Þjóðviljinn - 13.05.1978, Page 2
2 SÍÐA —- ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. mal 1978.
\\YBoV)
frá HISAVÍK
tU þeirra sem hyggja á funda-
eóa ráóstefnuhald
Fundarstaður: Hótel Húsavík
Tímabil: Fram að 15. júní og eftir 30. ágúst
Tímalengd: Tveir sólarhringar
Fjöldi þátttak.: 10 - 100 manns
Vcrð: Kr. 26.324.-* og 28.828.-** á mann
Innifalið í verði: Flugferðir til og frá Húsavík.
Flutningur milli flugvallar og Hótels Húsavíkur.
Gisting og fullt fæði.
Afnot af fundarsölum og hjálpartækjum.
* Málsverðir í veitingabúð ** Málsverðir í vcitingasal.
Hótel Húsavík er löngu lands-
þekkt fyrir vandaða og góða
þjónustu. Þar eru 34 herbergi.
veitingasalur og veitingabúð,
notalegur bar ogsetustofa. Einnig
er á staðnum sundlaug og sauna.
Húsavík.er friðsæll kaupstaður
í nánd við víðfrægar ferða-
mannaslóðir. Þaðan erauðvelt að
fara í stuttar skoðunarferðir.
Hér er því kjörið tækifæri fyrir þá
sem vilja sameina skemmtun
og starf.
HÓTEL
síríHSVYÍk
Húsavík Simi 9641220 Simnefni: Hotelhusavik
Telex 2152 fyrir HH
Auglýsið í Þjóðviljanum
málninghlf
Einmitt Dturinn.
sem ég hafði hugsaó méri
„Nýtt Kópal er málning aö mínu
skapi. Nýja litakerfið gerir manni
auövelt að velja hvaða lit sem er,
— og liturinn á litakortinu kemur
eins út á veggnum.
Þaö er verulega ánægjulegt að sjá
hve nýtt Kópal uppfyllir allar óskir
manns og kröfur.
Nýtt Kópal þekur vel og er létt i
málningu. Endingin á eftir að
koma í Ijós, en ef hún er eftir öðru
hjá Kópal, þá er ég ekki banginn!"
l>að er enginn vafi að þróun
atvinnumála i borginni og
hnignun framleiðslu- og úr-
vinnslugreina er bein afleiðing
af afskiptaleysi borgaryfirvalda
af atvinnulifi i borginni, stöðu
þcss og þróun.
Kaunar er eðiiiegt að ihalds-
stjórn hafi ekki mikil afskipti af
atvinnulifi.
Kenning þeirra er sú að „hið
frjálsa framtak einstak-
lingsins” megi hvorki takmarka
né skerða með neinum hætti,
hvað þá breyta með aögeröum
stjórnvalda samkeppnisaðstöðu
atvinnugreinanna.
Frá þvi á striðsárunum og
langt fram eftir siðasta áratug
var eða virtist amk. heldur
engin þörf á afskiptum af
atvinnulifi hér i Reykjavik.
ör uppbygging borgarinnar,
samfara bæði fólks- og fjár-
magnsflótta frá dreifbýlinu
tryggði næga atvinnu hér.
Hin opinbera stefna Sjálf-
stæðisflokksins var að gera ekki
neitt og treysta bara á guð,
lukkuna og einkaframtakið.
Þvi miður hefur þetta brugð-
ist. Atvinnumál Reykjvfkinga
stefna nú i óefni. Atvinnumögu-
leikar ungs fólks eru litlir, sam-
dráttur er i flestri atvinnustarf-
semi. Fyrirtæki flýja borgina og
fólki i Reykjavik fer fækkandi.
Alþýðubandalagið leggur höfuðáherslu á að atvinnuöryggi Reyk-
víkinga verði haft að leiðarljósi en ekki gróðasjónarmiðin ein.
Sigurjón Pétursson, borgarfulltrúi:
Öryggi hverra?
Það er augljóst að eitthvað
verða borgaryfirvöld að gera.
Stefna Sjálfstæðisflokksins er
sú að borga með einkarekstr-
inum með ýmsu móti, eða með
öðrum orðum þjóðnýta tapið en
halda gróðanum i einkaeign.
Við Alþýðubandalagsmenn
leggjum höfuðáherslu á að
borgin sjálf hafi frumkvæði og
forystu um uppbyggingu á at-
vinnustarfsemi: Að atvinnu-
öryggi Reykvikinga verði haft
að leiðarljósi en ekki gróða-
sjónarmiðin ein.
Við bendum á hina gifurlegu
þýðingu fyrirtækja eins og
BÚR, sem veitir hundruðum
manna atvinnu og hefur gert,
þótt önnur sambærileg fyrirtæki
Sigurjón Fétursson
hafi rekið alla heim og hætt
starfsemi þegar ágóðinn var
ekki nægur.
Við bendum á fyrirtæki eins
og Malbikunarstöðina og Pipu-
gerð borgarinnar, en þessi
fyrirtæki hefur borgin rekið um
árabil með ágætum árangri.
Það eru uppi tvær stefnur i
atvinnumálum: Stefna Alþýðu-
bandalagsins og stefna Sjálf-
stæðisflokksins.
Stefna Alþýöubandalagsins er
sú að tryggja Reykvíkingum
örugga atvinnu á komandi
timum.
Stefna Sjálfstæðisflokksins er
sú, að trygggja atvinnurek-
endum öryggi.
Það er ykkar að velja.
Verður Torfan rifin
eftir kosningar?
Undanfarna daga hefur sú saga
gengiö fjöllunum hærra i bænum,
að búið sé að ráða verktaka til
þess að rífa Bernhöftslorfuna eft-
ir kosningarnar.
Þjóðviljinn leitaði af þessu til-
efni til Hjörleifs Kvaraná skrif-
stofu borgarverkfræðings, en
hann á sæti i viðræðunefnd borgar
og rikis um framtið Torfunnar.
Aðrir i nefndinni eru Þórður
Þorbjarnarson, Björn Bjarnason
og Gunnlaugur Claessen.
Hjörleifur sagði að ekkert slikt
hefðikomið upp á fundum nefnd-
arinnar, enda væri hlutverk
hennar aðeins að kanna núver-
andi ástand húsanna og taka til
athugunar, hvað unnt yrði að
gera við þau i framtiðinni.
Nefndin hefur nú i höndum
álitsgerð frá Leifi Blumenstein
sem fenginn var til þess að meta
húsin. Hjörleifur sagðiað nefndin
myndi væntanlega skila áliti sinu
og leggjaeitthvað til.en ekki vildi
hann segja hvenær eða hvað það
yrði.
Hjörleifur tók fram að með
breyttu nýtingarhiutfalli, sem
samþykkt hefur verið fýrir þetta
svæði, væri útilokað aö Torfan
viki fyrir stórhýsi, þar sem nú
væri ekki leyfð nema lág byggð á
svæðinu. Þá sagði hann ennfrem-
ur að loforð lægju fyrir frá ríkinu,
sem á húsin, að ekkert yrði gert
sem torveldað gæti verndun Torf-
unnar, meðan nefndin starfaði.
Þá hafði Þjóðviljinn einnig
samband við Ilörð Runólfsson,
verkstjóra, en það fylgdi sögunni
aðhann hefði verið beðinn að rifa
Torfuna.
Hörður sagði aö ekkert heföi
verið ákveðið þar um ennþá, en
ekki vildi hann fortaka að á það
hefði verið minnst af ýmsum, þó
ekki mönnum sem bæru ráun-
verulega ábyrgð á framkvæmd-
um.
Hann sagðist ennfremur álita
að eitthvað yrði gert i þessu máli
nú i sumar, þar sem óverjandi
væri að láta þessa kofa standa
lengur, útlit þeirra væri Reykvik-
ingum til háborinnar skammar.
—AI