Þjóðviljinn - 12.07.1980, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 12.07.1980, Blaðsíða 15
Helgin 12.—13. júll. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 r A rölti í Austurstræti Krakkar i Vinnuskólanum gerast bladamenn i einn dag t upphafi viku iitu hér inn til okkar fjórir unglingar úr Vinnuskóla Reykjavíkur og voru þau í einsdags starfskynningu. I staðinn fyrir að reyna að útskýra fyrir þeim hvað við á ritstjórninni værum að gera, (sem vefst nú fyrir ýmsum) ákváðum viðað fleygja þeim beint út i atvinnulífið. Þau voru sem sagt send niður f Austurstræti með Ijós- myndara á hælunum og hér er árangurinn. Þessir krakkar heita Kristín Lárusdóttir> 15 ára> Helga Einarsdóttir/ 15 ára> Kjartan P. Emilsson, 14 ára,og Bryndís Christensen 15 ára. Og hér sjáið þið árangurinn af þessum degi þeirra í blaðamennskunni. Meö ljósmyndara á hælunum, röltum viö, þrælstressuö og óvit- andi hvaö framtföin bæri I skauti sér, nlöur i Austurstræti. Er viö vorum komin þar, tvistigum viö nokkra stund og vorum á báöum áttum hvern viö ættum aö taka fyrst tali, en okkur tókst aö lokum aö taka ákvöröun. I framhaldi af þvi gripum viö Marsibil Magnúsdóttur, glóö- volga þar sem hún var aö boröa pulsu og drekka kók fyrir framan pulsuvagninn. Hún sagöist taka lifinu rólega yfir sumartimann, halda sig heima viö og yfirleitt taka öllu meö ró. Viö þökkuöum fyrir þetta stutta viötal og hurfum á braut. Viö horföum spaklega yfir torg- iö i leit aö nýju fórnardýri; eftir miklar vangaveltur gengum viö aö manni nokkrum. Friörik Jónsson hét hann og hreinsaöi rusl i grlö og erg. Friörik kvaöst ánægöur meö starfiö, sagöi þaö ágætt starf fyrir Hallgrimur. Fjalar. Margrét. Marsibil. svona gamlan mann. En leitt þótti honum meö rusliö sem Reykvikingum tekst aö lðta falla út fyrir okkar fáu ruslatunnur, og munu trúlega flestir taka undir þau orö. Þar sem maöur var nú kominn I Austurstræti var ekki úr vegi aö taka tali einhvern fulltrúa úr al- gengasta atvinnufyrirbæri miö- bæjarins, blaöasölu. Undir þvi yf- irskyni króuöum viö Fjalar Gisla- son, ungan og (kannski) upprenn- andi blaöasala. Hann var nýbyrj- aöur i þessum bransa og sagöi hann aö salan gengi svona i meöallagi. Hann vinnur alla daga vikunnar nema á laugardögum og Guörún. sunnudögum. Þegar viö spuröum hvaö hann ætlaöi aö gera þaö sem eftir var sumars sagöist hann ætla aö fara I sveit seinna i sumar. „Ég er mjög þekktur maöur”, sagöi Skúli Skúlason er viö rákumst á hann á ferö okkar um Austurstrætiö. Ennfremur sagöi Skúli aö hann heföi mikinn áhuga á ættfræöi og heföi gefiö út ætt- fræöibók. Aö lokum sagöist hann hafa komiö fram I útvarpsþætti Sveins Asgeirssonar áriö 1959. Eftir rabb okkar viö Skúla þrömmuöum viö áfram meö ljós- myndarann á hælunum. Hvaö heitir þú? spuröum viö eina yngismey sem gekk beint i flasiö á okkur. Margrét var svar- iö. Hún sagöist vinna I sjoppu og vonast til aö komast I sumarfri til Akureyrar. Eftir aö viö höföum gengiö spölkorn tókum viö tali herra- mann. sem sagöist heita Hákon. Viö geröumst svo djarfar aö spyrja hvort hann væri I sumarfríi og svaraöi hann þvl aö hann væri oröinn svo gamall aö hann væri alltaf i sumarfrii. Loks rákumst viö á Hallgrim Georgsson brosmildan ungan mann. Þegar viö spuröum hann hvaöhann væri aö gera niöriibæ, þá sagöist hann bara vera aö nota sumariö svona til aö slappa af eöa horfa á stelpur... Annars er Hallgrtmur I hinni löngu og ströngu atvinnuleit sem flestir ættu aö kannast viö á þess- um erfiöu timum 1 þjóöfélaginu. Siöast hittum viö Guörúnu ólafsdóttur sem gekk framhjá ýtandi á undan sér barnavagni. Hún var mjög vingjarnleg aö sjá, svo viö lukum þessum viötölum viö fólk I Austurstræti meö þvi aö hlaupa á eftir henni. Reyndist hún mjög viöræöufús og elskuleg, eins og reyndar öll hin fórnardýrin okkar. Guörún sagöist taka öllu rólega, vera mest heima og gæta barnanna. Meö þessu ljúkum viö viötalinu, ánægö meö árangurinn af þessu eins dags starfi i blaöamennsku. Hákon. Skúli. Friörik. Kjartan, Kristtn, Heiga og Bryndis blaöamenn i 1 dag. m------------►

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.