Þjóðviljinn - 15.07.1979, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 15. júli 1979.
DIODVIUINN
Málgagn sóslalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
C'tgefa ndi: Útgáfufélag ÞjóÖviljans
Framkvæmdastjóri: Eiftur Ðergmann
Kitstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Fréttastjóri: Vilborg Harftardóttir
LJmsjónarmaftur Sunnudagsblafts: Ingólfur Margeirsson.
Rekstrarstjóri: Úlfar Þormóftsson
Auglýsingastjóri: Rúnar Skarphéftinsson
Afgreiftslustjóri: Filip W. Franksson
Blaftamenn: Alfheiftur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Guftjón
Friftriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Gislason, Sigurdór
Sigurdórsson.
Erlendar fréttir: Halldór Guftmundsson. tþróttafréttamaftur:
Ingólfur Hannesson. Þingfréttamaftur: Sigurftur G. Tómasson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson.
útlit og hönnun: Guftjón Sveinbjörnsson, Sævar Guftbjörnsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar.
Safnvörftur: Eyjólfur Arnason
Auglýsingar: Sigriftur Hanna Sigurbjörnsdóttir, Þorgeir ólafsson.
Skrifstofa: Guftrún Guftvarftardóttir, Jón Asgeir Sigurftsson.
Afgreiftsla: Guftmundur Steinsson, Hermann P. Jónasson, Kristln Pét-
ursdóttir.
Símavarsla: ólöf Halldórsdóttir, Sigriftur Kristjánsdóttir.
Bílstjóri: Sigrún Bárftardóttir
Húsmóftir: Jóna Sigurftardóttir
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
útkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guftmundsson.
Ritstjórn, afgreiftsla og auglýsingar: Slftumúla 6, Reykjavlk. sfmi 8 13M.
Prentun: Blaftaprent hf.
Olíuslagur
• Sá vandi sem nú er stærstur i islenskum stjórn-
málum er hvernig bregðast skuli við oliukreppunni
þannig að kjaraskerðing verði sem minnst og komi
sem réttlátast niður, og að ekki verði kynnt undir
verðbólgubálinu.
• Þrjár leiðir hafa verið nefndar. Þar má
fyrsfe nefna gengisfellingarleiðina, i öðru lagi er
nefnd hækkun söluskatts og i þriðja lagi er það til-
laga um sérstakt innflutningsgjald er verði 7% til
áramóta og siðan 3% i næstu 3 mánuði þar á eftir.
• Alþýðubandalagið telur ekki að það leysi vand-
ann að gripa til gengisfellingar og kemur þar margt
til. Gengisfelling er i fyrsta lagi ákaflega verð-
bólguhvetjandi, og sá vandi sem með henni yrði
leystur mundi birtast okkur að nýju eftir fáeina
mánuði. Þess utan er það með öllu óvist að gengis-
felling leysi nokkurn vanda fyrir sjávarútveginn.
Þvi þannig er málum nú komið að afurðalánin eru
gengistryggð og hækka þvi bara með verðbólgunni,
og lán i fiskiskipunum eru einnig gengistryggð.
Þess utan má gera ráð fyrir þvi að gengisfelling
verði mjög illa séð af verkalýðshreyfingunni.
Gengisfelling er þvi ekki varanleg lausn.
• Um söluskattshækkun er það að segja að hætt
er við að slikur tekjuliður verði fastur i tekjuöfl-
unarkerfi rikisins þegar hann einu sinni er kominn
á. Söluskatturinn, sem leggst þyngst á stærstu fjöl-
skyldunnar, er sósialistum einnig þyrnir I augum út
frá jafnaðarsjónarmiði. Af hálfu Alþýðubandalags-
ins komu fram tillögur um sérstakt timabundið inn-
flutningsgjald er félli burt um mitt næsta ár. Lausn
af þessu tagi hefði þann kost að hún gæfi mun minna
tilefni til almennra verðhækkana heldur en gengis-
felling eða söluskattshækkun. Og hún ætti að bæta
samkeppnisstöðu iðnaðarins gagnvart innfluttum
iðnvarningi, en það gerir söluskattshækkun ekki.
• Ekki er þvi að leyna að töluverðir erfiðleikar
tengjast framkvæmd slikrar efnahagslausnar, og
hættan er m.a. sú að þar sé hlaðið upp bákni og
styrkjakerfi sem erfitt er að losna við siðar meir.
Einnig koma tengslin við EFTA og Efnahagsbanda-
lagið þarna við sögu.
• Þótt þessar mótbárur séu góðar og gildar virð-
ast þær sist veigameiri en þær sem tengjast öðrum
leiðum eins og t.d. gengisfellingu.
• Ný ráðherranefnd hefur nú fengið tillögur um
lausn oliuvandans til meðferðar og mun væntanlega
skila tillögum sinum á næstu dögum. Liklegast er
að þar verði um málamiðlun að ræða, enda þess
enginn kostur að snúast við vandanum nema með
málamiðlunarlausnum.
• Hvaða tæknilegar útfærslur kunna að verða
ofan á i þeim tillögum er kannski ekki aðalatriðið.
Það sem máli skiptir er að snúist verði gegn
vandanum af ákveðni og að haft verði að leiðarljósi
að álögum verði sem réttlátast skipt. Oliuvandinn
má ekki verða tilefni árása á kjör láglaunafólksins.
-eng
# úr aimanakínu
Farandverkafölk. — Fæstir
hafa gefiö þessum fjölmenna
hópi innan verkalýöshreyfing-
arinnar mikinn gaum og allra
sist verkalýösfélögin sjálf, þó
meö fáeinum ánægjulegum
undantekningum. Málefni
verkafólks á faraldsfæti hefur
þó borið hærra en oft áður siö-
ustu dagana, eftiraö Þjóðviljinn
greindi frá þvi aö ungum verka-
manni var vikið úr staríi i
Vinnslustööinni i Vestmanna-
eyjum, fyrir þá sökeina að hafa
leyftsér aö ræöa kröfur farand-
verkafólks viö félaga sina i stöð-
opna, eru girtir meö rimlum!
Eina leiöin til aö bjarga sér,
kæmi þessi staða upp, væri að
brjóta stórar rúður og fleygja
sér gegnum þær niður af þriðju
eða fjóröu hæð. Menn geta rétt
gert sér i hugarlund hverjar af-
leiðingarnar yöu.
Farandverkafólk og
verkalýðshreyfingin
ímyndaðir hagsmuna-
árekstrar
Verkafólk sem fer milli staöa
og selur vinnuafl sitt skiptir að
llkindum nokkrum þúsundum á
vetri hverjum. Bara I Eyjum
einum er taliö að 500 aðkomu-
sjómenn dvelji yfir hávertiöina
auk jafnmargra landverka-
manna. Margir aörir staöir eru
algerlega háðir farandverka-
fólkiþegar mester að gera, eins
og Þorlákshöfn, Grindavik,
Hornafjörður og flestir bæir á
Vestfjörðum.
Þegar haft er i huga, hversu
margt það fólk er, sem með
sanni má kalla flökkuverkafólk,
þá sætir nokkurri furöu, hversu
litil réttindi þessi fjöldi hefur
innan verkalýðsfélaganna. Far-
andverkafólk hefur ekki
atkvæðisrétt á fundum, ekki
einu sinni þegar kjaramál sem
snerta það sjálft eru ákveöin.
Þó má það koma meö tillögur og
jafnvel taka til máls! En það
telst ekki fullgildir meðlimir í
verkalýðsfélögunum, nýtur þvi
ekki styrkja úr slysasjóðum
þeirra, á ekki kost á verkfalls-
bótum og nýtur ekki sama rétt-
ar og heimafólk, komi upp
atvinnuleysi. Farandverkafólk
geturþvimeðsannisagt, aö eini
„réttur” þess sé að borga fé-
lagsgjöld.
Af þessum sökum andar oft
köldu frá aökomuverkafólki i
garðstéttarfélagsins áhverjum
stað. Það telur að eini áhuginn
sem félagið hefur á þvi, lúti að
þvi að hirða félagsgjöldin, en
þegar slys, veikindi eða fyrir-
varalausir brottrekstrar komi
fyrir, láti verkalýðsforkólfarnir
sér fátt um finnast.
Sundrungu sáð.
Atvinnurekendavaldið not-
færir sér þetta til hins itrasta.
Það klifar sýknt og heilagt á þvi
við heimafólk, að farandverka-
mennirnir fái fritt húsnæði I
verbúöum, frian hita og ljós,
niðurgreitt fæði, og lætur að þvi
liggja að þeir sitji einnig fyrir
yfirvinnu. Aðkomufólkiö búi
þannig i rauninni viö betri kjör
en heimamenn.
Gagnvart aðkomufólkinu
reyna atvinnurekendur að höfða
til þess, að þeir sjái þvi fyrir
húsnæöi og vinnu, og eigi
þarmeð hönk uppá bakið á þvi.
Þegar svo vinnudeilur koma
uppogfólkfer i verkföll, reyna
þeir óspartað koma þeirri hugs-
un inn hjá farandverkafólkinu
að verkföll og þesskyns tralala
séu algerlega andstæðihagsmun-
um þess. Það tapi þá vinnu og
þarmeð peningum.
Þvi miöur ná þeir stundum
árangri i sundrungariðju sinni. 1
verkfallinu 1. og 2. mars ifyrra,
þegar kaupráni Geirs og ólafs
var mótmælt, létu til dæmis
10-15farandverkamenn i Eyjum
lokasig inni að boði atvinnurek-
andans og unnu, þrátt fyrir
verkfallið.
Aðbúnaður farand-
verkafólks
Þó að atvinnurekendavaldið
telji sig dekra við aðkomu-
verkafólk er reyndin önnur. t
Vinnslustööinni h/f i Eyjum er
þannig rekið mötuneyti, og at-
vinnurekandinn segist borga
fæðið niöur um 45%. Samt sem
áður þarf verkafólkið að greiða
hvorki meira né minna en 120
þús .krónur á mánuði fyrir bein-
ann sem þar að auki er vart
hægt aö kalla lúxusmat.Þetta
jafrigildir rúmum 60% af dag-
vinnukaupi verkamanns.
Fri'a húsnæöið, sem verka-
fólkinu er boðiö uppá, er heldur
ekki til að hrðpa ferfalt húrra
fyrir. Gjarnan fullnægir það
ekki einföldustu kröfum um
hreinlætisaðstöðu og eldvarnir.
Dæmi um þetta má taka af
Vinnslustöðinni h/f i Eyjum,
þar sem farandverkafólk reis
upp og mótmælti.
Verbúðir Vinnslustöðvarinnar
h/f eru á 3ju og 4u hæð frysti-
hússins. Að hæðunum liggjaein-
ar útgöngudyr.Þegarklukkan er
orðin hálftólf að kveldi er dyr-
unum læst og enginn getur farið
dt nema húsvöröurinn opni.
Spyrja má, hvað myndi gerast,
ef eldur kviknaði i herbergi hús-
varðar og hann lægi i valnum.
Enginn annar útgangur er. Að
visu eru svalir ööru megin á
jx-iðju hæðinni. Sá hængur er á,
að frá þeim er enginn brunastigi
niður á jörð. Svalahurðir eru
þar aö auki læstar og húsvörð-
urinn einn meö lykla.
Má ekki opna glugga og skriða
út? — mætti spyrja. Vissulega
eru gluggar á verbúðunum. En
einugluggarnir semhægterað
Össur
Skarphéöins-
son
skrifar
Þess má lika geta, að hand-
slökkvitæki eru óþekkt á verbúð
Vinnslustöðvarinnar þó spurnir
hafi farið af einu i vörslu hús-
varðar. Reykskynjarar eru ein-
ungis þri'r samtals á báðum
hæðum.
Mál aft linni
Af þessu er ljóst, að aðbúnaður
farandverkamannaðer viða svo
lélegur, að verkalýðshreyfing-
in bókstaflega getur ekki lengur
setið aðgerðarlaus; t næstu
samningum, og fyrr ef hægt er,
verður hún aö taka málefni
verkafólks á faraldsfæti sérlega
föstum tökum. Hún þarf að
knýja fram miklu strangari
regluc um brunavarnir og
hreinlætisaðstöðu I húsakynn-
um flökkuverkafólks (Sem
dæmi um þær reglur sem hið
opinbera hefur sett um hrein-
lætisaðstöðu i má nefna, að þó
hundrað manns búi saman I
verbúö, þá þarf atvinnurekand-
inn ekki að sjá þvi fyrir einni
einustu sturtu eða baði.)
Verkalýöshreyfingin þarf lika
aðsjá um, að þegar þessar regl-
ur eru orðnar viöunandi, þá
verði þeim framfylgt
Siðast en ekki sist þarf hreyf-
ingin að veita farandaverka-
mönnum jöfn réttindi á við aðra
innan verkalýðsfélaganna. 1 þvi
skyni ætti hún að gefa gaum að
hugmyndum baráttuhópsins frá
Eyjum um vinnupassa, þar sem
skráð væri, hvar verkafólkið
hefði unnið og hve lengi, hversu
mikið það hefði goldiö til hreyf-
ingarinnar og aðrar slikar upp-
lýsingar. Þegar farandverka-
fólk kæmi svo á nýjan stað, gæti
það öðlast full réttindi i verka-
lýðsfélaginu á staðnum með þvi
að framvisa slikum passa.
Ölgan i Eyjum er einn fyrsti
visirinn að þvi að farandverka-
fólk kalli til samstöðu með öðru
verkafólki. Verkalýösfélagið I
Eyjum hefur stutt það með ráð-
um og dáð. Það ættu önnur félög
einnig að gera. Kanski mætti
með þvi rifa burst úr nös bur-
geisanna.
— ÖS