Þjóðviljinn - 10.09.1980, Page 5
Miðvikudagur 10. september 1980
ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Nýr forsœtisráðherra Kína:
Galdramaðurinn
frá Sitsjúan
Þau tíðindi urðu stærst á fundum kinverska þjóðþíngsins á dögunum að Hua
Guofeng sagði af sér embætti forsætisráðherra og við tók Zhao Ziyang, 62 ára
gamallr Hann er tiltölulega ungur maður í því öldungaveldi sem Kina stýrir.
Helstu verðleikar hans eru þeir að hafa drifið upp allmiklar efnahagslegar fram-
farir í fylkinu Sitsjúan, en þar var hann héraðsformaður Kommúnistaflokksins.
Zhao Ziyang er að öllu leyti
fylgjandi þeim hópi sem vill
leggja arf „fjórmenningaklik-
unnar” og þar með menningar-
byltingarinnar svonefndu fyrir
róða. Hann hefur komist svo að
orði, að það séu aðeins tvær só-
sialiskar meginreglur sem beri
að hafa i heiðri: önnur sé sam-
félagseign á fyrirtækjum og hin
sú að hverjum manni sé greitt
eftir þvi framlagi sem hann
leggur þjóðfélaginu til með
vinnu sinni. Eins og Deng Xiap-
ing, náinn samherji hans, telur
hinn nýi forsætisráðherra að
efnahagslegur árangur sé miklu
þýðingarmeiri en hugmynda-
fræði.
Svipað og í Sovét
En vel á minnst: þær tvær
meginreglur sem nú voru
nefndar eiga mætavel við yfir-
lýst meginsjónarmið i Sovét-
rikjunum, enda hafa kinverskt
þjóðfélag og hið sovéska verið
að likjast hvort öðru æ meir
eftir þvi sem lengra dregur frá
menningarbyltingu — þótt
ráðamönnum bæði i Moskvu og
Peking sé þvert um geð að
viðurkenna það. Og eins og i
Sovétrikjunum verða ráðamenn
i Kina næst spurðir að erfiðri
spurningu: ef hver þegn á að fá
laun og kjör eftir vinnufram-
lagi — hver á þá að meta gildi
starfs og afkasta hvers og eins?
I báðum tilvikum mun forysta
Kommúnistaflokksins mestu
ráða um niöurstöðuna — og þar
meö er enn á ný farinn að mót-
ast forréttindahópur sem
skammtar sjálfum sér kjör og
friðindi án nokkurs eftirlits.
Náði árangri
Hvað um það: Zhao Ziyang
vill vera opinn fyrir ýmislegum
möguleikum innan þess ramma
sem kinverskir stjórnarhættir
setja. Hann er reiðubúinn til að
læra af Vesturlöndum, af sjálf-
stjórnarskipulagi Júgóslaviu og
af vissu valddreifingarkerfi
Ungverja i efnahagslifi ef það
getur komið kinverskum efna-
hag að gagni.
Það var ekki fyrr en eftir fall
fjórmenningaklikunnar svo-
nefndu árið 1976 að Zhao Ziyang
tókst að brydda upp á ýmsum
efnahagslegum umbótum i Sit-
sjúan, sem er stærsta og fjöl-
mennasta fylki Kina, telur
hundrað miljónir ibúa. Það eru
aðeins sex riki heims sem hafa
fleiri ibúa.
í fylkinu rikti hin mesta
ringulreið eftir menningarbylt-
ingu og framleiðslu hnignaöi
svo, að þetta fyrrum kornforöa-
búr Kina varö að flytja inn hris-
grjón. Zhao Ziyang réði bót á
þessu ástandi með þvi aö leyfa
bændum aftur að rækta smá-
skika fyrir eigin reikning (slikt
taldist kapitalismi á dögum
menningarbyltingar-
innar) — og hann
aukin — heldur stækkaði þessa
skika. Hann veitti fyrirtækjum
aukið sjálfsforræði og leyfði
þeim að halda eftir hluta af
ágóða sinum. Verkamenn fengu
bónus fyrir aukin afköst. Þetta
allt hafði jákvæð áhrif: á þrem
árum óx iðnaðarframleiðslan i
Sitsjúan um 81% og hrisgrjóna-
uppskeran um 25%. Samt eru
þessar umbætur ekki sérlega
róttækar og myndu raunar ekki
sæta neinum tiðindum i þjóð-
félögum Austur-Evrópu, þar er
þessum ráðum öllum beitt.
Þessi árangur hefur dugað til
þess, að Zhao Ziyang er lands-
þekktur maður og hefur verið
Zhao Ziyang: verðlaun fyrir aö auka framleiösluna
nefndur sem liklegt forsætisráð-
herraefni frá þvi um áramót.
Um nokkra mánaða skeið hefur
hann gengt embætti varafor-
sætisráðherra. Sem fyrr segir
er hann náinn bandamaður
Deng Xiaopings, og varð eins og
hann fyrir barðinu á menn-
ingarbyltingunni. Arið 1967 var
hann fordæmdur sem and-
byltingarmaður og rauðir varð-
liðar teymdu hann um götur
Kanton með háði og spotti. En
þegar árið 1971 fékk hann upp-
reisn æru.
Erfið glíma
Hinn nýi forsætisráðherra
hefur við ærin verkefni að
glima. Arið sem Maó formaður
dó varð enginn hagvöxtur i
Kina. A undanförnum þrem ár-
um hefur atvinnulifið tekið
undir sig nokkurt stökk, hag-
vöxtur hefur verið 8-11,6% á ári.
En i ár mun verða nokkur aftur-
kippur og hagvöxtur fara niöur I
5%. Aætlanirnar miklu um að
gera Kina eitt afleiðandi iðn-
aöarveldum heims um næstu
aldamót hafa verið endurskoð-
aðar: framkvæmd þeirra mun
dragast á langinn. Sú nýja efna-
hagsstefna, sem þingiö kin-
verska hefur til afgreiöslu mun,
með áherslum sinum á afköst og
markaðsstefnu, vafalaust auka
tékjumun i Kina, auka mun á
borgum og sveitum, auka tekju-
mun milli héraða og gera landið
háöara erlendu fjármagni.
Hvort sem þessi stefna ber mik-
inn eða litinn árangur er það
vist, að hún mun mæta drjúgri
andstöðu i Kina. ábtóksaman.
FRÉTTA-
SKÝRING
Er það minn
eða þinn
tíkarsonur?
Frelsið á Filippseyjum og öryggi
Marcos er lengst til hægri og frú hans Imelda fyrir miöju undir sólhlif:
„sumir eru sniöugri en aðrir” segir hún.
Bandaríkjanna
Eftir nokkuð hik ákváðu
Bandarikjamcnn að kalla heim
sendiherra sinn i Boliviu og hætta
hernaðaaðstoð við það land. Þetta
ergert i mótmælaskyni við valda-
rán herforingjakliku, sem hefur
þegar framið fleiri morð á raun-
verulegum og hugsanlegum and-
stæðingum en talið verði og
breytt landinu i „sjóræningja-
riki” með eiturlyfjakónga að bak-
hjarli. Þá hefur Washington Post
skýrt frá þvi, að i Perú hafi
forseti, sem þar var kosinn i
nokkurn veginn frjálsum kosning-
um, tekið við embætti ,,eftir að
Carterstjórnin hafi gert nauðsyn-
legar ráðstafa nir til að try ggja að
herinn f Perú stæði við gefin lof-
orð um að láta af völdum”.
Jákvætt
Þetta eru vissulega jákvæð
dæmi: þausýna, að Carterstjórn-
in er ekki ónæm fyrir þeirri gagn-
rýni, að hún sé að visu nógu boru-
brött gagnvart Sovétmönnum i
mannréttindakröfum, en sjái i
gegnum fingur við hægrisinnaðar
einræðisstjórnir og valdaklikur
vegna þess að þeim ráða menn
sem eru „okkar tikarsynir” eins
og haft er eftir bandari'skum
sendimanni i höfuðborg Zaire:
hann var að tala um Mobutu.
Hvi ekki Marcos?
Raul S. Manglapus heitir
maður og var fyrrum utanrikis-
ráðherra Filippseyja. Hann ber
fram þá spurningu i nýlegri grein
i Washington Post, hvers vegna
Carterstjórnin reyni ekki að beita
einhverju tilbrigði við
mannréttindakröfurnar á einræði
Marcosar Filippseyjaforseta —
áður en það er orðið um seinan.
Hann svarar ser sjálfur: segja
má, að Filippseyjar séu mikil-
vægari öryggi Bandarikjanna en
Bolivia og Peru. Þess vegna megi
ekki hagga við stjórninni þar,
vegna þess að hún „tryggi
ákveðinn stöðugleika”.
Hvaða stöbugleika? spyr
Filippseyingurinn. Bandriskar
stofnanir vita að um 80% af fólk-
inu þjáist af næringarskorti.
Erlendar skuldir eru gifurlegar.
Fjórði hver maður gengur at-
vinnulaus. Og yfir þessum ósköp-
um trónar Marcosfjölskyldan
sem hefur, mjög i anda þeirrar
spillingar sem einkenndi stjórn-
sýslu transkeisara sem var, gerst
rikasta fjölskylda heims að áliti
timaritsins Cosm opolitan.
Höfundur úttektar á fjárreiðum
fjölskyldunnar, sem gerð var með
leynd á Filippseyjum, hafði
reiknað það út, að Marcos
fjölskyldan græði nú um fimm
miljónir dollara á dag. Eða eins
. oglmelda Marcos, eiginkona for-
setanskomst að oröi: „Sumir eru
sniðugri en aðrir”.
Spámenn I Wall Street telja, að
ekkert sé liklegra, en það ástand
sem skapast hefur á Filippseyj-
um leiði til þess að annaðhvort
þjóðernissinnar, vinstrisinnar
eða herinn taki völdin i sinar
hendur. Þetta er nú allur stöðug-
leikinn, egir Manglapus.
Vitahringur
Greinarhöfundur vill bersýni-
lega, að Bandarikin beiti pólitisk-
um og efnahagslegum ráðum til
að koma Marcos frá, með það
fyrir augum að koma á borgara-
legri stjórn,sem sniði helstu van-
kantana af f jölskylduveldi
Marcosar án þess að til
meiriháttar átaka kæmi og þar
með án þess að andófið gegn
'einræðisherranum þróaðist, eftir
þvi sem valdakerfi hans rotnaði
innan frá, i viðtæka byltingar-
hreyfingu sem ekkert fengi leng-
ur stöðvað. Með öðrum orðum:
utanrikisráðherrann fyrrverandi
er aö hræða ráðamenn i Washing-
ton á þvi, að viðar geti þróunin
orðiðsvipuð og i Nicaragua undir
veldi Somoza.
En Bandarikjunum reynist I
felstum tilvikum ókleyft að
komast út úr þeim vitahring sem
stuðningur þeirra við einræðis-
herra kemur þeim i: þau munu
jafnan taka „stöðugleika” fram
yfir óvissu uppgjörs eftir spillt
einræði og þá sósialisku strauma
sem sliku uppgjöri einatt fylgja.
Það eiíía sem bandarisk stjórn-
völdhafa til þessa gert til að sýna
litillega vanþóknun sina á
Marcosi er að skera niður um
fimm miljónir dollara þá hern-
aðaraðstoð semMarcos fær i ár
(aðallega til að halda þegnum
sinum i skefjum). Hann heldur
samt 100 miljónum dollara I hern-
aðaraðstoð. Refsingin er innan1
við fimm prósent.
— áb.
Kaffi er
hættulegt
þunguðum
konum
Bandariska heilsugæslustofn-
unin Food and Drug Admini-
stration, hefur varað þungaðar
konur við að drekka kaffi. Til-
efnið er að kaffi og aðrir drykkir
sem innihalda kaffein geti skaðað
fóstur.
Talsmaður stof nunarinnar
tekur um leib fram, að ekki hafi
fundist óyggjandi sannanir fyrir
beinu sambandi milli kaffi-
drykkju og skaðlegra áhrifa á
fóstur. Og þess er heldur ekki
krafist að viðvörunarmerki verði
limd á kaffipakka eins og á siga-
rettupakka.
Astæðan fyrir þvi, að viðvörun
er engu að siður út gefin er sú, að
rannsóknir sýna ab kaffein sem
hefur verið gefið tilraunadýrum
meðan á þungun þeirra stendur
hefur valdið skemmdun á höfuð-
kúpum afkvæmanna, eða þau
hafa fæðstmeðklofinn góm, eða á
þau vantar tær.
Hitt er svo annað mál, að ef
að þunguðum konum væri gefið
kaffi i svipuðum mæli og til-
raunadýrunum, þá svarabi það til
þess, að þær drykkju 12-24 bolla af
sterku kaffi á dag.
Og þaö mun algengt, að konur
eins og finni það á sér, að kaffi er
þeim ekki hollt á meðgöngutim-
anum og dragi úr kaffiþambi þótt
þær hafi áður verið mestu kaffi-
konur. (DN)