Þjóðviljinn - 25.06.1978, Síða 11

Þjóðviljinn - 25.06.1978, Síða 11
Sunnudagur 25. júnl 1978 ÞJÓÐVILJINN — StÐA!í!l Óvenjulegt hlutfall — Þessi kassi hefur þá breytt úrslitunum i annað sinn? Þessi kassi er eitt merkasta fyrirbæri þessara borgarstjórn- arkosninga. Hlutfall G-listans og D-listans var i kjörfundaratkvæð- unum 62 á móti 100 D-listanum i vil. í utankjörstaðaatkvæðunum var þetta hlutfall hagstæðara fyrir G-listann eða 72 á móti 100. Hins vegar voru G-lista atkvæðin i þessum kassa 106 á móti 108 D- lista atkvæðum, eða næstum þvi jafnmörg, og það er hrikaleg út- koma fyrir borgarstjórnarmeiri- hlutann sáluga i einni kjördeild. — Úr hvaða kjördeild var þessi kassi? Ég get ekki greint frá þvi, en i stað þess að 270 viðbótaratkvæði hefðu átt, samkvæmt öðrum niðurstöðum, að eyða þessum eins atkvæðis mun milli listanna þá juku þessi atkvæði muninn, þar sem G-listinn þurfti aðeins 5 atkvæði á móti hverjum 8, sem D- listinn fékk. Mismunurinn á 5. manni G-list- ans og 8. manni D-listans jókst þvi úr 1 upp I 8,8 atkvæði (sinnum , 5). Endurtalning — Hver gerði kröfu um endur- talningu? -Umboösmenn listanna áttu þar engan hlut aö. Þaö var ákvörðun yfirkjörstjórnar sjálfrar, enda munaöi það mjóu, að nauðsynlegt var fyrir allta hlutaðeigandi ekki sist fyrir yfirkjörstjórnarmenn, að úrslitin væru skýr og óumdeil- anleg. — Nú breyttist niöurstaöan lít- ið eitt við endurtalninguna. Já, enn breikkaði bilið milli 5. manns G-listans og þess 8. hjá Sjálfstæðisflokknum. Endanleg niðurstaða var 10,6 atkvæða mun- ur, D-listinn fékk 22.100 atkvæöi og G-listinn 13.864. Meginástæöan fyrir þessari breytingu var sú, að i D-lista bunkunum fundust 10 G- atkvæði, en þegar atkvæöi færast á milli þessara lista breytir það miklu. Annars voru öll vafaat- kvæði skoðuð aftur af umboðs- mönnum listanna, og urðu þar nokkrar deilur. Yfirkjörstjórn kvað þá upp úrskuröi, sem um- boðsmennirnir sættu sig við, og allir skrifuðu undir fundargerð- ina fyrirvaralaust. Vafaatkvæði — Hver voru deiluefnin? Þau voru margs konar en þó aðallega tvenn. Annars vegar voru 13 seðlar, þar sem krossinn var settur utan við hinn prentaða ramma, bæði á hlið og fyrir neðan framboðslistana. Ég taldi aug- ljóst að vilji kjósendanna kæmi greinilega fram á þessum seðl- um, en var i yfirkjörstjórn borinn atkvæðum á þeirri forsendu, að samkvæmt venju væru krossar, sem ekki væru innan hins prent- aða ramma ekki marktækir. Þetta var raunar eina deiluefniö i yfirkjörstjórninni. Hitt atriðið var mat á nokkrum illa skrifuðum utankjörstaðaat- kvæðum. Stafurinn G er mjög lik- ur C, þegar hann er illa skrifaöur eöa skrifaður i flýti, og sérstak- lega er það ein kynslóð sem skrif- ar stórt G á þann hátt að þaö likist mjög S. Við vandlega yfirferð og nokkrar deilur við umboðsmenn var að lokum samþykkt að telja 5 áður metin G-lista atkvæði ógild, og þá var niðurstaða loks komin. Agiterað hinu megin — Var annars tiðindalaust hjá yfirkjörstjórn? Nei, öðru nær. Það var alltaf eitthvað skeftimtilegt að gerast allan kosningadaginn. Það var til dæmis þetta með Karl Marx. Spaugsamir ritstjórar Morgun- blaðsins reyndu fyrir kosningarn- ar að halda þvl að lesendum sin- um að Karl Marx væri I framboði til borgarstjóraembættisins. Flestir ráku upp stór augu við þessar stórpólitlsku og yfirnátt- úrulegu fréttir, og við I yfirkjör- stjórninni vorum að gantast með það I okkar hóp, hvernig gamla manninum sjálfum heföi orðið við Björt>vin Sigurðsson er risinn á fætur og leS lokatölur I Reykjavik. Ingi R. Helgason, næstur honum til hægri, fylgist náið með. Til vinstri situr Guðmundur Vignir Jósefsson hrl., þriðji fulltrúinn í yfirkjörstjórn. Aðrir á myndinni eru frá vinstri William Möller aðalfulltrúi lögreglustjóra og hæstaréttarlögmennirnir Helgi V. Jónsson og Hjörtur Torfason varamenn i yfirkjörstjórn. ÞEGAR DOMURINN VAR FELLDUR Dagblaðið tók ekki eftir neinum svipbrigðum. fréttirnar, sem hlutu að hafa bor- ist yfir i annan heim, þótt Morgunblaðið væri ekki selt hin- um megin. Svona rétt til þess að trufla þessar bollaleggingar okk- ar kemur ungur maður askvað- andi á fund yfirkjörstjórnar og segir okkur að tiltekin kona hafi komiö inn I kjördeild þar sem hún hafi alltaf kosið á siöari árum, en i þetta skipti fékk hún ekki að kjósa þar sem hún hafði verið strikuð út úr kjörskránni með þeirri athugasemd aö hún væri dáin. Maðurinn sagði konuna sprelllifandi og krafðist þess að hún fengi að kjósa. Viö sögðumst mundu athuga málið og báðum hann að koma örlítiö slðar. En um leið og hann lokaði hurðinni hrökk upp úr oddvita yfirkjörstjórnar: „Það er bara svona, — gamli maðurinn er farinn á stúfana og farinn að agitera hinum megin. Hann er farinn aö reka fólk að handan til þess að kjósa”. Viö hlógum. Dæmd í tölu lifenda — Fékk konan þá ekki að kjósa? Þetta var erfitt viðureignar, þvi yfirkjörstjórn hefur ekkert með breytingar á kjörskrá að gera. Það gera sveitarstjórnir og dóm- stólar. Við létum kanna hvernig á þessari athugasemd stæði, en á þvi fannst engin skýring. Við sannfærðumst fljótlega um að þetta væri hin herfilegasta hand- vömm, en lfkleg skýring er að al- nafna konunnar hafi látist eftir að kjörskrá var gerð. Kjörskránni ■ var hins vegar ekki hægt að breyta nema með dómi og enginn þeirra þriggja borgardómara sem við náðum i, hafði aðstöðu til þess að vekja konuna upp frá dauðum meö dómsoröi. Þá hringdum viö i yfir- borgardómara og báðum hann að bjarga konunni úr greipum helj- ar, en hann sagðist ekkert geta gert I málinu, því við embættið fara sérstakir dómarar með kjör- skrárkærumáliö, og sama var að segja meö dómsmálaráöuneytið á sunnudegi sem þessum. Ekki vildum við þó gefast upp, og á endanum fékkst Magnús Thoroddsen, borgardómari, sem var I undirkjörstjórn I þjónustu yfirkjörstjórnar til að taka sér fri frá þeim störfum og setja dóms- þing til að koma konunni aftur i tölu lifenda. Helsta sönnunargagniö i mál- inu var konan sjálf sprelllifandi, og lagöi lögfræðingur hennar hana fram I réttinum ásamt með kæru sinni og greinagerö. Magnúsar Thoroddsen verður lengi minnst sem hins mikla upp- vakningardómara eftir þetta og um sex-leytið á kjördag kom dómsorð hans og konan kaus. Auðir seðlar gengu aftur — Geröist eitthvað fleira I þessum dúr? Annar merkilegur atburður og reyndar draugagangur lika gerð- ist i þessum kosningum. Ég var I yfirkjörstjórn við borgarstjórn- arkosningarnar 1970 með þeim Torfa Hjartarsyni og Einari heitnum B. Guömundssyni. Laust fyrir hádegi á kjördag þá bárust yfirkjörstjórn kvartanir úr þrem- ur kjördeildum frá fólki sem þar kom, um að þvl hafi verið afhent- ir óprentaöir kjörseðlar, alveg auðir. Viö talninguna komu hins vegar þessir þrir auðu seðlar aldrei upp úr kössunum, og var það vendilega bókað I gerðarbók kjörstjórnar ásamt með kærun- um þremur. Það sem svo gerðist núna 8 árum siðar er að (þessir!) þrlr auðir seðlar koma upp úr kjörkössunum. Enginn hafði hins vegar kvartað. — Hvernig gat þetta gerst? Það vitum við ekki. Við gátum okkur þess til 1970 að seðlarnir, sem voru brotnir saman i vél hafi verið svo fast brotnir, að stirðar hendur hafi ekki náð að opna seðilinn og þvi hafi viðkomandi taliö seðilinn auðan. Nú hefur prentvélin I Gutenberg brugðist i 3 skipti af 63.000 en hitt er miklu lakara að undirkjörstjórnarfólk skuli hafa afhent óprentaða kjör- seðla. — Voru þessir atkvæöaseðlar úrskurðaðir ógildir? Nei. Kjósendur höfðu skilmerki- lega skrifaö bókstaf þess lista, sem þeir vildu kjósa, likt og i utankjörstaöakosningu og seðl- arnir 3 voru þvi allir metnir gild- ir. — Nokkur önnur mál? Já, eitt að lokum. Yfirkjör- stjórn barst fyrirspurn frá einni undirkjörstjórn varðandi tiltek- inn vanda sem hún stæði frammi fyrir. Kjósandi neitaði aö segja i heyranda hljóöi á sér deili meðan „njósnarar” flokkanna væru inni i kjördeildinni til að skrifa sig niöur. Yfirkjörstjórn úrskurðaði um þetta atriði og var úrskurður- inn á þá leið, að kjósandanum væri nægilegt aö sanna undirkjör- stjórná sér deili t.d. með ökuskir- teini og þannig kaus hann. AI. IVýr ferðamðgtileiki! KomiÓ og fáió eintak af stóra fallega feróabæklingnum okkar. Yfir sumartímann erskrifstofan líka opin frákl. 10-12 á laugardögum. - i\Ýtt sólarland Nyjung i ferðamálum fyrir þá sem vilja kynnast nýju landi og þjóð og njóta sólar um leið. Farið er um Kaupmannahöfn. Dvalið verður í sólarbænum SOCHI sem er á strönd Svartahaf- sins. Brottför 4. áaúst n k Verð kr 19fi.nno - ISamvmnu- feröir AUSTURSTRÆT112 SÍMI 27077 (S) LANDSYN %/ll# SKÓLAVÖRÐUSTÍG16 SÍMI 28899

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.