Þjóðviljinn - 25.06.1978, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 25.06.1978, Qupperneq 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 25. júni 1978 SÖGURUM DJOÐVIUINN Málgagn sósialisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri Eiöur Berg-, mann. Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson. Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson. Umsjón meö sunnudagsblaöi: Arni Bergmann. Auglýsingastjóri: Gunnar Steinn Pálsson Ritstjórn, afgreiösla, auglýs- ingar: Siðumúla 6, Sími 81333 Prentun: Blaöaprent hf. A morgun 1 36 ár hafa kosningaúrslit ekki breyst mikið frá kosningum til kosninga. Ef litið er yfir kosningaúr- slit áratuganna virðist einna mest breyting hafa átt sér stað þannig að Alþýðuflokkurinn hafi tapað fylgi yfir til Sjálfstæðisflokksins. Er þá miðað við kosn- ingaúrslitin 1974. Nú bendir hins vegar margt til þess að kosningarnar muni hafa það i för með sér að Alþýðuflokkurinn nái aftur sinum fyrri styrk, eða þvi atkvæðamagni hlutfallslega sem hann hafði 1966. Er þá komið upp gamalkunnugt núll, eins og ritstjóri Dagblaðsins komst svo hnyttilega að orði? Er þá komin á ný upp sú staða að skapist grundvöll- ur fyrir viðreisnarstjórn landflótta, atvinnuleysi og álsamninga? Breytist nokkuð? Þýðir þetta nokk- uð? Þannig er spurt og það er eðlilegt. En það er til leið til þess að slita hlekki vanans. Það er til leið til þess að breyta islenska þjóð- félaginu i þágu islenskra launamanna. Það er til leið til þess að festa og treysta islenskt sjálfstæði sem i sifellu verður að verja fyrir erlend- um yfirgangsöflum og fyrir rányrkju innlendra peningamanna. Það er til leið til þess að brjóta niður kauplækk- unarmúr rikisstjórnarinnar, sem forysta Alþýðu- bandalagsins i verkalýðshreyfingunni og i borgar- stjórn hefur nú brotið skarð i. Það er til leið til þess að skapa manneskjulegra samfélag. Það er til leið til þess að treysta afl launamanna gegn ihaldinu, gróðaöflunum, svo sterkt afl að þau geti aldrei sýnt þann yfirgang, þann hroka og þá mannfyrirlitningu sem birtist i framkomu valds- herranna gagnvart launafólki. Þessi leið er sú að kjósa Alþýðubandalagið. Þar með er rikisstjórn ihaldsaflanna fallin. Vinni Alþýðubandalagið kosningasigur er viðreisnar- grýla Alþýðuflokksins lika dauð. Vinni Alþýðu- bandalagið kosningasigur er kaupránsmúr stjórnarflokkanna hruninn. Þessi er afstaða Þjóðviljans og hana þekkja allir sem fylgjast með islenskum stjórnmálum. Kjós- andans er hins vegar að gera upp við sig málin á eigin forsendum eftir bestu samvisku. Þjóðviljinn vill aðeins leyfa sér að benda á að til þessa, undan- farin 36 ár, hafa öfl ihalds og yfirgangs, verið sterk á Islandi. Alþýðubandalagið er næststærsti flokkur landsins og þvi eini flokkurinn sem hugsanlega getur veitt ihaldinu viðnám. En Alþýðubandalagið er aðeins hálfdrættingur að fylgi móts við Sjálf- stæðisflokkinn. Hlutföllin verða að breytast. Það er unnt að breyta þeim i dag launafólki i vil. tJrslit byggðakosninganna sýna það svo ekki verður um villst, en það er ekki vist að annað eins tækifæri bjóðist i bráðina aftur. Vonandi mun enginn iðrast þess i fyrramálið hvernig hann greiddi atkvæði i dag. —s. Oxfordstúdenta og prófessora á bók Út er komin bók sem sjálfsagt er skemmtileg, hún heitir Oxfordbókin um Oxford og geymir sögur og skrýtlur um stúdenta og kennara þessa aldna og fræga háskóla. Skólinn var þegar frægur und- ir lok tólftu aldar og þekktur fyrir árekstra stúdenta viö bresku krúnuna sem og viö borgarbúa i Oxford. Rann meira blóö eftir slóö i ýmsum þeim orustum en i mörgum frægari. Til dæmis segir frá þvi, aö ár- ið 1354 hafi tvö þúsund bændur ráöist á stúdenta, drepiö nokkra þeirra og stungiö likunum á mykjuhauga. Orusta þessi byrjaöi á þræt- um um gæöi vinfanga á tiltek- inni krá! Prófessorinn viöutan Skrýtlur eru margar, og pró- fessorinn viöutan er algengur skotspónn. Ein er svona: Prófessor biöur stúdent um aö pumpa i aftur- dekkið á reiöhjóli hans. Stúdent- inn féllst á aö veröa viö þessari bón, en spurði hvort ekki væri þörf á aö pumpa i framdekkið einnig. Ha, sagöi prófessorinn — eru þau ekki samtengd? Séra William Spooner var frægur klerkur i Oxford. t lok prédikunar sagöi hann einu sinni viö söfnuö sinn: t prédikuninni, sem ég var aö flytja, nefndi ég nokkrum Rithöfundurinn og háðfuglinn Max Beerbohm kemur mjög við sögu i Oxfordbókinni. sinnum Aristóteles á nafn, en ég meinti Pál postula. Annar Oxfordklerkur byrjaöi prédikun sina á svofelldan litil- látan hátt: Páll postuli segir i einu bréfa sinna — og ég er sumpart sammála honum.... Drykkjuskapur Oxford hefur alltaf verið frægur drykkjuskaparstaöur. Einhverju sinni var guöfræöi- doktor einn á leið heim til sin og komst aö þvi snjallræði, aö besta leiðin til að standa á fótum væri að hallast upp aö vegg og láta hann styöja sig á göngunni. Hann áttaöi sig hinsvegar ekki á þvi, að veggurinn sem hann fann var sivaliturn einn, og gekk hann kringum turninn lengi nætur þar til góöviljaöur kunningi doktorsins bjargaöi honum úr helsi þessu. Stéttarskóli Nitjanda öldin1 var blóma- skeið Oxfordskóla. Þangaö komu synir yfirstéttarinnar og bjuggu sig undir að gerast smiö- ir heimsveldisins og forkólfar á þingi. Mörgum hefur þótt und- anlegt, að menn bjuggu sig und- ir stjórnarstörf á Indlandi meö þvi til dæmis aö iðka fótbolta. lesa grisku og gera tilraunir til skáldskapar — en svona var þetta og bjargaöist furöanlega. A tuttugustu öld var fariö aö reyna aö breikka nokkuð stétt- arlegt baksvið Oxfordstúdenta, en það gekk hægt — yfirstéttin hélt þar lengi velli. Bernard Shaw neitaöi aö halda fyrirlest- ur i skólanum — hann kærði sig ekkert um háskóla sem væri ætlað að búa til „fáeina fræði- menn og helling af séntilmönn- um.” 4000 ára gamall bindindis- Ií~ ITá PMIJLéiSJL áróður Það er misskilningur ef menn haida að templaraáróður sé einhver ný bóla. Búlgarskur visindamaöur, L. Babinof, hefur i bók sinni ..Læknisfræði Egypta hinna fornu” tilfært áróöur gegn áfengisböli, sem erfjögur þúsund ára gamall. Eöa með öðrum orð- um: Sá er aldur þessarar áletrun- ar, sem hér að ofan er tilfærð. Textinn hljómar svo I þýöingu: „Ekki skaltu tortima sjálfum þér sitjandi á ölstofu, týndu ekki vitinu og gleymdu ekki svardög- um þinum. Þegar þú veltur um koll ofurölvi, og þrifur I klæöafald þess sem næstur þér situr, þá munenginnveröa tilþessaö rétta m \\ I I I HTMMí PT ! ili M ö þér hjálparhönd. Jafnvel vinir segja meö hryllingi: Burt meö þlnir munu snúa viö þér baki og þig, fyllirafturinn”. Hvalavinir búa til sandhveli A dögunum geröist þaö á strönd Kaliforniu viö borgina San Pedro aö um 700 manns vöröu sex klukkustundum til aö búa til um 30 metra langan hval úr sandi. Siöan mynduöu þeir viö hliö þessa sandferlikis „hval úr manneskjum” — eins og myndin sýnir. Þar fyrir ofan rööuöu nokkrir úr hópnum sér upp I vigoröiö: Save the Whale — Bjargiö hvalnum.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.