Þjóðviljinn - 15.07.1979, Side 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 15. júll 1979.
Myndartexti óskast
Þessi mynd gefur tilefni til margra góðra texta
og við biðjum ykkur að senda þá í snatri og
merkja „Myndartexti óskast", Sunnudagsbiað
Þjóðviljans, Síðumúla 6, 105 Reykjavík.
Besti textinn með þessari mynd hljóðar svo:
„Góði Guð, viltu láta allt ganga vel hjá Brigitte
Bardot." Það er Dóra ísberg á Tómasarhaga 11
sem sendi þennan. Annar frá P.S.: „Bara að þeir
friði nú.ekki andsk. háhyrninginn þarna í Lond-
on, þá er úti um mig."
Gunnar á Laugabóli
Eitt af því sem gerir
borgir eftirsóknarverðar
til að búa í er líf og f jöl-
breytni. Þess vegna eru
þröngar borgir sem skap-
ast á löngum tíma yfir-
leitt skemmtilegri en hin-
ar sem eru nýjar og
skipulagðar út í æsar.
í góða veðrinu á þriðjudag-
inn brá ég mér inn i Laugardal,
ekki til að fara i sund eða æfa
hlaup og ekki heldur til að njóta
skrúðgarösins þar. Ég fór til að
hitta Gunnar á Laugabóli að
máli. Hann er annar tveggja
bænda sem enn búa inn i miðri
Reykjavik og það m.a.s. með
gamla laginu.
Gunnar var aö setja sláttuvél
undir traktorinn sinn á hlaðinu
og börn úr nágrenninu fylgdust
spennt með. Hundurinn Trygg-
ur var að snuðra i kring en sól-
eyjar og ffflar kinkuðu kolli I
varpanum.
Sjálfur var Gunnar skitugur
upp fyrir haus eins og sæmir
sveitamanni um hábjargræðis-
timann og gaf ser vart tima til
að lita upp fyrr en sláttuvélin
var smollin i það far sem hún
átti að smella i. Þá tók hann of-
an húfutetrið og strauk svitann
af enninu.
Erindiö var að skoða með
honum skemmdir sem garð-
yrkjugutlarar höfðu valdið á
landi hans um daginn. Gunnar
fær nefnilega aldrei að vera i
friði íyrir einhverjum kerfis-
mönnum sem vilja hafa allt
slétt og fellt. Beinar linur,
áferðarfallegar grasflatir,
runnar og malbik.
I landi Gunnars bónda á
Laugabóli eru grónir skurðir,
þvers og kruss, mýrar með fjöl-
breytilegu lifi, beitilönd og tún
og það er stórkostlegt að hafa
gamalgróið sveitabýli mitt á
meðal okkar i stórborginni. Það
gerir hana svo miklu skemmti-
legri.
Þess vegna er saga Gunnars
ótrúleg. Arum og jafnvel ára-
tugum saman hafa borgaryfir-
völd verið aö reyna að koma
honum burtu. Þau hafa riölast á
girðingum hans.plægt upp göm-
ul og gróin tún, byggt snobbvill-
ur á landi hans og gert honum
allt til miska. En hann hefur
þráast við — seigla hins islenska
bónda er runnin honum i merg
og bein. Og kannski er sigur
hans i sjónmáli þó að rótgrónir
smákallar láti sér ekki segjast.
Við gengum rólega yfir tré-
planka á skurðum og kýrnar
hans horfðu stóreygar á hús-
bónda sinn og héldu að hann
væri að koma að sækja þær. Bú-
kolla rak hausinn kumpánlega i
fang hans og mamma hennar
hún Húfa hætti aö bita um
stund. Tryggur og kisa hlupu i
kringum meistara sinn og
herra, hundurinn vandur að
viröingu sinni, skimandi i allar
áttir en hún með lævisu augna-
ráði i kafgrasinu.
Allt andaði af friði og búsæld.
Hvflik unun fyrir börnin úr
dauðhreinsuöum villunum fyrir
ofan. Þarna fá þau friðland frá
stressuðum foreldrum, sjón-
varpi og reglustrikulifi. Þau
geta velst um i þúfunum, hnoö-
aö brauð úr kúamykju, farið i
leiki viö hunda og ketti, dottiö
ofan i meinlausa skuröi og ef
þau eru verulega heppin séö
lömbin fæðast i heiminn og jafn-
vel blessaða kálfana.
Þekkir nokkur betra lif fyrir
litil börn?
Guöjón
menntun er allt onnur og merk-
arLKvenfólk sem leikur i kvik-
myndum þarf vist lika á ýmsu
öðru en kunnáttu og menntun að
halda.
Forsetaefnið
SH9BBB
íslensk
kvikmyndagerð
á uppleið
Þá erbúið að ráða söngkonu i
leikhlutverk i kvikmynd og seg-
ir sagan að hún sé ráðin vegna
þess að viö samlestur hafi
„kviknað á milli” hennar og
mótleikarans. Faglega athugað
hjá Ieikstjóranum, sem ætti
kannski að setja á stofn hjóna-
bandsmiðlum i staðinn fyrir að
fást við leikstjórn.Þaðer gaman
fyrir þær 40 menntuðu leikkonur
á milli 20-30 ára, sem flestar eru
atvinnulausar, að fylgjast með
þessari þróun og væri kannski
ennþá meira gaman fyrir kvik-
myndagerðarmennina, sem
kvarta gjarnan undan skorti á
atvinnu, ef algeriega óreyndur
og ómenntaður maður yröí
fenginn til að stjórna næstu
kvikmynd. En auðvitaö er það
allt annað mál, þvi að þeirra
Skrif Vilmundar Gylfasonar i
Alþýðublaðið um Hæstarétt
hafa að vonum vakið mikla at-
hygli, þar sem þar er einkum
veist að forseta réttarins Ar-
manni Snævarr, en hann er
nefndur öllum illum nöfnum af
Vilmundi, t.d. kerfiskaíí, kerf-
iskúkur, möppudýr og varö-
hundur kerfisins. Þá veitist Vil-
mundur að honum fyrir það aö
bera ábyrgð á lélegri menntun
lögfræðinga þar sem Armann
var um langt skeið prófessor við
lagadeild.
Nú er hins vegar komin skýr-
ing á þessu framferöi Vilmund-
ar. Eins og allir vita eru for-
setakosningar á næsta ári þar
sem vist er talið að Kristján
muni ekki kæra sig um að gegna
forsetastörfum lengur, enda þá
búinn að vera i 12 ár. Armann
Snævarr hefur verið nefndur
sem hugsanlegur kandidat. En
það eru fleiri nefndir. Sagt er að
Gylfi Þ. pabbi Vimma vilji
hneppa þetta hnoss. Það sem
rennir stoöum undir þetta er að
Gylfi vildi ekki fara i framboð
sem rektor Háskólans i vor sem
ieiö og mun hann einnig hafa af-
þakkað að gerast sendiherra i
Kaupmannahöfn. Hann er þvi
að búa sig undir forsetakosning-
ar og er ófrægingarherferð son-
arsins á hendur forseta Hæsta-
réttar liður i þvi að kúpla Ar-
manni út sem hugsanlegum
keppinaut Gylfa Þ.
Kratar
og kjósendur
Þeir sem lesa Alþýðublaöið
dags daglega, ef þeir eru þá
nokkrir til, hafa ekki komist hjá
þvi að taka eftir hversu léleg öll
vinnsla og prófarkalestur er á
blaðinu. Fyrir stuttu mátti t.d.
lesa eftirfarandi setningu i Al-
þýðublaöinu prentaða stórum
stöfum: ,,Nú hefur utanrikis-
ráðherra Benedikt Gröndal tek-
ið frá ákvörðun að þvi er virðist
upp á sitt einsdæmi að veita
bandarisku barnarliösmönnun-
um fullkomið athafna og feröa-
frelsi um ísland....”
Einum starfsmanni Blaða-
prents þar sem Alþýöublaöiö er
prentaö þótti nóg um þessa vit-
leysu á dögunum og sagði hvass
I bragði við prófarkalesara
blaðsins:
„Ég held að þið kratar ættuö
nú að fara að tala rétt islenskt
mál, þá myndu kannski fleiri
skilja ykkur og færri kjósa ykk-
ur.”
„Fræðimennska”
Benedikts
Benedikt blessunin Gröndal
prýðir nú siður dagblaöanna og
það eru engin gamanmál sem
valda þvi. Það er á margvísleg-
an hátt, sem örlagaþræðir
Gröndal og striðsbandalagsins
fléttast saman. Fyrir árið
1968-69 fékk Gröndal svokallaö-
an „fræöimannsstyrk” banda-
lagsins. Viðfangsefnið var ekki
þrautarlaust fyrir utanri'kisráð-
herrann þjóðholla, tsland frá
hlutleysi tU NATO-aðildar.
Afraksturinn kom út í bókar-
formi innihaldandi það sem efni
stóöu til. Attaniossar Natós
vitna oft til þessa .kvers þegar
mikið liggur við. Nú siöast hafði
hinn góðkunni blekriddari
afturhaldsins, Hannes Hólm-
steinn, tilvitnanir á hraöbergi i
útvarpsþætti, — einum þessara
útvarpsþátta um frelsið, sem
þeim mæta manni er úthlutað.