Þjóðviljinn - 26.07.1980, Side 10

Þjóðviljinn - 26.07.1980, Side 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN HELGIN 26—27. júll Guðrún Agústsdóttir: En nú er eins og borgin hafi vaknað af dvala, matsölustaðir og kajfihús spretta upp eins og gorkúlur Líf í borg Er Reykjavík skemmti- leg — falleg borg? Þaö hefur ekki fariö fram hjá neinum aö miöborg Reykjavíkur hefur breyst. 1 hana hefur færst lif. HUn er aö lifna viö. Fyrir nokkrum árum geröist þar aldrei neitt nema e.t.v. á 17. jUní, sum- ardaginn fyrsta og 1. mai. Fólk átti yfirleitt ekki annaö erindi i miöbæinn, en aö skreppa i banka, pósthUs og borga reikninga. Einstaka menn reyndu þó aö hitt- ast á götuhornum og rabba sam- an — annars voru allir aö flýta sér á milli stofnana. KaffihUs I miöborginni lögöu upp laupana og miöbærinn hélt áfram aö vera dauöur. En nU er eins og borgin hafi vaknaö af dvala, matsölustaöir og kaffihUs spretta upp eins og gorkUlur, Félagsstofnun stUdenta hefur bryddaö upp á nýjungum og er oröin afar aölaöandi mótstaö- ur. útihátiöahöld og uppákomur þar sem fólk tekur þaö upp hjá sjálfu sér aö skemmta fólki eöa vekja athygli á skoöunum sinum eru oröin tiö. Pylsuvagnar og útimarkaöur gera sitt til þess aö laöa fólk aö miöborginni.Hverjum þetta er aö þakka er erfitt aö fullyröa, en framtakssamt fólk hefur komiö fram meö nýjar hugmyndir, sem borgaryfirvöld hafa tekiö vel I og jafnframt bryddaö upp á nýjungum sjálf. Fleiri og fleiri gömul hUs eru gerö upp og I þau flytur fólk sem hefur áhuga á þvi aö vernda og bæta gömul hús. Nýuppgert Landlæknishúsiö á Torfunni, eins fallegt og þaö er oröiö aö inn- an sem utan, hefur vonandi sann- fært þá sem andsnúnir voru friö- un Torfunnar um ágæti þessarar ákvöröunar. Allt þetta á sinn þátt 1 þvi aö gæöa miöborgina lifi. NU er bUiö aö gera nýtt deili- skipulag fyrir Grjótaþorpiö og vonandi ná þær hugmyndir um varöveislu og endurnýjun sem þar eru fram aö ganga. Næsta skref held ég aö ætti aö vera aö minnka akstur einkabila I miöborginni, hvort sem þaö yröi meö fækkun bilastæöa þar, eöa meö þvi aö loka einstaka göt- um — þaö væri liklega best aö fara hægt i þær sakir meö þvi aö loka götum einstaka daga þegar umferöin er mest. Annars er um- feröin I Reykjavik (og reyndar annars staöar llka) talsvert ruddaleg. Fólki viröist oft liggja öll ósköpin á og ekki tækifæri til aöpælast áfram, „svína”,er látiö ónotaö. Meö hækkandi eldsneyt- isveröi veröur þaö sifellt brýnna aö umferöin veröi jafnari. Þaö er nefnilega heldur . klénn bensin- sparnaöur aö vera slfellt aö „gefa I” og bremsa. Aö undanförnu hef- ur veriö reynt aö reka áróöur fyr- ir hjólreiðum. Þaö er Ut af fyrir sig mjög skynsamlegt, en þaö fylgir bara sá böggull skammrifi aö þaö er stórhættulegt aö hjóla hér I Reykjavik. Okumenn eru ekki vanir aö þurfa aö taka tillit til hjólreiöamanna og þvl er ltk- legt aö hjólreiöamaöurinn veröi haröast Uti I hita baráttunnar um aö komast leiöar sinnar. Þaö getur veriö erfitt aö dæma um baö hvort borgin, þar sem maöur er uppalinn sé falleg eöa ekki. Mér finnst hUn fal- leg — meö nokkrum undantekn- ingum þó — en hitti oft fólk bæöi innlent og erlent sem sér ekki þessa fegurö — er hins vegar heillaö af fegurö höfuöstaöar Noröurlands. Þessu getur veriö erfitt aö kyngja. Þegar spurt er nánar Ut I þessa sálma er bent á ófrágengnar lóöir I kringum verksmiöju- og iönaöarbyggingar og ennfremur hversu dreifö borg- in er. Akureyri sé mun heillegri bær. I Reykjavik sé mikiö af auö- um óræktarsvæðum sem þjóni engum tilgangi, en sltti borgina I sundur. Þau vandamál sem fylgja dreiföri byggö þekkja þeir mæta vel hjá S.V.R. Þegar Reykjavlk er borin saman viö borgir af svipaöri stærö erlendis kemur í ljós aö vegalengdir éru hér miklu meiri en þar, og er auö- velt aö sjá hversu óhagkvæmt þaö er. Þær hugmyndir sem fram hafa komiö um þéttingu byggöar yröu til þess aö gera borgina samfelld- ari og fallegrbsvo ekki sé talaö um sparnaöinn sem af þvl hlytist aö nýta þessi svæöi áöur en ráöist er I aö byggja ný Uthverfi meö ærnum tilkostnaöi. Þau svæöi er athuguö hafa veriö eiga þaö sam- eiginlegt aö vera meira og minna I órækt. Þaö mælir þvi ýmislegt meö þvi aö reyna aö fylla upp I þær eyöur sem myndast hafa I byggöina hér. Ýmislegt hefur veriö gert til þess aö laöa fólk til höfuöstaöar- ins. Eg minnist bæklings sem Reykjavikurborg lét gefa Ut aöal- lega ætlaöan Utlendingum. 1 þeim bæklingi var feröamönnum boöiö upp á aö setjast inn á tiltekiö kaffihUs I miöborginni og horfa á fallegar stelpur sem gengju framhjá. Þaö var sumsé gefiö I skyn aö islenskar stUlkur væru fjarska fallegar, sem þær llka eru. En strákar höfuöstaöarins á ýmsum aldri eru llka fjarska fal- legir og hæpiö aö taka þaö ekki fram. Þaö er nefnilega ekki alveg sjálfgefiö aö allir feröamenn séu karlar. A þessum slöustu og verstu tfmum er konur nefnilega famar aö feröast! Þessi setning um fegurö kvennanna var felld niöur þegar bæklingurinn var endurskoöaöur áriö 1974, og hann var skrifaður aö minnsta kosti áratug áöur en viö Islendingar kusum okkur hana Vigdisi sem forseta og áöur en Rauösokka- hreyfingin fór> aö láta á sér kræla. En þaö er ennþá ýmislegt I þessum litla bæklingi sem orkar tvimælis, þar stendur t.d. aö ,Avert heimili hversu fátæklegt sem þaö er hefur eigið bóka- safn — þar sem á lslandi býr ein mesta bókmenntaþjóö heims- ins,” — áöur haföi komiö fram aö „flestir reyni aö byggja sér sln eigin hýbýli sem hæfi draumum þeirra um „ideal living”, kaupi sér lóö og byggi svo hvenær sem þeir hafi tlma og peninga. Þegar inn er komið eru heimilin eins og beint upp Ur hýbýlaprýöistlmarit- um”. Þessu til frekari staöfest- ingar er mynd af glæstu einbýlis- húsi I Vesturbænum. Hvar eru þá fátæklegu heimilin meö bóka- söfnunum? Ef til vill hefur skap- ast hefö um gerö sllkra auglýs- ingabæklinga og fegrun á staö- reyndum sjálfsögö, en þarna er nokkuö langt gengiö, þvl raun- veruleikinn er allt annar hjá mörgum Ibúum borgarinnar. Þaö er ekki hægt aö treysta þvl aö ein- stæöa móöirin, sem er aö leita sér aö leigulbúö á uppsprengdum markaöi geri sig ánægöa meö aö lesa þennan bækling Utgefinn af Reykjavikurborg. Hún er alla vega ekkií hópi þessara „flestra” sem lýst er I bæklingnum. Ég held aö þaö sé full ástæöa til aö endurskoöa bækling þennan, en þó er ennþá meiri ástæöa til aö fara hina leiöina aö þvi aö minnka fjarlægöina milli draums og veruleika aö bæta veruleikann og ráö bót á þeim hlutum sem slst eru liklegir til aö komast I feröa- mannabæklinga. Guörún Ág. Einar Karl Haraldsson Fatladir ekki sér heldur med Nitján hundruð áttatiu og eitt er alþjóðaár fatlaðra. Það er nú mikil lenska að heiga hvert ár sérstökum málaflokkum og mörg þörf málefni berjast um athygli landsmanna. En samtök fatl- aðra hafa gætt þess að minna rækilega á sig i tima og lagt fast að stjórnvöldum og sjálfum sér að nota yfirstandandi ár til undirbúnings en alþjóðaárið til framkvæmda. Margháttað undir- búningsstarf er unnið þessar vikurnar og eins og horfir i dag er þess að vænta að talsverð tiðindi verði i málefnum fatlaðra á næsta ári. Sameinuðu þjóöirnar greina fötlun meö svofelldum hætti. „Skilgreining á fötlun er af ýmsum toga. Þó er almennt ályktað aö hver sá geti talist fatlaöur sem ekki getur um alla framtlö á eðlilegan hátt tekiö þátt I störfum og leik meiri hluta jafnaldra I samfélaginu. Fötlun er jafnt af likamlegum sem andlegum toga spunnin”. 1 heimsbyggö allri eru um 10% ibúa fatlaöir andlega eöa llkamlega samkvæmt þessari skilgreiningu. Auk þess er aö jafnaöi um 5% sem um lengri eöa skemmri tima eiga i erfiö- leikum meö aö bera sig um vegna slysa, aldurs og fleiri hreyfihamlandi þátta. Hér á landi eru um 23 þúsund manns i fyrri flokknum, og 11 til 12 þúsund manns I hinum siöari. Málefni fatlaöra snerta á beinan hátt miklu stærri hóp, m.a. aö- standendur og fólk I heilbrigöis- stéttunum. Slöast en ekki sist snerta þau okkur öll, þjóöar- heildina, þvi aö hvernig sem litiö er á máliö skiptir þaö miklu aö þessum stóra hópi sé gert kleift aö vera virkur I þjóöfélag- inu. A vegum nefndar sem undirbýr alþjóöaárið er nú verið aö vinna aö endurskoöun á gild- andi lögum og reglugeröum um málefni fatlaöra. Stefnt er aö þvl aö á næsta ári veröi sett heildarlöggjöf um þessi efni I staö núgildandi laga og reglu- geröa sem eru hátt á annan tug, ósamstæö og Urelt sum hver. Sennilega veröur þar tekiö miö af nýsamþykktum lögum um aöstoö viö þroskahefta sem þykja til fyrirmyndar, og um leiö veröa þau felld inn I heild- ina. I annan staö er unniö aö vlötækri stefnumótun I mál- efnum fatlaöra I tengslum viö frumvarpsgeröina og undirbúin áróöursherferö alþjóöaársins. Atján dauöaslys hafa oröiö I umferöinni þaö sem af er þessu ári á móti fimm allt áriö I fyrra. Fleiri hafa einnig slasast i umferöinni en áöur og margir eru örkumla fyrir lifstiö. Billinn tekur stóran toll i mannslifum og örkumlum. Bregöast þarf hart viö á þessu sviöi bæði meö lagasetningu og aukinni fræöslu. Starfshópur um slysa- varnir er nú aö störfum og veröur væntanlega hægt aö byggja á niöurstööum hans skynsamlegar Urbótatillögur er snerta slys I heimahúsum, vinnuslys og umferðarslys. Þegar hafa veriö settar fram kröfur um lögleiöingu bílbelta og hnakkpúöa, og markvissari ökukennslu. Eitt sviö veröur sérstaklega tekiö fyrir en þaö er nauösyn breytinga á bæjar- skipulagi til þess aö fækka umferöarslysum. Fötlun af völdum slysa hefur I för meö sér gifurlegan samfélagslegan kostnaö og hér er þvi til mikils aö vinna fyrir opinbera aöila og öll þau samtök sem meö einum eöa öörum hætti starfa aö slysa- vörnum. Alkunna er aö mannvirki okkar eru ekki hönnuö meö þarfir fatlaöra i huga. I nýlegri byggingarreglugerö fyrir allt landiö er mælt svo fyrir aö allar opinberar byggingar skuli ytra sem innra vera hannaöar meö þessar þarfir I huga. Svipaöar reglur gilda um ibúöarhúsnæöi en er ekki enn fylgt stranglega eftir. í umfjöllun Þjóðviljans i siöasta Sunnudagsblaöi um aögang fatlaöra aö opinberum byggingum sýndi sig aö enda þótt nýjar reglur séu komnar I gildi er langur vegur frá þvi aö hönnuöum séu orönar þær svo eiginlegar aö þær séu Utfæröar á fullnægjandi hátt. Hafi þab Ritstjórnargrein tekist varöandi lyftur eöa breidd huröa, þá rekst hinn fatlaöi allt I einu á þröskuld eöa á alltof bratta skábraut o.s.frv. Fyrir heilbrigöan er ætlö erfitt ab setja sig i spor hins fatlaða, en hönnubir og ráðamenn þurfa eigi aö siöur aö leggja sig betur fram um þaö. Ef aöal hagsmunamálum fatlaöra er raöaö I forgangsröö koma atvinnumálin áreiöanlega fyrst. Mikils átaks er þörf I þvi aö fjölga atvinnutækifærum, koma á virkri vinnumiðlun fyrir fatlaöra, fleiri vernduöum vinnustööum og jafnvel aö skylda atvinnurekendur aö hafa jafnan einhverja fatlaða I vinnu. Ferli og aðbúnaöarmálin ganga atvinnumálunum næst og þar eru verkefni til fjölda ára. Menntunarmál fatlaöra eru ákaflega mikilvægur mála- flokkur þar sem mikilla úrbóta er þörf svo og aukin fræösla til almennings, m.a. meö kynningu á kjörum fatlaöra i skólum. Slöast en ekki slst má aldrei gleymast aö öryrkjar og aldr- aöir eru langtekjulægstu hópar landsmanna. t gegnum öll þessi brýnu hagsmunamál gengur eins og rauöur þráöur hvort fatlaöir eigi aö deila kjörum og blanda geöi viö okkur hin i skólum, hús- næöi og á vinnustað, eöa vera sér á stofnunum. Sérhúsnæöi fyrir fatlaöa, sérskólar og verndaöir vinnustaöir eru góöra gjalda veröir aö vissu marki viö lausn brýnasta vanda. En - tslendingar eru nú á þvl stigi mála aö krafan hlýtur aö vera um jafnrétti fyrir fatlaöa og aö- lögun aö venjulegum lifs- háttum. Þeir eiga ekki aö vera sér heldur meö. Framkvæmd alþjóöaárs fatlaöra og þær umbætur sem aö er stefnt munu kosta peninga, mikla peninga. Þjóö- viljinn hvetur til þess aö fjár- veitingavaldiö standi sig myndarlega i þessum efnum og tryggi Framkvæmdasjóði öryrkja og fatlaöra viöbótarfé, auk þess sem þannig veröi búiö um hnúta aö framkvæma megi lögin um aöstoö viö þroskahefta meö reisn. Þar má nefna m.a. rekstur heimilis fyrir innhverf börn og þá reglu aö foreldrar sem gæta þroskaheftra barna á heimilum skuli eiga rétt á hálfu daggjaldi vistheimilis. A þessu ári veröur tekin i notkun sundlaug viö Sjálfs- bjargarheimilin I Reykjavik og nýveriö var tekin fyrsta skóflu- stunga aö sundlaug viö Endur- hæfingardeild Borgarspitalans. Þessar framkvæmdir kveikja vonarneista hjá fötluöum sem áreiöanlega munu ekki láta sitt eftir liggja á alþjóöaárinu. Magnús Kjartansson hefur likt fötluöum viö ónýtta auölind sem þjóbfélagiö eigi aö veita fjár- munum i aö beisla, enda sé þaö ein aröbærasta fjárfesting sem hægt sé aö leggja 1.11. mai ræðu á Húsavík sagði Magnús: „Barátta fyrir réttindum fatl- aöra er jafnréttisbarátta, en einnig barátta fyrir bættum þjóöféiagslegum afköstum, aukinni arösemi og betra lifi okkar allra.” —ekh

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.