Þjóðviljinn - 18.03.1979, Side 2

Þjóðviljinn - 18.03.1979, Side 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 18. mars 1979 Týndur snillingur eða bara einhver monacl Tilburðir Coyne eru margir hverjir nokkuð skringilegir. Sviðs- framkoman þykir æði fjölskrúðug og ekki v alltaf fáguð eins og þessi mynd ber með N k V KEVINOOYNE Það er ekkert vafamál lengur að i kjölfar punks- ins og nýbylgjunnar á sér stað mikil tónlistarbreyt- ing í Bretlandi og Banda- rikjunum. Hvort sem við viljum horfast í augu við þá staðreynd eða ekki, fer ekki milli mála að poppið stendur á tíma- mótum um þessar mund- ir. 1 Bretlandi eru sérlega miklar róstur. Pólitiskt ástand i landinu er vægast sagt iskyggi- legt og dregur poppið óneitan- lega taum af þvi. Pólitisk vitund Breskur almenningur getur enganveginn litið framhjá ástandinu i landinu. Bretland er ört hnignandi veldi og kreppu- ástand yfirvofandi. En gróskan i tónlistarlifinu ber þess vott að tiöinda er að vænta á næsta leyti. Mikillar ólgu gætir i textagerð og tónlist- in sem mestrar hylli nýtur er hráslegin, rafblúsuð eða bundin krafti árásargirninnar. Að visu er þetta engin ný bóla. Slikt timabil stóð yfir á upp- gangsskeiði Bitlanna, Stones og annarra bit-sveita. A timum sem þessum spretta fram margir nýir kraftar sem hafa ýmislegt fram að færa. En einn- ig bregður stöku sinnum fyrir fömlum „flippurum” og menn- ingarfyrirbrigðum sem gleymd hafa veriö um skeið Risi í músarlíki Kevin Coyne er einn slikur. Meö punkinu og nýbylgjunni hlaut hann hljómgrunn að nýju meðal breskra og evrópskra pælara eftir nokkurt hlé. Kevin Coyne er algerlega óþekktur hérlendis og þvi timi til kominn að kynna hann ör- litið. Honum hefur verið likt við meistara Tim Buckley sem lést af ofneýslu eiturlyfja 1973. Hon- um er jafnvel hreykt hærra en Dylan af sumum gagnrýnend- um og aödáendum. En hvers vegna er hann þá ekki stór- stjarna? Er Kevin Coyne nokk- uð sérstakur? Eru þetta ekki vara hráar fullyröingar sem kastað er eitthvað úti bláinn? Fyrir þá sem aldrei hafa heyrt i Kevin Coyne eru þetta liklega tómar þvælu fullyrðing- ar. En hafi maður einu sinni heyrt plötu með söng hans og lögum, sannfærist maður. Þannig fór allavega með mig. Kevin Coyne er 35 ára gamall tveggja barna fjölskyldufaðir. Hann hefur lifað af tónlistinni siðustu 10 árin þó ekki af nein- um auðæfum. Hljómplötur Kevin Coyne hafa ekki selst i stórum upplögum. Hann nær ekki til fjöldans, heldur til frem- ur þröngs hóps. Staða hans i Bretlandi og Evrópu er nokkuö álíka stöðu Megasar á Islandbþó er hún heldur lakari i Bretlandi. Bretar hafa litinn gaum gefið þessum furðufugli. Þar til fyrir 2-3 árum var athygli Breta á Kevin Coyne svo takmörkuð að gagnrýnendum breskra tónlist- arblaða þótti ekki ástæða til að hlusta á plötur hans. Fylgi sitt hefur Coyne jafnan sótt til Evrópu. Mijónerar og rokkdel- ar Fyrir nokkru sendi Kevin Coyne frá sér plötuna „Millionaires and Teddy Bears”. A þessari plötu er að finna skemmtilega sterka og sérstæða tónlist. Kevin Coyne er með hása rödd en samt ákaflega kraftmikla. Röddin hljómar miðja vegu milli þess að verið sé að pússa með sandpappir, sturta úr klósetti eða að ryk- suga, eins og einn breskur gagn- rýnandi komst að oröi. Og jafn- framt sagði þessi gagnrýnandi um Coyne: „Hann er ekki það sem húsmæður kysu sér, ekki þaö sem útvarpið kysi að leika, ekki ástmögur tónlistar press- unnar, ekki neitt, ekkert... Hann er mistök, léleg mistök á sviði vinsælda. Hann er mjög frum- legur, sérstæður og einstakur hæfileikamaður”. Þetta segir kannski ekki mikiö en sýnir samt hvað gagnrýnendur eiga erfitt meö skrif sin þegar þeir . fjalla um Coyne. Kevin Coyne fjallar gjarnan um þá sem eru undir i þjóðfé- laginu og talar þá alltaf útfrá eigin reynslu. Blúsinn er mikill áhrifavaldur og gætir þess gjarnan i tónlist og textum hans. FINGRARIM Coyne er mjög hæðinn en samt ætið bjartsýnn i umfjöllun. Hvar er gullið? Coyne kemur oft inná vanda- mál poppara sem sifellt keppast En mannleg samskipti eru of- arlega á baugi I textum Coyne. í laginu „Let Me be With you” fjallar hann um dapran ein- manaleik þeirra sem eiga við einhverskonar bæklun aö striða, likamlega eða andlega. Þörf þeirra fyrir félagsskap og eöli- legum samskiptum. Eða jafnvel bæklun þeirra sem búa I stór- borgum, þvi hraði og stress hef- ur rúið fólk eðlilegum samskipt- um. „I’m half-crippled-savage guilt inside/Taking my best Kevin Coyne á tónleikum I London nýveriö við að ná gullsölu. Hver plata er kapphlaup við miljónasölu, auícna viöingu, þrána að verða vinsælli en Jesús Kristur og fá mynd sina greypta i hugi miljónanna um heim allann. I laginu „Having a party” kemur Coyne að þessu efni: „I dreamed, I was trapped in a hall/full of golden discs/somebody said to me which one is Yours?/and I had to confess I hadn’t got one/hadn’t got að single one at all.” friend for a ride/The pulse rate beating-filthy thoughts/I don’t want anyone to say... I don’t want a bad report, No/Let me be, let me be with you”. í þremur ólikum lögum fjallar Coyne t.d. um þrjár ólikar kon- ur. Um hina feimnu döpru stúlku sem auðvelt er að særa. Um Wendy sem lætur sig dreyma um heimahaga i Ir- landi, stúlku sem er haldin heimþrá i stórborginni. Og um karlhatarann Marigold sem er sjálfstæð og ársárargjörn. „Her high-heeled foot/was pressed upon the chest of a man.../all men are fools she said/ and most of them/would be better/if they were dead/I wish they’d get out of my head/and leave women to rule the world-/Leave it to the girls”. Góð túlkun Það sem mesta athygli vekur þegar hlustað er á Kevin Coyne, er frábært samspil söngs og hljóðfæra. Coyne er með breiða sterka rödd sem hann beitir á blæbrigðarikan hátt. Og hljóð- færanotkun er I lágmarki. Jafn- an eru aðeins tvö hljóðfæri not- uð til undirleiks. Gitar og trommur, Orgel og trommur, bassi og orgel eða bara hljóm- gitar. Ahrif og stemmning lag- anna öðlast sérstæða undir- strikun með þessu móti. ■ Kevin Coyne hefur gefið út sjö plötur sem allar eru mjög merkilegar, hver á sinn hátt. Hann er i rauninni punkari þó hann sé fágaðri og þroskaðri en flestir ungpunkarar i dag. „Fyrir mér” segir Kevin Coyne „er Johnny Rotten, eða Johnny Lydon, mesta undrið frá þvi Little Richard kom fram. Ég er ánægður að hann hefur haft slik áhrif á fólk, þvi þau vekja sifellt upp spurningar”. Og Paul Morley hjá New Musical Express segir um Coyne: „Coyne skilur þessa litlu hluti sem gera lifið einhvers virði. Hann skemmtir og kætir. Hann vill i rauninni vera vinur þinn og gefa þér nokkur heil- ræði. Og veistu að á sviði vin- sælda, á sviði gagnrýni, á sviði sköpunar, frá hvaða sjónar- horni sem þú vilt skoða það, þá er þetta aðeins upphafið”. -jg Kínverjar tæknivæða Flestar þjóðir heims eru nú í óða önn að taka í notkun tjölrása upptöku- tæki og koma sér upp fullkomnum hljóðrás- verum. A vesturlöndum hef ur upptökutækni og hljómtækni öll stóraukist að gæðum undanfarna tvo áratugi. Nýustu fregnir herma nú að Kinverjar hafi fest kaup á tækjum i tvö fullkomin hljóðrás- ver sem staðsett veröa I Peking. Eru þeir þá komnir i tölu þeirra sem geta hljóöritað á 32 rásir. Er það bandariska fyrirtækið Electro Sound sem seldi Kin- verjum þessi tæki I kjölfar mik- illar tæknisýningar þeirra i Kina 1977. ElectroSound hefur á undanförnum árum lagt allt kapp á að selja tæki sin til austurlanda og þriðja heimsins. 1970 komu þeir upp tveimur hljóðrásverum I Moskvu fyrir Ráöstjórnarrikin og eins hafa þeir haft klærnar I Póllandi, Rúmeniu, Júglóslaviu, Nigeriu, Kenya, Indlandi, Indónesiu og Nýju Gineu svo eitthvað sé nefnt. Kinverjar eru einnig aö byrja aö skipuleggja einskonar STEF þar I landi. Þ.e.a.s þeir vinna að þvi að koma upp félagi til að gæta hagsmuna tónskálda ög eigenda flutningsréttar I Kina. Er þetta gert aö undirlagi bandarisks Kinverja til að tryggja réttindi erlendra lista- manna sem væntanlega fara að streyma til Kina innan tiðar. Ætli það hafi verið kókið sem opnaöi þessa flóðgátt? —jg Umsjón: Jónatan Garðarsson

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.