög þess.
Milli fyrri og siðari hluta aðal-
fundar fékk svo stjórn Katta-
vinafélagsins bréf frá stjórn SDl,
þar sem tilkynnt var, að stjórn
SDt hefði fallist á, að Kattavina-
félagið yrði aðili að SDt. Fram-
haldsaðalfundur SDt hófst svo i
Tjarnarbúð niðri, sunnudaginn
19. marskl. 2e.h. — Fundarstjóri
var áfram Sigriður Asgeirsdóttir,
héraðsdómslögmaður, sem Jór-
unn Sörensen hafði skipað
fundarstjóraaðalfundar andstætt
lögum .Sdí, þar sem segir, að
hann skuli kjósa á aðalfundi. Þá
hafði hin skipaða kjörbréfanefnd,
sem einnig átti að kjósa sam-
kvæmt lögum SDI þegar lokið
störfum fyrirupphaf aðalfundar-
ins, og tilkynnti formaður kjör-
bréfanefndar, Ólafur Jónsson,
lögfræðingur, um fjölda at-
kvæðisbærra fulltrúa hvers
félags. Vegna mjög aukins fjölda
fulltrúa i sainum frá fyrri hluta
aðalfundar, varð mönnum strax
ljóst, að hér hafði eitthvað
óvenjulegt skeð milli fyrri hluta
aðalfundar og framhaldsaðal-
fundar. Vitað var, að á fyrri hluta
fundarins voru 2 fulltrúar með at-
kvæði frá Dýraverndunarfélagi
Akureyrar, og var þessi tala
nefnd opinberlega á fyrri hluta
fundarins, þvi að það félag hafði
þá lögskipuð kjörgögn. Nú voru
fulltrúar þessa félags hinsvegar
orðnir 6 talsins, hafði fjölgað um
4. Mest var þó aukningin á tölu at-
kvæðisbærra fulltrúa, frá Dýra-
verndunarfélagi Reykjavikur.
Eftir þvi sem næst varð komist á
fyrri hluta aðalfundar,þá voru
þeir þá 14, en á framhaldsaðal-
fundi voru þeir orðnir 24 alls.
Þess skal getið, að kjörgögn voru
ekki lögð fram á fyrri hluta aðal-
fundarins fyrir Dýraverndunar-
félag Reykjavikur, en talan 14
mun vera nærri sanni, ef saman
eru taldir fulltrúar þeirra þá
Samkvæmt lögum SDI á hvert
aðildarfélag rétt á 1 fulltrúa á
aðalfund SDÍ fyrir hverja 10 með-
limi upp að 100, en 1 fulltrúa fyrir
hverja 25 félaga fram yfir 100.
Samkvæmt þessu hefur þá
Dýraverndunarfélag Reykjavik-
ur haft um 200 félagsmenn fyrir
fyrri hluta aðalfundar og þá átt
rétt ál4fulltrúum,entilað fá rétt
á 24 fulltrúum þarf félagatalan að
vera minnst 450. Þannig hefur
þurft að fjölga i Dýraverndunar-
félagi Reykjavikurum minnst 250
félagsmenn milli fyrri hluta og
framhaldshluta aðalfundarins.
Það mun vera fáheyrt fyrirbæri
i islenzku félagslifi, og örugglega
ekki lýðræðislegt, að hægt sé að
fjölga félögum og þar með at-
kvæðum i kjöri til stjórnar félags
á meðan á aðalfundi stendur. Hér
virðist þó tilgangurinn hafa helg-
að meðalið hjá stjórn SDt, að
hindra að hægt yrði að hrófla við
áframhaldandi setu þeirra allra i
stjórn SDl.
A aðalfundinum var nokkuð
rædd ársskýrsla SDl, sem form.
SDt, Jórunn Sörensen, hafbi lagt
fram og hafði framsögu um aftur
á framhaldsaðalfundinum. Þá
var og rætt um ársreikninga SDt,
en jjessi mál verða ekki rædd hér
að þessu sinni.
Stjórn SDl lagði til, að skipuð
yrði þriggja manna nefnd til að
endurskoða lög SDt. Var þessari
tillögu að aðalfundi breytt þann-
ig, að hvert aðildarfélag SDt ætti
einn fulltrúa i þessari laganefnd,
sem skyldi skila tillögum fyrir
næsta aðalfund.
Næst skyldi hef ja stjórnarkjör.
Las fundarstjóri þá upp tillögu
stjórnar SDt, að hún yrði öll end-
urkjörin og spurði, hvort nokkrar
aðrar tillögur væru. Formaður
Hundavinafélagsins, Jakob
Jónasson, læknir, fékk þá orðið og
bar fram tillögu um menn i næstu
stjórnSDl. Þegar hann vildi fá að
kynna nánar þessa tillögu og þá
menn, sem i framboði væru,
stöðvaði fundarstjóri hann og
sagði, að nú væri aðeins stjórnar-
kjör á dagskrá, og aðeins mætti
lesa upp nöfn manna, sem væru
bornir fram. Þessu gerræði mót-
mælti formaður Hundavina-
félagsins, þar eð hann taldi nauð-
synlegt að skýra nánar bakgrunn
þessarar tillögu. Fundarstjóri
sagði þá, að það yrði að biða þar
til eftir stjórnarkjörið, undir liðn-
um önnur mál. Þótti mörgum
fundarmönnunum það harðir
kostir að mega ekki kynna fram-
bjóðendur fyrir kosningu i stjórn,
en þeir mættu kynna sig eftir
stjórnarkjör. Það þættu liklega
einkennilegir framboðsfundir til
Alþingiskosninga, ef þeir væru
haldnir að lokinni kosningu.
Þannig fékk t.d. dr. Vilhjálmur
G. Skúlason, prófessor, sem hafði
gefið kostá sér sem formannsefni
stjórnar SDI, ekki tækifæri til ab
koma fram og kynna sig fyrir
stjórnarkosninguna.
Fór þvi vegna þessarar ákvörð-
unar fundarstjóra fram úthlutun
á þeim fjölda atkvæðaseðla, sem
kjörbréfanefndin ákvað. En hún
var skipuð á fyrra hluta aðal-
fundarins og öll úr Dýraverndar-
félagi Reykjavikur, en ekki lög-
lega kosin eins og áður var frá
skýrt. Enga skýringu fengu
fundarmenn heldur frá formanni
kjörbréfanefndar, Ólafi Jónssyni,
lögfræðingi, hvernig á þvi gat
staðið, að fulltrúum sumra
aðildarfélaganna hefði fjölgað
svo mjög frá fyrri hluta til siðari
hluta aðalfundarins. Eftir þessa
fjölgun samkvæmt mati þessarar
kjörbréfanefndar var kjörseðla-
fjöldinn þessi: Dýraverndunar-
félag Reykjavikur 24 (áður um
14), Hundavinafélagið 24 (sama
og áður), Kattavinafélagið 17
(sama og áður). Dýraverndunar-
félag Hafnarfjarðar 11 (sama og
ábur) Dýraverndunarfélag Akur-
eyrar 6 (áður 2) og
Hundaræktarsambandið 5 (áður
likl. 2). Heildarfjölgun fulltrúa
frá fyrri hluta aðalfundar til þess
siðara er þannig um 17 fulltrúar,
og þessi viðbótaratkvæði öll
munu hafa komið til vegna að-
gerða fráfarandi stjórnar SDl til
að tryggja endurkjör hennar. —
Enda fór svo, að stjórnin var öll
endurkjörin, þannig að meðþess-
um einræðislegu bolabrögöum
heppnaðist fráfarandi stjórn að
tryggja sér setu til eins árs án
nokkurra breytinga. Þótt Katta-
vinafélag íslands væri eitt af
þremur stærstu aðildarfélögum
SDt,þá gat fráfarandi (ogendur-
kjörin) stjórn SD ekki fallist á að
það félag fengi einn einasta full-
úiia i stjórn SDÍ.
Stjórn SDI er þvi nú skipuð 3
fulltrúum i Dýraverndunarfélagi
Reykjavikur, 3 fulltrúum úr
Hundavinafélaginu og 1 fulltrúa
úr Dýraverndunarfélagi Hafnar-
fjarðar.
Eftir alla þá tregðu, sem stjórn
SDI sýndi við að samþykkja aðild
Kattavinafélags Islands strax i
upphafi, slðan þessi ólýðræðis-
legu brögð við fundarstjórn, k jör-
bréfanefnd og fjölgun fulltrúa
milli fyrri og siðari hluta aðal-
fundar til að tryggja það, að
Kattavinafélag Islands fengi eng-
an mann i stjórn SDl, þótt ekki
hafi tekist að hindra inngöngu
þess i SDt, þá tók stjórn Katta-
vinafélags tslands þá ákvörðun,
að segja félagið strax úr Sam-
bandi Dýraverndunarfélaga Is-
lands.
Það er sorgleg staðreynd, að
stjórn Sambands Dýravernd-
unarfélaga tslands hefur beitt
þessum sérstæðu einræðislegu
aðferöum til að sitja áfram. Um
sjálfa kosninguna er enginn á-
greiningur. Hún fór lýðræðislega
fram, og talningu atkvæða önnuð-
ust formenn allra aðildarfélag-
anna. Brögðþau, sem höfð voru i
frammi, voru i fyrsta lagiþau, að
fundarstjóri var skipabur en ekki
kosinn, eins og skal gert sam-
kvæmt gildandi lögum SDl. Þá
var i öðru lagi fundarstjórn ein-
ræðisleg og hlutdræg, málfrelsi
var ekki virt af fundarstjóra,
jafnvel þegar beðið var um orðið
um fundarsköp. i þriðja lagivar
svo kjörbréfanefnd skipuð af
fundarstjóra án nokkurrar
aðildar fulltrúa aðalfundar, en
samkvæmt lögum SDl skal kjör-
bréfanefnd kosin. Þá var i fjórða
lagi aðalfundi frestað af fúndar-
stjóraum tvær vikur eftir tillögu
frá kjörbréfanefnd, án þess að
fundarmönnum aðalfundar væri
gefið leyfi til að tjá sig um þetta
atriði, sem þó varðaði fundar-
sköp. Þennan tima milli fyrri og
siðarihluta aðalfundar notaði sið-
an fráfarandi stjórn til að safna
liði og auka fjölda fulltrúa, sem
styðja myndi fráfarandi stjórn til
endurkjörs, og á framhaldsaðal-
fundinum var hún öll endurkcsin.
Nú ákvað ennfremur aðalfund-
urinn, aðlög SDI skuli endurskoð-
uð fyrir næsta aðalfund SDI.
Verður fróðlegt að sjá, hvaða
breytingar þar verða gerðar, en
augljóst má vera af forsögu máls-
ins, að mjög liklegt er, að stjórn
SDl muni gera það, sem i hennar
valdi stendur til að hindra, að
sjónarmið fulltrúa á aðalfundi
SDI geti komið i veg fyrir, að
stjórnin sitji áfram svo lengi sem
hún óskar þess.
Stjórn Kattavinafélags Islands
telur hinsvegar, að orku þess
félags, sem nú telur um 300 virka
félaga, vera betur varið til dýra-
verndunarmála með að stuðla
beintaðþeim áhugamálum, en að
taka þátt i aðetja kappi við undir-
ferli og brögð eins og þau, sem
voru rikjandi við fyrstu kynni
Kattavinafélagsins af stjórn
Sambands Dýraverndunarfélaga
Islands.
Ef hinsvegar lýðræðisleg
vinnubrögð yrðu siðar tekin upp i
Sambandi Dýraverndunarfélaga
tslands, þá mun stjórn Katta-
vinafélags tslands telja það sjálf-
sagt, að félagið gerist aðili að SDI
á jafnréttisgrundvelli. Stjórn
Kattavinafélags Islands er mæta
vel ljóst, að innan þeirra félaga,
sem nú eiga aðild að SDt, eru
fjöldamargir einlægir dýravinir,
og sumir félagar Kattavina-
félagsins eru þar einnig félagar.
Það er þvi einlæg von stjórnar
Kattavinafélags Islands, að þró-
unin innan SDI megi verða i lýð-
ræðisátt, þannig að allir sannir
dýravinir geti unnið i sátt og sam-
lyndi að þvi meginverkefni, að
dýrin megi njóta þeirrar verndar
og þess lifsviðurværis, sem
mannúðleg geta talist.
Stjórn Kattavinafélags tslands.
Reykjavik, 27. mars 1978
Svanlaug Löve
Eyþór Erlendsson
Margrét Hjálmarsdóttie
Sigriður Lárusdóttir
Hörður Bjarnason
Gunnar Pétursson