Þjóðviljinn - 15.05.1980, Blaðsíða 2
2 SIDA — ÞJÓDVILJINN Fimmtudagur 15. mai 1980
..........................
HELLUR—STEINAR
Vinnuhælið á Litla-Hrauni framleiðir:
Gangstéttarhellur af öllum gerðum.
Einnig steypta girðingastaura.
Vikurhellur úr Hekluvikri, 5, 7 og 10 cm
þykkar.
Auk þess kantsteina og brotasteina i vegg-
hleöslur í skrúðgarða. Þá kapalsteina
fyrir rafleiðslur, netasteina fyrir báta.
Þá framleiðum við einnig hliðgrindur i
heimreiðar, bæði fyrir akbrautir og gang
stíga.
Væntanlegir eru á næstunni Víbró holstein-
ar 15 og 20 cm þykkir, fyrir ibúðarhús og
bílskúra, framleiddir úr Hekluvikri og
rauðamöl.
Kynnið ykkur verð okkar og greiðsluskil-
mála.
Símar okkar eru 99-3105, 99-3127 og 99-3189
Vinnuhælið á Litla-Hrauni >
Sandur og fylliefni
Höfum fyrirliggjandi úrvals sand, malar- og
fylliefni í garða, grunna, bílastæði, undir hell-
ur og fleira í eftirfarandi grófleikum:
Sandur 1 0-7 mm Möl 1 7-30 mm
Sandur II 0-12 mm Möl II 30-50 mm
Fylliefni 0-100 mm Möl III 50-100 mm
BJÖRGUN HF.
SAND OG
MALARSALA
Sævarhöfða 13. — Sími 81833.
Opið 7.30-12 og 13-18.
Mánudaga til föstudaga.
Lokað laugardaga.
,,í öruggri borg er verðugur endir á glæsilegum ferli Jökuls Jakobsson-
ar.M
Bylting og
gagnbylting
Þjóðleikhúsið sýnir
í öruggri borg
eftir Jökul Jakobsson
Leikstjóri:
Sveinn Einarsson
Leikmynd:
Baltasar
1 flestum verkum Jökuls
Jakobssonar er mikilvæg persóna
sá sem er nýkominn frá útlönd-
um, ellegar sá sem er á förum.
Slfk persóna skapar óróleika I
kringum sig, kemur róti á lif hins
fólksins. t þessu siöasta verki
skáldsins er Gunnar slik persóna,
búinn að vera áratug erlendis,
starfandi i löndum þriðja heims-
ins og kemur nú veraldarvanur
og lifsreyndur inn i heim is-
lenskra smáborgara. Hann
kemur i heimsókn til skólabróöur
sins, visindamannsins Róberts,
sem er fyrir skömmu horfinn
niöur i kjallara til aö vinna aö
byltingu, og tekur aö nokkru leyti
viö stööu hans á heimilinu.
Þetta er fyrirbæri sem þekkist
einnig úr fyrri verkum Jökuls,
staögengillinn, maöurinn sem
fellur inn i hlutverk annars
manns, sbr. til dæmis Pétur
Mandólin, Kona Róberts, Anna,
er fangi eigin öryggisleysis og
gripur Gunnar feginshendi sem
lifsakkeri, en hann fyrir sina
parta notfærir sér þjónustubrögö
hennar og gagnrýnislitla aödáun
til aö byggja upp bilandi sjálfs-
traust sitt.
Heimilisvinirnir,Tommi og Lóa,
eru dæmigerö fyrir andlegt gjald-
þrot borgaralegra mennta-
manna. Hún er oröin dauöleiö á
menningarafþreyingu, hann er
sannfærður um aö vestræn menn-
ing sé dauöadæmd og engin von
um neitt. Heimur þessa fólks alls
einkennist af yfirborösmennsku
og meiningarlausu hjali sem
byggist á gatslitnum oröaleppum.
Gunnar talar fjálglega i fyrstu
um firringuna, þriöja heiminn,
ljóðformið og byltinguna, en eftir
þvi sem á leikinn liöur veröur tal
hans fálmkenndara og innihalds-
leysi oröa hans ljósara. Þetta fólk
meinar ekkert meö þvi sem þaö
segir, þaö lifir i heimi þar sem
orðin hafa glataö merkingu sinni.
Þetta opinberast skýrast þegar
iljós kemur aö bylting Róberts úr
kjallaranum er aö heppnast, hon-
um hefur tekist aö leysa ný öfl úr
læöingi, einhvers konar bylting er
hafin. Þá er þaö Gunnar sem ger-
ist foringi gagnbyltingarinnar,
þrátt fyrir ákafar yfirlýsingar
fyrr um aö ekkert nema bylting
geti bjargað þessum vitskerta
heimi. Þegar á þaö reynir er helgi
eignarréttarins þessu fólki dýr-
mætari en allt annaö.
Allt er þetta flutt fram af beisku
og markvissu háði, textinn er
leiftrandi lipur og drepfyndinn.
Jökull er hér upp á sitt besta, ég
er ekki frá þvi að þetta sé hans
besta verk. Þaö sameinar þann
léttleika og gáska sem Jökli var
alla tiö eiginlegur og þá djúpu al-
vöru sem hann átti til á köflum.
Þaö lætur i ljós jafndjúpar þjóö-
félagslegar áhyggjur og Sonur
skóarans en er miklu betur
heppnaö verk.
Jökíi tekst einatt best upp I af-
mörkuðu formi, hinum litla
myndfleti, samspili tveggja per-
sóna. Þess vegna hentar nálægö
kjallarasviösins þessu verki afar
vel, og Sveini Einarssyni hefur
tekist meö ágætum aö glæöa þaö
mögnuöu lífi i markvissri og
formfastri leikmynd Baltasars.
Þaö er kannski erfiöast i upp-
færslu þessa verks aö finna rétt
jafnvægi milli háös og alvöru,
draga skopiö skýrt fram án þess
að glata tilfinningalegri alvöru
persónanna. Mér sýnist Sveinn
hafa rataö þennan milliveg af
prýöi.
Leikhópurinn heldur lika fram-
úrskarandi vel á sinum hlut. Þor-
steinn Gunnarsson leikur Gunnar
af krafti og snilld, hvert einasta
tilsvar veröur lifandi og marg-
slungiö i munni hans. Helga
Bachmann túlkar öryggisleysi
Onnu af nærfærni, en er kannski
fullstif. Briet skapar skemmti-
lega hundingslega manngerö og
Bessi fer á kostum, túlkun hans á
örvæntingu Tomma er einlæg og
sönn.
I öruggri borg er verðugur end-
ir á glæsilegum ferli Jökuls
Jakobssonar.
Sverrir Hólmarsson
Q
ÚTBOÐ —
JARÐVINNU-
FRAMKVÆMDIR
Áburðarverksmiðja rikisins óskar eftir
tilboðum i jarðvinnu, þ.e. útgröft og fyll-
ingu á lóð verksmiðjunnar i Gufunesi.
CJtboðsgögnverða afhent á Verkfræðistofu
Stefáns Ólafssonar h.f. að Borgartúni 20,
Reykjavik. gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á Verkfræðistofu
Stefáns ólafssonar h.f. kl. 11.00,þriðjudag-
inn 27. mai 1980
Áburðarverksmiðja rikisins.
1980
AÐALFUNDUR
Sölusambands islenskra fiskframleiðenda
verður haldinn i hliðarsal Hótel Sögu
föstudaginn 16. mai n.k. og hefst kl. io
árdegis.
Dagskrá samkvæmt félagslögum
Lagabreytingar.
Stjórn Sölusambands islenskra fiskfram-
leiðenda.