Þjóðviljinn - 26.07.1980, Blaðsíða 31
HELGIN 26.-27. JúH .ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 31
HÉR
Áslaug Óttarsdóttir
skrifar um útvarp
og sjónvarp
Fimmtu-
dagar og
fleira
Hafiö þið tekið eftir hvað allir
eru ánægöir i sjónvarpsleysinu?
Það er jú svo mikill timi til alls.
Gönguferöir, bióferðir, heim-
sóknir, bókalestur o.s.frv..
Margir uppgötva sér til óbland-
innar ánægju að þeir eiga börn,
jafnvel heila fjölskyldu.
Ég er ein af þessum ánægðu,
og þar sem ég hlusta aldrei á út-
varp nema af slysni eru blöðin
eina fjölmiðlafargið sem á mér
hvilir þessa 30 fimmtudaga.
Annars lenti ég i sliku slysi nú
i vikunni og heyröi þá Dr. Gunn-
laug Þórðarson ræða daginn og
veginn. Hann talaði m.a. um
þessa miklu gæfu mörlandans,
júlimánuð og alla hina fimmtu-
dagana, og taldi að Islendingar
ættu að boða þetta fagnaðarer-
indi um jarðkringluna alla. Við
skyldum kveða okkur hljóös á
vettvangi S.Þ. og öðrum þeim
stöðum sem heimsbyggðin má I
okkur heyra. Og við ættum að
segja þeim hversu miklu betri
okkar fimmtudagar væru öör-
um dögum og fá þá til að taka
upp slika daga, komandi kyn-
slóöum tegundarinnar til
ómældrar gæfuum alla framtið.
Undir þessum lestri varö mér
hugsaö til könnunar sem gerð
var á vegum S.Þ. I tilefni barna-
ársins tlttnefnda. Tveir hópar
barna voru spurðir hvaöa vonir
þeir byndu við framtíðina. Ann-
ars vegar voru börn frá Banda-
rlkjunum og hins vegar börn frá
fátæku landi f S-Ameríku. N-
Amerikubörnin töluðu um stór-
fenglega tölvutækni, almenn-
ingssamgöngur til annarra
hnatta og fleira I þeim dúr. Hin
S-Amerísku bundu vonir við góð
húsakynni, nægan mat, jafnvel
sima og aðra „sjálfsagöa” hluti.
Sá dagur kann að koma aö
fulltrúar lslands á samkomum
þjóðanna bregði þeim vana að
klappa saman lófunum eða
rétta upp hönd á „réttum” stöð-
um og þegja þess á milli. A þeim
degi vona ég að boöskapur okk-
ar verði annar og brýnni en holl
ráð til vesturheimskra velmeg-
unarþjóða um að hvlla sig nú á
sjónvarpsglápi einn dag I viku.
En burtséð frá þessu get ég
vel veriö sammála Gunnlaugi
um allt hiö i'lla sem af sjón-
varpsglápi stafar. Bæði hvaö
varðar samveru manna og sam-
skifti en ekki sist áhrif þessa
fjölmiðils á börn. Þau eiga enn
erfiðara en við með að gera
greinarmun á raunveruleikan-
um og því sem gerist á skján-
um. Þegar svo börnin eyöa orðiö
mörgum klukkutlmum á degi
Ihverjum fyrir framan tækin,
eins og alsíða mun I löndum
hinna „frjálsu fjölmiðla”, eru
menn komnir á hættulega braut.
WHi
HEN ENTERING
THIS ULTRA-MODERN HOTEL,
THE RECEPTION OFFICE, LOUNGE,
READING & WRITING ROOM ARE
TO THE LEFT. THE CENTER DOOR
LEADS THROUGH THE CLOAKROOM
INTO THE RESTAURANTS.
Nokkrar svipmyndir úr bæklingi er gefinn var út i
tilefni opnunnar Hótel Borgar.
Danssalurinn eða „Gullhöllin”
BRAGÐLAUKURINN
AOaldyr
Kvennastofa
Kálfasulta
1 kg magur kálfabógur
(má einnig nota svfnabóg)
2 laukar
2 gulrætur
1—2 lárviðarblöð
1 tsk heil svört piparkorn
1 tsk timian
örlitið af negul
sellerísalt
kryddpipar.
Sjóöið kjötið og grænmetið I 1
1 af vatni með kryddinu. Þegar
kjötið er orðiö meyrt er soöiö
slaö, kjötið og grænmetiö lagt I
bita I form og soðinu hellt yfir.
Sé kjötið ekki af bóg, þarf
matarlím út I.
Setjiö sultuna I Isskáp
(gjarnan I pressu.) þar til sultan
er orðin hleypt. Þessi sulta er
tilvalin fyrir þá sem vilja gæta
1 OG
aö þyngdinni. Hún er best með
nýjum kartöflum, rúgbrauði og
smjöri, eða hrásalati.
LIMRUR
Krummi
Þessa andskotans
óplumkenningu,
sem er ógnun við klerk-
dómsins menningu,
hirði Kölski og Marx,
svo ég komist nú strax
til að krunka með heilagri
þrenningu.
rs
Landslag
Er þau stóðu og horfðu
yfir Stórasand,
mælti Steinsen við
ungfrú Birkiland:
„Hvílíkt ógnarland,
hvilikt auðnarland!
Það fer yrður svo vel,
ungfrú Birkiland.”
Þorsteinn V aldimarsson
Þessi visa barst umsjónar-
manni Sunnudagsblaðs um það
leyti er hann var aö yfirgefa skút-
una á leiö til Köben. Til útskýr-
ingar skal tekið fram aö Ólöf
vinnur á símanum, en elskulegir
samstarfsmenn umrædds um-
sjónarmennis höfðu kvatt með
rósum, vlni og Kirkjuriti árituðu
með þessari visu:
Ertu nú Tóta alveg bit —
Ólöf þegiðu á meðan!
með hvltvln, rósir og
Krikjurit
kemstu aldrei héðan!
—AB.
„Hingað koma ýmsir
sem áöur voru á móti
varðveislu Torfunnar”
örn og Kolbrún fyrir utan Torfuna. Ljósm — Ella—
Veitingahúsið í Torfunni:
„Jú, hingað hafa komið ýmsir
af þeim mönnum sem höföu lýst
yfir andstöðu við varöveislu
Bernhöftstorfunnar. Og ég fæ
ekki betur séð en þeir séu bara
býsna ánægðir yfir húsinu”
sagði örn Baldursson, annar
eigenda hins nýja veitingahúss I
Torfunni. Rekstur veitinga-
hússins hefur gengið með
afbrigðum vel eftir því sem örn
sagði og mun betur en hann og
hinn eigandinn, Kolbrún
Jóhannesdóttir, höfðu þorað að
vona.
„Fiskréttirnir eru lang
vinsælastir, einkum Skötuselur-
inn. Við gerðum samning við
fisksala sem tryggir okkur allt-
af nýjan Skötusel og hann er
langmest keyptur hjá okkur.”
„Hvar er Skötuselurinn
. veiddur?”
„Hann er veiddur I kringum
landið. Oftast eru það humar-
bátarnir sem fá hann I trolliö.”
„Er mikið af útlendingum
sem borðar hjá ykkur?”
„Já, og þeim fer fjölgandi.
Reyndar má segja að hér sé
alltaf fólk allan daginn, þvl við
seljum kaffi og kökur um
miöjan daginn. Nú erum við að
opna annan sal uppi á lofti til
viöbótar við herbergið og innan
skamms fáum við leyfi til að
selja létt vln.”
„Verða leikmyndateiknarar
með myndir á veggjunum hjá
ykkur áfram?”
„Já, við gerðum samning við
Félag leikmyndateiknara og
innan skamms verður sýning
Lárusar Ingólfssonar tekin
niður og sett upp yfirlitssýning
á verkum ýmissa leikmynda-
teiknara. Slðan er ætlunin að
setja upp teikningar af búning-
um og leikmyndum úr sýning-
um sem á að fara að frum-
sýna.”
„Og hvernig finnst ykkur svo
húsið hæfa fyrir starfsemi af
þessu tagi?”
„Alveg prýðilega og viö erum
mjög ánægð með vinnu
arkitektsins, Knúts Jeppesen.
Ég held aö flestir séu sammála
um að endurbygging hússins
hafi tekist mjög vel og þaö
hentar ágætlega fyrir þessa
starfsemi okkar ”, sagði Orn
Baldursson að lokum.
þs
ympíuleikar?’
Það fer heldur lítið fyrir
fréttum af Olympiuleikunum I
Moskvu I blaði allra lands-
manna, Morgunblaðinu, sem
lætur eins og leikarnir séu ekki
til. Sagan segir að dyggur
flokksmaður, forystumaður I
einu sérsambanda Iþróttahreyf-
ingarinnar og kaupandi
Morgunblaðsins hafi farið á
fund Styrmis ritstjóra og
kvartað undan þessari afstöðu
blaðsins. Hann sagði að útilokað
væri fyrir Morgunblaöiö að
ætlast til þess aö dyggir stuð-
ningsmenn þess færu að kaupa
önnur blöö til þess aö fá fréttir
af leikunum. Morgunblaðiö yröi
þvíað láta af þessari vitleysu og
fara að sinna Olympíuleik-
unum. Styrmir ritstjóri lét sér
ekki bregöa, en spurði: Ha?
Hvaöa Olympluleika?