Þjóðviljinn - 25.06.1978, Síða 17

Þjóðviljinn - 25.06.1978, Síða 17
Sunnudagur 25. jdnl 1978 ÞJOÐVILJINN — SIÐA 17 Aöstoöardómarinn fer á fjörurn- ar viö eina þorpsstúlkuna Á morgun, mánudaginn 26. júní, er frumsýning hjá Nemendaleikhúsinu í Lindarbæ á leikritinu „Pilsaþytur eftir Carlo Goldoni. Leíkarar eru nemendur i f jórða bekk S, og er þetta lokaverkefni þeirra við Leiklistarskóla Islands. Blaðamaður leit inn á eina lokaæfinguna á dögunum til að forvitnast nánar um leikritið og uppsetninguna. — Við byrjuðum að æfa um mánaðamótin april—mai, en það hafa orðið ýmsar tafir, vegna sjónvarpsverkefnis, sem allur skólinn hefur verið að vinna að, en það er sjónvarpsleikrit eftir Ágúst Guðmundsson, og leikstýr- ir höfundur leikritinu, segja nemendur 4. bekkjar S, en þau eru 12 alls: 6 stúlkur og 6 piltar. Þau tjáðu blaðamanni, að leikritavalið i þetta sinn hafi mið- ast mikið við að finna leikrit, sem biði upp á u.þ.b. 12 hlutverk, og þar sem flestum væri gert jafnt undir höfði. Leikritið, sem heitir á frum- málinu „Erjur i Chiossa”, hefur hlotið heitið „Pilsaþytur” i þýð- ingu Stefáns Baldurssonar. Eins og nafniö gefur til kynna, þá f jall- ar leikritið um fyrirgang kvenna, en þó ekki f niðrandi merkingu, þar sem kvenmennirnir reynast bæði klókari og úrræöabetri en karlpeningurinn, ef marka má orð leikstjórans, Þórhildar Þór- leifsdóttur. Leikritið fjallar um tvær fjöl- skyldur i italska þorpinu Chiossa og ýmislegar þrætur og mis- skilning, sem kemur upp á milli þeirra. 1 þorpinu eru mun fleiri kvenmenn en karlar, og þvi sleg- Þar sem barist er um hvern karl- mann ist harðlega um hvern karlpung, enda var eina llfsvon þeirra tima kvenna að kvænast, ef þær áttu að halda sæmd og virðingu. Lifið i þorpinu er fábreytt og kynja- skipting skýr: mennirnir draga bein úr sjó og konurnar húka heima og búa til blúndur og biða eftir að biöilinn beri að dyrum. 1 sliku þjóðfélagi þarf konan að beita mun meiri hyggjuviti en karlmaðurinn, ef hún á að tryggja sér mannsæmandi stöðu i sam- félaginu. Sviösskiptingar gengu hratt fyrir sig, enda lögðust allir á eitt. Aiþýöukonurnar kallaöar til yfirheyrslu hjá aðstoðardómaranum Höfundurinn, Carlo Goldoni skrifaöi verkið 1760 og var það frumsýnt sama ár. Ari siðar var gefin út heildarútgáfa aö verkum hans, og skrifaöi hann þá formála að þessu leikriti, þar sem hann útskýrir ýmsa þætti verksins. Segir hann m.a. að i Chiossa, sem er hafnarborg i nánd við Fen- eyjar búi 60 þúsund ibúar og séu 50 þúsund þeirra alþýðufólk, og meirihlutinn sjómenn. Hann seg- ist hafa notað sem einfaldastan og eðlilegastan texta, þar sem persónur verksins tali hverdags- legt mál. 1 formála þessum kem- ur fram mikill næmleiki og sam- hugur með alþýðufólki þeirra tima og djúpur skilningur á kon- um og vandamálum þeirra. Messiana Tómasdóttir hefur gert búninga og leiktjöld. Hún sagði að mestallt sviðið og allir búningar væru gerðir úr hveiti- pokum. Hafi verið töluvert erfitt að byggja sviðið, þar sem engu má þar hrófla, og væri hluti af leiktjöldunum byggður yfir pianó, Kvenfólkiö i Chiossa hunsar Toffolo, sem hleypir öilum erjunum af staö. sem ekki mætti hagga. Messiana sagðist hafa haft hliðsjón af þjóðbúningum, er hún teiknaöi leikbúningana og hafði valið lit- ina þannig, að konurnar væru i samstæðum litum, rauðleitum, en karlarnir i samstæðum grænum litum. Þessir litir væru hins vegar ósamstæðir, þegar þeir koma saman. Hins vegar væri búningur aðstoðardómarans, sem er eina yfirstéttarhlutverkið, nær alhvitt og teldist þvi eiginlega hluti af leikmynd. Nemendur hafa saumað bún- ingana sjálfir (kvörtuöu mikið yf- ir þeirri timafreku vinnu að festa smellur á króka) og smiðaö allt sviðið undir handleiðslu ölafs Thoroddsen, sem einnig er ljósa- maöur og ailtmúligmann. Nemendurnir kváðust hafa unnið leikritið i grófum dráttum þannig að i byrjun þöndu þeir- verk og leikstil til hins Itrasta, en drógu siðan úr spennunni þegar leið á æfingar og finpússun hófst. Blaðamaður skemmti sér hið besta á æfingu þessari, og ráö- leggur öllum aö drifa sig i Lindar- bæ á morgun og gera sér daga- mun, hvort sem það er til að gleöjast eða hryggjast yfir kosn- ingaúrslitunum. önnur sýning verður á miðvikudag 28. júni. — IM. Ljósmyndir og texti: I.M. Pilsþyturinn veröur oft aö miklum sviösstormi, þegar kvenmennirnir f Chiossa gera upp sakirnar

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.