Þjóðviljinn - 20.04.1980, Síða 13

Þjóðviljinn - 20.04.1980, Síða 13
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 20. aprll 1980 Sunnudagur 20. aprll 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13 „SagOi ekki einusinni írá þvl heima, þegar ég byrjaöi I leiklistinni.” ,,Einhvernveginn finnst mér ég eiga dálitla hlutdeild I þessu. / Snæfríður Islandssól og Helga smalastúlka Tinna Gunnlaugsdóttir leikur stærsta kvenhlut- verkið í leikritinu Smala- stúlkan óg útilegumennirn- ir, sem frumsýnt verður á sumardaginn fyrsta í til- efni af 30 ára afmæli Þjóð- leikhússins. Svo skemmti- lega vill til, að móðir Tinnu, Herdís Þorvalds- dóttir, lék Snæfríði Islandssól í tslandsklukk- unni, sem var eitt af þrem- ur fyrstu verkum er sýnd voru j Þjóðleikhúsinu, og frumsýnt 22. april 1950. Við Gunnar ljósmyndari heimsóttum þær mæðgur á heim- ili Herdisar við Dunhaga einn daginn i siðustu viku. Það hafði ekki reynst auðvelt að finna tima fyrir viðtalið, þar sem þær eru báðar önnum kafnar, en loks tókst mér að troða mér inn i „gat á stundarskránni” einsog kennararnir segja. Við töluðum fyrst um tslandsklukkuna og upp- haf Þjóðleikhússins. Byrjunin — Þú hafðir leikið mörg hlut- verk áður, Herdis, var það ekki2 Hvernig byrjaði þetta? — Jú, ég var búin að leika frá þvi ég var krakki, lék fyrst 9 ára hjá barnastúku i Hafnarfirði, og i mörgum unglingaleikritum eftir það. En fyrsta „alvörusýningin” sem ég lék i var Nitouche i Iðnó 1941, þá var ég 17 ára. Eftir það lék ég i mörgum sýningum i Iðnó og i Gúttó i Hafnarfirði. Haraldur Björnsson leikstýrði Nitouche, og ég fór á námskeið hjá honum og læröi ýmis undir- stööuatriði i leiklistinni. Seinna setti Lárus Pálsson á stofn leiklistarskóla og þar var ég i 2-3 vetur. Ég held áreiðanlega að þetta hafi verið fyrsti islenski leiklistarskólinn. Timarnir voru tvisvar i viku, tvo tima i senn. Þar lærðu margir leikarar sem eru á minum aldri. Seinna fór ég til London og lærði við Royal Academy of Dramatic Art. Aður en Þjóðleikhúsið kom til sögunnar höföu ungir leikarar ekki mikla möguleika á að fá hlutverk, en með tilkomu Þjóð- Gunnlaugur Egilsson með mömmu sinni og ömmu. góður hópur, og i honum rikti jákvæður vinnuandi. Ég held að samstaðan hljóti að hafa verið betri en ella, vegna þess að hópurinn myndaðist af sjálfu sér. Við vorum búin að vera saman i SAL i heilan vetur áður en við komum inn i skólann, og það hlýt- ur að skapa betri anda en þegar fólk kemur úr öllum áttum og er valið af prófnefnd. — Og svo hefuröu verið að leika, siðan þú laukst prófi? Tinna: Já. Það má eiginlega segja að þetta hafi verið tröppu- gangur hjá mér. Ég byrjaði i Lindarbæ, fór siðan niður i Iðnó, þá á litla sviðið i Þjóðleikhúsinu, og nú leik ég i fyrsta sinn á stóra sviðinu. Herdis: Þetta er svipað og hjá mér. Ég byrjaði i Gútto i Hafnar- firði, fór þaðan i Iðnó og svo i Þjóðleikhúsið. Smalastúlkan — Hvað geturðu sagt mér um afmælisleikritið, Smalastúlkuna og útiagana? Tinna: Þorgeir Þorgeirsson gróf upp þetta handrit Sigurðar málara á Þjóðminjasafninu, og samdi leikritið eftir þvi. Þetta er rómantiskt verk, en i þvi er jafn- framt þjóðfélagsleg meðvitund, og það gagnrýnir ýmislegt I sinni samtiö, einsog t.d. konungsvald- ið, klerkavaldið og foreldravald- iö. I þvi er heilmikiö fjallaö um kvenréttindamál, um stööu kon- unnar i þjóðfélaginu, og koma fram sjónarmið sem eru manni nálæg i nútimanum. Það er undarlegt til þess að vita, að leik- ritiö skuli vera samiö fyrir rúm- um 100 árum. — Á hvern hátt er fjallað um kvennamálin? Tinna: Höfundur leggur það i munn útilegumönnunum. Þeir eru fjórir saman og sá yngsti i sigrar yfirvaldið, og þeim er öll- um sleppt. Smalastúlkan á góðan föður, sem kemur til hjálpar. Leikritið fjallar fyrst og fremst um ástina og frelsið. — Er tónlist i sýningunni? Tinna: Aðeins i einu atriði. Það er munkasöngur i klaustri. Móðir unga útilegumannsins er send i klaustur af þvi að hún má ekki eiga manninn sem hún elskar. Þetta gerist rétt fyrir siðaskiptin. Henni tekst að sleppa úr klaustr- inu og flýr til fjalla með elskhuga sinum. Þar eignast hún son og deyr siðan, einsog ég sagði áðan. En þótt tónlistin sé ekki mikil i sýningunni er mikiö af leikhljóð- um, verðurhljóðum og þesshátt- Börnin og starfið Nú kemur Gunnlaugur, yngri sonur Tinnu, inn i stofuna og vill fá að vera með. Talið berst óhjákvæmilega að börnum. Herdís: Það var oft ansi erfitt aðvera meö fjögur börn og alltaf mikið að gera i leikhúsinu. Tinna á tvö, og segist ætla að játa þar við sitja. Nú er lika ómögulegt að fá heimilishjálp, en ég var oftast með stúlkur þegar krakkarnir voru litlir. Annars hefði þetta ekki gengið. — Þú hefur verið á föstum samningi hjá Þjóðleikhúsinu all- an timann? Herdis: Já.Það er furðuleg til- hugsun að þetta séu orðin þrjátiu ár — timinn hefur liðið svo fljótt. Mér finnst það hafa verið mikið lán að fá að tolla þarna á samn- ingi þessi ár. En oft hefði maður nú viljað að meiri samvinna væri milli leikhúsanna. Þau ættu að gera meira af þvi að skipt- ast á leikurum, eftir þvi sem þörf er fyrir þá á hverj- um stað. Þetta gæti verið F rumsýningar tveggj a kynslóða — Já, þaö var gaman, — segir Herdis, — aö fá að vera með alveg frá byrjun, og þá ekki siður aö fá að leika Snæfriöi Islandssól! Við æfðum tslandsklukkuna lengi, byrjuðum um miðjan september og ætluöum að frumsýna um jól- in, en það dróst á langinn. Það var stanslaust verið að vinna I húsinu, og stundum á æfingum heyrðist varla mannsins mál fyrir harmarshöggum, borum og ég veit ekki hverju. Herdis brosir að minningunum, og ég man allt i einu eftir því, að frá þvi ég var litil hef ég alltaf tengt þær I huganum Snæfriði og Herdisi. Ég sá ekki íslandsklukk- una, en allt i kringum mig var fólk sem hafði séð hana og sem talaði um Herdisi og Snæfriöi einsog þær væru sama persónan. Gagnrýnendur blaöanna voru i sjöunda himni og notuðu öll stóru lýsingaroröin sin: allir töluðu þeir um leiksigur, um stórt skref fram á við, um upphaf á glæsileg- um ferli. leikhússins varð gjörbreyting þar á. Þá kom fram heil ný kynslóð af leikurum. Ég var langyngsta leikkonan sem fastráðin var að Þjóðleikhúsinu haustið 1949, og ég er sú eina af þeim sem enn starfa þar. Af karlmönnunum eru þeir ennþá starfandi Róbert Arnfinns- son og Ævar Kvaran. — Gekk tslandsklukkan lengi? — Já, hún var sýnd 65 sinnum I fyrstu lotu og var tekin upp aftur tveimur árum seinna og þá sýnd yfir 80 sinnum. Ég lék Snæfriði alltaf nema þegar ég skrapp á spitala til að eignast barn, þá kom Guðbjörg Þorbjarnardóttir inn fyrir mig i nokkra mánuði. ist S AL-fólkinu og fékk áhuga á að starfa með þvi. Ég fór i tima þar á kvöldin, en sagði ekki einu sinni frá þvi heima. Herdis: Ég verð nú að segja einsog er, að égvaröekkert hrifin þegar ég frétti af þessu. Leikara- starfið er afskaplega krefjandi, og þvi geta fylgt svo óskapleg vonbrigði. En að sjálfsögöu er það lika gott, þegar vel gengur. Tinna: Ég hugsaði lika sem svo, aö námið sjálft væri gagn- legt, jafnvel þótt maður yröi ekki leikari. Herdis: Vissulega, en alla lang- ar nú til að reyna sig, þegar þeir eru búnir að læra. Tínna: Námsárin voru mjög skemmtilegt timabil. Þetta var hópnum hefur aldrei séð kven- mann. Hann fæddist i útlegð, móðir hans dó af barnsförunum og hann hefur alið manninn til fjalla. Hinir eru að lýsa fyrir hon- um, hvernig konur séu. Þeir lýsa þeim ýmist sem djöflum eða englum, og lýsingar þeirra gera það að verkum að þegar hann sér konu i fyrsta sinn trúir hann þvi ekki að hún sé i raun og veru kona! — Er það smalastúlkan sem hann sér? • Tinna: Já, þaö er Helga Guðmundardóttir, sú sem ég leik. Hún er gjafvaxta bóndadóttir, 15 ára og mjög hress stelpa. Nú og þá 11 Þjódleikhúsid 30 ára — Er ekki mikill munur á að- stöðu ungra leikara nú og þá, Tinna? — Jú, nú er til Leiklistarskóli tslands, þar sem fólk er i fullu námi og gerir ekki annað á með- an. Annars byrjaði ég i SAL og var þar i einn vetur, áður en leik- listarskólarnir voru sameinaðir. Svo var ég i fullu námi i Lt i tvo vetur, og loks einn vetur i nemendaleikhúsi. Ég útskrifaðist 1978, og við vorum rúmlega tutt- ugu, sem lukum námi þá. Flest okkar starfa nú að leiklist á einn eða annan hátt. — Hvernig vildi þaö til að þú fórst út i ieiklistina? — Það var meira og minna til- viljun, og sú staöreynd að móðir min er leikkona átti þar engan hlut að máli. Ég var búin að flakka um eftir stúdentspróf og vissi eiginlega ekki hvað ég vildi. Fór svo I liffræöi og var i henni einn vetur. Þann vetur vildi svo til aö margir kunningjar minir voru aö fara út i leiklist, ég kynnt- Herdls I hlutverki Snæfrlöar I Islandsklukkunni. Tinna i hlutverki Heigu I Smalastúlkunni og útlögunum. Að leika „niður fyrir sig’ — Er ekkert erfitt að leika persónu sem er 10 árum yngri en leikarinn? Tinna: Nei, nei. Auk þess er ekki svo auðvelt að finna leikkon- ur á anglingsaldri, sérstaklega þegar þess er gætt að aldurstak- markið i Leiklistarskólanum er 19 ár! Fók er þvi orðið a.m.k. 22-23 ára þegar það lýkur námi. Herdis: Ég lék 16 ára stelpu þegar ég var 26 ára. Það er miklu erfiðara að leika „upp fyrir sig” en niður. Oft eru hlutverkin lika þannig, ef einhver bógur er i þeim á annað borð, að það getur verið vandi að leika þau fyrir fólk sem er jafngamalt persónunum. Leikarinn þarf að hafa þroska til aö skilja persónuna, ef hann á að koma henni vel til skila. — En ef viö snúum okkur aftur aö leikritinu — hvað gerist svo? Tinna: Smalastúlkan og ungi útilegumaðurinn, sem Arni Blandon leikur, verða ástfangin. Otilegumennirnar fjórir eru tekn- ir, og það á að dæma þá, en ástin leikurunum sjálfum mjög hollt, og svo er skemmtilegra fyrir áhorfendur aö sjá ný andlit. Ég er viss um að það væri gert meira af þessu ef það væri ekki svona dýrt i framkvæmd. Tinna: Þetta er samt stundum gert, nú leikur t.d. Þráinn Karls- son I Smalastúlkunni og útlögun- um, en hann er fastráðinn hjá Leikfélagi Akureyrar. En það er alveg rétt, að það mætti gera miklu meira af þessu. — Svona i lokin, Herdis: hvern- ig finnst þér tilhugsunin um að fara I Þjóðleikhúsið á þrjátiu ára afmæli þess á sumardaginn fyrsta og horfa á Tinnu á sviðinu? — Það er óneitanlega dálitið skrýtin tilhugsun! Reyndar verð ég ekki úti i sal, heldur uppi á sviöi. Ég á að opna sýninguna, með þvi að lesa erfiljóð, sem Brynjólfur Jónsson á Minna-Núpi orti um Sigurð málara árið 1874.1 ljóðinu er Brynjólfur að minna menn á að vanrækja ekki minn- inguna um Sigurð. Mér finnst mjög skemmtilegt að taka þátt i sýningunni. Mér finnst það lika mjög skemmtilegt að Tinna skuli leika sitt fyrsta hlutverk á stóra sviðinu einmitt viö þetta tækifæri. Einvernveginn finnst mér ég eiga dálitla hlutdeild i þessu — ekki þvi að hún fékk hlutverkið, sem er auövitað algjör tilviljun — heldur öllu hinu,þú skilur. Égskil mætavel hvað hún á við. Á leiðinni niður stigann i Dunhaganum dettur mér i hug að Þjóðleikhúsið hefði sennilega orð- ið svolitið öðruvisi og fátækara, ef Herdis Þorvaldsdóttir hefði ekki veriö þar öll þessi ár. Sá glæsilegi ferill sem gagnrýnendurnir spáðu henni eftir frumsýninguna á Islandsklukkunni fyrir 30 árum varð að veruleika, og enn er hann langt frá þvl aö vera á enda runninn. .. -íh

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.