Þjóðviljinn - 14.03.1980, Side 2
2. StÐA — ÞJÖÐVILJINN Föstudagur 14. mars 1980
Kvikmynda-
safn íslands
komið í nýtt húsnœði
Kvikmyndasafn tslands var
stofnað með lögum árið 1978, en
tók fyrst til starfa I reynd árið
1979. Samkvæmt lögum er safn-
inu ætlað að safna öllum islensk-
um kvikmyndum og erlendum
kvikmyndum, sem hafa listrænt
og/cða kvikmyndasögulegt gildi.
Engin ákvæði um skilaskyldu eru
I lögunum. Þá er safninu og ætlað
að standa fyrir kvikmyndasýn-
ingum f framtfðinni.
Segja má að fyrsta starfsár
safnsins hafi farið i þaö að feta
sig áfram fyrstu skrefin. Leitað
var að húsnæði fyrir safnið. Eftir
að hentugt húsnæði hafði veriö
fundið, að Skipholti 31, var kostað
til innréttingar þess og var vinn-
unni við húsnæðiö ekki lokiö fyrr
en nú undir siðustu áramót. Þar
með hefur safnið fengið eld-
trausta geymslu, skrifstofu- og
fundaraðstöðu.
öllum aðilum, sem vitað er
að fengist hafi viö kvikmynda-
gerð hefur verið skrifað vegna
upplýsingaöflunar og ennfrem-
ur flestum meölimum FIAF. Þá
var vakin athygli á mikilvægi
þess, að varðveita elsta kvik-
myndahús Islendinga, Fjalakött-
inn, sem jafnframt er með elstu
kvikmyndahúsum heims, en það
hóf starfsemi sina áriö 1906, Safn-
ið hefur yfir aö ráða visi að Kvik-
myndaskrá tslands (National
filmography).
Sótt var um aðild að FIAF og
var hún samþykkt á aðalfundi
FIAF i Lausanne.
Erlendur Sveinsson, forstöðu-
maður safnsins, og Ásdis Egils-
dóttir sóttu 4. sumarskóla FIAF I
Austur-Þýskalandi, þar sem fjall-
að var um undirstöðuatriði I sam-
bandi við stofnun kvikmynda-
safna. Þar fengust gagnlegar
upplýsingar fyrir hiö nýstofnaða
kvikmyndasafn tslands en auk
þess uppgötvuðu fulltrúarnir
merkilegar kvikmyndir frá ts-
landi i vörslu Staatliches Film-
archiv der DDR. Knútur Halls-
son, formaður safnstjórnarinnar,
heimsótti The Museum of Mod-
ern Art i New York og Det Danske
Filmmuseum og ræddi við for-
Menning-
arverðlaun
DBtil
S.A.M.
Samkvæmt fregnum sem borist
hafa Þjóðviljanum mun það
veröa Sigurður A. Magnússon rit-
höfundur sem hlýtur bókmennta-
verðlaun Dagblaðsins að þessu
sinni fyrir bók sina Undir
kalstjörnu.
stöðumenn þessara safna. Gösta
Werner, sænskur kvikmynda-
sagnfræðingur og Erlendur
Sveinsson ræddust við á tslandi,
þegar Gösta Werner var gestur
sænskrar kvikmyndaviku. Gösta
Werner tók að sér að afla upplýs-
inga um islenskar kvikmyndir i
Sviþjóð.
Einn maður starfar nú á vegum
5 manna stjórnar að fram-
kvæmdastjórn fyrir safnið. t
stjórninni sitja Knútur Hallsson,
menntamálaráöuneytið, Magnús
Jóhannsson, Fræðslumyndasafn
rikisins, Jón Þórarinsson, Rikis-
útvarpið, Árni Björnsson, Þjóð-
minjasafnið, Erlendur Sveinsson,
Félag kvikmyndageröarmanna.
myndasafnsins töldu, að skila-
skylda á kvikmyndum þyrfti að
komast á likt og á bókum og væri
nauðsyn að ná um það samkomu-
lag við dreifingaraðila. Takist nú
samningar við Regnbogann um
aðstöðu til þess að skoða myndir,
sem safninu berast og til sýninga.
Kvikmyndasafns tslands biða
mikil verkefni. En hætt er við að
seint sækist nema betur rætist úr
með fjármuni. A fjárlögum fyrir
árið 1979 fékk safnið 5 milj. kr. til
starfsemi sinnar. Nú munu tvær
hafa bæst við.
— mhg.
Knútur Hallson t.v. og Erlendur
Sveinsson stjórnarmenn I Kvik-
myndasafni tslands ræðast við.
Forráðamenn
Kvik-
Sæluvika Skagfirðinga
hefst á morgun
Sæluvika Skagfirðinga hefst
n.k. laugardag (15. mars) og
lýkur sunnudaginn 23. mars.
Eins og jafnan áður á Sæluviku
verður fjölmargt til skemmtun-
ar, svo sem leiksýningar, söng-
ur, kvikmyndasýningar o.fl. að
ógleymdum dansinum, sem
dunar i Bifröst öll kvöld vikunn-
ar nema á miðvikudagskvöld,
Sviðsmynd úr Gulldrengjunum.
Frumsýnt í Flensborg:
Rokkóperan
Gulldrengirnir
Tónlist eftir Sigurð Rúnar
Rokkóperan Gulldrengirnir
sem byggð er á leikriti eftir Peter
Terson, Zigger-Zagger, með tón-
list eftir Sigurð Rtinar Jónsson og
staðfærð af Birgi Svan Simonar-
syni, verður frumsýnd nk. sunnu-
dag, 16. mars kl. 21 hjá Leiklist-
arklúbbi Flenshorgarskóla.
Zigger Zagger var frumsýnt
1967af unglingaleikhúsinu Birtish
National Youth Theatre. Leikhús
þetta hefur atvinnuleikstjóra á
sinum snærum, en leikarar og
tæknimenn eru valdir úr gagn-
fræða og menntaskólum viðsveg-
ar af Bretlandi. B.N.Y.T. hefur
verið starfrækt i 18 ár. Fyrstu 11
árin einbeitti leikhúsið sér að
setja á svið leikrit eftir William
Shakespeare, en siðustu 7 árin
hefur Peter Terson skrifaö verk
sérstaklega fyrir B.N.Y.T. og
fjalla þau flest um vandamál
unglinga i iðnaðarþjóðfélagi.
Birgir Svan Slmonarson þýddi,
endursamdi og staðfærði verkiö
fyrir Nemendafélag Flensborg-
arskóla og Sigurður Rúnar Jóns-
son samdi og útsetti tónlist við
sýninguna og sér jafnframt um
kór og hljómsveitarstjórn.
Leikstjórn er I höndum Ingu
Bjarnason sem rekur islenskt-
ensk tilraunaleikhús (Saga-Thea-
tre) ásamt Nigel Watson. 1
„Saga-Theatre” hafa starfað
breskir og islenskir leikarar og
hefur flokkurinn sýnt viðsvegar
um Evrópu. Meöal verka sem
flokkurinn hefur sett á^sviö er
„Fröken Júlia er alveg'óð” og
„The Exquisitor” sem bæöi voru
sýnd hér á landi.
Sýningar Leiklistarklúbbs
Flensborgarskóla eru áviss við-
burður og eina leiklistarstarf-
seminsem fram fer I Hafnarfirði.
Uppfærslan á Gulldrengjunum er
lang-veigamesta verkefni L.K.F.
til þessa, enda standa um 50
manns aö sýningunni.
Sýningarnar verða i Flensborg-
arskóla, 2. sýning 18. mars kl. 21,
en siöan miðvikudaga og fimmtu-
daga i mars kl. 21. Auk þess er
fyrirhuguö sýning i Skemmunni á
Akureyri sunnudaginn 23. mars.
þá kasta menn mæðinni og búa
sig undir næstu lotu. Hljómsveit
Geirmundar leikur fyrir dansin-
um nema á fimmtudagskvöldið,
en þá verða gömiu dansarnir
þreyttir undir stjórn Oskars
Magnússonar, bónda i Brekku.
Eins og fyrr segir hefst Sælu-
vikan á laugardaginn (morg-
un), en þá verður karlakórinn
Heimir meö tvær skemmtanir,
kl. 2 og kl. 8,30,- Einsöngvarar
með kórnum eru þeir Guðmann
Tobiasson og Jóhann Frið-
geirsson, en stjórnandi Heimis
er Sven Arne Korshamn. A
skemmtun Heimis mun Baldur
Brjánsson sýna töfrabrögð og
fleira gerist þar tiðinda.
A sunnudaginn flytur sr. Sig-
fús J. Arnason guðsþjónustu i
Sauðárkrókskirkju. Tónlistar-
félagið og Tónlistarskólinn á
Sauðárkróki verða með
skemmtun þar sem Sigriður
Ella Magnúsdóttir syngur við
undirleik Jónasar Ingimundar-
sonar. Þá verður opnuð i Safna-
húsinu málverkasýning Gísla
Guðmanns á Akureyri. Um
kvöldið verður frumsýning
Leikfélags Sauðárkróks á
Týndu teskeiðinni eftir Kjartan
Ragnarsson. Leikstjóri er Ásdis
Skúladóttir, en leikmynd geröi
Jón Þórisson. Týnda teskeiöin
verður sýnd flest kvöld vik-
unnar.
A mánudaginn veröur Gagn-
fræðaskólinn með skemmtun
fyrirbörn og unglinga. Þá
verður og kirkjuvköld I Sauðár-
króskskirkju (endurtekið á
þriðjudagskvöld). Þar flytur
ræðu GIsli Magnússon i Eyhild-
arholti, Snæbjörg Snæbjarnar-
dóttir syngur við undirleik ólafs
Vignis Albertssonar og Kirkju-
kór Sauðárkrókskirkju syngur
undir stjórn Jóns Björnssonar
frá Hafsteinsstöðum, en undir-
leikari er Marla Asbjörnsdóttir.
Leikfélag Skagfirðinga
skemmtir á vikunni á vegum
verkakvennafélagsins öldunnar
og sýnir sjónleikinn Borðdans og
biómyndir; blandaður kór fram-
an úr Skagafirði syngur undir
stjórn Sven Arne Korshamn og
Ómar Ragnarsson leikur viö
hvern sinn fingur.
A laugardaginn 22. mars
syngur Samkór Sauðárkróks
undir stjórn Lárusar Sighvats-
sonar, en undirleikari er
Rögnvaldur Valbergsson—mhg
Skák-
manna-
boð
Sovéski sendiherrann á
Islandi, Stretsov, hélt boð
inni fyrir þátttakendur í
nýafstöðnu Reykjavíkur-
skákmóti. Þær myndir
sem hér fylgja voru tekn-
ar við það tækifæri.
Hinn nýbakaði stórmeistari og sigurvegari I Reykjavlkurskákmót-
inu Kúpreitsjik glaðhlakkalegur á svip 1. t.v.Siöan koma: Stretsov
ambassador, Friörik Olafsson forseti FIDE og stórmeistarinn Vas-
júkov. (Ljósm:. — gel —)
Hér ræða þeir saman f.v. sovéski ambassadorinn Stretsov, stór-
meista'rinn Vasjúkov, Margeir Pétursson og Jón L. Árnason.