Þjóðviljinn - 20.04.1980, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 20.04.1980, Blaðsíða 5
Sunnudagur 20. aprll 1980 ÞJÓÐVILJJNN — SIÐA 5 Svíar og Hollendingar sýna kvikmynd um dauða arabískrar prinsessu dauða prinsessunnar. Saudi-Arabía hótar þeim olíusölubanni Bresk sjónvarpskvik- mynd/„Dauöi prinsessu'ý hefur vakið mikinn úlfaþyt i Arabalöndum og orsakað erfiðleika á stjórnmála- sambandi Saudi-Arabiu og ýmissa þjóðlanda. Myndin f jallar um opinbera aftöku prinsessu frá Saudi- Arabiu, og er að dómi þar- lendra stjórnvalda móðgun við konungsf jölskyldu Saudi-Arabíu og við þjóð- ina i heild. Saudi-Arabia hefur nú hótað að leggja niður oliusölu til m.a. Hol- lands sem sýndi kvikmyndina s.l. miövikudagskvöld og Bretlands, sem sýndi myndina fyrir rúmri viku, og segja upp viðskipta- samningum við Sviþjóð sem lýst hefur þvi yfir að myndin veröi keypt til sýninga i sænska sjón- varpinu innan skamms. „Dauði prinsessu” fjallar að hluta til um óhugnanleg örlög 19 ára gamallar prinsessu, Mishu að nafni, og aö hluta til um eitt arabalandanna, Saudi-Arabiu, sem Vesturlönd þekkja litið til en eru þó háö i miklum mæli vegna oliukaupa þaðan. Myndin er gerð af breska heim- ildakvikmyndamanninum Anthony Thomas sem er heims- frægur fyrir vel gerðar sjón- varpsmyndir, m.a. um Arabalönd og sem sýndar hafa verið um heim allan. Myndin sýnir atriði úr bresku sjónvarpskvikmyndinni „Dauði prinsessu". Myndin var sýnd I bresku sjónvarpi fyrir rúmri viku og orsakaði harðorð mótmæli frá yfirvöldum I Saudi-Arablu. Arabísk Rómeó og Júlía Söguþráður myndarinnar er i eins konar Rómeó og Júliu-stil, en byggir i reynd á sannri sögu sem átti sér stað 1977. Að baki heim- ildarmyndarinnar felast viðtöl við 27 manneskjur sem allar þekktu vel til ungmennanna tveggja sem sagan fjallar um. Misha prinsessa var barnabarn Múhammeðs, bróður Kahlids konungs i Saudi-Arabiu. Misha var uppáhald konungsins og eftir- lætiallrarhirðarinnar. Henni var gert að giftast frænda sinum aðeins barn að aldri að sið Múhammeðstrúarmanna. Hún felldi aldrei hug til frænda sins en fékk litlu þar um ráðið. Fram liðu stundir og fór prinsessan til náms við háskóla i Libanon. Þar varð hún yfir sig ástfangin af ungum, fátækum stúdent og fluttu þau saman. Þar með hafði hún brotið allar þær reglur sem arabiskur kvenmaður getur brotið. Hún var „ótrú sinum ekta- maka”, fór gegn vilja foreldr- anna, þverbraut lög þjóðfélagsins og vanvirti islamska trúarsiði. begar foreldrar Mishu komust á snoðir um hið nýja lif hennar, var henni þegar stefnt heim til Saudi- Arabiu. Dæmd til dauða f stað þess að hlaupa frá unga elskhuganum sinum Musleh, og mæta fjölskyldunni full iðrunar, tók Misha ástmann sinn með sér til Saudi-Arabiu og sýndi hann upp i opið geðið á fjölskyldunni, og sagðist aðeins elska hann. Afi hennar, konungsbróðir, dæmdi þau umsvifalaust til dauða. Þau voru tekin samtimis af lifi á opin- beru torgi i viðurvist almennings. Anthony Thomas heyrði þessa sögu i London, og sagði hana maður sem hafði orðiö vitni að aftökunni. Thomas varð þegar fullur áhuga og ákvað að gera kvikmynd um Mishu. 1 tvö ár ferðaðist hann viða og sótti heim vini, ættingja og kennara Mishu sem veittu honum upplýs- ingarnar sem myndin byggir á. Upphaflega hafði Thomas hugsað sér að gera kvikmynd um örlög prinsessunnar en smám saman opnaöist heimur Arabalandanna fyrir honum og myndin fékk æ meir á sig blæ þjóöfélagslýsingar. Andstæður Mynd Thomas er lýsing á þeim sterku andstæðum er rikja i Arabalöndum. Islamtrú er stillt gegn spilltri konungafjölskyldu; andstæðum kynslóða lýst, sonurinn sem hefur hlotiö háskólamenntun á Vesturlöndum og faðirinn sem aldrei hefur ferðast lengra en tlu kilómetra á asnabaki, og trúir að jörðin sé flöt. Myndin fjallar um gamalt, lokað valdaþjóðfélag séð i ljósi Framhald á bls. 21 KYNNIIMGARFUIMDIR LANGUAGE Kvikmyndasýningar---- g™ (ÍTI ANGLO-CONTINENTAL EDUCATIONALGROUP -------------- Lærið ensku í Englandi Efnt verður til kynningarfunda á ACEG og LTC skólunum í Bretlandi sem hér segir: AKUREYRI: 23. apríl kl. 20.30 í Hótel Varðborg VESTM.EYJAR: 24. apríl kl. 17.00 og 20.30 í Alþýðuhúsinu SELFOSS: 25. apríl kl. 20.30 í Selfossbíó KEFLAVÍK: 26. apríl kl. 14.00 í Félagsh. Stapa,Njarðvík REYKJAVÍK: 27. apríl kl. 14.00 í Kristalsal Hótel Loftleiða AKRANES: 28. apríl kl. 20.30 í Félagsheimilinu Reyn Sérstakar hópferðir: Norman Harris sölustjóri ACEG og Peter O. Penberthy sölustjóri LTC mæta á öllum fundunum. Sýndar verða kvikmyndir frá skólun- um og þeir kynntir. öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. Þeir sem hafa bókað sig á skólana sér- staklega boðnir. Tekið er á móti nýjum nemendum á öllum fundunum og afhent kynningar- gögn. Verð um 400.000.— 3 vikur Hægt að framlengja 10. mai, 1. júní, 22. júní, 13. júlí, 4. ágúst, 24. ágúst og 14. sept. Flogið á Heathrow með Flugleiðum. Ekið með ACEG-vögnum á gististaði Einkaheimili. 19 tímar vikulega á skólanum. Hálft fæði kennsludaga Fullt fæði um helgar. Einka herbergi. Feróaskrilstota KJARTANS HELGASONAR Gnoðarvogi 44 — 104 Reykjavík Simar 86255 & 29211 Allt innifalið í verði. I nútíma þjóðfélagí er enska orðin bráðnauð- synieg og vísindum f leygir ört fram. An ensku er vart hægt fyrir smá þjóðir eins og okkur að tileinka sér þau. Mjór er mikils vísir Lærið undirstöðuatriðin á NOVIA School það opnar leiðina að öðru og meira námi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.