Þjóðviljinn - 06.05.1978, Page 3

Þjóðviljinn - 06.05.1978, Page 3
Laugardagur 6. mal 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Bresjnef og Schmidt Góður árangur í yiðskiptamálum Enginn í afvopnunarmálum 5/5 — 1 viöræðum þeirra Heimuts Schmidt, sambandskanslara Vestur-Þýskalands, og Leónids Bresjnefs, forseta Sovétrikjanna, sem nú er I opinberri heimsókn I ^Bonn, kom ekkert þaö fram er benti til þess aö saman myndi ganga meö Sovétmönnum og Vestur-Þjóöverjum um nifteinda- sprengjuna og Berlin. Bresjnef endurtók fyrri yfiriýsingar um aö ekki kæmi tii greina aö Sovétrikin gæfu neitt eftir I afvopnunarmál- um I skiptum fyrir þaö aö Banda- rikin hættu við framleiöslu nift- eindasprengjunnar, og einnig voru endurteknar fyrri gagn- kvæmar ásakanir rikjanna um brot á hlutleysi Berlinar. Form- lega á þaö svo enn aö heita aö Settu hafn- bann á Höfn og ríkisstjórnin lét undan 5/5 — Svend Jakobsen, sjávarút- vegsráöherra Dana, tilkynnti fréttamönnum i dag aö hann heföi farið fram á fund meö fulltrúum annarra rikjá, sem lönd eiga aö Eystrasalti, i þeim tilgangi aö fá fram ivilnanir fyrir danska fiski- menn á Borgundarhólmi og ann- arsstaðar, sem mjög eru upp á veiöar i Eystrasalti komnir. Sýn- ist hér vera um verulega eftirgjöf dönsku stjórnarinnar aö ræöa, þar eö áöur haföi Jakobsen sagt fiskimönnum aö ekki væri hægt aö semja viö Eystrasaltsrikin framhjá Efnahagsbandalagi Evrópu nema meö þvi móti aö ganga úr þvi um leiö. Eystrasaltsfiskimenn stefndu um fimm hundruð bátum til Kaupmannahafnar og nálægra hafna fyrir nokkrum dögum og lokuðu i dag höfnunum með þvi að leggja bátunum fyrir mynni þeirra. Tók þá fyrir samgöngur á sjó til Sviþjóðar og Noregs og einnig milli dönsku eyjanna. En fiskimenn opnuðu hafnirnar aftur fyrir umferð nokkrum klukku- stundum siðar, er stjórnin sam- þykkti aö ræða við fulltrúa þeirra. Anker Jörgensen, forsætisráð- herra, hafði rétt áöur sagt aö ekki kæmi til greina að ræða viö fiski- menn, þar eð þessar aðgerðir þeirra væru i trássi við stéttarfé- lag þeirra, en hann hefur greini- lega hugsað sig betur um. Fiskimenn á Borgundarhólmi og viöar krefjast þess að annaö hvort verði fiskveiðikvótarnir hækkaðir eða að stjórnin bæti þeim tjónið, sem þeir verða fyrir vegna niðurskurðar kvótanna og útfærslu fiskveiðilögsagna Svi- þjóðar, Austur-Þýskalands, Pól- lands og Sovétrikjanna. Þær út- færslur lokuöu Borgundarhólmur- um fiskimið, sem þeir hafa lengi sótt, og mun danska stjórnin nú væntanlega fara þess á leit viö þessi riki, að þau veiti dönskum fiskimönnum einhverjar ivilnanir á þessum miðum. Sudur-Afríkumenn gera árás á Angóla 5/5 — Mörg hundruö manna suöurafriskt herliö, iand- og flug- her, gerði i gær árásir langt inn i Angólu og hafa þau tiöindi vakiö mikla ólgu á alþjóöavettvangi. Suður-Afrikumenn segjast hafa ráöist á bækistöövar SWAPO, sjálfstæðishreyfingar Namibiu, sem hefur griðland i Angólu. Ótt- ast er aö þessar árásir kunni aö gera aö engu tilraunir Bandarikj- anna, Bretlands, Frakklands, Vestur-Þýskalands og Kanada til þess aö fá samþykki bæöi Suöur- Afriku og SWAPO viö alþjóölega viöurkennda áætlun um sjálfstæöi til handa Namibiu. Suður-Afrika hefur þegar sam- þykkt áætlunina fyrir sitt leyti, en SWAPO hefur ýmislegt viö hana að athuga. 1 dag hafði Pik Botha, utanrikisráðherra Suöur-Afriku, i hótunum um að Suöur-Afriku- menn kynnu að afturkalla sam- þykki sitt við sjálfstæðisáætlun- ina ef SWAPO samþykkti hana ekki undireins og léti jafnframt þegar i stað af skæruhernaði. Ekki hafa tölur borist af mann- falli i árásinni. Suður-Afriku- menn segjast ekki hafa ráöist á annað en bækistöðvar SWAPO, en i fréttum frá Luanda, höfuðborg Angólu, segir að flóttamannabúö- irog óbreyttir borgarar hafi orðiö fyrir árásum. Þetta er mesta árás Suður-Afrikuhers inn i Angólu frá þvi að Suður-Afriku- menn gerðu innrás i landið i borgarastriðinu þar 1975-76. Ræningjarnir hóta enn að drepa Moro 5/5 — 1 tilkynningu útgefinni i nafni Rauöu hersvcitanna svo- kölluöu, sem barst til blaða i nokkrum helstu borgum ttaliu i dag, segir aö téöar sveitir muni nú standa viö þá hótun sina aö taka Aldo Moro, sem þær hafa haft í haldi siöan 16. mars, af iifi. Rikisstjórnin hefur til þessa neit- aö kröfum mannræningjanna um aö láta 13 fangelsaöa hermdar- verkamenn lausa I skiptum fyrir Moro. Francesco Paolo Bonifacio, dómsmálaráðherra italiu, sagð- ist hallast að þvi að hótunina um aftökuna bæri ekki að taka alvar- lega, heldur væri hún enn ein við- leitni ræningjanna i tauga- striði þeirra i þeim tilgangi að valda ólgu og upplausn. fjórveldin úr siöari heims- styrjöld, Bandarikin, Sovétrikin, Bretland og Frakkland, hafi yfir- umsjón meö borginni. Viðræður um viðskiptamál gengu hinsvegar greiðlegar og á morgun munu þeir Bresjnef og Schmidt undirrita 25 ára samn- ing um samvinnu i efnahags- og viðskiptamálum. Sovétrikin hafa þegar meiri verslunarviðskipti við Vestur-Þýskaland en nokkurt annað vestrænt rfki. i skálaræöu til heiöurs Bresjnef sagði Schmidt, að samvinna á þessum vettvangi yrði báðum aðilum til stórmikils gagns, þar eð Sovét- rikin væru auðug af hráefnum og Vestur-Þjóðverjar gætu á móti boðið þeim upp á háþróaða tækni. Lyfsöluleyfi sem / Forseti Islands veitir Lyfsöluleyfið i Keflavik er laust til um- sóknar. Umsóknarfrestur er til 5. júni 1978. Umsóknir sendist landlækni. Fráfarandi lyfsali óskar að notfæra sér heimild 32. gr. lyfsölulaga nr. 30/1963 um að viðtakanda sé skylt að kaupa vöru- birgðir og áhöid lyfjabúðarinnar. Einnig skal viðtakandi kaupa húseignina Suðurgötu 2, Keflavik,þar sem lyfjabúðin er til húsa. Leyfi þessu fylgir kvöð til að annast rekst- ur lyfjaútsölu eða lyfjaútibús i Grindavik og lyfjaútsölu i Sandgerði. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. 5. mai 1978. CITROÉNA' TÆKNILEG FULLKOMNUN CITROÉN^CX LUXUSBÍLL í SÉRFLOKKI CITROÉN^GS DRAUMABILL FJÖLSKYLDUNNAR ÞEGAR ÁKVEÐIN ERU BÍLAKAUP ER NAUÐSYNLEGT AÐ VITA HVAÐ FÆST FYRIR PENINGANA HEIMSÆKIÐ BILASÝNINGUNA OG SANNFÆRIST UM KOSTI CITROÉNA SAMA HÆÐ OHAÐ HLEÐSLU SAMA STAÐA ÓHÁÐ ÓJÖFNUWi felt'*

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.