Þjóðviljinn - 14.10.1979, Qupperneq 15
Sunnudagur 14. október 1979 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15
Odvar Nordli(orsætisráðherra: Hláturinn lengir iifiö. Allar gagnrýnis-
raddir Verkamannaflokksins eiga ná fulltrúa I rikisstjórn, allt vald
iiggur nú I höndum forsætisráöherra. En er þaö nóg til aö lengja lif
stjórnarinnar eftir þingkosningarnar 1981?
vegis veriö ráöherra áöiar i
stjórnartíö Einars Gerhardsen
var hann bæöi byggöarmála- og
fjármálaráöherra, og I stjórn
Brattelis 1971-72 var hann utan-
rikisráöherra. Hins vegar lagöi
hann ekki dul á þab þá aö hann
hefbi heldur viljaö vera dóms-
málaráöherra, Nú hefur sú ósk
ræst.
Formaöurinn
girtur af
Nordli haföi nú meö aöstoð
Bjartmars Gjerde, oliu- og orku-
málaráöherra og Tors Halvorsen
formanns Alþýöusambandsins
lagt rikisstjórnarkapalinn. Eitt
var þó ógert. Til aö tryggja sér ’
óskipt völd og heilsteypt forystu-
hlutverk varð Nordli aö gera for-
mann Verkamannaflokksins.Rei-
ulf Steen.sér óskaðlegan. Reiulf
Steen hafði verið kjörinn for-
maöur flokksins 1975, en lands-
fundur kratanna haföi hins vegar
gert Odvar Nordli aö forsætisráö-
herra. Forystuvaldiö hefur þaraf
leiðandi veriö tviskipt innan
flokksins. Til að hvessa forystu-
broddinn og gera sjálfan sig aö
ótviræðum foringja varö þvl
Nordli aö taka Steen inn i
stjórnina, en hann haföi áöur
setið á Stórþinginu og gegnt
veigamiklum störfum sem for-
maöur utanrikisnefndarinnar.
Allt benti til þess aö Steen ætti
glæsilega framtiö innan
flokksins, ekki sist var talaö um
hann sem væntanlegan utanrikis-
ráöherra. Raunin varö þó önnur
Nordli geröi hann aö viöskipta-
ráöherra, og Halvard Bakke, sem
hefur gegnt þvi ráðherraembætti,
tekur nú sæti á þingi. Steen er þvi
kominn i stjórnina, og neyöist til
aö leika aöra fiölu. Eftir þessa
breytingu missir hann sjálfkrafa
stööuna sem formaöur utanrikis-
nefndarinnar og eftir stendur
Nordli sem óhagganlegur
forystusauöur Verkamanna-
flokksins.
Þessa dagana segja norsk blöö,
aö Steen hafi veriö limlestur póli-
tiskt.
Gengur kaballinn
upp ?
Helstu hernaöarbreytingunum
var lokiö. Afgangurinn var
eiginlega formsatriöi. Rolf
Hansen varnarmálaráðherra var
fluttur yfir I embætti umhverfis-
verndarráöherra, sem þó má
kalla lækkun i tign. Þá tók Thor-
vald Stoltenberg viö varnarmála-
ráöuneytinu, og var ekki seinn aö
segja já takk. Hann er á siöasta
snúning enda setiö lengi sem
rikisritari og fariö aö slá i hinn
pólitiska frama hans. Ronald Bye
var geröur aö samgöngumála-
ráöherra, enda áöur forstjóri
fyrir Norskum alþýöuleyfum og
gæti þvi stuölað aö betri ferða-
samböndum Norömanna. Arne
Nielsen, sem hefur veriö eins
konar farandbikar Odvars
Nordli og notaöur i hin og þessi
störf innan ýmissa ráöuneyta
(siöast geröur aö byggöarmála-
ráöherra 1978) var dubbaöur i
heilbrigöismálaráöherra.
Samfara þessum miklu breyt-
ingum á norsku rikisstjórninni,
lét Per Kleppe.fráfarandi fjár-
málaráöherra, þaö vera sitt
siöasta embættisverk aö leggja
nýju fjárlögin fyrir Stórþingiö. I
þeim kemur . fram allveruleg
tekjuaukning rfkisins af oliu-
vinnslu úr Noröursjó ásamt hag-
stæöum árangri af launa- og
veröstöövun rikisstjórnarinnar.
Til dæmis má nefna aö rekstrar-
Andreas Cappelen, dómsmála-
ráöherra: Forsvari ihalds-
aflanna, sem sér gamlan draum
rætast.
Sissel Röbeck neytendamálaráö-
herra: Ung, róttæk — og kona.
jöfnuöur norska rikisins hefur
færst 1 jákvæðara horf svo um
munar á siðustu árum eöa úr
minus 26,3 miljöröum noskra
króna á árinu 1977 í minús 1,8
miijón á næsta ári. Þarna eiga
oliutekjurnar stærsta þáttinn,
enda farnar að koma inn i dæmiö
svo um munar. Á móti vega gjöld
og vextir af erlendum lánum, en
Noregur reiknar meö aö borga-
þau aö fullu innan fárra ára. I
Reiulf Steen viöskiptaráöherra:
Ennþá formaöur Verkamanna-
fiokksins, en limlestur pólitiskt.
Einar Förde kirkju- og mennta-
málaráöherra: Fulltrúi vinstri
aflanna.
heild má þvi segja aö næsta ár og
árin framundan lofi góöu i efna-
hagsmálum.
Spurningin er hins vegar
hvernig launasamningarnir
takast á vori komanda, og hvort
rikisstjórninni takist aö halda
óbreyttri efnahagsstefnu I náinni
framtiö. Þá er það einnig óráöiö,
hvort Odvar Nordli takist aö axla
hinn mikla forystukross, sem
hann hefur sett á eigin herðar
Lars Skytöen iönaöarmálaráö-
herra: Fulltrúi Alþýöusambands-
ins.
Ulf Sand fjármálaráöherra:
Stiröur embættismaöur en örugg
flokkskanina.
meö þessum veigamiklu breyt-
ingum. Nú fyrst reynir á hann
sem forystumann og pólitiskan
leiötoga Verkamannaflokksins,
og enn er óútséö um, hvort sam-
starfsmenn forsætisráðherra og
hinir ýmsu hópar innan flokksins
sýni Nordli fulla hollustu.
Þaö verður fyrst I þingkosning-
unum 1981 sem i ljós kemur hvort
kapallinnhans Nordlis hefur
gengiö upp. —im
ÚTBOÐ
Hitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboðum
i að byggja dælustöðvarhús á Fitjum i
Njarðvík.
Otboðsgögn verða afhent á skrifstofu
Hitaveitu Suðurnesja Vesturbraut 10 A
Keflavik og á Verkfræðistofunni Fjarhitun
h/f Alftamýri 9 Reykjavlk gegn 50 þús.
kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Hita-
veitu Suðumesja fimmtudaginn 1. nóv.
1979 kl. 14.00.
STYKKIS
HOLMUR
HRADFERD
FLUTNINGABÍLAR
AVALLT Á FERÐINNI
MEÐ NÝJAR OG
GLÆSILEGAR VÖRUR
Jón Loftsson hf. Stykkishólmi