Þjóðviljinn - 19.04.1978, Síða 16
16 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miftvikudagur 19. april 1978
ORÐSENDING
TIL FORELDRA.
í dag fá nemendur grunnskóla
í hendur bæklinginn
„Sumarstarf fyrir börn og unglinga 1978“,
með upplýsingum um framboð á
sumarstarfi neöangreindra stofnana.
Foreidrar eru hvattir til þess að skoða
bæklinginn vandlega með börnum sínum.
Angantýr Einarsson sendir
Sitt af hverju
frá Raufarhöfn
fþróttaráð Reykjavíkur
Leikvallarnefnd Reykjavíkur
Skólagarðar Reykjavíkur
Vinnuskóli Reykjavíkur
Æskulýðsráð Reykjavíkur
Tjarnargötu 20 s. 28544
Skúlatúni 2 s. 18000
Skúlatúni 2 s. 18000
Borgartúni 1 s. 18800
Fríkirkjuvegi 11 s. 15937
I i gær birti Landpóstur fyrri
m hluta fréttabréfs frá Angantý
■ Einarssyni, Raufarhöfn. Hér
] kemur siðari hlutinn :
I Skólamál
■
| . Grunnskólinn á Raufarhöfn
’ taldi 120 nemendur skólaárið
j 1975—1976. Fastráðnir kennarar
I voru 6. Gagnfræðaprófi luku 17
“ nemendur. Athugun á nem-
endaskrá skólans sýnir, að sjötti
hver nemandi er aðfluttur á
tveimur næstu árum á undan og
segir það sina sögu um þær
breytingar, sem hafa orðið á bú-
setu i þorpinu.
Tónlistarskóli Raufarhafnar
var stofnaður og hóf starfsemi
sina i byrjun október. Skóla-
stjóri er Margrét Bóasdóttir og
kennarar tveir, Orthulf Prunner
og Jóhann Jósefsson. Nemendur
eru tæplega 50 og leggja stund á
pianó-, harmoniku-, gitar- og
blokkflautuleik og söng. Skólinn
er til húsa i húsakynnum grunn-
skólans.
Listalif
Tónlist var að öðru leyti i
miklum hávegum höfð á Rauf-
arhöfn þetta árið. Kirkjukdrinn
ogkór Raufarhafnarskóla, báð-
ir undir stjórn Margrétar Bóas-
dóttur, æfðu af kappi, héldu tón-
leika og fóru i hljómleikaferðir.
Breskur barytonsöngvari,
John Speight kom og hélt söng-
skemmtun og Sinfóniuhljóm-
sveit Islands hélt tónleika i
Hnitbjörgum, við mikla aðsókn
og góðar undirtektir.
Leikfélag Raufarhafnar sýndi
Tobacco Road eftir Erskine
Caldwell á Raufarhöfn, Vopna-
firði, Þórshöfn og i Skúlagarði.
Með aðalhlutverk fóru: Heimir
Ingimarsson, Kristjana Krist-
insdóttir, Hrefna Friðriksdóttir
og Jakob Jakobsson. Leikstjóri
var Magnús Axelsson.
Myndlistarviðburðir urðu
tveir á árinu. Hallmundur
Kristinsson hélt málverkasýn-
ingu og Anna Sigrlður Björns-
dóttir sýndi garfiklist, bæði I
Hnitbjörgum, við góða aðsókn.
Nýr vinnustaður o.fl.
Samvinnufélagið Rafafl hóf
starfsemi á Raufarhöfn og ann-
ast raflagnir, viðgerðir á raf-
magnstækjum og rafbúnaði og
tekur að sér útboð. Félagið hef-
ur aðstöðu i verbúð, sem Sildin
h.f. átti fyrrum.
Aðeins 210 kindur voru settar
á veturinn 1976 og hefur þeim
fækkað ár frá ári, enda eru
sauðfjárbændur nú aðeins orðn-
ir þrir talsins. Hestamennska
virðist hinsvegar vera að
spretta upp ekki sist meðal
ungra sveina.
Barnadagheimili var rekið
um sumarið og fram á vetur eft-
ir nokkurra ára hlé á slfkri þjón-
ustu.
Kvenfélagið Freyja
Kvenfélagið Freyja á Raufar-
höfn boðaði þorpsbúa til fagnað-
ar i Hnitbjörgum vegna sex-
tugsafmælis sins nú i haust.
Mun það elsta félag á Raufar-
höfn með svo langan, samfelld-
an starfsaidur. Núverandi for-
maður er Kristin Haraldsdóttir
en á undan henni Hólmfriður
Friðgeirsdóttir, i 26 ár. Fyrsti
formaður var Pálina Jónsdóttir
en af öðrum konum i forystu fé-
lagsins á fyrri árum skulu
nefndar: Guðrún Pétursdóttir
og Rannveig Lund. Félagið hef-
ur allansinn aldur beitt sér fyrir
fjársöfnunum til margvislegra
framfara- og réttlætismála og
aðstoð við bágstadda, réð t.d. á
árum áður stúlku til hjálpar á
heimilum I veikinda- og for-
fallatilvikum. Siðasta áratuginn
hefur félagið fyrst og fremst
Angantýr Einarsaon.
lagt fé I félagsheimiliö Hnit-
björg, en þar á Freyja myndar-
legan eignarhlut.
önnur félagsstarfsemi
Varðandi aðra félagsstarf-
semi skulu nefnd ungmennafé-
lagið Austri, sem hefur oftast
nær tómstundakvöld einu sinni i
Ungmennafélagið Ármann i
Hörgslands— og Kirkjubæjar-
hreppi gekkst fyrir félagsmála-
námskeiði að Kirkjubæjar-
klaustri dagana 1.-4. aprll, 1978.
A námskeiðinu var kennd
ræðumennska, fundarstjórn og
fundarreglur, hópstarf og farið
var yfir flesta aðra þætti félags-
málastarfs. Námsefni Æsku-
lýðsráðs rikisins var notað á
námskeiðinu.
viku fyrir unglinga, Bridgefélag
Rauf arhaf nar, sem heldur
spilakvöld einu sinnii viku, bæði
yfir háveturinn, Lionsklúbbur
Raufarhafnar og Slysavarna-
deild kvenna.
Yfir veturinn mun láta nærri,
að haldnir séu almennir dans-
leikir mánaðarlega, fjölmenn-
astir munu nýársfangaður og
þorrablót. Á sumrin eru dans-
leikir talsvert oftar. Dans-
hljómsveitin Jenný á Raufar-
höfn leikur oftast fyrir dansi við
almennar vinsældir.
Kvikmyndasýningar eru
haldnar 3—4 sinnum i viku og
„diskótek” fyrir yngra fólk öðru
hverju.
Tvö félög hafa næstliðin ár
haldið fjölmennar árshátíðir en
það eru Lionsklúbburinn og Al-
þýðubandalagið, en það er eina
stjórnmálafélagið, sem telja má
með lifsmarki á staðnum.
Mannalát
Að lokum skulu nafngreindir
Raufarhafnarbúar, sem létust á
árinu:
Þorbjörg Tómasdóttir, f. 15.
des. 1888, fyrrum húsmóðir f Asi
á Raufarhöfn, d. 21. febr.
Björn Sigfússon, f. 3. des.,
1895, verkamaður,fyrrum bóndi
i Brekknakoti i Þistilfirði, d. 1.
mai.
Stefán Anton Jónasson, f. 5.
des. 1903, fyrrum bóndi á
Harðbak, d. 23. júli.
Kristbjörg Jóhannsdóttir, f.
23. júlf, 1897, fyrrum húsmóðir I
Sæbóli á Raufarhöfn, d. 14. des.
Þátttakendurvoru á aldrinum
15-44, alls 13. Undu þeir hag
sinum hið besta og var stundum
áliðið nætur þegar fólk kom til
heimkynna sinna. Létu þátt-
takendur i ljós áhuga á að
framhald verði á slikri félags-
málafræðslu & vegum
ungmennafélagsins.
Leiðbeinandi á námskeiðinu
var Magnús CMafsson, Svéins-
stöðum, A-Húnavatnssýslu..
mhg
SÍMASKRÁIN
1978
Afhending simaskrárinnar 1978 hefst
mánudaginn 24. april til simnotenda.
í Reykjavik verður simaskráin afgreidd á
Aðalpósthúsinu, gengið inn frá Austur-
stræti, daglega kl. 9-18 nema laugardag-
inn 29. april kl. 9-12.
í Hafnarfirði verður simaskráin afhent á
Póst- og simstöðinni við Strandgötu.
i Kópavogi verður simaskráin afhent á
Póst- og simstöðinni, Digranesvegi 9.
Þeir simnotendur, sem eiga rétt á 10
simaskrám eða fleirum, fá skrárnar send-
ar heim. Heimsendingin hefst miðviku-
daginn 19. april n.k.
í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði
verður simaskráin aðeins afhent gegn af-
hendingarseðlum, sem póstlagðir voru i
dag til simnotenda.
Athygli simnotenda skal vakin á þvi að
símaskráin 1978 gengur i gildi frá og með
sunnudeginum 7. mai 1978.
Simnotendur eru vinsamlega beiðnir að
eyðileggja gömlu simaskrána frá 1977
vegna fjölda númerabreytinga, sem orðið
hafa frá þvi að hún var gefin út, enda er
hún ekki lengur i gildi.
Póst- og simamálastofnunin.
KIÖRSKRÁ
Kjörskrá til alþingiskosninga er fram eiga
að fara 25. júni n.k., liggur frammi al-
menningi til sýnis i Manntalsskrifstofu
Reykjavikurborgar, Skúlatúni 2, 2. hæð,
alla virka daga frá 25. april til 23. mai n.k.
frá kl. 8.20 f.h. til kl. 4.15. e.h., þó ekki
laugardaga.
Kærur vegna kjörskrárinnar skulu hafa
borist skrifstofu borgarstjóra eigi siðar en
3. júni n.k.
Reykjavik, 19. aprfl 1978
Borgarstjórimi i Reykjavik.
Þátttakendur I félagsmálanámskeiði umf. Armanns.
F élagsmálanámskeið
á Klaustri