Þjóðviljinn - 31.08.1979, Side 9
Sovéskir dagar MÍR 1979:
Föstudagur 31. ágúst 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Hópur áhugalistamanna
frá einu af Miðasíulýð-
veldum Sovétríkjanna,
Kazakhstan, er væntanleg-
ur hingað til lands hinn 6.
sept. n.k. til þátttöku í
„Sovéskum dögum", sem
félagið MÍR efnir orðið til
árlega. Listafólkið kemur
fram á tónleikum og dans-
sýningum á nokkrum stöð-
um á Norður- og Austur-
landi, auk Reykjavíkur.
Þetta er fjóröa áriö i röö sem
eitt 15 lýðvelda Sovétrikjanna er
sérstaklega tekiö tii kynningar á
„Sovéskum dögum” MIR, Menn-
ingartengsla Islands og Ráö-
stjórnarrikjanna. Aöur hafa þessi
sovétlýöveldi veriö kynnt:
Armenia (1976), Lettland (1977)
og Úkraina (1978).
25 manna hópur kemur frá
Sovétrikjunum til þátttöku i
„Sovéskum dögum” MIR aö
þessu sinni, þeirra á meöal er 3ja
manna sendinefnd sem skipuö er
þeim Sjamelkhanov, varafor-
manni Aætlunarráðs Kazakhstan,
Kumantaévu kennaraskólarektor
og N. Pétkov starfsmanni
Sovéska vináttufélagasambands-
ins og félagsins Sovétrikin-
Island.
Aðrir i hópnum eru félagar 1
Þjóblaga- og dansflokkum „Úli-
tá” frá einni af yngstu byggðum
Miðkazakhstan, Dsezkazganhér-
aöi. Þetta eru allt áhugalista-
menn, sem þó hafa náö langt á
listabrautinni, þvi aö flokkurinn
„Úlitá” hlaut m.a. verðlaun á al-
rikishátið sovéskra áhugalista-
manna fyrir fáum árum. I hópn-
um sem hingað kemur eru 4 ein-
söngvarar, 7 hljóöfæraleikarar og
10 dansarar og á efnisskrá flokks-
ins eru um 20 atriöi: einsöngur,
kvartettsöngur, hljóöfæraleikur
og þjóödansasýning.
Úlitá-flokkurinn sýnir fyrst fáein
atriöi efnisskrár sinnar aö Kjar-
valsstöðum föstudagskvöldið 7.
september, en þá verða „Sovésku
dagarnir” settir þar og jafnframt
opnuð sýning á listmunum og
minjagripum, barnateikningum,
grafik og ljósmyndum frá
Kazakhstan, svo og forvitnileg
sýning á svartlistarmyndum viö
efni Njálssögu eftir rússneska
listamanninn Viktor Prokofiev.
Við opnun sýningarinnar verða
flutt ávörp og Baldur Pálmason
dagskrárfulltrúi les upp ljóð. Aö-
gangur aö Kjarvalsstööum er
ókeypis og öllum heimill.
Úlitá-þjóðlaga- og dansflokkur-
inn heldur tónleika og danssýn-
ingu í Þjóöleikhúsinu laugardag-
inn 8. september kl. 3 síðdegis og
siöan veröa tónleikar á Akureyri
10. sept., Húsavik 11. sept., Nes-
kaupstað 12. sept. og Egilsstöðum
14. september.
1 MIR-salnum, Laugavegi 178,
verður sett upp bókasýning og
sýning á ljósmyndum frá nýrækt-
arsvæðunum miklu i Kazakhstan,
og þar verða einnig flutt erindi og
sýndar kvikmyndir fimmtudags-
kvöldiö 13. september kl. 8.30. Aö-
gangur aö MlR-salnum er öllum
heimill meöan húsrúm leyfir.
ÚTKALL
Nýtt Brunalið
með nýja plötu
útkall heitir ný plata Bruna-
liösins, sem nú kemur út frá
Hljómplötuútgáfunni h.f..Með
þessari plötu segist Brunaliöið
marka nýja stefnu — enda nánast
um nýja hljómsveit aö ræöa. I
framlinunni eru nú fjórar stúlkur
— Ragnhildur Gisladóttir og stöll-
urnar Eva Albertsdóttir, Erna
Þórarinsdóttir og Erna Gunnars-
dóttir frá Akureyri. Þær sungu
þar áður með hljómsveitinni
Hver. Auk stúlknanna eru i
hljómsveitinni Pálmi Gunnarsson
og Magnús Kjartansson á bassa
og hljómborö. Trommuleikari og
gitarleikari verða engir fastir i
hljómsveitinni, a.m.k. ekki fyrst
um sinn.
A plötunni eru niu lög, öll
islensk, eftir liðsmenn Brunaliös-
ins, Jóhann G. Jóhannsson,
Jóhann Helgason og fleiri.
Ahersla er lögð á fágaðan söng cg
raddir, segir liðib. Platan var
hijóörituð i Hljóðrita i Hafnarfiröi
undir stjórn Magnúsar Kjartans-
sonar, upptökumaður var Jónas
R. Jónsson.
Fjöldi hljómlistarmanna að-
stoöaði viö gerð hljómplötunnar.
Má nefna breska trommuleik-
arann Jeff Seopardie og Friðrik
Karlsson gitarleikara, sem lék
allt gitarverk á plötunni utan i
einu lagi, þar sem var Björgvin
Gislason. Kristinn Svavarsson lék
á saxófón og þeir Magnús
Kjartansson, Andrés Helgason og
Ingvi Jón Kjartansson á trompet.
Þjóðlaga- og dans-
flokkur frá Kazakhstan
kemur til íslands
Ráðning framkvœmdastjóra Æskulýðsráðs
„Ummæli Hilmars eru
makalaus ósannindi”
SEGIR SJÖFN SIGURBJÖRNSDÓTTIR, BORGARFULLTRÚI
Vegna bréfs Hilmars
Jónssonar, sem birtist i Alþýðu-
blaðinumiövikudaginn29. ágúst
og endurprentað er i Þjóð-
viljanum i dag,óska ég eftir að
árétta það, semégsagðii viðtali
við Alþýðublaöið vegna hinna
makalausu ósanninda Hilmars
Jónssonar frá Keflavik.
Ég lýsi ummæli Hilmars þessa
staðlausa stafi og tilhæfulaus
með öllu. Ég hef hvorki lofað
Hilmari Jónssyni né nokkrum
öðrum fyrirfram stuðningi i
bessumáli. Éghefhaftþað eitt
að leiðarljósi, i sambandi við
stöðuveitingar, aö jafnan skuli
ráða hæfasta umsækjandann,
en ekki ráðstafa stöðum fyrir-
fram, meö pólitisku baktjalda-
makki. Ég tel það hafið yfir
allan efa, að Ómar Einarssonar
er hæfastur þeirra, sem sóttu
um starf framkvæmdastjóra
Æskulýðsráös Reykjavikur,
enda mæltu 5 fulltrúar 3 stjórn-
málaflokka með honum til
starfans. Aðeins einn meölimur
æskulýðsráðs greiddi öðrum
umsækjanda atkvæði sitt, en sá
var jafnframt flokksbróðir
umsækjanda. Hinn 21. ágúst
siðastliðinn var gerð eftir-
farandi samhljóða samþykkt i
Æskulýðsráði Reykjavikur:
„Æskulýðsráð mótmælir harð-
lega þeim drætti, sem orðið
hefur á ákvöröun borgarráðs
um að ráða i stöðu fram-
kvæmdastjóra ráðsins. Jafn-
framt krefst æskulýðsráö þess
að málið verði afgreitt á næsta
fundi borgarráðs þ.e. á föstu-
daginn n.k.. Vill æskulýðsráð i
þessu sambandi minna á
óþolandi seinagang borgarráðs
á afgreiðslu samþykktar Æsku-
lýðsráðs Reykjavikur varðandi
Tónabæ, en afgreiðsla borgar-
ráðs á þvi máli hefur nú staðið I
tæpt ár og er ólokið enn.”
Þegar þessi samþykkt æsku-
lýðsráðs var tekin fyrir á
borgarráðsfundi sl. föstudag
gerði ég eftirfarandi bókun:
„Ég harma þann drátt, sem
orðið hefur á þvi, að borgarráð
samþykki ráðningu ómars
Einarssonar i stööu fram-
kvæmdastjóra Æskulýösráðs
Reykjavikur og átel harðlega
þau vinnubrögð, aö fresta
málinu aftur og aftur, án þess
aö tilgreindar séu ástæður, og
að þvi' er virðist, gjörsamlega
að tilefnislausu. Ómar
Einarsson nýtur þvi næst
einróma fylgis Æskulýðsráðs en
hann hlaut fimm atkvæði full-
trúa þriggja stjórnmálsflokka
þ. e. Alþýðubandalags,
Alþýðuflokks og Sjálfstæðis-
flokks, en aðeins einn ráðs-
manna greiddi öörum atkvæði
sitt.”
1 borgarráði lét Adda Bára
Sigfúsdóttir bóka að Kristján
Benediktsson hafi á lokuðum
meirihlutafundi verið lofað
frestun, en Björgvin
Guðmundsson borgarfulltrúi
segir i viðtali við Timann, að
hann hafi lofað Kristjáni
Benediktssyni þvi einu ,,að
stuðla að frestun”. Þetta loforð
stóð Björgvin Guðmundsson við
meö miklum sóma, en meiri-
hluta borgarráðs fannst ófært
að vlkja sér undan kröfu Æ.R.
um að ráða málinu til lykta á
þessum fundi, enda búið að
fresta málinu hvað eftir annað
án nokkurrar tilgreindrar
ástæðu. Þetta mál hefur orðiö
vinstri meirihlutanum I borgar-
stjórn Reykjavikur til mikillar
vansæmdar vegna þess að
borgarráð dró allt of lengi að
samþykkja hina þvi sem næst
einróma tillögu Æ.R. um
ráðningu Ómars Einarssonar i
stöðu framkvæmdastjóra Æ.R.
Vegna þess moldviðris, sem
þyrlað hefur verið upp i sumum
blöðum út af boðun minni á
umræddan borgarráðsfund
siðastl. föstudag, sem vara-
manns Kristjáns Benedikts-
sonar, læt ég fylgja hér með
svar Kristjáns Benediktssonar
við spurningum blaðamanns
Morgunblaðsins vegna þessa
máls:
„Varðandi ágreining um hver
ætti að vera varamaður sinn i
borgarráði sagði Kristján að
reglan væri að I borgarráði gætu
ekki setið aðrir en þeir, sem
ættu sætí i borgarstjórn, en i
borgarstjórn væri hann eini full-
trúi flokks sins. Aðalmenn og
varamenn meirihlutans i
borgarráði hefðu verið kosnir af
sameiginlegum lista og hann
hefði ekki kjöriö sér neinn
sérstakan varamann heldur
látið rööina ráða, eins og
almenna reglan segði tíl um.
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir.
Þannig hefði fyrsti varamaður
Adda Bára Sigfúsdóttir tekið
sætiþegar hann hefði verið fjar-
verandi og ef hún væri fjar-
verandi þá annar varamaður
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir. „Ég
bar ekki fram neina ósk um að
einhver sérstakur væri boðaður
sem varamaður minn I þetta
skipti heldur yrði röðin látin
ráða”.
Svo mörg voru þau orð. Við
þessi ummæli Kristjáns
Benediktssonar vil ég bæta þvi
einu, að Adda Bára Sigfúsdóttír,
fyrstí varamaður meirihlutans,
var boðuð á tittnefndan borgar-
ráðsfund sem varamaður Sigur-
jóns Péturssonar, sem var i
sumarleyfi; var ég þvi boðuð á
þennan borgarráðsfund sem
varamaður Kristjáns
Benediktssonar I fjarveru hans,
en ég er annar varamaður
meirihlutans, samkvæmt
kosningu i borgarstjórn frá þvi i
júnf sl..
Virðingarfyllst,
Sjöfn Sigurbjörnsdóttír
borgarfulltrúi.