Þjóðviljinn - 12.07.1980, Side 22

Þjóðviljinn - 12.07.1980, Side 22
22 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 12.—13. júll. Þótt tæpt ár sé þangaö til for- setakosningar eiga aö fara fram i Frakklandi, er stjórnmálalifiö þegar fariö aö snúast um þennan næsta áfanea og allt loft lævi blandiö. Michel Debré, sú gamla kempa Gaullistaflokksins, til- kynnti fyrir skömmu meö brauki og bramli aö hann hygöist bjóöa sig fram, og var þaö I margra augum talsvert áfall fyrir Jacques Chirac, formann flokks- ins, sem flestir telja aö hyggi á framboö til aö reyna aö skáka Giscard d’Estaing forseta i al- vöru. A vinstra vængnum er mikil óvissa og eftirvænting: þótt þaö sé nokkurn veginn vist aö Georges Marchais veröi fram- bjóöandi kommúnista, eru sósial- istar hins vegar komnir i hár saman út af þvi hvort flokksleiö- toginn, Francois Mitterrand, eöa Michel Rocard eigi aö veröa frambjóöandi þeirra. Og þeir um- hverfisverndarmenn, róttækl- ingar af öllu tagi og hugsjóna- menn um ýmis fágæt sérmál, sem vilja gefa kost á sér ef þeir fá nógu marga meömælendur, eru legió. Giscard er öruggur En þegar öllu er á botninn hvolft eru þessar sviptingar til litils, þvi aö hvaö sem gerist og hverjir sem mótframbjóö- endurnir veröa, er þaö svo aö segja öruggt aö Valery Giscard d’Estaing forseti veröur endur- kjörinn meö talsveröum meiri- hluta atkvæöa; siöan samfylking vinstri manna rofnaöi er hrein- lega ekki annar kostur til. Þótt vinstri menn hafi veriö lengi aö átta sig á þvi — og sumir vilji ekki sjá þaö enn — er þaö ekkert álita- mál aö ósigur vinstri manna I þingkosningunum I mars 1978 var miklu meira en venjulegur kosn- ingaósigur, hann var endalok fimmtán ára timabils eöa svo i sögu Frakklands. Allt frá þvi aö menn fóru fyrst aö átta sig á þvi um 1962 hvaöa nýjungar fælust I stjórnarskrá fimmta lýöveldis- ins, höföu leiötogar vinstri manna — og Francois Mitterrand fyrst öörum tima, þvi aö bæöi virtist flokkurinn nokkuö einhuga um þá sameiginlegu stefnuskrá sem hann haföi gert i félagi viö kommúnista og auk þess haföi fylgi hans stóraukist. Hægri stefna sósialista áöur, sem nafn Guy Mollet er bundiö viö, haföi leitt til algers hruns, en vinstri stefna Mitterrands haföi hins vegar endurreist flokkinn og eng- inn minnsti vafi gat á þvi leikiö aö þessi mikla fylgisaukning stafaöi af sameiningarstefnunni: viö- leitni til aö ganga til samstarfs viö hægri flokkana heföi veriö pólitiskt sjálfsmorö allra sem sýnt heföu lit á sliku. I áróöri sinum 1978 gátu kommúnistar heldur ekki bent á nein dæmi um aö sósialistar heföu „sveigt til hægri”, þeir komu hins vegar meö nýjar túlkanir á ýmsum at- riöum sameiginlegu stefnuskrár- innar og báru svo I framhaldi af þvi fram nýjar kröfur, sem sósialistar gátu ekki gengiö aö. Þaö var siöan átyllan til aö rjúfa samstarfiö og eftir þaö höguöu kommúnistar kosningabarátt- unni eins og sósialistar væru höfuöóvinurinn en ekki stjórnar- flokkarnir. Þótt áróöur þeirra næöi I fyrsta sinn i raöir sósial- ista-flokksins, varö ósamræmiö milli árásanna á sósialista og fullyröinganna um samstarfs- vilja svo mikiö aö ekki leiö á löngu áöur en flestum varö ljóst aö kommúnistar höföu sjálfir breytt um stefnu aö verulegu leyti. Horfið aftur til fyrri tíma Þessi stefnubreyting hefur komiö æ betur i ljós siöustu tvö árin. Meöan vinstri fylkingin var enn viö lýöi, varö ekki betur séö en kommúnistar reyndu meö öllu móti aö snúa baki viö stallnisma fortiöarinnar og leifum hans — enda var þaö hreiniega skilyröiö fyrir þvi aö vinstri menn i heild gætu tekiö samstarfiö alvarlega (sósialistar þurftu einnig aö hreinsa til hjá sér og geröu þaö). A þessum tima hneigöust franskir kommúnistar aö „Evrópu- Hægri öflin lifa nú gull- og fremst — reynt aö byggja upp vinstri fylkingu til aö ná meiri- hluta á þingi eöa fá forseta kjör- inn. Þessi fylking haföi fengiö si- aukinn hljómgrunn i landinu og rúmlega tiu árum siöar virtist þaö einungis spurning um tima hvenær hún kæmist aö völdum. Staöa stjórnarflokkanna haföi fariö versnandi i hverjum kosn- ingum og ljóst var aö ekki þyrfti nema smávægilega fylgisaukn- ingu vinstri manna til aö ráöa baggamuninn. En 1978 lauk þess- ari þróun; sá kostur var ekki lengur til aö hægt yröi aö skipta um stjórn i Frakklandi meö þess- um hætti, þvi aö vinstri fylkingin var endardega klofnuö og menn auk þess búnir aö missa alla trú á henni. Kommúnistar og sósíalistar Franskir kommúnistar héldu þvi fram áriö 1978 og hafa gert það æ siöan, aö öll sökin lægi hjá sósialistum; þeir heföu „sveigt til hægri”. Þessi áróður virtist i upp- hafi sannfæra miklu fleiri en kommúnista sjálfa, og þær raddir heyröust jafnvel innan sósialista- flokksins sjálfs aö nauösynlegt væri aö berjast gegn þessari „hægri sveiflu”. En eftir því sem timinn hefur liöiö, hefur fylgi þessarar kenningar rýrnaö, og nú viröast ailir vera þeirrar skoð- unar nema forystumenn kommúnista sjálfir og höröustu linumenn aö kommúnistar beri alla ábyrgö á sundrung vinstri manna. Þaö er nokkuö augljóst aö sósialistar höföu engan hag af þvi aö kljúfa bandalagið, hvorki fyrir kosningarnar 1978 né á nokkrum Marchais fór til Brésjnéfs og iýsti yfir stuöningi viö Rússa f Afganistan I beinni sjónvarpssendingu þaöan Mitterand og Marchais: foringjar vinstri manna höföu byggt upp samstarf sem gaf góöar vonir kommúnisma” og höföu nána samvinnu viö bræðraflokka sina á ítaliu og Spáni: fólst hún ekki sist í þingum og ráðstefnum sem mikla athygli vöktu. En eftir 1978 hefur franski flokkurinn hins vegar gersamlega kúvent og horfiö aftur til fyrri viöhorfa, þannig að sumir þaulvanir frétta- skýrendur hafa hreinlega oröið gáttaöir á ósköpunum. I fyrstu fóru þeir sér hægt, en siöustu mánuöi hafa þeir nánast gengið berserksgang. Stefnubreytingin hefur einkum komiö fram i viö- horfum kommúnista til utanrikis- mála en einnig I innanlandsmál- um og starfsháttum flokksins sjálfs. Fyrstu merkin um ný viðhorf i utanrikismálum voru þau aö kommúnistar hættu þeirri gagn- rýni á Sovétrikin, sem áöur haföi stööugt gerst háværari i flokkn- um, og fóru þess i staö aö tala um aö ástandiö i hinum „sósialisku rikjum” væri „jákvætt I heild”. Þessi siöustu orö voru siöan gerö aö eins konar vigoröi sem sifellt var tönnlast á i ræöu og riti næstu mánuöi. Jafnframt tóku þeir i si- auknum mæli aö bera „velferö- ina” i Sovétrikjunum, þar sem hvorki þekktist atvinnuleysi né veröbólga, saman viö eymdina I Frakklandi, þar sem verkamenn yröu aö heyja stranga verkfalls- baráttu og yröu samt fyrir kjara- skeröingu. Haföi slikur saman- buröur horfiö úr málgögnum þeirra um skeiö. Afganistan Næsta skrefiö var svo tekiö i vetur, f lok desember og byrjun janúar, þegar kommúnistar lýstu yfir fullum og algerum stuöningi viö athæfi Rússa I Afganistan.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.