Þjóðviljinn - 14.05.1980, Síða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 14. mai 1980
sltáh
Umsjón: Helgi Ólafsson
Áskorendaeinvígin:
Spasskí
féll á
hœpnum
reglum
Skákpistlar Þjóöviljans hefja
nú aftur göngu sina en þeir hafa
legiö niöri um nokkra hriö. Kom
þar til aö höfundur þessara pistla
var oröinn nokkuö leiöur á viö-
fangsefni sinu eins og tamt er um
menn sem skrifa of mikiö og var
þvi tekiö þaö ráö aö gera nokku rt
hlé á. Ýmislegt hefur gerst i
skákheiminum frá þvi pistla-
höfundur settist slöast fyrir
framan ritvélina og skal hér
nokkuö tiundaö þar um, þó stiklað
sé á stóru.
Fyrstu umferö Askorendaein-
vígjanna lauW ekki alls fyrir löngu
og i næstu umferö tefla þeir
Kortsnoj, Portisch, Polugajevski
og HÖbner. Hvorki meira né
minna en þrlr fyrrum heims-
meistarar féllu út I fyrsta um-
gangi: Tal, Petrosjan og Spasský.
Einvigi Petrosjans og Kortsnojs
hefur veriö rækilega gerö
skil á sföum Þjóöviljans og
sömu sögu má segja um ein-
vlgi Hubners og Adorjans. Hitt er
svo annaö mál aö ákjósan-
legri heföu veriö fréttirnar frá
einvigjum þeirra Tal og Poluga-
jevskí, og Spasský og Portisch,
mátt vera. Tal og Polu tefldu I
einu af Asiuheruöum Sovétrikj-
anna og var þaöan bókstaflega
ekkert markvert aö frétta nema
aö Tal væri veikur sem bæöi er
gömui saga og ný og undrar mann
þaö i sifellu aö hann skuli ekki
vera dauöur fyrir löngu i þvi aö
ef marka má allar veikinaasögur
um hann, þá er vart aö finna veik-
ari mann á jaröriki. Polugajevski
notfæröi sér ástandiö út i ystu
æsar og vann öruggan sigur,
5,5:2,5. I næstu umferö mætir
hann Kortsnoj, og hryllir senni-
lega viö, ,þvl siöast þegar þeir
tefldu, vann Kortsnoj meö óheyri-
legum yfirburöum. Engu aö siöur
gefa menn Polugajevski vissa
möguleika aö þessu sinni þvi
hann viröist eflast viö hverja
raun og bæta viö sig einu skrefi
viö hverja Askorendakeppni.
Samkvæmt þvi ætti hann aö vinna
Kortsnoj nú, en tapa svo ein-
vlginu um rettinn til aö skora á
Karpov. 1 einvigiSpasskýog Port-
isch, i Mexikóborg, tapaöi
Spasskl á heldur vafasömum
reglum. Til aö gera llfiö bæri-
legra fyrir forráöamenn einvigj-
anna, voru reglur settar þar um,
aö ekki skyldu teflast fleiri en 14
skákir og sá yröi sigurvegari, ef
stæöi á jöfnu, sem fyrst ynni
skák. Þaö hefur vafist nokkuö
fyrir FIDE aö setja reglur um
svona nokkuö lagaö og allskyns
furöu uppástungur komiö fram
sem þó aldrei hefur oröiö aö gripa
til fyrr en nú. Portisch vann 1.
skákina en Spasslý jafnaöi metin
i 9. skák. Þeir klykktu svo út meö
5 jafnteflum og þaö nægöi Port-
isch til aö komast áfram. Þetta er
I þriöja sinn i röö sem Spasski
fellur út I keppni þessari og hefur
sá jafnan unniö réttinn til aö
skora á heimsmeistarann, sem
hefur lagt hann aö velli. Eftir
öllum sólarmerkjum aö dæma
ætti þvi Portisch aö vinna
Polugajevski i siöasta einviginu
og þaö meö talsveröum yfir-
Boris Spassky
buröum. Flestir hallast þó á sigur
Kortsnojs en einhvern timann
hlýtur karlinn þó aö fara aö lýj-
ast, kominn fast aö fimmtugu.
Hann lét þaö veröa sitt fyrsta
verk aö tefla á móti I Englandi,
eftir einvlgiö viö Petrosjan, og
deildi þar efsta sætinu meö þeim
Anderson og Miles.
X
Nú er rétt nýhafiö I Bugonjo I
Júgóslaviu mót ekki af verri end-
anum. Meöal þátttakenda er t.d.
Anatoly Karpov, heimsmeistari,
ásamt góöum slatta sterkustu
skákmanna veraldar. Mótiö tafö-
ist nokkuö þegar Tito Júgóslavlu
forseti andaöist, en þegar tveim-
ur umferöum var lokiö var
Karpov búinn aö gera jafntefli i
báöum skákum slnum. Ljubo-
jevic var einn efstur meö 1 1/2 v.
X
I Askorendakeppni kvenna,
sem fram fór um svipaö leyti og
keppni karla, haföi Gaprindha-
svili fyrrum heimsmeistari
tryggt sér til þátttöku i næstu
umferö. Einnig Alexandria og
nýjasta stjarna þeirra Sovét-
manna Ioseami var á góöri leiö til
sigurs siöast þegar fréttist, en af
fjóröa einviginu haföi ég engar
fréttir.
X
I Guös eigin landi hefur Jón L.
Arnason spjaraö sig vel á móti I
New York og þegar siöast fréttist
átti hann góöa möguleika á 2.
sæti. Hinsvegar hefur vegabréfi
hans og valútu ekki gengiö jafn
vel. þvi eins og glöggir lesendur
Dagblaösins gátu lesiö, var
hvoratveggja stoliö af litt kunnum
stigamanni. Lögmál frum-
skógarins eru greinilega enn I
fullu gildi þar vestur frá. Raunar
er þetta ekki I fyrsta sinn sem
eitthvaö i þessum dúr hendir
islenskan skákmann. Sá sem
þessar linur skrifar var eitt sinn
staddur á hinum fræga „Breiöa
vegi” (Broadway) I New York (i
skákferöalagi vitaskuld). Var
þetta áriö 1976 þegar landsmenn
héldu upp á 200 ára afmæli
Bandarikjanna. í miöjum sam-
ræöum viö lagsmann minn, Jónas
P. Erlingsson, vindur sér aö
okkur blökkumaöur nokkur,
hverjum viö þekktum engin deili
á. Honum hefur sennilega ekki
fundist Jónas árennilegur (og lái
ég honum þaö ekki) þvl hann
sneri sér beint aö mér, greip
þéttingsfast I aöra höndina og
kraföi mig um eins og nokkra
dollara. Ég varö aö vonum nokk-
uö skelkaöur viö en reyndi þó aö
koma manninum i skilning um aö
ég væri tiltölulega félitill, hins-
vegar væri honum velkomiö aö
kaupa af mér skákbók þá er ég
haföi undir hendinni. Stóö i
nokkru stappi þvl ekki vildi hann
una þeim samningi og eftir aö
hafa litiö nokkrum sinnum flótta-
lega i kringum sig hrifsaöi hann
úr vasa minum pappira nokkra,
sem hann hefur sennilega haldiö
vera seöla. Þegar ég haföi jafnaö
mig og grennslast um horfinn
feng kom á daginn aö pappirar
þeir er horfiö höföu, voru afrit af
tveimur tapskákum sem mér var
ósköp ósárt um. Forvitnilegt væri
þó aö vita hvort blökkumaöurinn
hafi kunnaö aö njóta. —hól—
Sundnámskeið
fyrir 6 ára börn (73) verður haldið i Sund-
laug Kópavogs i júni-júli.
Innritað verður þriðjudaginn 20. mai frá
kl. 10—12.
Sundlaug Kópavogs
simi 41299.
Kynning á hrossakjöti:
Laugardaginn 3. mai voru 18
mismunandi réttir úr folalda- og
hrossakjöti kynntir i Afuröasölu
SIS á Kirkjusandi. Fyrir kynning-
unni stóöu Hagsmunasamtök
hrossabænda og Kaupfélag Sval-
baröseyrar.
Allan veg og vanda af mat-
reiöslu kjötsins og meöhöndlun
höföu þeir Sævar Halldórsson,
kjötiönaöarmaöur og Bjarni
Ingvarsson, báöir starfsmenn
Kaupfélags Svalbaröseyrar. Sr.
Halldór Gunnarsson i Holti, for-
maöur Hagsmunasamtaka
hrossabænda, bauö gesti vel-
komna og taldi fara vel á þvi, aö
prestur reyndi aö leggja inn
nokkur góö orö fyrir ágæti
hrossakjöts, til mótvægis viö bar-
„Folaldakjötiö ætti aö vera eftirlæti sælkeranna”, sagöi Gunnar
Bjarnason. — Hvern langar ekki I bragö?
• •
FOLALDAKJOT I
VEISLUMATINN
áttu kirkjunnar manna gegn
hrossakjötsneyslu fyrr á öldum.
Gunnar Bjarnason, ráöunautur
geröi síöan grein fyrir helstu
réttum, sem kynntir voru og
ræddi um framleiöslu á hrossa-
kjöti. Þaökom fram hjá Gunnari,
aö I hrossafitu eru u.þ.b. 22% af
llnólsýru en ekki nema 1% I fitu af
nautgripum og sauöfé. Þeir, sem
ekki vilja boröa fitu meö mett-
uöum fitusýrum, geta því óhikaö
neytt hrossafitu.
Vaxtarhraöi folalda er mun
meiri en kálfa og dilka. Meöal-
fallþungi 92 folalda úr Land-
eyjum.sem slátraö var og vigtuö
haustin 1978 og 1979 var 112 kg.
Þaö þarf um sex lömb til aö gefa
sama fallþunga eftir sumar-
beitina.
„Þaö þarf aö uppræta fordóma
gegn neyslu hrossakjöts”, sagöi
Gunnar. „Hér sjáum viö hvaö
hægt er aö framreiöa úr folalda-
kjöti þegar matreiöslusnillingar
leggja sig fram. Folaldakjötiö
ætti aö vera eftirlæti sælker-
anna”.
Ainr gestir á, þessari kynmngu
hældu réttunum og fæstir höföu
áöur gert sér grein fyrir þeirri ó-
trúlegu fjölbreyttni, sem folalda-
kjötiö býöur upp á.
Hér fara á eftir uppskriftir á
nokkrum þeirra rétta, sem
kynntir voru:
Folalda-ragú.
Brúnaö á pönnu meö lauk og gul-
rótum. Siöan soöiö I vatni meö
tómatmauki, heilum pipar,
enskri sósu og lárviöarlaufi.
Þegar kjötiö er oröiö meyrt er
þaö fært upp úr, soöiö, sigtaö og
jafnaö og látiö sjóöa góöa stund
og er þá bætt meö sérrýi og látiö
siöan yfir kjötiö. Framreitt með
kartöflumauki og súrsuöu græn-
meti.
Frönsk folalda-steik.
Steikin krydduö meö salti, pipar
og oregano. Steikt á pönnu I 2
min. á hvorri hliö. Framleitt meö
kryddsmjöri, aspargus, papriku,
steiktum kartöflum og salati.
Folalda T-bein steik.
Steikin er krydduö meö salti,
pipar og oregano, siöan steikt á
pönnu eöa i grilli I 10 min. viö
mikinn hita. Boriö fram meö
djúpsteiktum kartöflum, krydd-
smjöri, gulrótum og ristuöum
sveppum.
Létt reyktur folaldakambur
Soðið i 1 klst. og siöan ofnsteikt
þar til hann er orðinn meyr.
(c.20m) Boriö fram meö sykur-
brúnuöum kartöflum, papriku-
sósu, mais og gulrótum. mhg
Spennandi lands-
liðskeppni
Frá
landsliðseinviginu
Landsliöseinvigi karla hófst
sl. föstudag. Alls eru spiluö 128
spil, I 4 leikjum. Lokiö er viö aö
spila 64 spil, og fóru leikar
þannig:
Orn—Guölaugur / Hjalti—As-
mundur ... Jón—Slmon /
Helgi—Helgi.
spil 1—16 .,
spil 17—32 ,
spilaö viö 14 pör I hverri lotu, 2
spil milli para, alls 28 spil i lotu
samtals 84 spil.
Undanrás veröur á fimmtu-
degi, fimmtudagskvöld og föstu-
dagskvöld. 24 efstu pörin komast
svo áfram. Undanrásin er reikn-
uö sem einn riöill, svo toppurinn
er 62 i spili. Sllkt kostar þar af
leiöandi óhemju vinnu I út-
reikning, en gerir mótiö um leiö
meir spennandi fyrir vikiö.
......... 15 stig gegn 47 stigum
......... 58 stig gegn 24 stigum
alls 73 stig gegn 71 stigi
spil 33—64 ............................ 70 stig gegn 50 stigum
Þeir fyrrnefndu eru því 22 stig-
um yfir, aö loknum 64 spilum af
128. Stefnir i spennandi keppni.
Fyrirhugaö er aö spila næst
þriöjudaginn 20/5 nk., og ljúka
keppni svo fimmtudaginn 22/5.
Húsnæöi óákveöiö.
íslandsmótið hefst
á fimmtudag
Islandsmótiö i tvimenning 1980
hefst I Domus Medica á morgun,
fimmtudag. Mæting spilara er kl.
13.00.
Æskilegt er, aö keppendur mæti
þó mun ’fyrr, vegna formsatriöa,
svo sem staöfestingar á þátttöku,
útfærslu á kerfiskorti o.fl.
Aö þessu sinni taka 64 pör þátt I
mótinu. Fyrirkomulag veröur
þannig, aö keppendum er skipt i
4x16 para hópa. Siöan spilar hver
hópur viö hinn, alls 3 umferöir, þó
meö þeim hætti, aö aöeins er
alls 143 stig gegn 121 stigi
1 úrslit komast einsog fyrr
segir, 24 efstu pörin. Þar veröa
spiluö 5 spil milli para, allir viö
alla alls 115 spil. Þá veröur spilaö
á laugardag, laugardagskvöld og
lýkur á sunnudag. Fyrir þá sem
ekki komast i úrslit, stendur til
boöa aö spila tveggja umferöa
„sárabótar”-tvimenning, ef
áhugi er fyrir hendi. Fordæmi
fyrir sliku er á öllum stórmótum
ytra, þó ekki hafi þaö veriö reynt
fyrr hér á landi.
Þátturinn minnir á þaö, aö
spilaö er i Domus Medica viö
Egilsgötu.
Keppnisstjóri þessa viöamikla
móts er Agnar Jörgensson. Nv.
tslm. I tvím., eru Óli Már Guö-
mundsson og Þórarinn meistari
Sigþórsson.
Fjögurra félaga
keppnin á Akureyri
Um siöustu helgi fór fram á
Umsjón:
Ólaffur
Lárusson
Akureyri hin árlega keppni
heimamanna, TBK, Hornfiröinga
og Austanmanna.
6 sveitir frá hverju félagi
kepptu, allar viö allar. Þau
„óvæntu” úrslit uröu, aö Akur-
eyringar sigruöu samanlagt.
Hrundu veldi sunnanmanna.
Lokastaöan varö þessi:
1. Akureyri ........... 266 st.
af 360 mögulegum
2. TBK-Reykjavik ...... 236 st.
3. Fljótsdalshéraö .... 150 st.
4. Hornfiröingar ........ 28 st,
Er þetta f 4. sinn sem þessi
keppni fer fram og hefur TBK
unniö i öll fyrri skiptin. Næsta ár
veröur keppt I Reykjavik. Til
hamingju, Akureyringar.
Ertu með?
Enn stendur yfir skráning I
bikarkeppni sveita. Yfir 20 sveitir
eru þegar skráöar til leiks, en
betur má ef duga skal. Þátturinn
hvetur landsbyggöarmenn ein-
dregiö til aö vera meö i mótinu,
og minna á tilveru sina meö þvi
móti. Benda má á, aö kostnaöur
viö þetta mót er i lágmarki vegna
„niöurgreiöslna” Bridgesam-
bandsins. Þátttökugjald er aðeins
kr. 30.000,- pr. sveit, svo allir geta
veriö meö.
Væntanlegir keppendur geta
látiö skrá sig hjá Jóni Páli I sima
81013 I vikunni eöa fyrir helgi.