Þjóðviljinn - 20.04.1980, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 20.04.1980, Qupperneq 7
Sunnudagur 20. aprll 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 Bíósaga Keflavíkur eða menningar- stefnan sem hvarf Háværar raddir halda þvi fram, aö lslendingar hafi ekki full mannréttindi nema þeim sé leyft aö reka auglýsingasjón- varp og útvarp. 1 þvi samhengi dettur mér i hug aö segja kvikmyndasögu byggöarlags. Ariö 1935 brann samkomuhús- iö Skjöldur i Keflavik og þar meö tæki sem þurfti til aö bjóöa upp á bió á staönum. Þá átti I vasanum kvikmyndasýninga- leyfi kaupmaöur einn sem Eyjólfur hét Ásberg. Ariö 1936 samdi hann viö Verkalýös- félagiö á staönum, sem haföi hug d aö koma sér upp sam- komuhúsi. Hann leigöi húsiö fyrirfram til tiu ára til kvik- myndasýninga og greiddi fyrir- fram leiguna, sem dugöi all- langt til þess aö koma „Verkó” upp á einu ári. I árslok 1940 byrjar aö koma útblaöi Keflavik sem Faxiheit- irog er enn viö lýöi. Útgefendur voru 12 „postular” sem höföu stofnaö meö sér málfunda- félag. „Kennurum og kaup- mönnum, fannst kvöl aö standa i staö, þeir grófu þvi upp gamla stílaog gáfu út Faxablaö” yrk- ir einn þeirra, Kristinn Keyr. Þessi menningarmafia sem nú myndi svo nefnd byr jaöi strax á þvi aö fjalla um kvikmyndir. HallgrimurTh. Björnsson reiö á vaöiö, kennari viö barna- skólann. Hann hefur miklar áhyggjur af þvi, aö siöferöilega og menningarlega sé kvik- myndin „tvieggjaö vopn sem handleika veröur meö varúö”. Hann segir: „Stundum sjáum viö myndir sem eru i senn göfugar og fagrar, þær lyfta huganum i æöra veldi... Aörar eru aftur á móti ljótar. Hugsandi mönnum vekja þær ugg og óhug, en geta leitt barniö og æskumanninn á glapstigu”. Tilgangur greinar Hallgrims var annars fyrst og fremst sá, aöleggja þaö til aö i Keflavikur- hreppi veröi skipuö nefnd til aö fylgjast meö þvi aö börn séu ekki á tilteknum kvikmynda- sýningum og yfirleitt „hafa eftirlit meö kvikmyndasýning- um fyrir börn”, og er visaö til fordæmis Reykvikinga i þvi efni. Menningartæki Rúmu ári siöar, 1942, er efnt til sveitarstjórnarkosninga. Þá gerast þau tiöindi aö kvikmyndamálin veröa eitt af þvi sem frambjóöendur eru spuröir um. Ungur kenn- ari, Valtýr Guöjónsson, sem á nokkru siöar eftir aö veröa helsti foringi Framsóknar- flokksins I byggðarlaginu, skrifar grein þess efnis aö þaö sé „alheilbrigðasta fyr- irkomulagiö á biórekstrinum bæöi fjárhagslega og menn- ingarlega séð, aö hreppsfé- lagið annist hann aö öllu leyti sjálft”. Valtýr færir rök fyrir sinu máli: „Kvikmynd- in er kenningartæki, hún er skóli. Hreppsfélagiö hlýtur aö finna sig ábyrgara fyrir þvi, hvaö veriö er aö sýna heldur en einstakur maður sem aö vonum hlýtur aö taka tekjuhliðina fram yfir annaö aö ööru jöfnui’. Valtýr telur og aö kvikmynda- sýningar séu viss og rifleg tekjulind i plássi (sem n.b. vantaöi tilfinnanlega skólahús, sjúkrahús, og margt fleira) en hannsegir: kvikmyndin „á ekki fyrst og fremst aö vera féþúfa heldur tæki sem beitt er i baráttunni fyrir menningarleg- um framförum”. Annar kenn- ari, Ragnar Guöleifsson, for- maöur Verkalýösfélagsins og foringi Alþýöuflokksins I Kefla- vik áratugum saman er alveg á sama máli: Kvikmyndin er uppeldis- og menningartæki og þvi „best komin I höndum hins opinbera”. Og: hann vill einnig aöhinar „vissu tekjur” af kvik- myndasýningum komi plássinu I heild til gdða. Forystumenn Framsóknar og Alþýöuflokks I plássinu eiga eftir aö Itreka þessa afstööu siöar i Faxa. Danival Danivals- son (4. tbl. 1944) og Ragnar Guöleifsson (8. tbl. 1945). Hann visar til Akraness og Hafnar- fjarðar sem fyrirmynda um bæjarrekstur i kvikmyndahús- um og hann Itrekar menningar- legt mikilvægi kvikmynda og telur bersýnilega mjög var- hugavert aö afhenda þær „kaupsýslumönnum” sem hafa mest hugann við aö græöa á skemmtunum. Málaferli 1942 haföi hreppsnefndin reyndar lent i nokkru striöi viö Ásberg þann sem bióiö rak i húsi Verkalýösfélagsins. Hreppsnefndin haföi samþykkt aö leggja sérstakt leyfisgjald á kvikmyndasýningar, 100 kr. á fulloröinssýningu og 24 kr. á barnasýningu (þá kostaöi 1.75 kr. I bió). Bióhaldarinn haföi þá hækkaö miöaverö I tvær krónur, enneitaðiaö greiöa gjaldiö.Þaö Árni Bergmann skrifar væru ekki fordæmi fyrir því og þaö væri alltof hátt reiknað. All- ir hreppsnefndarmenn (einnig Sjálfstæöismenn) viröast hafa veriö fylgjandi gjaldinu. Uröu málaferli úr, sem Alfreð Gisla- son lögreglustjóri (siöar þing- maöur Sjálfstæöisflokksins) sótti fyrir hreppinn. úrskuröur féll ekki fyrr en 1944 og var bió- haldarinn dæmdur saklaus, hreppurinn sat uppi slyppur. Tvö hús 1947 er svo komiö, aö Eyjólfur Asberg hefur reist hús yfir rekstur sinn, en bæjarfélagiö tekur viö gömlu sýningarvél- um hans og aöstööunni i Verka- lýösfélagshúsinu. Um þetta seg- ir Valtýr .Guðjónsson I 1. tbl. Faxa 1947 — og kveöur nú viö nokkuö annan tón en áöur: „Meöan svo háttar aö ein- staklingar hafa áhuga óg tæki- færi til aö reka kvikmyndahús fer hinsvegar ekki illa á að opin- ber rekstur og einstaklings- rekstur á kvikmyndasýningum sé haföur um hönd samhliöa”. M.ö.o.: fyrri tilhlaup til aö fitja upp á sérstakri kvik- myndstefnu hafa vikiö fyrir almennum formúlum Framsóknarflokksins I svipuö- um anda og þeim, aö SIS og kaupmenn skipti meö sér verslun. Bæjarreksturinn stóö I þrjú ár en mun hafa gengið illa, m.a. vegna þess aö Verkó var þá orö- iömjög úrelt hús til kvikmynda- sýninga. — Nýja bió Asbergs haföi þar mikiö forskot. Reksturinn lá svo niöri i nokkur ár, þar til húsa sem formlega var eign i hlutafélags, sem Verkalýösfélagiö átti mest i, var stækkaö og stofnaö Félags- bió. Eru upp frá þvi tvö kvikmyndahús I bænum og Ragnar GuÖleifsson minnir á þaö I viötali, að Verkalýösfélag- iö I Keflavik sé þaö eina á land- inu sem eigi aöild aö kvik- myndahúsrekstri. 77/ hvers? Þessi einfalda saga er blátt áfram um þaö, aö oddvitar tveggja flokka sem hafa verka- lýðshreyfinguog samvinnufélög á sinni könnu, hverfa frá mjög ákveönum hugmyndum um félagslegan rekstur á kvik- myndahúsi i nafni menningar og ábata. Astæöurnar eru aö lik- indum fjárhagslegar sumpart: sá rekstur sem á striösárunum sýndist fundiö fé, varö um tima hæpinn — bæöi vegna forskots einkarekstrarins og vegna mannfæöar I tvö hús. En eink- um og sérilagi er rétt aö gefa gaum aö þvi, aö þótt aö hinir pólitisku kennarar i Keflavik hafi tekið mjög hressilega til oröa um menningarstefnu og kvikmyndir, þá veröurekkert af tali þeirra ráöiö um þaö, hvaö inntak þeirrar stefnu átti aö vera (nema kannski aö sporna gegn ofbeldiskvikmyndum 1 nafni barna- og unglingavernd- ar ). Þaö er eins og þaö hafi i raun aldrei komist á dagskrá, hvaöa kvikmyndir þessir félagslega þenkjandi menn helst vildu (og þeim var aö þvi leyti vorkunn, aö þegar þessi umræöa hófst i byrjun striösins er sjálfsagt úr mjög einhliöa Hollywoodframboöi aö moöa). Reyndar kemur einn spyrjandi Faxa inn á þetta i viötali viö Ragnar Guöleifsson 1973 (bls 25): „Mér hefur fundist aö Félags- bió hafi borið nokkuð af leiö þeirra hugsjóna sem mörkuöu stefnuna á fystu árum hússins, og þaö naumast tilgang aö reka kvikmyndashús til þess eins aö láta þaö bera sig fjárhagslega”. Þaö er nefnilega það. Ragnar svarar á þá leiö aö hans menn „reynum aö halda okkur viö upphaflegan tilgang, þótt I breyttri mynd sé”. Hann á þá viö, aö ágóöanum af Félagsbió skuli variö til ýmislegra félags- legra málefna, t.d. aö búa fólki meö skerta starfsgetu sama- staö. Þaö getur aö sjálfsögöu veriöágætt, en þarna er aöeins rætt um ráöstöfun peninga, en ekki menningarstefnu. Enda held ég satt best aö segja, aö þaö hafi aldrei veriö sýnilegur munur á hinum keflviksku bióum eftir aö þau uröu tvö — biói sem Verkalýðsfélagiö ræö- ur mestu um og svo Nýja biói afkomenda Eyjólfs Asbergs. Þetta er kannski ekki sérlega spennandi saga, en mér finnst samt aö hún segi þátt i fróö- legri en dapurlegri sögu. Verka- lýöshreyfingin reyndi á sinum tima ýmislegt til aö láta aö sér kveöa um tómstundir sins fólks, skemmtanir, menningarlif. Þaö risu alþýöuhús i sjálfboöavinnu frá Bologniu og noröur fyrir Þrándheim og i þeim hefur upp á mörgu veriö fitjaö. En þrátt fyrir einstaka fjörkippi (t.d. feröalög samvinnuleikhópa rót- tækra milli alþýöuhúsa á Italíu) þá hefur sú þróun oröiö viöa, aö frumkvæöi tengt slikum húsum hefur dofnaö, eöa þá aö starf- semin hefur glataö öllum sér- kennum. Hér á Islandi hefur sama saga gerst, kannski meö þeim sérkennum þó, aö þrátt fyrir yfirlýsingar um góöan vilja, er eins og I ýmsum efnum hafi f raun og veru aldrei veriö af staö fariö. Biósagan frá Keflaviker eittaf þvi sem rekur okkur til slikrar ályktunar. —AB * sunnudlags pistíll erlendar bækur L'Enracinement Prelude a une déclaration des devoirs envers l’étre humain. Simone Weil. Gallimard 1977. Bók þessi kom út I fyrstu hjá Gallimard 1949 og er nú endur- prentuö. Rótfestun eða þröfin fyrir rætur er nokkurs konar inn- gangur aö yfirlýsingu um skyldurnar gagnvart mannkyn- inu, eins og segir I undirtitli. Sinone Weil er talin hafa verið meöal merkustu hugsuöa 20. ald- ar, bækur hennar og dagbækur eru ákaflega sérstæðar og gáfur hennar sjaldgæfar.Þessi bók var rituð snemma á árinu 1943, Simone Weil dvaldi þá i London vegna ófriöarins. Þetta er meö þvi siðasta sem hún skrifaöi, þvi hún dó um haustiö. Frumkvæöiö aö ritun bókarinnar var runniö frá áhrifamönnum meöal félags- skapar frjálsra Frakka i London og var óskaö eftir aö höfundur fjallaöi um siöræna endurhæfingu Frakka eftir styrjöldina. Simone Weiltók þegar aö skrifa og þannig varö bókin til. Höfundurinn fjall- ar I fyrstu um skyldur og réttindi, reglu.frelsi, hlýðni, ábyrgö, jafn- rétti etc..Hún talar um aö æöst þarfa sálarinnar sé hlýöni og skylda. Rétturinn komi síöar. An hlýöninnar og skyldunnar nálgast maöurinn þau einkenni sem hljóta alltaf aö vera ómennsk, og leiöa hann til ófarnaöar. Undrun- in segja margir spakir menn aö sé lifsvökvinn og á næstu grös- um er virðingin. Sviniö i stiunni undrast aldrei, þess heimur er drafiö og einnig þeirra sem gegna hliöstæöu hlutverki I mannheimi, snuöra i drafinu eftir þeim mýra- ljósum sem nú þykja eftirsóknar- veröust. Rótleysi nefnir höfundur aöra ritgeröina og i þriöju greininni fjallar hún um fótfestu. Þessi bók var ætluö eftirstríöskynslóöinni á Frakklandi og hún á erindi til þeirra sem halda vöku sinni eða hafa ekki ennþá undirgengist soramennsku markaössam- félagsins. The Dutch Revolt Geoffrey Parker. Penguin Books 1979. Hollendingar eru merk þjóö og hafa löngum verið. t>eir hófu fyrstir Evrópuþjóöa landnám meö uppþurkun hafsins, þeir hafa löngum veriö bestir bændur i Evrópu, þeir gera betra súkku- laði en aörar þjóðir og i fjölmörg- um öörum iönaði og úrvinnslu skara þeir framúr. Sem fiski- menn eru þeir fengsælir og i öll- um atvinnuháttum eru þeir þrifa- menn. Þeir hafa gert bestar myndir og merkasti málari allra tima er Rembrandt og eiga þó marga aöra ágæta listamenn. Bylting Hollendinga gegn valdi Spánar er meöal þýöingarme§tu atburöa Evrópusögunnar og i þessari bók rekur Parker for- sendur þeirrar byltingar af skýr- leika og nákvæmni. Bók þessi hlaut ágæta dóma þegar hún kom út 1977 og á þá alla skiliö. Music and Silence Anne Redmon. Secker and Warburg 1979. Þetta er önnur bók Onnu Red- mon. Fyrsta bókin, Emily Stone, þótti merkilegt byrjandaverk, og i þessari skáldsögu sinni tekst henni eins og i fyrstu skáldsögu sinni aö móta heim, sem ein- kennist af sérstæöu andrúms- lofti. Tvær miöaldra konur koma hér viö sögu ásamt fortiö þeirra og gesti sem vekur upp liöna at- buröi. Endurminningarnar streyma fram I huga annarrar aöalpersónunnar og togstreita góöra og illra afla svipta henni til djúpa og hæða. örlög þessara tveggja kvenna hafa leitt aöra þeirra til þess aö öölast fróun i þögninnvhina til þess aö leita full- nægjunnar I hljómum. Og eins og oft vill veröa þá finna þær báöar annað en þær leituðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.