Þjóðviljinn - 12.07.1980, Síða 29
Helgin 12.—13. júlf. ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 2 9
um helgina
FÍM-salurinn
Félag Islenskra myndlistar- myndir geta tekiö þær meö sér
manna opnar sölusýningu I FlM strax.Þaö veröa þvistööugt nýjar
salnum I kvöld laugardag kl. 7. myndir á veggjum. Sýningin er
Þaö eru alls 18 listamenn sem opin öllkvöld frá kl. 7-10 og stend-
sýna og er framkvæmdin sérstæö ur til 3. ágúst.
aö þvi leyti aö þeir sem kaupa —ká
Nýlist 1 Asmundarsal
Ingólfur örn Arnarson opnar
sýningu i Asmundarsal, húsi
Arkitektarfélagsins viö Freyju-
götu, kl. 16 í dag, laugardag.
Þetta er fyrsta einkasýning hans,
en áöur hefur hann tekiö þátt i
nokkrum samsýningum, hér
heima og erlendis.
Ingölfur nam viö Myndlista-
sköla Reykjavikur og Myndlista-
og handiöaskóla tslands 1976-79,
en stundar nú nám viö Jan Van
Eyck Academie i Maastricht,
Hollandi. Verkin á sýningunni
samanstanda af ljósmyndum og
textum, einnig eru til sýnis
nokkrar bækur.
Sýningin er opin kl. 4-10 virka
daga og 2-10 um helgar. Henni
lýkur sunnudaginn 20. júli.
Grafík í Kjallaranum
Kristjana Finnbogadóttir Arn-
dal opnar i dag, laugardag, sýn-
ingu i Stúdentakjallaranum viö
Hringbraut, og sýnir þar 18
myndir: 14 grafikmyndir og 4
kritarmyndir.
Kristjana hefur stundaö nám i
myndlist hér á landi og erlendis,
fyrst viö Myndlistarskólann i
Reykjavlk 1960-63 og 1970-75 og
siöanviö Listaháskólann i Stokk-
hólmi 1975-80.
Hún hefur tekiö þátt I fjölda
samsýninga, bæöi hér á tslandi og
þó einkum i Sviþjóö, þar á meöal
sýndi hún á voísýningu Liljevals
1979. 1 Sviþjóö fékk hún styrk frá
Listaháskólanum og i ár frá
Listamannanefndinni f Stokk-
hólmi og Menningarsjóöi
Huddinge kommun.
Sýningin er opin milli kl. 11.30
og 23.30, alla daga til 31. júli.
Myndirnar eru allar til sölu.
Sölu-
sýning
Lang-
brókar
Gallerí Langbrók opn-
aði i gær sölusýningu og
má nú segja að starf-
semin sé komin i eðlilegt
horf á Torfunni. Það eru
þær langbrækur 14 að
tölu sem þarna selja
verk sin, en auk þess
bjóða þær grafik myndir
eftir ýmsa listamenn. í
framtiðinni er fyrirhug-
að að hafa sýningar i
fremri stofunni, bæði
innlendar og erlendar,
samhliða daglegri sölu.
—ká.
Klúbbur
F.S.
„Klúbbur F.S.” er
orðinn að föstum lið i
skemmtanalifi borgar-
innar, a.m.k. um stund-
arsakir. Hér er átt við
Klúbb Félagsstofnunar
stúdenta við Hring-
braut. Listahátiðar-
klúbbur var settur þar
upp á sinum tima og
þótti svo skemmtilegur
að menn timdu ekki að
hætta þegar Listahátið
lauk, og starfar klúbb-
urinn enn.
í kvöld, laugardag,
leika Gestur Guðnason
og co. rokk af fingrum
fram i Klúbbnum. Opið
er frá 20.00 til kl. 1 eftir
miðnætti.
Annað kvöld leika svo
Guðmundur Steingrims-
son og hljómsveit hans
djass, og verður opið
jafnlengi, frá 8 til 1.
A Sumarsýningunni eru sýnd verk i eigu Listasafns aiþýðu.
Listasafn alþýöu:
Sumarsýning
1 Listaskálanum, Grensásvegi
16, veröur i dag, laugardag, opn-
uö fyrsta yfirlitssýning á verkum
Listasafns alþýðu i þessum nýju
og glæsilegu húsakynnum.
Uppistaöa sýningarinnar er úr
gjöf Ragnars Jónssonar I Smára,
en auk þess eru myndir sem safn-
iö hefur eignast siöar.
Listaskáli alþýöu var formlega
vigöur 7. febrúar sl. og þá af-
hentur Listasafni alþýöu til af-
nota. Fyrsta opinbera sýning
Listasafnsins á Grensásveginum
var opnuö 1. mai sl.. Var þaö sýn-
ing á málverkum Gisla Jónssonar
frá Búrfellskoti, þá nær óþekkts
alþýöumálara. Framlag Lista-
safns alþýöu til Listahátíöar 1980
var sýning á koparstunguröö
Goya, Hörmungar striösins, og
stóö hún út júnfmánuö.
Sumarsýning Listasafns alþýöu
stendur frá 12. júli-31. ágúst, og
veröur sýningin opin virka daga
kl. 14.00-18.00 og sunnudaga kl.
14.00-22.00. Kaffistofan veröur op-
in á sýningartima og auk þess
veröa boönar veitingar I hádegi
virka daga kl. 11.30-1.30.
Það £R &lkÐSERR&Ío\rC'ýfý-~kZ^
ÍDRG KU " D ) \
í HhFNfíR&l 01
MfcTUM öll!!/ | (
7\í ' r
Y
Maður til taks
Sjómannamynd í litum með ísl. texta
Alúöar þakkir sendi ég öllum þeim. er auösýndu mér
samúö og stuöning við fráfall og útför eiginmanns mins,
Guðmundar Eirikssonar,,
fyrrverandi skólastjóra, Raufarhöfn,
er lést 24. júni siöast liöinn.
Guö blessi ykkur öll.
Sigurbjörg Björnsdóttir.
Alúöarþakkir færum viö öllum þeim nær og og fjær er
sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför
Marenar Þorkelsdóttur
Bogaslóð 10 Horinaifirði
Asgeir Gunnarsson
Erla Asgeirsdóttir
Gunnar Þ. Asgeirsson
lngvaldur Asgeirsson
Asta G. Asgeirsdóttir
og barnabörn
Sverrir Guðnason
Asgeröur Arnardóttir
Gréta Friöriksdóttir
Albert Eymundsson
Móöir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
Kristin G. Björnsdóttir
fyrrum starfsstúlka Kópavogshælis,
lést þann 9. júli aö Hátúni lOb. Bálförin fer fram frá
Garðakirkju á Áiftanesi, miövikudaginn 16. júli kl. 13.30.
F.h. fjarstaddrar dóttur og annarra ættingja.
Elisa M. Kwaszenko
Björn Magnússon Svanhvit Gunnarsdóttir
Utför
Jófriðar Guðmundsdóttur
frá Helgavatni
Hjallavegi 27
verður gerö frá Fossvogskirkju
þriöjudaginn 15. júli kl. 15.00
Anna Einarsdóttir, Haildór Jónsson
Einar Halldórsson, Jón S. Halldórsson
Gunnar Þ. Halldórsson, Friöur M. Halldórsdóttir