Þjóðviljinn - 18.03.1979, Side 3

Þjóðviljinn - 18.03.1979, Side 3
Sunnudagur 18. mars 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Vestræn lús í sókn Það er lúsafaraldur viðar en á Akureyri um þessar mundir. Að sögn norska Dagblaðsins er meira um lús i þvi landi en nokkru sinni fyrr á þessari öld. Lúsin er or&in erfiöari viðfangs: Eftir öllum sólarmerkjum að dæma er lúsin að verða ónæm fyrir DDT. Heilsugæslunni norsku berast fréttir um 50—250 tilfelli af lús vikulega og er sú tala sjálfsagt alltof lág vegna þess að margir skammast sfn fyrir kykvendin. Lúsin gerist stundum svo áleitin, að meðul við henni seljast upp í apótekum. I ljósi þessara alvarlegu staðreynda sneri Dagblaðið norska sér að fremsta lúsa- fræðingi Skandinaviu, Heidar Mehlog spurði hann spjörunum úr: ,,Þó okkur skorti visindalegar sannanir er það að öllum líkind- um rétt aðmeira er um lús meðal fólks nú en verið hefur lengi. Um 450 lúsategundir eru til, af þeim er vitað um tuttugu i Noregi en aðeins tvær sækja á mannskepn- Aldurs- hámarkinu breytt hjá borginni? Sérstakri fimm manna nefnd hefur verið falið að fjalla um endurskoðun á reglum um aldurshámark starfsmanna, en nú eru I gildi þær rcglur að menn skuli hætta störfum hjá borginni við 70 ára aldur, þó í mörgum stofnunum vinni eldri menn við léttari verk og önnur en þeir áður störfuðu viö. 1 nefndinni, sem skipuð var á fundi borgarráðs 13. mars s.l. eru: Hans Jörgensen, Gunnlaug- ur Sigmundsson, Asdis Skúla- dóttir, Birgir t. Gunnarsson og Davið Oddsson. Asdisi Skúladótt ur var falið að kalla nefndina saman. —AI una. Það er flatlúsin og hin „venjulega lús” (pediculus humanus). Sú sfðarnefnda grein- ist aftur i' höfuðlús og lús sem leit- ar á likamann.” Hvernig lita lýs út? Flatlúsin er öll meiri á breiddina en lengdina og breiðust fremst. Hjá höfuðlús- inni er þessu öfugt farið, hún er lengri og auk þess mest um mitt- ið. Ekki er höfuðlúsin ýkja stór samt, svona 2.5—3.5 mm en flat- lúsin er nokkru minni. Lúsin verpir eggjum — nit. Um leið og lirfan skriður útúr egginu skiptir hún um ham og eftir þrjú slik hamskipti er hún kynþroska. Inn- an nokkurra daga er hún farin að fjölga sér. Ak jósanlegasti hiti fýrir lirfuna er 32—35 gr C en fúllorðin lúsin unir sér við heldur lægri hita og yfirgefur til dæmis fólk með hita- sótt. Lúsin leitarfrá ljósitil myrkurs og getur skriöiö uppundir 23 cm á minútu ef hún vill það við hafa. Fólk getur smitast af höfuðlús þó það sé með afbrigðum hreinlátt. Menn geta smitast af lús i fata- hengjum.með stólbökum og rúm- um, við snertingu og fleiri tæki- færi. Höfuðlúsin þri'fst i hársverðin- um og festir nitina við hárin. Aðaíaðsetur flatlúsar er i hárinu við kynfærin en hún fær þrifist alls staðar i hári likamans, td. skeggi, augnabrúnum og augn- hárum. Það má losna við höfuðlúsina með lúsakambi sé kembt nógu lengi. Einnig fæst spritt við henni i apótekum. Lúsin hefur litla þýðingu nú orðið sem smitberi — hún veldur fyrst og fremst kláða. Hann stafaraf efni sem lýs spýta inn i húðina um leið og þær sjúga blóð. Klóri fólk sér mikið geta myndast sár á húðinni og er það þvi betur ógert. Rétt er að til- kynna heimilislækni fái menn lús. A þessum áratug hefur viðgangur lúsarinnar verið mikill á Vesturlöndum, ekki aðeins i Noregi. Lúsin hefur hins vegar lifað lengi á mannkyni einnig meðal Islendinga. Eru forvitnileg þau ummæli sem Norðurland hef- ur eftir Þjóðháttum Jónasar frá Hrafnagili: ,,Flær og lýs voru algengir gestir á flestum bæjum og virðist svo sem sumir væru á þvi, að þær væru heldur til hollustu og heilsubótar, drægju illa vessa úr likamanum.” Laus staða Staða skrifstofustjóra borgarstjórnar er laus til umsóknj. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavikurborgar og Starfsmannafélags Reykjavikurborgar. Umsóknir skulu sendar undirrituðum eigi siðar en 28. mars 1979. Reykjavik, 16. mars 1979. Borgarstjórinn i Reykjavik. Tilboð óskast frá innlendum aðilum I smiði 100 götuljósa- stólpa. Ctboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3 Reykjavik. Tilboðin verða opnuö á sama stað, miðvikudaginn 11. aprfl nk. kl. 11 fh. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR ■ (v’ Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 Lúsaleit viö rómantiskskilyrði. Lífeyrissjóðir kaupa hús 1. febrúar s.l. var undirritaöur kaupsamningur um hluta fast- eignarinnar Suðurlandsbraut 30 i Reykjavik. Lifeyrissjóður Dags- brúnar og Framsóknar, Lifeyris- sjóður byggingamanna, Lifeyris- sjóður málm- og skipasmiða, Lif- eyrissjóður Landssambands vörubifeiðastjóra, Landssam- band vörubifreiðastjóra og Sam- band almennra lifeyrissjóða keyptu aðra, þriðju og fjórðu hæð húseignarinnar að Suðurlands- braut 30, samtals um 1800 fer- metra ásamt um 300 fermetra i kjallara hússins. Húsnæðið selst tilbúið undir tréverk samkvæmt nánari ákvæðum i kaupsamningi. Eignin afhendistkaupendum hinn 1. ágúst n.k. Aðildarfélög Lifeyr- issjóðs byggingamanna og Lif- eyrissjóðs málm- og skipasmiöa geta gengið inn i eignaraöild þessara kaupa innan þess hlut- falls sem viðkomandi lifeyris- sjóðir eiga i hinni seldu eign. Seljandi þessara hluta fast- eignarinnar var Byggingafélagið OS h.f. i Reykjavik. nýja línan f ra Alafossi

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.