Þjóðviljinn - 20.04.1980, Síða 9
hyggja hennar fyrir Hoa-fólki,
sem býr utan landamæra Kina.
T.d. útrymdi Pol Pot flestum
þeim 200 þúsund Hoa sem bjuggu
I Kampútseu, meöan hann var viö
völdþar, og þá hreyföu Kinverjar
ekki litla fingur til aö hjálpa
þeim, heldur studdu þeir Pol Pot.
Andlit allra i verksmiöjunni
bera merki um þennan tvöfalda
þegnskap. Svipur þeirra er einsog
á börnum sem fullorönast skyndi-
lega á heimili þar sem faöirinn
hótar að drepa móöurina.
Auk þessarar óbætanlegu
sorgar búa menn við áhyggjhr "af.
hversdagslegra tagi. Þær snúast
um sjálfa framleiösluna. Véla-
kosturinn rýrnar, vefstólar og
spunavélar stöövast. Þaö vantar
varahluti — og Víetnamar fá ekki
lengur að flytja þá inn frá þeim
löndum þar sem vélarnar eru
framleiddar: Bandarikjunum,
Vestur-Þýskalandi, Japan.
Verkamennimir reyna aö ráöa
bót á þessu með þvi aö taka eina
vél i sundur og nota hluta úr henni
til viðgerðar á öörum vélum.
Þannig er hægt aö koma þeim i
gang og þær geta dugaö um
tima, en aö lokum hljóta þær aö
gefast upp.
Annaö áhyggjuefni er hráefniö.
Nælonþráöur var fluttur inn frá
Japan og bómull frá Hongkong.
„Stundum fáum viö ekkert,
stundum eitthvert smáræöi eftir
langar og lamandi tafir”.
— En viö erum byrjuö aö rækta
bómull i Vietnam. Það kemur af
þvi að við fáum hráefni af okkar
eigin bómullarekrum.
Þessi bjartsýni er nýtilkomin.
— En hvernig þetta endar
heima hjá mér, það veit ég ekki,
— segir Voung To Nu. — Stjúp-
móöir min talar um að fara burt i
hverri viku. Þá leikur allt á reiði-
skjálfi, svo manni finnst maöur
vera kominn út á haf aö nætur-
lagi...
Sem gestur veltir maður þvi
fyrir sér, af hverju þessir vefarar
eigi aö lifa, ef Vietnamar fá ekki
brátt aö flytja inn tækjabúnaö i
klæöaverksmiöjur sínar. Veröa
þeir atvinnulausir?
Við hittum dr. Nguyen Vinh
Myo, hagfræöing, sem segir
okkur frá afleiöingum verslunar-
bannsins. Hann talar um skort á
áburöi og tækjum til aö fjarlægja
jarösprengjur, sem Vietnamar
þarfnast til aö geta brotiö nýtt
land til ræktunar. Hann talar um
erfiöar samgöngur, sem stafa af
þvi aö bilar og strætisvagnar
standa I rööum, ónothæfir, þótt
þeir séu alls ekki útslitnir.
— Bandarikjamenn komu meö
þessa bila og geröu okkur háöa
þeim, og nú neita þeir aö selja
okkur varahluti i þá. Og ekki nóg
með þaö: þeir banna lika öðrum
löndum að selja okkur ýmsar
nauösynjavörur.
— Viö höfðum t.d. bundiö
miklar vonir viö oliulindir úti
fyrirströndum okkar. Viö vildum
gjarnan hefja samstarf viö
bandarisk fyrirtæki á þvi sviöi,
vegna þess aö i friðar-
samningunum var kveöiö á um
eölileg samskipti landanna. En
stjórn Bandarikjanna kemur i veg
fyrir þetta. Oliufyrirtæki I öörum
löndum hafa ekki fengiö aö kaupa
tækjabúnaö, sem Bandarikja-
menn hafa einkaleyfi á, til að
bora fyrir okkur. Af þessum
sökum hefur oliuleitinni seinkaö
og sum fyrirtækin hafa dregið sig
til baka.
Önnur lönd
Þegar Bandarikin settu versl-
unarbann á Vietnam var sú
ástæða gefin upp að nokkurra
bandarlskra hermanna væri
saknað þar, og aö ekki væri unnt
aðkoma á eölilegum samskiptum
milli landanna fyrr en vietnömsk
stjórnvöld heföu gert grein fyrir
örlögum hinna horfnu á viðunandi
hátt.
En hvaöa ástæður hafa önnur
lönd til aö taka þátt 1 verslunar-
banninu?
Allan þann tima sem Banda-
rikin herjuöu á Vietnam neitaöi
ekkert land aö selja Bandarikja-
mönnum vélar með skirskotun til
alþjóöaréttar. Þeim var ekki
einusinni neitaö um hergögn.
Getur þaö i alvöru stafað af
umhyggju fyrir mannréttindum
aö riku löndin styðja Bandarikin I
tilraun þeirra tU aö svelta Viet-
nama i hel?
Sara Lidman
John Sune Carlson
(þýö. — ih)
Sunnudagur 20. aprll 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Aöalhlutverkiö I Blikktrommunni leikur tólf ára drengur, David Bennent.
Sally Field i hlutverki Normu Rae.
Óskarsverðlaun fyrir
,, vandamálamy ndir”
Ingibjörg Haraldsdóttir skrifar um kvikmyndir
Þau merku tíðindi
gerðust s.l. mánudags-
kvöld vestur í Los
Angeles, að Óskarsverð-
laun voru afhent fyrir
kvikmyndir, sem flestum
ber saman um að séu
athygl isverðar. Þótt
Óskarsverðlaunaaf hend-
ingin á ári hverju hafi
lengi verið afar auglýst
fyrirbæri hefur hún ekki
notið neinnar sérstakrar
virðingar í hópi ,,hinna
vandlátu": oft hefur
þetta verið einbert skrum
og hégómi. En nú bar svo
við að alvarlegar og
heiðarlegar ,,vandamála-
myndir" voru verðlaun-
aðar í bak og fyrir.
um lýkur meö þvl aö móöurinni
er dæmdur yfirráöarétturinn.
Karlmanns-
vakning
i danska timaritinu Levende
Billeder er fjallað ýtarlega um
þessa merku mynd, og þar segir
gagnrýnandi að tilfinningalegur
boðskapur myndarinnar stand-
ist, en lögfræðilhliðin á málinu
sé heldur vafasöm. Hinsvegar
skipti réttarhöldin sem slik ekki
meginmáli. Hér sé fyrst og
fremst veriö aö fjalla um
tilfinningalega vakningu karl-
biöum spennt eftir að hún birtist
i kvikmyndahúsum hérlendis.
Verkalýðsmynd
Leikkonan Sally Field fékk
verðlaun fyrir besta leik i aðal-
hlutverki. Hún lék tiltilhlut-
verkið i myndinni „Norma
Rae”, sem er lika „vandamála-
mynd” og fjallar um verka-
lýðsbaráttu. Norma Rae vinnur
i spunaverksmiðju i Suðurrikj-
unum og berst ótrauð fyrir rétt-
indum sjálfrar sin og starfs-
félaga sinna. Sumir gagn-
rýnendur hafa verið fremur
tregir tiíaö hrósa myndinni og
segja hana of ,,sykursæta”,en
beinlinis efst á vinsældalistan-
um I Hollywood.
A Norðurlöndunum hefur
„Norma Rae” fengið afbragðs-
góða dóma, og vonandi fáumvið
lika að sjá hana hér heima ein-
hverntima bráðum.
Blikktromman
Besta erlenda myndin var
kosin „Blikktromman” eftir
Vestur-Þjóðver jann Volker
Schlöndorff, og er hún byggð á
samnefndri skáldsögu eftir
Gilnther Grass. Þessi mynd
hefur farið einog eldur i sinu
um alla V-Evrópu undanfarna
mánuði og hvarvetna hlotið hið
mesta lof. Reynt var að fá hana
Sú mynd sem flest verðlaunin
hlaut „Kramer gegn Kramer”,
fjallar um hjónaskilnað og
deilur foreldra um yfirráðarétt
yfir barni. Þessi mynd mun nú
vera á góðri leið með að slá öll
aðsóknarmet i Bandarikjunum,
og hún hefur hlotið frábæra
dóma gagnrýnenda bæöi þar og
annarsstaöar þar sem hún hefur
veriö sýnd.
Robert Benton stjórnar kvik-
myndinni og er jafnframt
höfundur handritsins. Aðalhlut-
verkið, Ted Kramer, leikur
Dustin Hoffmann. Sögu-
þráðurinn er i stuttu máli á
þessa leiö:
Ted Kramer er ungur maður
á uppleið i auglýsingabrans-
anum. Hann á heimavinnandi
eiginkonu, Joanna (leikinn af
Meryl Streep),og einn son, Billy
(Justin Henry). Ted hefur
engan tima aflögu fyrir
fjölskylduna og konunni finnst
hún afskipt. Hún er óhamingju-
söm og tekur til þess ráðs aö
fara að heiman. Ted situr uppi
með son sinn og tekur við hlut-
verki hins einstæða föður. I
fyrstu gengur allt á afturfót-
unum en smám saman rennur
upp fyrir honum að samskiptin
viö Billy eru mikilvægari en
starfið og framinn.
Ari eftir skilnaðinn kemur
Joanna aftur og krefst þess aö
fá yfirráðarétt yfir Billy. Hún
hefur fundið sjálfa sig og finnst
sem hún geti nú tekið á sig þá
ábyrgð sem fylgir móðurhlut-
verkinu. Ted vill ekki láta
strákinn af hendi, og dóm-
stólarnir eru látnir kveöa upp
úrskurö i málinu. Réttarhöldun-
hingað á kvikmyndahátlð Lista-
hátiðar i febrúar s.l., en tókst
ekki.
Blikktromman fékk lika
verðlaun i Cannes, sjálfan gull-
pálmann sem hún deildi reynd-
ar meö Apocalypse Now. Eftir
Volker Schlöndorff hafa verið
sýndar hér myndirnar „Náðar-
skotið” (i Fjalakettinum) og
„Glötuð æra Katrinar Blum”..
Hann er einn af „nýbylgju-
mönnunum” svonefndu i v-
þýskri kvikmyndagerð, og hefur
verið mjög ört vaxandi lista-
maður á siðustu árum.
Ýmsir fleiri fengu óskars-
verðlaunin i ár en hér verður
ekki fjallað um þá að sinni.
Dustin Hoffmann leikur einstæðan fööur i „Kramer gegn Kramer ”
mannsins, og rétt hans til að
vera faðir. Þrátt fyrir það sé
rangt að túlka myndina sem
andstæðu kvenfrelsissjónar-
miða ( en það hafa feministar
reyndar gert, a.m.k. i Þýska-
landi). Danski gagnrýnandinn
segir að i myndinni sé haldið
uppi vörnum fyrir rétti kon-
unnar til aö vilja ekki vera
móðir. Ástæðunum fyrir brott-
hlaupi hennar sé einnig lýst af
greinilegri samúð.
Það væri synd að segja að
myndir um vitundarvakningu
karlmanna flæddu yfir mark-
aðinn, og þvi hlýtur að vera
mikill fengur i þessari marg-
verðlaunuðu óskarsmynd. Við
yfirleitt hefur hún þó veriö talin
gagnlegt framlag til þess sem
hægt væri að nefna „verkalýðs-
myndir” og „kvennamyndir”.
Sally Field fékk einnig verö-
laun fyrir leik sinn i þessari
mynd á siðustu Cannes-hátið.
Leikstjóri er Martin Ritt, og var
hann einn þeirra Hollywood-
leikstjóra sem settir voru á
svartan lista á McCarthy-tim-
anum og fékk ekki að gera kvik-
myndir árum saman. Hann
hefur áður gert myndir um
verkalýðinn, og einnig hefur
hann fjallaö um kynþáttafor-
dóma og fátækt. Allt eru þetta
viöfangsefni sem eru ekki