Þjóðviljinn - 15.05.1980, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 15. mai 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Menntaskólinn á Akureyri — gamla skólahúsió
Dagur hestsins
Laugardaginn 31. mai n.k. verður
Dagur hestsins haldinn hátiðleg-
ur á Melavellinum I Reykjavik.
Eins og margir muna var dag-
skrá af þessu tagi á Melavellinum
i fyrra og þótti hún takast sérlega
Unglingar frá Hofsstöðum i
Hálsasveit á Degi hestsins I fyrra.
vel. Sýningaratriði voru yfirleitt
stutt, fjölbreytt og fallega útfærð,
með fjörlegri hijómlist fyrir hvert
atriði.
Að þessu sinni verður dagskrá-
in sett saman af mörgum stuttum
þáttum, þar sem m.a. verður sýnt
úrval stóðhesta, bæði sem ein-
staklingar og með afkvæmahóp-
um, unglingar i Fáki sýna hópatr-
iði og meðlimir úr Félagi tamn-
ingamanna taka hesta sina til
kostanna.
Þá er áformað að hafa sérstaka
dagskrá byggða upp á sögu hests-
ins i islenzku þjóðlifi, frá upphafi
til okkar tíma.
Formaður sýningarnefndar er
séra Halldór Gunnarsson, Holti,
en aðrir i sýningarnefnd eru:
Halldór Sigurðsson, Ragnar
Tómasson og Viðar Halldórsson,
Reykjavik, Sigfús Guðmundsson,
Geldingaholti og Sigurður Har-
aldsson, Kirkjubæ. Framkvæmd-
arstjóri hefur verið ráðinn Bjarni
E. Sigurðsson, Hvoli.
Saga Menntaskólans á Ak-
ureyri kemur út nú í sumar
Saga Menntaskólans á Akur-
eyri I eina öld, frá 1880-1980 kem-
ur út I þremur bindum i sumar.
Inngang að ritinu skrifar
Kristján Eldjárn forseti tslands,
en sögu skólans skrá þeir Tryggvi
Gislason skólameistari, Steindór
Steindórsson frá Hlöðum fyrrum
skólameistari og GIsli Jónsson
menntaskólakennari sem ritstýr-
ir jafnframt verkinu.
Verkið verður I allt um 1200 bls.
þar af 400 myndasiður með um
1000 myndum, teikningum og
öðru myndefni úr sögu skólans.
t fyrsta bindi verksins er sagt
frá Möðruvallaskóla og Gagn-
fræðaskólanum á Akureyri. I
öðru bindinu er rakin saga
Menntaskólans og i þvi þriðja
verður stúdenta-, gagnfræða- og
kennaratal skólans frá upphafi.
Ritverkið verður fyrst aðeins
selt til áskrifenda, og kostar 50
þús. kr. öll þrjú bindin. Þeir sem
gerast víija áskrífendur geta smi-
ið sér til skrifstofu Menntaskoi-
ans á Akureyri fyrir 20. þessa
mánaðar. — lg.
btuöningsmenn
VIGDÍSAR FINNBOGADÓTTUR
efna til kynningarfundar fyrir ibúa Reykjavikur og nágrennis
i SÚLNASAL HÓTEL SÖGU að kvöldi uppstigningadags
15. mai kl. 20.30.
Vigdis ávarpar fundargesti.
Sagt verður frá kosningaundirbúningi.
Allir velkomnir
ANGLO-CONTINENTAL EOUCAHONALGROUP
BULGARIA
LÆRIÐ ENSKU
í ENGLANDI
12 skólar i Bourneimouth/ Sherbourne Wimborn/
Blandon og London.
Hópferöir okkar á NOVA SCHOOL veröa: 1. |úni,
uppselt, 22. júní, 13. júlí, 3. ágúst, uppselt, 24. ágúst
og 14. september fá sæti eftir.
Verð mjög hagstætt, innifalið flug, keyrslur til og
frá flugvelli á einkaheimili, gisting i eins manns
herbergjum, hálft fæði mánudaga til föstudags,
fullt fæði um helgar.
19 timar i skóla á viku.
Færir kennarar, lágmark 3
vikur, hægt að framlengja
um 3,6 eða 9 vikur. Notið
sumarleyfið á einum besta
baðstrandarstað Englands
og lærið ensku.
Kaupmannahöfn
Berlin
• Prag
Tékkóslóvakia
Hvers vegna velja menn Búlgaríu í sumarleyfinu?
Vegna þess að það er ódýrasta ferðamannaland Evrópu,
en jafnframt eru baðstrendurnar með þeim bestu i
Evrópu, veðurlag temprað Miðjarðarhafsloftslag, aldrei
of heitt né kalt á vetrum. Matur og þjónusta eins og best
verður á kosið. Matarmiðar, hægt að borða hvar sem er
hvenærsem er og hvað sem er, þægilegt fyrir baðstrand-
argesti.
öll hótel með
baði, WC og
svölum, þar að auki
greiða Búlgarar 50%
uppbót á erlendan
gjaldeyri, sem hefur1
þau áhrif að verðlag
er i lágmarki. Verðið
sem við bjóðum upp á er því raunverð,
ekki þörf á að eyða umfram það nema
i skoðanaferðir sem við efnum til, til
Istanbul og Odessa og um landið sjálft.
Gjaldeyrisskammturinn hefur því ætið
verið meira en nægur i Búlgaríu. Við
förum alla mánudaga. Hægt er að
stoppa í Kaupmannahöfn í bakt leið
og dvelja 2,3,4 vikur eða mánuð olls.
Kynnið ykkur ferðir okkar. Uppselt 11.
ágúst og aðrar ferðir lanqt komnar.
TÉKKÓSLÓVAKÍA - VÍN - AUSTURRÍKI - UNGVERJALAND
2 ferðir um gamla Habsborgarkeisaradæmið, þar
sem listog menning reis hvað hæst í Evrópu.
Brottfarardagar: 23. júní og 18. júli, takmarkaður
sætafjöldi, örfá sæti eftir.
Flogið til Budapest, vikuferðir um
Ungverjaland með fljótabát til Vin-
ar, dvalist þar 5 daga síðan farið
með fljótabát til Bratislava, farið í
viku um Tékkóslóvakíu.
Vín
Austurriki f •Budapest,-
. Ungverjaland /
Feröaskrifstota
KJARTANS
HELGASONAR
Gnoðarvogi 44— 104 Reykjavík
Símar 86255 & 29211