Þjóðviljinn - 06.04.1979, Síða 5
Föstudagur 6. aprn 1979. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Stóra hiisiö fyrir miöri myndinni er Garöastræti 2, og er það mest allt f útleigu. Ljósm. Leifur
Heilbrigöiseftirlitiö tekur í taumana
Gluggalaus jarðhýsi en
ekki mannabústadir
Fyrir nokkrum vikum þurfti
heilbrigöiseftirlitið að rýma með
lögregluvaldi tvær geymslur I
kjallara hússins við Garðastræti
2, þar sem óbærilegur sóðaskapur
og megn óþrifalykt var frá þeim.
1 geymslunum bjó einhleypur
maður sem safnaði um sig rusii
og skit og tók marga klukkutima
að flytja ruslið á haugana og var
unnið við það langt fram á nótt.
Húseigandinn Jón Fannberg fór
fram á þessar aðgerðir.
Geymslur þessar eru ekki
mannabústaðir að mati heilbrigð-
iseftirlitsins, og hafa þær aldrei
verið samþykktar sem slíkar,
enda er kjallarinn allur mjög nið-
urgrafinn og kompurnar allar
gluggalausar að kalla.
Vart var þó búið að rýma
kompurnar tvær fyrr en nýr leigj-
andi var kominn i þær og hefur
Leigö útfyrir
50 þúsund
á mánuöi
Þjóðviljinn komist að þvi að leig-
an er litlar 50 þúsund krónur á
mánuði. Mun heilbrigðiseftirlitið
rýma þær að nýju næstu daga,
þar sem heilbrigðismálaráð hefur
lagt bann við að kjallarinn verði
notaður til ibúðar. Krafðist ráðið
þess á fundi sinum 14. mars s.l.
að geymslurnar tvær yrðu rýmd-
ar tafarlaust að viðlögðum dag-
sektum og að 2 aðrar geymslur
sem I útleigu eru i kjallaranum
verði rýmdar fyrir 15. mai n.k.
einnig að viðlögðum dagsektum.
Að sögn Mattiasar Garðars-
sonar, heilbrigðisfulltrúa kemur
það fyrir að heilbrigðiseftirlitið
þurfi að leita aðstoðar lögreglu i
slikum tilfellum og rýma húsnæði
i óþökk leigjenda eða húseigenda.
Mikill kostnaður væri af slikum
aðgerðum og hefði rýmingin i
Garðastræti 2 kosta nær 700 þús-
und krónur. Borgin greiðir slikan
kostnað en á skv. reglugerðum
endurkröfurétt á húseiganda.
Lögmaður Jóns Fannbergs, sem
er eigandi hússins við Garða-
stræti 2 hefur mótmælt reikningn-
um og mun borgarlögmaður ann-
ast innheimtuna. Mattias sagði að
heilbrigðiseftiriitið myndi sjá til
þess að banni við ibúð i þessum
jarðhýsum yrði framfylgt.
— AI
Liðsmannafundur
Baráttueiningar og
Samfylkingar 1. maí
á Hótel Esju annarri hæð i kvöld kl. 20.30.
Fundarefni:
Af hverju samstarf? Ávörp.
Starfið fyrir 1. mai
Skemmtiatriði
Fjölmennið.
Stjórnin.
Barnavagn
óskast til kaups.
Upplýsingar í síma 30962
Arður til hluthafa
Verkakvennafélagið Framsókn
Allsherjaratkvæða-
greiðsla
Akveðið hefur verið að viðhafa allsherjar-
atkvæðagreiðslu við stjórnarkjör i félag-
inu fyrir árið 1979 og er þvi hér með aug-
lýst eftir tillögum um 5 menn i aðalstjórn,
2 menn i varastjórn, 2 endurskoðendur og
1 til vara. 3 menn i sjúkrasjóðsstjórn, 2
varastjórn, 1 endurskoðanda og 1 til vara.
12 menn i trúnaðarmannaráð og 6 til vara.
Frestur til að skila listum er til kl. 12 á há-
degi mánudaginn 9, april 1979. Hverjum
lista þurfa að fylgja meðmæli 100 full-
gildra félagsmanna. Listum ber að skila á
skrifstofu félagsins i Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu.
Stjórnin
Samkvæmt ákvörðun aðalfundar Sam-.
vinnubanka tslands h.f. þann 24. mars s.l.,
greiðir bankinn 10% arð p.a. af innborg-
uðu hlutafé fyrir árið 1978.
Greiðsla arðs af nýjum hlutabréfum fer
fram þegar þau eru að fullu greidd og
hafa verið gefin út.
Arðurinn er greiddur i aðalbankanum og
útibúum hans gegn framvisun arðmiða
ársins 1978.
Athygli skal vakin á þvi, að réttur til arðs
fellur niður, sé hans ekki vitjað innan
þriggja ára frá gjalddaga.
Reykjavik, 26. mars 1979.
Samvinnubanki íslands h.f.
Langholtskirkjukór og félagar úr Sinfónluhljómsveitinni á æfingu á mánudagskvöld. Fremst sést ólöf
K. Harðardóttir, ein af einsöngvurunum með kórnum. Ljósm. Leifur.
Langholtskirkjukór rœöst í stórvirki
Flytur Messu í c-moll
Um næstu helgi heldur kór
Langholtskirkju árlega vortón-
leika sina i Háteigskirkju og
verða það aðrir tónleikar kórsins
á þessu starfsári. Að þessu sinni
verður flutt messa I c-moll eftir
Wolfgang Amadeus Mozart.
Messan var frumflutt árið 1783
en hana tileinkaði Mozart eigin-
konu sinni. Hún mun vera hin
eina sem Mozart samdi ekki eftir
pöntun yfirboðara sinna. Hún
eftir Mozart
skiptist i fimm kafla, Kyrie,
Gloria, Credo, Sanctus og Bene-
dictus.
Messuna hefur kórinn æft frá
þvi slðla i janúar og taka 50 kór-
félagar þátt i flutningnum. Ein-
söngvarar með kórnum verða
ólöf K. Harðardóttir, Elisabet
Erlingsdóttir, Garðar Cortes og
Halldór Vilhelmsson. Tuttugu
manna hljómsveit skipuð hljóð-
færaleikurum úr Sinfóniuhljom-
sveit tslands leikur undir.
Fyrri tónleikarnir verða á
föstudagskvöldið klukkan 20:30
og hinir siðari á laugardaginn
klukkan 18:00, báöir i
Háteigskirkju sem fyrr segir.
Stjórnandi kórs Langholtskirkju
er Jón Stefánsson.