Þjóðviljinn - 18.03.1979, Síða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 18. mars 1979
Týndur
snillingur
eða bara
einhver
monacl
Tilburðir Coyne eru
margir hverjir nokkuð
skringilegir. Sviðs-
framkoman þykir æði
fjölskrúðug og ekki
v alltaf fáguð eins og
þessi mynd ber með
N
k
V
KEVINOOYNE
Það er ekkert vafamál
lengur að i kjölfar punks-
ins og nýbylgjunnar á sér
stað mikil tónlistarbreyt-
ing í Bretlandi og Banda-
rikjunum. Hvort sem við
viljum horfast í augu við
þá staðreynd eða ekki,
fer ekki milli mála að
poppið stendur á tíma-
mótum um þessar mund-
ir.
1 Bretlandi eru sérlega miklar
róstur. Pólitiskt ástand i
landinu er vægast sagt iskyggi-
legt og dregur poppið óneitan-
lega taum af þvi.
Pólitisk vitund
Breskur almenningur getur
enganveginn litið framhjá
ástandinu i landinu. Bretland er
ört hnignandi veldi og kreppu-
ástand yfirvofandi.
En gróskan i tónlistarlifinu
ber þess vott að tiöinda er að
vænta á næsta leyti. Mikillar
ólgu gætir i textagerð og tónlist-
in sem mestrar hylli nýtur er
hráslegin, rafblúsuð eða bundin
krafti árásargirninnar. Að visu
er þetta engin ný bóla.
Slikt timabil stóð yfir á upp-
gangsskeiði Bitlanna, Stones og
annarra bit-sveita. A timum
sem þessum spretta fram
margir nýir kraftar sem hafa
ýmislegt fram að færa. En einn-
ig bregður stöku sinnum fyrir
fömlum „flippurum” og menn-
ingarfyrirbrigðum sem gleymd
hafa veriö um skeið
Risi í músarlíki
Kevin Coyne er einn slikur.
Meö punkinu og nýbylgjunni
hlaut hann hljómgrunn að nýju
meðal breskra og evrópskra
pælara eftir nokkurt hlé.
Kevin Coyne er algerlega
óþekktur hérlendis og þvi timi
til kominn að kynna hann ör-
litið. Honum hefur verið likt við
meistara Tim Buckley sem lést
af ofneýslu eiturlyfja 1973. Hon-
um er jafnvel hreykt hærra en
Dylan af sumum gagnrýnend-
um og aödáendum. En hvers
vegna er hann þá ekki stór-
stjarna? Er Kevin Coyne nokk-
uð sérstakur? Eru þetta ekki
vara hráar fullyröingar sem
kastað er eitthvað úti bláinn?
Fyrir þá sem aldrei hafa
heyrt i Kevin Coyne eru þetta
liklega tómar þvælu fullyrðing-
ar. En hafi maður einu sinni
heyrt plötu með söng hans og
lögum, sannfærist maður.
Þannig fór allavega með mig.
Kevin Coyne er 35 ára gamall
tveggja barna fjölskyldufaðir.
Hann hefur lifað af tónlistinni
siðustu 10 árin þó ekki af nein-
um auðæfum. Hljómplötur
Kevin Coyne hafa ekki selst i
stórum upplögum. Hann nær
ekki til fjöldans, heldur til frem-
ur þröngs hóps. Staða hans i
Bretlandi og Evrópu er nokkuö
álíka stöðu Megasar á Islandbþó
er hún heldur lakari i Bretlandi.
Bretar hafa litinn gaum gefið
þessum furðufugli. Þar til fyrir
2-3 árum var athygli Breta á
Kevin Coyne svo takmörkuð að
gagnrýnendum breskra tónlist-
arblaða þótti ekki ástæða til að
hlusta á plötur hans. Fylgi sitt
hefur Coyne jafnan sótt til
Evrópu.
Mijónerar og rokkdel-
ar
Fyrir nokkru sendi Kevin
Coyne frá sér plötuna
„Millionaires and Teddy
Bears”. A þessari plötu er að
finna skemmtilega sterka og
sérstæða tónlist. Kevin Coyne er
með hása rödd en samt ákaflega
kraftmikla. Röddin hljómar
miðja vegu milli þess að verið
sé að pússa með sandpappir,
sturta úr klósetti eða að ryk-
suga, eins og einn breskur gagn-
rýnandi komst að oröi. Og jafn-
framt sagði þessi gagnrýnandi
um Coyne: „Hann er ekki það
sem húsmæður kysu sér, ekki
þaö sem útvarpið kysi að leika,
ekki ástmögur tónlistar press-
unnar, ekki neitt, ekkert... Hann
er mistök, léleg mistök á sviði
vinsælda. Hann er mjög frum-
legur, sérstæður og einstakur
hæfileikamaður”. Þetta segir
kannski ekki mikiö en sýnir
samt hvað gagnrýnendur eiga
erfitt meö skrif sin þegar þeir
. fjalla um Coyne.
Kevin Coyne fjallar gjarnan
um þá sem eru undir i þjóðfé-
laginu og talar þá alltaf útfrá
eigin reynslu.
Blúsinn er mikill áhrifavaldur
og gætir þess gjarnan i tónlist og
textum hans.
FINGRARIM
Coyne er mjög hæðinn en
samt ætið bjartsýnn i umfjöllun.
Hvar er gullið?
Coyne kemur oft inná vanda-
mál poppara sem sifellt keppast
En mannleg samskipti eru of-
arlega á baugi I textum Coyne. í
laginu „Let Me be With you”
fjallar hann um dapran ein-
manaleik þeirra sem eiga við
einhverskonar bæklun aö striða,
likamlega eða andlega. Þörf
þeirra fyrir félagsskap og eöli-
legum samskiptum. Eða jafnvel
bæklun þeirra sem búa I stór-
borgum, þvi hraði og stress hef-
ur rúið fólk eðlilegum samskipt-
um. „I’m half-crippled-savage
guilt inside/Taking my best
Kevin Coyne á tónleikum I London nýveriö
við að ná gullsölu. Hver plata er
kapphlaup við miljónasölu,
auícna viöingu, þrána að verða
vinsælli en Jesús Kristur og fá
mynd sina greypta i hugi
miljónanna um heim allann.
I laginu „Having a party”
kemur Coyne að þessu efni: „I
dreamed, I was trapped in a
hall/full of golden
discs/somebody said to me
which one is Yours?/and I had
to confess I hadn’t got
one/hadn’t got að single one at
all.”
friend for a ride/The pulse rate
beating-filthy thoughts/I don’t
want anyone to say... I don’t
want a bad report, No/Let me
be, let me be with you”.
í þremur ólikum lögum fjallar
Coyne t.d. um þrjár ólikar kon-
ur. Um hina feimnu döpru
stúlku sem auðvelt er að særa.
Um Wendy sem lætur sig
dreyma um heimahaga i Ir-
landi, stúlku sem er haldin
heimþrá i stórborginni. Og um
karlhatarann Marigold sem er
sjálfstæð og ársárargjörn. „Her
high-heeled foot/was pressed
upon the chest of a man.../all
men are fools she said/ and
most of them/would be better/if
they were dead/I wish they’d
get out of my head/and leave
women to rule the world-/Leave
it to the girls”.
Góð túlkun
Það sem mesta athygli vekur
þegar hlustað er á Kevin Coyne,
er frábært samspil söngs og
hljóðfæra. Coyne er með breiða
sterka rödd sem hann beitir á
blæbrigðarikan hátt. Og hljóð-
færanotkun er I lágmarki. Jafn-
an eru aðeins tvö hljóðfæri not-
uð til undirleiks. Gitar og
trommur, Orgel og trommur,
bassi og orgel eða bara hljóm-
gitar. Ahrif og stemmning lag-
anna öðlast sérstæða undir-
strikun með þessu móti. ■
Kevin Coyne hefur gefið út sjö
plötur sem allar eru mjög
merkilegar, hver á sinn hátt.
Hann er i rauninni punkari þó
hann sé fágaðri og þroskaðri en
flestir ungpunkarar i dag.
„Fyrir mér” segir Kevin
Coyne „er Johnny Rotten, eða
Johnny Lydon, mesta undrið frá
þvi Little Richard kom fram.
Ég er ánægður að hann hefur
haft slik áhrif á fólk, þvi þau
vekja sifellt upp spurningar”.
Og Paul Morley hjá New
Musical Express segir um
Coyne: „Coyne skilur þessa litlu
hluti sem gera lifið einhvers
virði. Hann skemmtir og kætir.
Hann vill i rauninni vera vinur
þinn og gefa þér nokkur heil-
ræði. Og veistu að á sviði vin-
sælda, á sviði gagnrýni, á sviði
sköpunar, frá hvaða sjónar-
horni sem þú vilt skoða það, þá
er þetta aðeins upphafið”.
-jg
Kínverjar tæknivæða
Flestar þjóðir heims
eru nú í óða önn að taka í
notkun tjölrása upptöku-
tæki og koma sér upp
fullkomnum hljóðrás-
verum. A vesturlöndum
hef ur upptökutækni og
hljómtækni öll stóraukist
að gæðum undanfarna
tvo áratugi.
Nýustu fregnir herma nú að
Kinverjar hafi fest kaup á
tækjum i tvö fullkomin hljóðrás-
ver sem staðsett veröa I Peking.
Eru þeir þá komnir i tölu þeirra
sem geta hljóöritað á 32 rásir.
Er það bandariska fyrirtækið
Electro Sound sem seldi Kin-
verjum þessi tæki I kjölfar mik-
illar tæknisýningar þeirra i
Kina 1977. ElectroSound hefur á
undanförnum árum lagt allt
kapp á að selja tæki sin til
austurlanda og þriðja heimsins.
1970 komu þeir upp tveimur
hljóðrásverum I Moskvu fyrir
Ráöstjórnarrikin og eins hafa
þeir haft klærnar I Póllandi,
Rúmeniu, Júglóslaviu, Nigeriu,
Kenya, Indlandi, Indónesiu og
Nýju Gineu svo eitthvað sé
nefnt.
Kinverjar eru einnig aö byrja
aö skipuleggja einskonar STEF
þar I landi. Þ.e.a.s þeir vinna að
þvi að koma upp félagi til að
gæta hagsmuna tónskálda ög
eigenda flutningsréttar I Kina.
Er þetta gert aö undirlagi
bandarisks Kinverja til að
tryggja réttindi erlendra lista-
manna sem væntanlega fara að
streyma til Kina innan tiðar.
Ætli það hafi verið kókið sem
opnaöi þessa flóðgátt?
—jg
Umsjón: Jónatan Garðarsson