Þjóðviljinn - 15.07.1979, Side 7
Sunnudagur 15. jlili 1979. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7
# mér
datt þad
i hus
Kærufélagar, mér finnst mál-
gagnið okkar alls ekki hafa gert
barnaárinunógu mikil skilogtil
að bæta þar um vil ég koma á
framfæri eftirfarandi klausu,
sem birtist i dálki Velvakanda
22. jiini s.l. Hún er svona: „Ég
erákaflegahneyksluð á þvisem
kom fram i „Fólk i fréttum” um
það hvernig Bretar ætla að
halda uppá barnaárið. Þar
stendur að á ári barnsins verði
mikil hátið i Bretlandi innan
skamms. Þar verði litill skáti
vafinn inni' risasperðil sem sið-
an verður steiktur á pönnu. Ég
sé hvergi minnst á það að skát-
inn verði tekinn innan úr sperðl-
inum áður en hann verður
steiktur.” Þessi barngóða kona
hefur alls ekki verið virt svars
og allt er á huldu um örlög þessa
ónafngreinda skátadrengs*
mikið vildi ég að einhver góður
rannsóknarblaðamaður gæti
gefiðsér tíma til að kanna þetta
mál.
Undanfarnar vikur hef ég
þurft að eyða nokkrum tima á
Jóna Sigurjómdóttir skrifar:
„Ég er gull og gersemi...”
læknabiðstofum og þar hef ég
rekist á ýmis timarit, sem ann-
ars hefðu ekki borið fyrir augu
mln t.d. las ég um daginn opin-
skátt viðtal við landsþekktan
lögmann, sem er fagurkeri og
lifskúnstner. Hann heldur þvi
fram að þegar konur hafi lokið
uppeldishlutverki sinu og séu
orðnar 50 ára gamlar og senni-
lega fráskildar eiga þær að fara
i framboð og inná þing.
Konur um tvitugt eiga afturá-
móti að giftast mönnum um
sextugt helst þeim, sem eru
skildir við konurnar, sem eiga
að fara I framboð. Mér fannst
reglulega gaman að þessu.
11. tölublaði Verzíunartiðinda
1979 gefur að lita eftirfarandi:
„Aðalfundur Félags snyrti-
vöruverslana haldinn að Marar-
götu 2, Reykjavik, þ. 23.1.
1979 samþykkir að eigendur
verzlana innan K.I. verði nú
þegar beðnir að senda upplýs-
ingar um starfsfólk, sem hjá
þeim hefur unnið og reynst vera
óheiðarlegt, s.s. með hnupli á
vörum og peningum o.s.frv.
Kaupmenn sendi upplýsingar til
skrifstofu KI. þar sem farið
verður með þær sem trúnaðar-
mál. En listi yfir fólkið verði
jafnan til staðar, þannig að fé-
lagsmenn geti hringt inn iiafn
tilheyrandi starfskrafts og
fengið upplýsingar um hvort
viðkomandi er á listanum eða
ekki.”
Mér fannst ekkert mjög gam-
an að þessu.
Aftur á mótii finnst mér gaman
að lesa afmælis- og minningar-
greinar og er ég svo sólginn i
það lesmál að kötturinn minn er
áskrifandi að Morgunblaðinu
(hann er sá eini á heimilinu,
sem fæst til að leggja nafn sitt
við það — svona er hann góður
við mig). Skemmtilegasta
minningargrein, sem ég hef les-
ið nýlega birtist i Islendinga-
þáttum Timans, hana skrifar
Indriði G. Þorsteinsson i minn-
ingu föðurbróður sins. Ég get
ekki stillt mig um að gefa ykkur
smá-sýnishorn:
„Já, þannig var Jóhann
Magnússon, glaðastur manna
og skemmtilegastur og einhver
sá mesti ljúflingur sem ég hefi
kynnst. Sá þáttur skap-
gerðarinnar var eins konar ætt-
areinkenni...Þetta finnst
mér fagurt og gott.
Til einstaklings i fullu starfi
vegna barns á hans vegum
Til einstaklings i hálfu starfi
Vegna barns á hans vegum
Vegna heimavinnandi húsmóður
vegna barns á hennar vegum
Hvers virði er manneskja?
Þetta fór ég að hugleiða um
daginn, þegar ég frétti það að
postulinshólkur utanum eina
tönn I manneskju kostar kr. 100
þúsund.
Þessi verðlagning er alls ekki
i samræmi við mat Sjúkrasam-
lags Reykjavikur á fólki, sú
stofnun greiðir sjúkradag-
peninga eins og hér segir:
kr. 2.586.-á dag
kr. 703,-ádag
kr. 1.293,-á dag
kr. 352,-ádag
kr.
kr.
647,-ádag
176.- á dag
Já, kæru félagar, þetta er al-
veg dagsatt.
Svo get ég frætt ykkur á þvi að
ef við erum þvilikir endemis
aular að verða öryrkjar eftir 71
árs aldur, getum við lagt upp
tærnar þvi þá erum við ná-
kvæmlega einskis virði. Trygg-
ingastofnun rikisinsgreiðirekki
örorkubætur til fólks, sem gerist
öryrkjar eftir 71 árs aldur.
„Ég er gull og gersemi...”
sagði Sölvi Helgason.
Það er ætlunin að halda úti hér dálki sem nefnist
„búðarráp” og undir hann falla ýmiss konar neyt-
endamál, ábendingar um ódýra, holla, góða, hag-
kvæma eða gagnlega vöru sem verður á vegi okkar
á rápinu. Lesendur eru hvattir til að senda okkur
hugmyndir eða slá á þráðinn. Ýmislegt fleira kann
að lenda i þessum dálki, uppskriftir og heilræði af
ýmsu tagi.
Kryddjurtir
í eldhús-
glugganum
Nýtt krydd er að sjálfsögðu
bæði hollastogbest.ogaf þvi þarf
yfirleitt miklu minna en af þurrk-
uðu kryddi þar sem nýja kryddið
er bragðmeira.
Nú er hægt að kaupa lifandi
kryddjurtir í Alaska i Breiðholti
og hafa þær i eldhúsglugganum
og klippa af þeim út f mat-
inn. Jurtin vex jafnóðum aftur og
þetta er þvi bæði ódýr og góð að-
ferð til að krydda matinn.
Kryddjurtirnar sem fást i
Alaska eru þessar:
Sitrónumelissa: Með sterku
sitrónubragði. Gott I salat, fisk
og út i te.
Mynta: Með sérkennilegu pipar-
myntubragði. Mjög góð með
lambakjöti, fiski og kjúkl-
ingum. Einnig mjög góð i
te. Hægt er að búa til góða sósu
úr myntunni út á fisk og lamba-
kjöt. Er þá bökuð upp hvit sósa
(jafningur) og settur út I örli'till
sitrónusafi og nokkur myntu blöð
klippt út i aö lokum.
Timian: Timian er af sama stofiii
og blóðberg, en heldur gróf-
gerðarijurtogstærri. Þaðergott
i alla pottrétti, sósur og
súpur. Timian og basilikum á
mjög vel saman sem krydd.
BasOikum : Ómissandi á pizzur og
annan italskan mat. Basilikum
er einnig m jög gott að klippa út i
edik (gjarnan meö timian) og
nota út á salat.
Merian: Mjög bragðsterkt krydd
sem þarf litið af. Gott I kryddlegi
(t.d. blandasaman við mataroliu,
nýmalaðan svartan pipar, hvit-
lauk og salt) og láta kjötið liggja I
þessu I nokkra klukkutima áður
en það er steikt. Einnig er gott að
blanda timian og basilikum
samanvið. Hægt er að búa til
blöndu af oliu, ediki, kryddi og
fyrrnefndum kryddjurtum og
eiga inni i isskáp I lokuðu glasi og
nota svo eftir hendinni út á
grænmetissalöteða sem kryddlög
fyrirkjöt. Varist að nota of mikiö
edik ef á að steikja kjötið. Einnig
er hægt að búa til ilmandi bað-
vatn úr merian. Sjóðandi vatni er
hellt yfir blöð og stilka af merian
oglátið standa 115 minútur. Hellt
á flöskur og einn bolli notaður i
hvert bað.
Þessar jurtir eru allar rækt-
aðar i Garðyrkjustöðinni að Lauf-
skálum H i Borgarfirði og fólk er
minnt á að klippa jurtirnar vel,
hvort sem þær eru hafðar i
krukku i eldhúsglugganum, eða
úti i' garði, sem einnig er hægt.
Tómatsósa
— úr hverju
Það er ekki gaman að skamma
innlenda framleiöslu en slikt
verður þó að gera á meðan tilefn-
in gefast. Litil plastflaska af
tómatsósu frá Val kostar 435
krónur á meðan mun stærri
flaska (525 g.) frá Slotts kostar
391 krónur.340 gr. af Chili Sauce
(bragðsterkari en tómatsósa)
kostar 355 (verðið reyndar hærra
sumst.) krónur en engar upplýs
ingar eru á Valsflöskunni um
þyngd. Þar eru heldur engar upp-
lýsingar um innihald. Til dæmis
væri gaman að vita hvort Vals-
sósan er úr tómötum eða epla-
mauki, en eplamauk er stundum
notað i tómatsósu (sem ætti þá
auðvitað að heita eitthvað ann-
að). Einnig væri gaman að vita
Kryddjurtirnar fást I Alaska i Breiöholti og stvkkiö kostar 500 krónur.
hvaða litarefni er i fslensku
tómatsósunni, sem gerir hana svo
blóörauða að það er næstum
ógerningur aö ná litnum úr ef
hann kemst i föt. þs.
Hollustan
ífyrirrúmi
Ný verslun hefur verið opnuð að
Skólavörðustíg 13A i Reykjavik.
Þar eru all sérstæðar vörur á boð-
stólum.matarilát, pottar ogpönn-
ur sem hafa þá eiginleika að
hvorki þarf að nota vatn né feiti
við matreiðsluna. Þar að auki
sparar þessi aðferð mikla orku
þar sem ilátin eru hönnuð þannig
aðhitinn helst vel i þeim.sáralitil
gufe sleppur Ut og þar af leiðandi
þarf minni orku til að halda suðu-
markinu innan þeirra.
Það er fyrirtækið AMC í Sviss
sem framleiöir búsáhöld þessi og
kenna eigendur verslunarinnar
hér á landi búöina viö fyrirtækið.
Fyrir alla þá sem hugsa um
heilsuna og hollustu fæðunnar er
þarna um athyglisveröar vörur
að ræða en heldur létta þær á
pyngjunni, en eru sennilega ekki
lengi að borga sig, meö raf-
magnssparnaöi o.fl.
Þessi aðferð að gufusjóða mat-
inn er gömul og var m.a. notuð
hjá Rómverjum enda er ákveðin
tegund potta kennd við þá. Meö
þessari aöferö helst bragö miklu
betur, óþarfi er að krydda matinn
eins og nú er algengt og hægt er
að blanda saman ýmsum tegund-
um og sjóða eða steikja saman.
Eftir helgina veröur sagt nánar
frá þessari framleiðslu AMC og
hver veit nema gómsætar upp-
skriftir fljóti með.
—ká
/ ’v 'N.
J
búðarráp