Þjóðviljinn - 18.03.1979, Síða 3
Sunnudagur 18. mars 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Vestræn
lús í sókn
Það er lúsafaraldur
viðar en á Akureyri um
þessar mundir. Að sögn
norska Dagblaðsins er
meira um lús i þvi landi
en nokkru sinni fyrr á
þessari öld.
Lúsin er or&in erfiöari
viðfangs: Eftir öllum
sólarmerkjum að dæma er lúsin
að verða ónæm fyrir DDT.
Heilsugæslunni norsku berast
fréttir um 50—250 tilfelli af lús
vikulega og er sú tala sjálfsagt
alltof lág vegna þess að margir
skammast sfn fyrir kykvendin.
Lúsin gerist stundum svo
áleitin, að meðul við henni seljast
upp í apótekum.
I ljósi þessara alvarlegu
staðreynda sneri Dagblaðið
norska sér að fremsta lúsa-
fræðingi Skandinaviu, Heidar
Mehlog spurði hann spjörunum
úr:
,,Þó okkur skorti visindalegar
sannanir er það að öllum líkind-
um rétt aðmeira er um lús meðal
fólks nú en verið hefur lengi. Um
450 lúsategundir eru til, af þeim
er vitað um tuttugu i Noregi en
aðeins tvær sækja á mannskepn-
Aldurs-
hámarkinu
breytt hjá
borginni?
Sérstakri fimm manna nefnd
hefur verið falið að fjalla um
endurskoðun á reglum um
aldurshámark starfsmanna, en
nú eru I gildi þær rcglur að menn
skuli hætta störfum hjá borginni
við 70 ára aldur, þó í mörgum
stofnunum vinni eldri menn við
léttari verk og önnur en þeir áður
störfuðu viö.
1 nefndinni, sem skipuð var á
fundi borgarráðs 13. mars s.l.
eru: Hans Jörgensen, Gunnlaug-
ur Sigmundsson, Asdis Skúla-
dóttir, Birgir t. Gunnarsson og
Davið Oddsson. Asdisi Skúladótt
ur var falið að kalla nefndina
saman.
—AI
una. Það er flatlúsin og hin
„venjulega lús” (pediculus
humanus). Sú sfðarnefnda grein-
ist aftur i' höfuðlús og lús sem leit-
ar á likamann.”
Hvernig lita lýs út? Flatlúsin er
öll meiri á breiddina en lengdina
og breiðust fremst. Hjá höfuðlús-
inni er þessu öfugt farið, hún er
lengri og auk þess mest um mitt-
ið. Ekki er höfuðlúsin ýkja stór
samt, svona 2.5—3.5 mm en flat-
lúsin er nokkru minni. Lúsin
verpir eggjum — nit. Um leið og
lirfan skriður útúr egginu skiptir
hún um ham og eftir þrjú slik
hamskipti er hún kynþroska. Inn-
an nokkurra daga er hún farin að
fjölga sér.
Ak jósanlegasti hiti fýrir lirfuna
er 32—35 gr C en fúllorðin lúsin
unir sér við heldur lægri hita og
yfirgefur til dæmis fólk með hita-
sótt.
Lúsin leitarfrá ljósitil myrkurs
og getur skriöiö uppundir 23 cm á
minútu ef hún vill það við hafa.
Fólk getur smitast af höfuðlús þó
það sé með afbrigðum hreinlátt.
Menn geta smitast af lús i fata-
hengjum.með stólbökum og rúm-
um, við snertingu og fleiri tæki-
færi.
Höfuðlúsin þri'fst i hársverðin-
um og festir nitina við hárin.
Aðaíaðsetur flatlúsar er i hárinu
við kynfærin en hún fær þrifist
alls staðar i hári likamans, td.
skeggi, augnabrúnum og augn-
hárum.
Það má losna við höfuðlúsina
með lúsakambi sé kembt nógu
lengi. Einnig fæst spritt við henni
i apótekum. Lúsin hefur litla
þýðingu nú orðið sem smitberi —
hún veldur fyrst og fremst kláða.
Hann stafaraf efni sem lýs spýta
inn i húðina um leið og þær sjúga
blóð. Klóri fólk sér mikið geta
myndast sár á húðinni og er það
þvi betur ógert. Rétt er að til-
kynna heimilislækni fái menn lús.
A þessum áratug hefur
viðgangur lúsarinnar verið mikill
á Vesturlöndum, ekki aðeins i
Noregi. Lúsin hefur hins vegar
lifað lengi á mannkyni einnig
meðal Islendinga. Eru forvitnileg
þau ummæli sem Norðurland hef-
ur eftir Þjóðháttum Jónasar frá
Hrafnagili: ,,Flær og lýs voru
algengir gestir á flestum bæjum
og virðist svo sem sumir væru á
þvi, að þær væru heldur til
hollustu og heilsubótar, drægju
illa vessa úr likamanum.”
Laus staða
Staða skrifstofustjóra borgarstjórnar er
laus til umsóknj.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
Reykjavikurborgar og Starfsmannafélags
Reykjavikurborgar.
Umsóknir skulu sendar undirrituðum eigi
siðar en 28. mars 1979.
Reykjavik, 16. mars 1979.
Borgarstjórinn i Reykjavik.
Tilboð óskast frá innlendum aðilum I smiði 100 götuljósa-
stólpa.
Ctboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3
Reykjavik.
Tilboðin verða opnuö á sama stað, miðvikudaginn 11. aprfl
nk. kl. 11 fh.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
■ (v’ Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
Lúsaleit viö rómantiskskilyrði.
Lífeyrissjóðir
kaupa hús
1. febrúar s.l. var undirritaöur
kaupsamningur um hluta fast-
eignarinnar Suðurlandsbraut 30 i
Reykjavik. Lifeyrissjóður Dags-
brúnar og Framsóknar, Lifeyris-
sjóður byggingamanna, Lifeyris-
sjóður málm- og skipasmiða, Lif-
eyrissjóður Landssambands
vörubifeiðastjóra, Landssam-
band vörubifreiðastjóra og Sam-
band almennra lifeyrissjóða
keyptu aðra, þriðju og fjórðu hæð
húseignarinnar að Suðurlands-
braut 30, samtals um 1800 fer-
metra ásamt um 300 fermetra i
kjallara hússins. Húsnæðið selst
tilbúið undir tréverk samkvæmt
nánari ákvæðum i kaupsamningi.
Eignin afhendistkaupendum hinn
1. ágúst n.k. Aðildarfélög Lifeyr-
issjóðs byggingamanna og Lif-
eyrissjóðs málm- og skipasmiöa
geta gengið inn i eignaraöild
þessara kaupa innan þess hlut-
falls sem viðkomandi lifeyris-
sjóðir eiga i hinni seldu eign.
Seljandi þessara hluta fast-
eignarinnar var Byggingafélagið
OS h.f. i Reykjavik.
nýja línan f ra Alafossi